Morgunblaðið - 08.11.1998, Qupperneq 1
REYNSLUAKSTUR A FIAT MULTIPLA -
CVT GÍRSKIPTINGINs FRAMTÍÐIN -
OFFRAMLEIÐSLA ÍEVRÓPSKUM BÍLAIÐNAÐI
Toyota í Evrópu
TOYOTA ætlar sér stóra hluti á Evrópu-
markaði á komandi árum. Framleiðsla
hefst á smábílnum Yaris í nýrri verksmiðju
í Valenciennes í Frakklandi en auk þess
hefur verið byggð hönnunarmiðstöð fjTir
Evrópuframleiðsluna á frönsku Ríveríunni.
Auk þess að geta framleitt 220 þúsund
Avensis og Corolla bíla í Derbyshii’e í
Englandi getur Toyota framleitt 150 þús-
und Yaris bíla í Frakklandi þegar verk-
smiðjan verður komin á fullan ski'ið árið
2001. Einnig ætlar Toyota að fjórfalda
vélaframleiðslu sína í Bretlandi og ráðger-
ir að framleiða
400 þúsund
vélar á
SUNNUDAGUR 8. NÓVEMBER
1998 BLAÐ
1
Daewoo Matiz
DAEWOO hefur kynnt nýjan smábíl sem
er að koma á markað í Evrópu. Bíllinn
heitir Matiz og fellur í flokk minnstu bíla
eins og VW Lupo og Fiat Seicento. Matiz
er 3,5 metra langur. Vélin er þriggja
strokka, 52 hestafla, afar sparaeytin og til-
valin í borgarsnatt. Benedikt Eyjólfsson
hjá Bílabúð Benna, umboðsaðila Daewoo,
kveðst hafa skoðað bílinn og litist vel á
hann. Hann sé þægöegur í akstri og gæti
hentað á markað hér. Engin ákvörðun
hefur samt verið tekin um innflutning á
66,5 % aukning frá 1997
í janúar-okt. 1997 Hlutfall í janúar-okt. 1998 Hlutfal! Breyting milli ára
1. Toyota Land Cruiser 300 19,0 % 1. SsangYong Musso 324 12,3 % +106%
2. Mitsubishi Pajero 280 17,7% 2. Toyota Land Cruiser 312 11,8% +4%
3. Suzuki Vitara 164 10,4% 3. Honda CR-V 247 9,4% +127%
4. SsangYong Musso 157 9,9% 4. Nissan Terrano II 246 9,3% +120%
5. Nissan Terrano II 112 7,1% 5. Mitsubishi Pajero 226 8,6% -19%
6. Honda CR-V 109 6,9% 6. Suzuki Vitara 212 8,0% +29%
7. Land Rover Discovery 77 4,9% 7. Galloper 202 7,7% - %
8. Toyota Rav 4 68 4,3% 8. Nissan Patrol 145 5,5% +303%
9. Daihatsu Terios 58 3,7% 9. Suzuki Grand Vitara 117 4,4% - %
10. Suzuki Sidekick 46 2,9% 10. Daihatsu Terios 113 4,3% +95%
Aðrar tegundir 311 19,6% Aðrar tegundir 490 18,6% +19%
SAMTALS: 1.582 100% SAMTALS: 2.634 100% 100%
66,5% aukning
í jeppasölu
MIKIL aukning hefur orðið í sölu á
jeppum og jepplingum síðustu tíu
mánuði ársins hér á landi í saman-
bm-ði við fyrstu tíu mánuði síðasta
árs. Aukningin er rúm 66%. 1.582 bíl-
ar seldust frá janúar til loka októ-
ber 1997 en á sama tíma á þessu
ári var salan 2.634 bílar.
Sex gerðir, sem eru nýj-
ar á þessum markaði, eiga
hlut í söluaukningunni.
Petta eru bílarnir Gall-
oper, Kia Grand Sporta-
ge, Land Rover
Freelander, Mercedes-
Benz M, Suzuki Grand
Vitara og Jimny.
Sjö tegundir skera sig
úr með mikilli sölu.
SangYong Musso er
söluhæsti jeppinn, 324 bílar, Toyota
Land Cruiser er í öðru sæti, 312 bíl-
ar, Nissan Terrano er í fjórða sæti,
246 bílar, og Mitsubishi Pajero í
fimmta sæti, 226 bílar. Mest seldi
jepplingurinn er Honda CR-V, 247
bílar.
Jepplingur
frá
Hyundai
BÍLAFRAMLEIÐENDUR kepp-
ast við að koma jepplingum eða
litlum jeppum á markaði enda
eftirspurnin mikil víðast hvar.
Nú þykir ljóst að Hyundai í Suð-
ur-Kóreu mun bætast í hóp
þeirra framleiðenda sem bjóða
upp á fjórhjóladrifmn bíl af
þessu tagi. Fyrir framleiðir
Hyundai
Starex sendi- og fjölnolabílinn
með fjórhjóladrifi en fyrir
skemmstu náðist mynd þegar
frumgerð Hyundai jepplings var
prófuð á Ítalíu.
