Morgunblaðið - 23.01.1998, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 23.01.1998, Qupperneq 1
■ TEXASBÚI í ÍSLENSKUNÁMI Á YRKINU/2 ■ FATAVERSLUN ÞAR SEM FÓLK SKEMMTIR SÉR/3 ■ VINAMINNI ER HÚS MEÐ FÁHEYRÐA SÖGU/4 ■ OFURKONAN ER AÐFRAMKOMIN AF ÞREYTU OG STREITU/6 ■ Sakleysið endurvakið með fléttum mais- HVERN hefði órað fyrir þvi að Lára litla Ingalls, hoppandi og skoppandi heim í húsið sitt á sléttunni, yrði tískujöfr- unum fyrirmynd? Varla nokkurn mann þar til það gerðist að flétturnar þeirra Láru, Línu, Alpa- stelpunnar Heiðu og stjörnustríðsprinsessunnar Leiu, komu aftur til þess að vera. Um stund. Helgarútgáfa The Sunckty Times, sumsé Style, gerir sér mat úr endurkomunni og vitnar í hina og þessa hönnuði, máli sínu til stuðnings. Gaultier botnaði vortískufötin sín til dæmis nýverið með túperuðum fléttum sem snúið var í einhvers konar kórónu eða þá að hárið vafði sig líkt og snákur um höfuð fyrirsætunnar. Marsbúi eða maísstöngull? Útgangspunkturinn á vortísku- sýningu Galliano var lausar fléttur að hætti gaulverjans Ástríks, Vi- vienne Westwood dreifði litlum vafningum hér og þar um höfuðið með vísan í endurreisnartímabilið og Antonio Berardi brá hári sinna stúlkna í raðir kenndar við maís á stöngli, með skírskotun í táldrottn- inguna Bo Derek sem dáleiddi Du- dley Moore og marga fleiri í kvik- myndinni Tíu. Sam McKnight hárgreiðslumeist- ari fræga fólksins og ofurfyrirsæt- anna ber hluta sak- arinnar, en leggur áherslu á að endur- reisn fléttunnar sé Harpa Hlíf Bárðardóttir fléttudrottning. wood og Berardi og rekur samþættu lokkana sína að % LÁRA litla Ingalls með pabba Ingalls. Fléttur eru ungur, óformlegar, gam- ansumur og stund- um kynþokkafullar tveimur ólíkum uppsprettum. „Til- gangurinn hjá Westwood var sá að vekja hughrif end- urreisnartískunnar í bland við búsetu á Mars. Hjá Berardi var forsendan sum- ekki samantekin ráð. McRnight greiddi stúlkum á sýningum West- arleyfí ungra, hvítra stúlkna við Karíbahaf, sem gjarnan snúa til baka með stönglafléttur í hárinu að hætti innfæddra. Út- koman er kynþokkafull, í senn áleitin og hrjúf,“ segir hann. En ekki er allt upptalið því skoska fyrirsætan Kirsty Hume fékk nefndan McKnight til þess að laga hár sitt þegar hún giftist Donovan sínum Leitch í árslok 1997. Hume var með keltneska kórónu á höfði og því lá beinast við að snúa hár hennar í tvær lausar fléttur niður á bringu. Poppdrottn- ingarnar hafa ekki verið seinar að taka við sér, svo sem kryddpían óguriega Mel B, sem mætti til frumsýningar á Spiceworld með með heila sátu af fléttuðum lokk- um á kollinum. Það má loks nefna til viðvörunar að hár að hætti Línu langsokks fer ekki öllum jafn vel. „Fléttur heyra æskunni til. Þær eiga lítið skylt við formlegheit og eru meira til gam- ans þótt kynþokki þeirra sé óum- deildur," segir McKnight loks. si; nn: UÍ& -tr<, lirí .Sy -m -Jy -ni'. -en ðe Jtö -dr HEKLA meiríþœgindi-meiri íburður-meiri gœði! t MtTSUBISHI iMiklwtl TtnttOM !

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.