Morgunblaðið - 11.02.1998, Side 2
2 MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 1998
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Fornbíll
í árekstri
MIKLAR umferðartafir urðu á
Miklubraut eftir hádegi í gær
vegna áreksturs sem varð á mót-
um Grensásvegar og Miklubraut-
ar. Þar lentu saman bandarískur
forabfll og sendibfll. Engin slys
urðu á mönnum en fornbfllinn
skemmdist talsvert.
Framkvæmdaslj óri
hijóðvarps
Margrét
hlaut flest
atkvæði
MARGRÉT Oddsdóttir, deildar-
stjóri menningarmála Ríkisútvarps-
ins, hlaut 4 atkvæði þegar útvarps-
ráð fjallaði um umsóknir um starf
framkvæmdastjóra hljóðvarps.
Halldóra Ingvadóttir, skrifstofu-
stjóri á skrifstofu útvarpsstjóra,
hlaut þrjú atkvæði. Umsögn út-
varpsráðs hefur verið send mennta-
málaráðherra, sem skipar í stöðuna.
Olíumengun á Þing-
völlum rannsökuð
HEILBRIGÐISEFTIRLIT Suður-
lands hefur sent Þingvallanefnd er-
indi vegna ummerkja um olíumeng-
un við Flosagjá og Öxarárfoss á
Þingvöllum sem uppgötvaðist í lok
janúar. Talið er að mengunin stafi
af óhappi við tökur á kvikmyndinni
Myrkrahöfðingjanum og er málið í
höndum lögreglu í Reykjavík.
Eftir að hafa fengið ábendingar
um olíumengun á Þingvöllum fóru
fulltrúi Heilbrigðiseftirlits Suður-
lands og lögreglumenn frá Selfossi
til að kanna málið 30. janúar síðast-
liðinn, en daginn áður höfðu farið
fram á þessum stöðum upptökur
vegna áðumefndrar kvikmyndar.
Olíubrák í Flosagjá
Matthías Garðarsson, fram-
kvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits-
ins, segir að loknum samtölum við
lögreglu, þjóðgarðsvörð á Þingvöll-
um, Hollustuvernd ríkisins og fleiri
aðila hafi verið ákveðið að ræða við
fyrirtæki í Reykjavík sem annast
uppdælingu spilliefna á borð við
olíu. Þá hafi verið staðfest að
óhapp hafi orðið á Þingvöllum dag-
inn áður og viðkomandi fyrirtæki
verið beðið að því búnu að annast
hreinsun.
„Eftir að hafa fengið þetta stað-
fest könnuðum við verksummerki
og fundum olíubrák í Flosagjá og
ennfremur í jarðvegi þar í kring og
við Öxarárfoss. Flest bendir til að
einhverjir tugir lítra hafi lekið nið-
ur. Eðlilega urðu menn undrandi á
að þarna væri verið að fara með
olíu. Skömmu síðar var haft sam-
band frá framleiðslufyrirtæki kvik-
myndarinnar og sagt að olían hefði
lekið af dísilbíl. Um afar stóran bíl
hlýtur að hafa verið að ræða,“ segir
Matthías.
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands
óskaði þess í kjölfarið að málið yrði
rannsakað og segir hann að lögregl-
an á Selfossi hafi farið fram á það
við embætti lögreglunnar í Reykja-
vík að fá nánari skýringar hjá kvik-
myndafyrirtækinu og íyrirtækinu
sem annaðist hreinsun olíunnar.
„Við teljum að tjónið sé ekki var-
anlegt en það er áhyggjuefni ef
menn eru að fara með olíu inn í
þjóðgarðinn. Þingvallanefnd þarf að
vera mjög á varðbergi og sömuleiðis
þjóðgarðsvörður í þessu sambandi,
hver svo sem skýringin á þessu til-
tekna atviki er,“ segir hann.
Bent á tilkynningaskyldu
í bréfi embættisins til Þingvalla-
nefndar frá 5. maí síðastliðnum er
m.a. vakin athygli á olíumenguninni,
bent á tilkynningaskyldu vegna
slíkra óhappa og að gefnu tilefni að
æskilegt sé að geta haft samskipti
við og aflað upplýsinga frá þjóð-
garðsverði í því sambandi.
