Morgunblaðið - 11.02.1998, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 1998 49
FÓLK í FRÉTTUM
FLUBBER
S K O P PA R
I BIO
I 3 „
—■*
FSBRÚAR
Þú hefur enn 4 daga
til að fá 7 króna afslátt
Nú geta bílstjórar ekið í sjöunda himni því ný ÓB bensínstöð hefur verið opnuð
við Snorrabraut, með 7 króna afslætti af öllu eldsneyti í 7 daga.
• 7. hver viðskiptavinur fær ókeypis bílþvott á þvottastöð
Olís við Skúlagötu*
• Minnislyklar fyrir pin-númerið og handhægur leiðarvísir
um notkun sjálfsalanna fyrir þá sem vilja*
• ÓB dagatalið, beint í veskið.*
• Aðstoð við notkun sjálfsalans á Snorrabraut*
* Glldir tílboösdagana 7. - 14. febrúar frá kl. 9:00-17:00.
03
ódýrt bensin
AArar ÓB stAAvan
► Starengi
í Grafarvogi
► Arnarsmári
í Kópavogi
► Fjarðarkaup
í Hafnarfirði
► Holtanesti
í Hafnarfirði
► Brúartorg
í Borgarnesi
Heimskustu konurnar
Jenny McCarthy
og Somers.
mmmsMnmE.
Sænsk
mynd
hlut-
skörpust
Gautaborg. Morgunblaöið.
Á MÁNUDAG lauk Kvikmyndahá-
tíðinni í Gautaborg, sem hófst hinn
30. janúar síðastliðinn. Islensku
myndirnar Perlur og svín og Stikk-
frí, fengu góðar móttökur og mátti
heyra skiptar skoðanir um þær
báðar meðal hátíðagesta. Stutt-
myndin Siggi Valli á mótorhjóli eft-
ir Böðvar Bjarka Pétursson var
einnig sýnd á hátíðinni.
Úrslit í keppni um titilinn „Besta
norræna myndin“ voru opinberuð á
laugardagskvöldið (7.2.) og sænska
myndin „Tick Tack“ reyndist þar
tvöfaldur sigurvegari. Áliti nor-
rænnar dómnefndar á vegum
Gautaborgarpóstsins og áhorfenda
bar saman að þessu sinni. Norska
myndin „Junk Mail“ eftir Pál
Sletaune var einnig ofarlega á vin-
sældarlista áhorfendadómnefndar.
Leikstjóri Tikk Takk er Daniel Al-
fredson, en handritið er eftir Hans
Renhall. Myndatöku sá Peter
Mokrosinski um en framleiðandi er
Katinka Faragó.
Daniel er sjálflærður leikstjóri,
hefur meðal annars unnið að löik-
myndagerð með fóður sínum, Hans
Alfredsson, og leikstýrt röð af
sjónvaijismyndum á undanfomum
árum. I Tikk Takk eru örlög ólíkra
persóna ofín saman í einn vef á sól-
arhring. „Eins konar saga um sið-
ferði...“ segir leikstjórinn sem læt-
ur uppi að takmarkið hafi verið að
segja frá Svíþjóð dagsins í dag.
Myndin var auk áðurnefndra verð-
launa heiðruð með sænsku gagn-
rýnendaverðlaununum meðan á
hátíðinni stóð.
Fjögurra daga pallborðsumræð-
ur um stöðu listrænnar kvik-
myndagerðar voru þáttur hátíðar-
innar og stóðu þær frá miðvikudegi
til laugardags. íslensku kvik-
KVIKMYNDIN Perlur og svín var meðal þriggja íslenskra mynda sem
sýndar voru í Gautaborg.
► ÞÆTTIRNIR „The Jenny
McCarthy Show“ voru teknir
af dagskrá á MTV-sjónvarps-
stöðinni eftir stutta göngu, en
Jenny McCarthy er ekki af
baki dottin. Leikkonan íhugar
nú að taka að sér annað aðal-
hlutverkið í kvikmyndinni
„The Dumbheads" á móti
Suzanne Somers.
I þáttunum léku þær mæðg-
ur og var Somers í hlutverki
Chrissy Snow úr þáttunum
„Three’s Company". „Okkur
Jenny fannst þetta svo
skemmtilegt að ég bjó til drög
að gerð kvikmyndar," segir
myndagerðarfólki til heiðurs má
nefna að þegar einn af alþjóðlegri
gestum hátíðarinnar Wim Wend-
ers forfallaðist, þótti enginn annar
en Friðrik Þór Friðriksson bæri-
legur staðgengill og var honum því
falið að halda framsöguerindi í stað
prófessors Wenders í umræðum
um stöðu listrænna kvikmynda í
gróðahyggjukerfi. Af öðrum fram-
sögumönnum má nefna Nik
Powell, formann Evrópsku Kvik-
myndaakademíunnar, og Krzysztof
Piesiewicz frá Varsjá, sem skrifaði
m.a. handritin að Bláum, Hvítum
og Rauðum ásamt nafna sínum
Kieslowski.
Á blaðamannafundi á sunnudag
kom fram að aðsókn virtist svipuð
og í fyrra, á annað hundrað þúsund
seldir miðar. Á sama fundi voru
kynnt samvinnulög milli Kvik-
myndahátíðarinnar í Gautaborg og
Sænsku kvikmyndastofnunarinnar
(Svenska Filminstitutet), sem
styrkir hátíðina með 950 þúsund
sænskum krónum i ár, en á móti
skuldbindur Gautaborgarhátíðin
sig til að kynna innlenda kvik-
myndaframleiðslu eftir settum
reglum.
Samkvæmt túlkun Gunnar
Somers. Hugmyndin snýst um
ævintýri „tveggja heimskustu
kvenna á yfirborði jarðar“, að
sögn Somers.
„Við erum hrifin af hug-
myndinni,“ segir Ray Manz-
ella, umboðsmaður McCarthy,
í viðtali við Entertainment
Weekly. „En hún
er ennþá á
umræðu-
stigi.“
Bergdal, framkvæmdastjóra hátíð-
arinnar, felur samningurinn í sér
þá viðurkenningu að Gautaborgar-
hátíðin þyki best til þess fallin að
vera stökkpallur út á alþjóðamark-
aðinn og um leið séu úr sögunni
vangaveltur íyrri ára um að
stærsta norræna hátíðin væri bet-
ur sett í Stokkhólmi.
Að þessu sinni var hátíðin fram-
lengd um einn dag og glæný heim-
ildarmynd um Bertolt Brecht
frumsýnd að kvöldi ellefta dags í
tilefni þess að 10. febrúar eru
hundrað ár liðin frá fæðingu hins
sögulega meistara epíska leikhúss-
ins.
t(SE«ií