Morgunblaðið - 11.02.1998, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 1998 47
FOLK I FRETTUM
Vísmdakvikmyndir og
aðrar ævintýrasögur
HLÍN er 25 ára og
auk þess að vera
myndlistarmaður er
hún hljómsveitarmeð-
limur í Mjólkc, rekur
gallerí Gúlp! og er á
leiðinni til Grikklands þar sem allir
hlutir eru skrítnir.
„The Man who Mistook
his Wife for a Hat“
eftir Oliver Sacks
„Þessi bók er alveg meiriháttar.
Þar er Oliver, sem er taugasér-
fræðingur, að tala um þau marg-
víslegu tilfelli sem hann hefur rek-
ist á í gegnum starf sitt. Þetta eru
ótrúlegar ævintýrasögur, t.d. um
fólk sem skilur ekki málróm en
verður þess í stað að hengja sig á
orðin ber. Sacks segir frá því að
eitt sinn kom hann á sjúkradeild-
ina, taugasjúklingarnir sátu fyrir
framan sjónvarpið og hlátrasköllin
bárust um alla stofnunina. Þeir
voru að horfa á Regan flytja eina
af sínum heillandi ræðum, en án
málrómsins og raddbeitingarinnar
hljómaði ræðan gjörsamlega fá-
ránlega. Svo
er það sag-
I HAVEGUM
hjá Hlín
Gylfadóttur mynd-
listarmanni
an um mannmn sem
hélt að konan sín væri
hatturinn sinn og
reyndi að taka í höfuð
hennar og setja það á
sitt eigið. Ef t.d ein-
hver kom í heimsókn gat hann allt
eins gengið að stofuklukkunni og
ætlað að taka í höndina á henni.
Hann sá alla hluti algjörlega hlut-
laust og allt var abstrakt í hans
huga.“
„The Fantastic Voyage"
eftir Richard Fleischer
„Ég get ekki orða bundist yfir
því hve frábær þessi kvikmynd er,
en hún var gerð um 1960. Hún
fjallar um hvernig bjarga verður
lífi mikilvægasta vísindamanns á
jörðinni sem þjáist af blóðtappa
eða einhverju slíku. Skurðaðgerð
er óframkvæmanleg því tappinn er
í heilanum og því verður að senda
fjögurra manna leiðangur inn í
hann. Eins konar kafbátur er
gerður og minnkaður í agnarögn
með öllu innanborðs og svo er leið-
angursmönnum
sprautað í æð
ásamt skipinu
sínu. Þeir
lenda í
rosalegum ævintýrum innan um
vefi líkamans, blóðkorn sullast
framhjá og þau villast um fjölmörg
líffæri í þeirri frábærustu leik-
mynd sem ég hef séð. Allt bleikt
og appelsínugult."
„Mars Attacks"
eftir Tim Burton
„Svona til að halda mig í vísinda-
deildinni má ég til með að mæla
með myndinni Mars Attacks. Það
er frábærlega fyndin mynd sem
slær á alla rómantík um „góðu
geimveruna" og elur í stað þess á
ótta okkar um háþróuð skrímsli án
nokkurs skiljanlegs tilgangs. I
þessari mynd er óspart gert grín
að hinum auðtrúa og einfalda
manni sem heldur að allir séu góð-
ir innvið beinið. Það er farin ótrú-
lega einföld leið í þeim staðlaða
framtíðarskáldskap sem tilheyrir
öllum geimmyndum. Klisjur fá að
njóta sín til hins ýtrasta í þessari
bráðíyndnu mynd þar sem litlir
gi-ænh' karlar leika aðalhlutverk-
ið.“
„Logan’s Run“
eftir Michael Anderson
„Þessi frábæra mynd er frá
1976. Hún gerist um 2400 og er um
Morgunblaðið/Ásdís
HLÍN er myndlistarmaður og tekur sérstaklega eftir leikmyndum í
kvikmyndum.
manngerðan heim inni í einskonar
skel því mannkynið getur ekki
lengur lifað á jörðinni sökum
mengunnar. Þess vegna býr fólkið
í umhverfi eins og er í Kringlunni
sem er náttúrulega ferlega fyndið.
