Morgunblaðið - 11.02.1998, Qupperneq 50
50 MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 1998
MORGUNB LAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
STÚLKNASVEITIN All Saints vann til tvennra verðlauna.
SPICE Girls fengu aðeins ein verðlaun sem voru ákveðin fjórum diigurn fyrir hátíðina.
Bresku tónlistarverðlaunin
Björk vann til
verðlauna
GERI Halliwell fagnar verð-
launum Spice Girls.
JON BON Jovi var valinn besti
karlkyns söngvari.
BJÖRK Guðmundsdóttir
var valin besti kvenkyns
tónlistarmaður á alþjóða-
vettvangi þegar Brit-
verðlaunin, eftirsóttustu og
stærstu tónlistarverðlaun Breta,
voru afhent í fyrradag. Jon Bon
Jovi þótti besti tónlistarmaður á al-
þjóðavettvangi í karlaflokki. Besti
tónlistarmaður í Bretlandi í
kvennaflokki var valinn Shola Ama
og í karlaflokki var það nýliðinn
Finley Quaye.
Kryddpíurnar í Spice Girls
fengu sérstök verðlaun sem stofn-
að var til í flýti og var þannig forð-
að frá því að troða upp á hátíðinni
og fara svo tómhentar heim. Þær
voru aðeins tilnefndar fyrir besta
myndband, sem var við lagið
„Spice Up Your Life“. Það var hins
vegar stúlknahljómsveitin All
Saints sem vann í þeim flokki og
ekki bætti úr skák að AU Saints,
sem hafa það fyrir venju að rakka
niður Spice Girls, fengu einnig
verðlaun fyrir bestu smáskífu.
Þrátt fýrir að Spice Girls hefðu
komið fjórum lögum í efsta sæti
breska vinsældalistans í fyrra voru
þær ekki tilnefndar af dómnefndinni
sem er skipuð 600 áhrifamönnum úr
tónlistariðnaðinum. Var þessi sölu-
hæsta hljómsveit Bretlands í fyrra
því sniðgengin á hátíðinni.
Eftir að þær fluttu nýja lagið
„Stop“ var hins vegar komið til
móts við Kryddpíurnar og fengu
þær sérstök verðlaun fyrir góða
plötusölu um allan heim. Ef til vill
var það óánægja þeirra með dræm-
ar undirtektir á hátíðinni sem réð
því að þær kröfðust þess að þær
fengju að undirbúa sig fyrir atriði
sitt á hátíðinni fjarri öðrum
skemmtikröftum og fengju nokkur
herbergi á nálægu hóteli alveg fyr-
ir sig.
Hljómsveitin The Verve var sig-
urvegari kvöldsins og vann hún til
þrennra verðlauna. Hún var þó
fjarri góðu gamni því hún var að
leika á góðgerðartónleikum fyrir
heimilislausa í Brixton. The Verve
var valin besta hljómsveitin og
Urban Hymns besta breiðskífan.
Skutust þeir þar með fram fyrir
aðrar rómaðar sveitir á borð við
Oasis, The Prodigy, Texas og
Radio head.
Finley Quaye gaf út sína fyrstu
breiðskífu í fyrra og seldist hún í
rúmlega 250 þúsund eintökum.
Hann var kjörinn besti tónlistar-
maður í karlaflokki og bar þar með
sigurorð af Sir Elton John, Paul
Weller, Gary Barlow og Robbie
Williams.
Bestu nýliðar í bresku tónlistar-
lífí voru í hljómsveitinni Stereoph-
onics. Besta kvikmyndatónlist þótti
vera í myndinni „The Full Monty“
eða Með fullri reisn. Besta hljóm-
sveit á alþjóðavettvangi var U2 og
nýliði var hljómsveitin Eels. Ben
Elton var kynnir og tilkynnti hann
að Dusty Springfíeld væri með
krabbamein og gæti ekki komið á
hátíðina.