Landlæknir um
gjöld spftala
Fólk frest-
ar að leita
læknis
ÓLAFUR Ólafsson landlæknir
segir að rannsókn Félags heil-
brigðisstétta sýni að allt að 10.
hver karl og 5. hver kona hafi
orðið að fresta eða hætta við
að leita til læknis vegna fjár-
skorts á síðasta ári. Tæplega
þriðjungur tekjulægstu bama-
fjölskyldna í landinu hafi
einnig hætt við að leita læknis
árið 1996. „Þessa hefur ekki
orðið vart fyrr í minni 25 ára
embættistíð," segir landlæknir
í framhaldi af umræðum í
stjóm Ríkisspítalanna um auk-
in þjónustugjöld.
Landlæknir segir að þennan
hóp íylli helst fólk á aldrinum
20-29 ára. Bæði sé þar um að
ræða barnafólk og einstæðar
mæður, þ.e. yngsta fjölskyldu-
fólkið með yngstu börnin og
aðra sem búa við lágar tekjur
vegna vanheilsu og af öðrum
ástæðum. Landlæknir segir að
þessar kannanir gefi til kynna
að fólk dragi eða hætti við
læknisheimsóknir bæði vegna
eigin heilsubrests og vanheilsu
barnanna.
Rjúfa jöfnuð þegnanna
Ólafur segir að þjónustu-
gjöld í heilbrigðiskerfinu hafi
þegar valdið því að dregið hef-
ur úr áratuga jafnræði í að-
gengi sjúklinga til heilbrigðis-
þjónustunnar. Nú séu uppi
hugmyndir um þjónustugjöld
á sjúkrahúsum. „Þjónustu-
gjöld rjúfa þann jöfnuð sem
ríkt hefur um aðgengi að
bráðaþjónustu á sjúkrahúsum
og eru brot á lögum um heil-
brigðisþjónustu og koma verst
niður á þeim sem leita mest til
heilbrigðisþjónustunnar og
minnst hafa efnin,“ segir land-
læknir. „Þjónustugjöld hækka
yfirleitt þegar fram líða stund-
ir og falla ekki niður eins og
sagan sýnir okkur. Jafnræði í
aðgengi raskast meir.“
I samtali við Morgunblaðið
sagði Ólafur Ólafsson, að í ljósi
vaxandi gagnrýni á þjónustu-
gjöld hafi Skandinavar, m.a.
Svíar, leitt í lög að fólk undir
18 ára skuli eiga rétt á ókeypis
læknishjálp. „Ég get tekið
undir það,“ sagði Ólafur.
Sjálfstæðismenn
á Akureyri
Kristján Þór
í efsta sæti
FULLTRÚARÁÐ Sjálfstæðisfé-
laganna á Akureyri samþykkti
samhljóða á fundi sínum í gær-
kvöldi tillögu kjörnefndar um
skipan framboðslista Sjálfstæðis-
flokksins við bæjarstjórnarkosn-
ingar á Akureyri í vor.
Listann skipa eftirtaldir: 1.
Kristján Þór Júlíusson, 2. Val-
gerður Hrólfsdóttir, 3. Þórarinn
B. Jónsson, 4. Sigurður J. Sig-
urðsson, 5. Vilborg Gunnarsdótt-
ir, 6. Þóra Ákadóttir, 7. Stein-
grímur Birgisson, 8. Páll Tómas-
son, 9. Guðmundur Jóhannsson,
10. Sunna Borg, 11. Jóhanna H.
Ragnarsdóttir, 12. Sveinn Heiðar
Jónsson, 13. Eygló Birgisdóttir,
14. Sverrir Ragnarsson, 15.
Haukur Grettisson, 16. Dórothea
J. Eyland, 17. Valur Knútsson,
18. Nanna Þórsdóttir, 19. Ómar
Halldórsson, 20. Anna Björg
Björnsdóttir, 21. Jónatan Ólafs-
son og 22. Sigurður Hannesson.