Allt er tölvustýrt og hátæknilegt
og það er móðurtölva sem stjómar
öllu ríkinu og hun hefur seiðandi
kvenmannsrödd. Svo eru allir í
einlitum fötum sem er dæmi um þá
fallegu einföldun sem er í þessari
mynd. Þetta er alveg frábær mynd
sérstaklega þegar maður hefur
það í huga að á sínum tíma fékk
hún Óskarinn fyrir tæknibrellur!
Módelin sem notuð em til að sýna
heildarmynd af samfélaginu í
„Kringlunni" era hrein listasmíði
það sem eldspýtustokkar era lík-
lega aðaluppistaðan.“
AÐSOKN
laríkjunum
Tltill Síðasta vika Alls
l.r?/ Titanic 1.656 m.kr. 23,0 m.$ 337,4 m.$
2. (-.) The Replacement Killers 576 m.kr. 8,0 m.$ 8,0 m.$
3. (3.) Good Will Hunting 492 m.kr. 6,8 m.$ 68,3 m.$
4. (-.) Blues Brothers 2000 441 m.kr. 6,1 m.$ 6,1 m.$
5. (2.) Great Expectations 382m.kr. 5,3 m.$ 17,1 m.$
6. (5.) As Good As It Gets 362 m.kr. 5,0 m.$ 92,3 m.$
7.(4.) Spice World 289m.kr. 4,0 m.$ 23,7 m.$
8. (7.) Wag the Dog 243 m.kr. 3,4 m.$ 33,8 m.$
9. (6.) Desperate Measures 216 m.kr. 3,0 m.$ 10,2 m.$
10. (8.) Deep Rising 181 m.kr. 2,5 m.$ 8,4 m.$
Lagenmál eru okkar sérgrein
Bjóðum allskonar lager- og hillukerfi
fyrir vélvædd vörugeymsluhús
sem minni lagera.
Innkeyrslurekkar sem rúllurekkar.
Aðeins vönduð vara
úr sænsku gæðastáli.
Mjög gott verð.
Bjóðum einnig sérhæfð lyftitæki.
Leitið ráða við skipulagningu
og byggingu lagerrýma.
Þjonusta - þekking - raögjul. Aratuga reynsla.
UMBOÐS- OG HEILD VERSL UN
SUNDABORG 1. RVK • SÍMI 568 3300 • FAX568 3305
► EKKERT lát virðist vera á vin-
sældum kvikmyndarinnar Titanic.
Hún hefur trónað í efsta sæti að-
sóknarmestu kvikmynda í Banda-
rfkjunum átta vikur í röð og er
orðin fjórða aðsóknarmesta kvik-
mynd sögunnar í Bandaríkjunum.
Um helgina halaði hún inn rúm-
ar 23 milljónir dollara og alls eru
tekjurnar orðnar rúmar 337 millj-
ónir siðan hún var frumsýnd 19.
desember. Hún er komin upp fyr-
ir Forrest Gump. Stjörnustríð er
vinsælasta kvikmynd frá upphafi í
Bandaríkjunum og halaði hún inn
samtals 461 milljón.
í öðru sæti varð hasarmyndin
„Tlie Replacement Killers" með
Chow Yun-Fat og Miru Sorvino.
Aðsóknin á Titanic var þó næstum
því þrisvar sinnum meiri. Aðeins
ein önnur mynd fékk svokallaða
„víðdreifíngu" eða stóra framsýn-
ingu í Bandaríkjunum og var það
„Blúsbræður 2000“. Hafnaði hún í
fjórða sæti.
BLÚSBRÆÐURNIR John
Good • man og Dan Aykroyd.
Ökklaskór
Vcrd: £.995,-
Tcg. 434 ♦ Svartir
Stærðir: 36-41
Ioppskórinn
V/INGÓLFSTORG SÍMI: 552 1212
*
:
H
1
%
t
Þreytt(ur) á gömlu þungu bílskúrshurðinni?
Nú er rétti tíminn til
að panta nýja, létta,
einangraða stálhurð
frá Raynor
p —| □
I •
LJ i
n
VERKVER
Smiðjuvegi 4b, Kópovogi
•s 567 6620
Raynor bílskúrshurðaopnarar Verðdæmi: Fulningahurð 229 x 244 cm kf. 61 «490/". Innifalið í verði eru brautir og þéttili$tar.