Morgunblaðið - 07.02.1999, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Steingrímur
GRÝTTU
PÁFAEKRURNAR
PEKKT-
USTUvín
Rhone, hvort
sem er á ís-
landi eða ann-
ars staðar,
koma tví-
mælalaust frá
Chateauneuf-
de-Pape, litlu
þorpi á hæð á
vinstribakka
Rónar á milli
borganna
Orange og
Avignon.
Margt gefur Chateauneuf
sérstöðu. I fyrsta lagi jarðveg-
urinn, sem er blanda af kvarts-
steinum og sendnum, rauðum
leir. Ekki síst er þorpið þekkt
fyrir grjótið er þekur flestar
ekrurnar, stundum stórir og
myndarlegir hnullungar. Stein-
arnir hafa mikil áhrif á vín-
ræktina, þeir hitna á daginn og
halda hitanum í sér yfír nóttina
og mynda þar með eins konar
bökunarofn. Þetta er jafníramt
þurrasti hluti Cote de Rhone
svæðisins og sólarstundir eru
2.800 á ári, sem er svipað og í
Gigondas og Vacqueyras.
Nafn Chateauneuf-de-Pape
má rekja til fjórtándu aldar er
páfí hafði aðsetur í Avignon og
ákvað að dvelja á sumrin í
Chateauneuf. Þorpið gegndi
því svipuðu hlutverki og
Castelgandolfo fyrir utan Róm
gerir nú. Sjö páfar í röð höfðu
aðsetur í Chateauneuf og stuðl-
uðu þeh- jafhframt dyggilega
að uppbyggingu vínræktar.
Strangar reglur voru fljót-
lega mótaðar um vínrækt og
víngerð á þessu svæði og
Chateauneuf var að sumu leyti
fyrirmynd AOC-kerfisins
franska þegar að það var sett á
laggirnar.
Þess má geta að fyrsti páfínn
er hafði aðsetur í Chateauneuf
og hafði frumkvæði að bygg-
ingu hallarinnar var Clément
V. Hann var áður biskup í Bor-
deaux og gaf borginni vínekrur
sínar þar er hann gerðist páfí,
þær eru enn kenndar við hann,
Pape-Clément.
Chateauneuf nær yfir eina
3.200 hektara og ársframleiðsl-
an nemur 100 þúsund
hektólítrum að meðaltali.
Leyfílegt er að nota þrettán
þrúgutegundir þótt fæstir noti
þær allar. Helstu tegundirnar í
dag eru Grenache, Cinsault,
Mourvédre, Syrah, Muscai-din,
Counoise, Clairette og Bour-
boulenc. Grenache er yfirleitt
stærstur hluti blöndunnar, á
bilinu 40-60%, en sú þrúga gef-
ur mýkt og fágun. Nokkrir
framleiðendur nota einungis
Grenaehe og má nefna
Chapoutier og Rayas sem
dæmi, en vínin frá síðarnefnda
framleiðandanum eru þau eft-
irsóttustu á svæðinu. Ef vín-
viðurinn er gamall og upp-
skerumagnið lítið gefur
Grenache af sér stórfengleg
vín við réttar aðstæður líkt og í
Chateauneuf þótt yfírleitt sé
hún þekktari fyrir að vera
uppistaða einfaldra neysluvína
á borð við Cotes-de-Rhone.
Hver framleiðandi hefur sinn
stíl, sína blöndu, og þrúguíjöld-
inn gerir að verkum að menn
hafa mikið svigrúm til að þróa
persónulegan stíl. Það er því
vart hægt að tala um dæmi-
gerð Chateauneuf-vin. Al-
mennt má þó segja að þau séu
dökk og áfeng með flókinni
ilmkörfu, mjúkum ávöxtum,
leðri og lakkrís og þurfi að
minnsta kosti fímm ára
geymslu.
Þannig eru vín Perrin-fjöl-
skyldunnar, sem á Chateau
Beaucastel, eitt af virtustu vín-
húsum Chateauneuf, vín þar
sem Mourvédre gegnir ekki
minna hlutverki en Grenache.
Beaucastel-vínin eru í hinum
klassíska, þunga Chateauneuf-
stíl, vín er þurfa langan tíma til
að ná þroska. Engin ný eik,
engin síun, gamall vínviður, líf-
ræn ræktun og einstakur jarð-
vegur er uppskrift Perrin-
bræðra. „Til að gera vín sem
hægt er að drekka ung þarf
maður ekki annað en nútíma-
lega tækni,“ segir Francois
Perrin og hellir Beaucastel
1978 í glösin. „Þegar maður er
svo heppinn að hafa jarðveg
sem gefur þetta af sér þá ber
manni skylda til að vinna úr gg
því þó svo að vínin þurfi langa jV
geymslu. Við verndum hefðina, :
okkar vín eru vin tavdissant, j
seinþroska vín,“ segir hann og
SUNNUDAGUR 7. FEBRÚAR 1999 B 13
Rommí hefur gengið fyrir fullu húsi í Iðnó frá
frumsýningu í haust, en frá 12. febrúar verður sýningin sýnd
jöfnum höndum í Reykjavík og á Akureyri.
Tvö leikhús,
sama sýninqin- sömu leikarar.
Næstu sýningar:
ft«Hj I 1
mmmmm
Reykjavík fös 5/2 UPPSELT
Akureyri fim 11/2 fors. UPPSELT
Akureyri fös 12/2 frums. UPPSELT
Akureyri fös 19/2 örfá sæti laus
Akureyrí lau 20/2 kl. 14.00 örfá sæti laus
...... ----------/. 21.00 UPPSELT
Reykjavík sun 21/2 örfá sæti laus
Akureyri fim 25/2 laus sæti
Akureyri fös 26/2 örfá sæti laus
Reykjavík sun 28/2 laus
-r
-•
lénó - Reykj