Bfll af þessu tagi er einmitt
það sem vantað hefur í fram-
leiðslulínu Hyundai, en eins og
kunnugt er, framleiðir deild
innan fyrirtækisins Galloper
jeppann með sérstökum samn-
ingi við Mitsubishi. Jepplingur-
inn á að etja kappi við mikla
sölubfla í þessum flokki, þ.e.
Toyota RAV4 og Honda CR-V.
Búist er við að Hyundai kynni
bfliim, sem verður fernra dyra,
árið 2000.
Gísli Guðinundsson, forstjóri
Bifreiða og landbúnaðarvéla,
umboðsaðila Hyundai, segir að
sér lítist vel á þennan kost og
að bfllinn gæti hentað vel
á markaði hérlendis.
HYUNDAI jepplingur í dular-
klæðum á prófunarsvæði á Ítalíu.
VERÐUR Kia Sportage flutt inn af Bifreiðum og landbúnaðarvélum?
Hyundai býður
hæst í Kia
HYUNDAI var hæstbjóðandi í 51%
hlut í Kia Motors og Asia Motors,
dótturfyrirtæki Kia sem sérhæíh-
sig í framleiðslu vörubíla. Aðrir sem
buðu í fyrirtækið vora Ford Motors,
Daewoo Motor og Samsung Motor.
Ford á nú 16,9% hlut í Kia en sá
hlutur fer niður í 1,69% verði af
kaupum Hyundai á Kia.
Fyrh- hlutinn bauð Hyundai 880
milljónir dollara, að því er fram
kemur í bandaríska fagritinu Au-
tomotive News. Að öllu óbreyttu
verður gengið frá samningum um
kaupin í febrúar á næsta ári.
Sameinuð verða fyrirtækin 11.
stærsti bílaframleiðandi heims og
ársframleiðslan um 2,5 milljónir
bfla.
Chung Mong-Gyu, stjórnarfor-
maður Hyundai, segir að fyrirtækið
hyggist halda merkjunum tveimur
aðskildum líkt og Audi/VW en hann
sagði að framtíðin leiddi í ljós hvort
þróunin yrði sú að annað þeirra
sérhæfði sig í framleiðslu ódýiTa
bíla.
Gísli Guðmundsson, forstjóri
Bifreiða og landbúnaðarvéla, segir
að fréttir af þessum samningi séu
afar óljósar en sé það rétt sem fram
kemur í Automotive News að
Hyundai hafl tryggt sér meirihluta
í Kia geti það leitt til þess að B&L
hefji innflutning á Kia bílum á ný.
Áður hafði Hekla hf. umboð fyrh-
Kia og fyrirtækið þjónustar enn þá
bfla sem það hefur sett á markað
hérlendis.
„Við eram með fjögur umboð og
höfum mikið umleikis vegna þessa.
En ég held að jeppinn myndi falla
vel að okkai' línu, þ.e. Kia Sportage.
Ég held að það væri hins vegar ekki
skynsamlegt að flytja inn Kia fólks-
bflana í samkeppni við aðra fólksbfla
sem við flytjum inn. Það yrði bara til
að dreifa kröftunum," segir Gísli.
FIMM bflar eru eftir í vali evrópskra
bflablaðamanna um bíl ársins í Evr-
ópu 1999. Bílamir eru Peugeot 206,
Audi TT, Opel Astra, Volvo S80 og
Ford Focus. Síðastnefndi bfllinn var
nýlega valinn bíll ársins í Danmörku
og lenti Opel Astra þar í öðru sæti.
Dómnefnd er skipuð 55 blaða-
mönnum frá öllum helstu bfla-
blöðum og dagblöðum Evrópu.
Urslitin verða kunngjörð síðar í
mánuðinum.
29 bflar voru í upphaflega
pottinum en var síðan fækkað
niður í fimm. Margir telja að
Ford Focus sé líklegur til að
hampa titlinum sem getur skipt
sköpum fyrir sölu í Evrópu. I
fyrra var Alfa Romeo 156 kjör-
inn bfll ársins og Renault Méga-
ne Scénic árið þar á undan.
Valið stendur milli 5 bíla
AUDI TT.
FORD Focus.
Ford Focus hefur vakið mikla at-
hygli í fagritum um bíla. Jafnt er þar
talað um óvenjulegt útlit bílsins og
gæði. Audi TT var eiginlega senu-
þjófurinn á bflasýningunni í París í
byrjun október. Þetta gæti orðið
mikill tískubíll. Hann er smíðaður á
sama undirvagn og Audi A3 og VW
Golf. Hann er m.a. boðinn með
1,8 lítra forþjöppuvél, 180 hest-
afla. Opel Ástra er gerbreyttur
bfll og þykir hafa unnið veru-
lega á í gæðum. Peugeot 206 er
stærri en fyrirrennarinn 205 og
einn af glæsilegi-i smábflum á
markaði. Volvo S80 er tilraun
sænska framleiðandans til að
keppa við lúxusbíla frá
Mercedes-Benz og BMW. Hann
er sagðm- öruggasti bfll í heimi
og er hlaðinn tæknibúnaði
BÍLL ÁRSINS í EVRÓPU 1999