Candle in the Wind var ekki val-
in besta smáskífan, þótt hún sé
orðin söluhæsta smáskífa frá upp-
hafi í heiminum. Það var lagið
„Never Ever“ í flutningi stúlkn-
anna í All Saints sem sigraði í þeim
flokki. Þær segjast slá Spice Girls
við, enda semji þær sjálfar tónlist
sína. Þær hafa gagnrýnt Spice
Girls harðlega fyrir að auglýsa
pepsí og tönglast á hugtakinu „Girl
Power“ eins og páfagaukar. „Við
eigum aðeins eitt sameinlegt með
Spice Girls,“ sagði Melanie Blatt.
„Við erum með brjóst.“
Mel C úr Spice Girls sagði hins
vegar að þær ættu ekki í neinni
rimmu við All Saints. „Okkur lang-
ar aðeins til að lyfta með þeim
bjórglasi og skemmta okkur. Við
erum mjög hrifnar af lögunum
þeirra."
Radiohead, Oasis og Prodigy
létu ekki sjá sig á hátíðinni.
Fleetwood Mac var heiðruð fyrir
einstakt framlag til breskrar tón-
listar. Sir Elton John fékk verð-
laun Freddies Mercury fyrir ein-
stakt framlag til góðgerðarmála.
BJÖRK Guðmundsdóttir þótti besta söngkona á alþjóðavettvangi.
Hefurðu prófað
Engu lík...
og góð fyrir alla
i^ðTTIB FVfliR SLll
fcRpTTA
SAPA,
Utsölustaðir: Stórmarkaðir,
apótek, heilsuvöruverslanir og
íþróttamiðstöðvar um allt land.
Hellt úr ísfötu yfir Prescott
JOHN Prescott, aðstoðarforsætisráðherra
Breta, gagnrýndi harðlega Donbert Nobacon úr
hinni vinsælu rokksveit Chumbawamba eftir að
sá síðarnefndi hellti yfir hann úr ísfötu á af-
hendingu Brit-verðlaunanna. Kallaði hann upp-
ákomuna „fullkomlega fyrirlitlega kynningar-
brellu“.
Hljómsveitin hafði nýlokið við að flytja vin-
sælt lag „Tubthumping" þegar Nobacon stökk á
borð Prescotts og velti ísfötu svo Prescott varð
gegnblautur og Pauline, eiginkonu hans, var
mjög brugðið. Hún brast í grát.
Nobacon var dreginn burtu af öryggisvörðum
og Geri Halliwell úr Spice Girls flýtti sér að
borðinu til þess að hugga eiginkonu Prescotts.
Prescott neitaði að gefa út yfirlýsingu um hvort
hann hygðist höfða mál gegn Nobacon en for-
dæmdi uppákomuna og sagði hana „kynningar-
brellu sem ætlað væri að draga athygli að atriði
sveitarinnar".
„Hann er á þeirri skoðun að það sé fullkom-
lega fyrirlitlegt að eiginkona hans og aðrar
konur sem voru viðstaddar skyldu hafa þurft að
þola svona kveifarlega framkomu,“ sagði í yfír-
lýsingu frá skrifstofu hans. David sonur hans
sagði við fréttamenn: „Konurnar voru skelfingu
lostnar. John stóð upp þeim til varnar og ýtti
manninum af borðinu.“
Hljómsveitin Chumbawamba breytti textan-
um við lagið og beindi spjótum sinum að ríkis-
stjórn Verkamannaflokksins í Bretlandi. Boff,
gítarleikari sveitarinnar, sagði: „Við vitum al-
veg af því að þessi [tónlistarþðnaður er fyrir
neðan allar hellur. Ástæðan fyrir því að við er-
um í hljómsveit er ekki sú að okkur sé klappað
á bakið af iðnaðinum heldur sú að við höfum
boðskap og þurfum að koma honum á fram-
færi.“
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem „kynningar-
brellur" af þessu tagi líta dagsins ljós. Fyrir
tveimur árum stökk Jarvis Cocker upp á svið til
að mótmæla Michael Jackson og hljómsveitin
Oasis bölvaði keppinautum si'num þegar hún
tók við verðlaunum sínum.
Fyrir utan afhendinguna fóru fram hávær
mótmæli vegna „þrælavinnulauna“ verkamanna
f hlutastarfi hjá Polygram. Um tuttugu lög-
reglumenn flýttu sér til varnar þegar einn mót-
mælandinn stökk f átt að Cherie, eiginkonu
Tonys Blairs forsætisráðherra.