Morgunblaðið - 22.02.1998, Síða 13

Morgunblaðið - 22.02.1998, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. FEBRÚAR 1998 13 JjMargt fólk í Afríku fer allra sinna ferða fótgangandi og gervifætur geta veitt þvi mikinn hluta glataðrar starfsgetu aftur.W Pálfna Ásgeirsdóttir, yfirhjúkrunarfræðingur á spítala Alþjóða Hjálparsjóður Rauða kross íslands hlúir að fórnarlömbum jarðsprengna Á tuttugu mínútna fresti springur jarðsprengja og deyðir eða limlestir þann sem fyrir henni verður. Flestir eru almennir borgarar, konur og börn eru þriðjungur fórnarlambanna. Alþjóða Rauöi krossinn veitir þeim aðhlynningu og endurhæfingu, starfrækir gervilimaverkstæði, fræðir fólk um hættuna af þessu voðavopni og berst fyrir banni á framleiðslu og notkun þess. Rauði kross fslands tekur þátt í þessu starfi. Rauða krossins f Kenía. Örkuml á borð við það að missa fót eða handlegg dæma marga tit að lifa fátækt. Flestir þeirra sem örkumlast hafa í mesta lagi efni á ódýrum hækjum. Alþjóða Rauði krossinn sér fólki fyrir gervifótum því að kostnaðarlausu. Alþjóða Rauði krossinn hefur séð 70 þúsund fórnarlömbum jarðsprengna fyrir gervifótum og endurhæfingu á síðustu árum, framleitt 140 þúsund pör af hækjum og sjö þúsund hjólastóla. Það kostar um níu þúsund krónur að sjá manni fyrir gervifót sem dugir honum í fimm ár. Gervifótur sem kostar um níu þúsund krðnur gerir manni kteift að standa á eigin fótum á ný í fimm ár. Barn sem missir fót þarf á nýjum gervifæti að halda á sex mánaða fresti á meðan það er að vaxa úr grasi. jjStundum finnst mér ég hafa glatað öllu. Ég get ekki unnið lengur og ég á tveggja ára gamlan son. En brátt mun ég fá gervifót og verð að halda í vonina. W Rauði kross fslands leitar nú til íslendinga og býður þeim að gerast styrktarfélagar Hjálparsjóðs. Framlög þeirra á þessu ári munu renna óskipt til aðhlynningar og endurhæfingar fórnarlamba jarðsprengna. Rabha Hassa Assad Suydan, 21 árs, steig á jarðsprengju og missti hægri fótinn. Við getum gefið þeim nýja von! RAUÐI KROSS ISLANDS www.redcross.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.