Kristján Þór Júlíusson er jafn-
framt bæjarstjóraefni.
>
Qsamkomulag um uppstillingu A-flokkanna í Hafnarfírði
Ekki verður lagður fram
sameiginlegur listi
EKKI náðist samkomulag í kjörnefnd og bráða-
birgðastjórn Alþýðuflokks og Alþýðubandalags í
Hafnarfirði á fundi seint í fyrrakvöld um tillögu
um uppröðun á sameiginlegan fi’amboðslista
vegna bæjarstjórnarkosninganna í vor. Leggja
átti listann fyrir fundi í fulltrúaráði Alþýðu-
flokksfélaganna í Hafnarfirði og í Alþýðubanda-
lagsfélagi Hafnarfjarðar í kvöld.
I fréttatilkynningu frá kjömefndinni í gær
segir að hún muni ekki leggja fram tillögu um
sameiginlegan lista fyrir flokkana og sú niður-
staða hafi verið kynnt bráðabirgðastjórn A-
flokkanna. Akvörðun um framhald á samstarfi
A-flokkanna verði tekin fyrir á fundum þeirra í
kvöld.
Ágreiningur meðal alþýðuflokksmanna
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins lá fyr-
ir tillaga um framboðslista og samkomulag hafði
náðst um skiptingu framboðssæta milli flokk-
anna en ágreiningur var innan Alþýðuflokks um
fulltrúa flokksins á listanum og treysti bráða-
birgðastjórn flokkanna sér ekki til að leggja til-
löguna fyrir flokkana í kvöld.
Flokkarnir gerðu fyrir nokkru með sér
rammasamkomulag þar sem kjömefnd flokk-
anna var falið að leggja fram sameiginlegan
framboðslista og sérstök bráðabirgðastjórn átti
að skipuleggja málefnavinnu og leggja fram
drög að samkomulagi fyrir stofnanir flokkanna.
Gestur G. Gestsson, formaður fulltrúaráðs Al-
þýðuflokksfélaganna í Hafnarfirði, segir að það
sé nú á valdi flokkanna að ákveða hvert fram-
haldið verði. Lúðvík Geirsson, bæjarfulltrái Al-
þýðubandalags, tók í sama streng og sagði að
það kæmi í ljós á félagsfundum í kvöld hver
staða mála væri. Gestur segir að þessi niður-
staða þurfi ekki að hafa í fór með sér að áform
um sameiginlegan framboðslista flokkanna séu
endanlega úr sögunni.
Ólíkir að upplagi og vinnubrögðum
Gestur sagði að málefnavinna flokkanna hefði
gengið vel þótt kjörnefndin hefði ekki treyst sér
til að setja saman framboðslista samkvæmt þeim
vinnureglum sem henni voru settar.
Aðspurðm- hvort þessi niðurstaða væri ekki
áfall fyrir hugmyndir um sameiginlegt framboð
þessara tveggja flokka í sveitarstjórnakosning-
um í vor sagði hann svo ekki vera. „Það getur
verið skynsamlegt að taka hlutina í skrefum.
Hér í Hafnarfirði er óvanalegt mynstur, þar sem
annar flokkurinn er mjög stór en hinn lítill,
þannig að það þarf ekki að vera óeðlilegt þótt
þetta taki lengri tíma í Hafnarfirði en annars
staðar. Flokkarnir eru líka ólíkir að upplagi og
vinnubrögðum. Sem dæmi um það má nefna að
annar flokkurinn hefur allt frá 1978 viðhaft stór
og opin prófkjör en hinn flokkurinn hefur stillt
upp. Þaraa eru því tveir ólíkir heimar að mæt-
ast,“ segir Gestur.
Samkvæmt heimildum blaðsins er nú allt eins
reiknað með að flokkarnir muni bjóða fram hvor
í sínu lagi og má reikna með að lögð verði fram
tillaga um prófkjör á fundi fulltráaráðs Alþýðu-
flokksins í kvöld.