Morgunblaðið - 05.07.1997, Side 17

Morgunblaðið - 05.07.1997, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 1997 17 Jeltsín segir efnahags- ástand á batavegi Moskva. Reuter. Reuter Hermenn á varðbergi í Tirana BORIS Jeltsín, forseti Rússlands, sagði í útvarpsávarpi til rússnesku þjóðarinnar í gær að efnahagur landsins væri nú loks á batavegi eftir áralanga hnignun. „Nú er stundin runnin upp“, sagði hann í ræðu sinni. „Við höfum náð þeim áfanga að skilyrði eru fyrir auk- inni framleiðni. Niðursveiflan hef- ur verið stöðvuð." Forsetinn flutti ávarpið í tilefni þess að eitt ár er liðið frá endur- Jospin sakaður um hræsni París. Reuter. ÞINGMENN frönsku stjórnarandstöðunnar og hinna áhrifamiklu stéttarfé- laga í landinu létu í gær í ljósi áhyggjur af varfæmi forsæt- isráðherrans, Lionels Jospins, í lykilákvörðunum í efnahags- málum. Leiðtogar stéttarfé- laganna hrósuðu þó markmið- um forsætisráðherrans. í kjölfar fundar Jospins í sjónvarpssal, þeim fyrsta frá því hann tók við embætti fyr- ir mánuði, ásökuðu hægri- sinnaðir þingmenn hann um hræsni fyrir að kenna fyrrver- andi ríkisstjórn íhaldsmanna um fjárhagsvanda ríkisins, og hvernig hann brást við um- deildri lokun samsetningar- verksmiðju franska bílafram- leiðandans Renault í Belgíu. Helstu leiðtogar stéttarfé- laga hvöttu forsætisráðherr- ann til að ganga beint til verks og efna kosningaloforð, sem kynnu að reynast kostnaðar- söm, um að skapa 700 þúsund ný störf og stytta vinnuvikuna úr 39 stundum í 35 án launa- lækkunar. Á sjónvarpsfundinum lagði Jospin áherslu á gagnsemi og þolinmæði og hafnaði hug- myndafræði. ítrekaði hann heit sitt um að stuðla að því að sameiginleg Evrópumynt verði að veruleika um leið og tekist væri á við fjárlagahalla, reynt að berjast gegn at- vinnuleysi. öll í einu, en skilin [milli hinna reiðu- búnu og hinna sem eru það ekki] ættu að fara fram sama dag,“ sagði Juncker. Takmarkaður árangur Amsterdam-fundar til trafala Hinn takmarkaði árangur sem náðist á leiðtogafundi ESB í Amster- dam um miðjan júni, þar sem leiðtog- unum mistókst að koma sér saman um endurbætur sem dygðu til að halda sambandinu starfhæfu með allt að heilli tylft nýrra aðildarríkja, torveldar stækkun sambandsins til allra landanna í einu. Að mati sér- fræðilegrar könnunar sem Lúxem- borg stóð fyrir geta í mesta lagi fímm ríki bætzt í hópinn án þess að grípa þyrfti til meiri háttar breytinga á uppbyggingu og starfsháttum stofn- ana sambandsins. Pólland, Ungveijaland og Tékk- land eru þau þijú ríki sem lengi hafa verið álitin líklegust til fá fyrst aðiid, en Slóvenía og Eistland þykja eiga skammt eftir til að uppfylla skilyrð- in. Kýpur, sem hefur beðið í biðröð- inni eftir ESB-aðild árum saman, er almennt talin geta hlotið aðild um leið og tekizt hefur að finna lausn á skiptingu eyjarinnar. kjöri hans í embætti. Hann skýrði ekki nánar hvenær efnahagsbat- ans færi að gæta eða hvað hann yrði mikill, en tók fram að almenn- ingur myndi ekki finna fyrir áhrif- unum undir eins. Forsætisráðherr- ann Viktor Tsjernómyrdín tilkynnti á miðvikudag að verg landsfram- leiðsla hefði aukist um eitt prósent á fyrstu sex mánuðum þessa árs. Landsframleiðsla hefur ekki aukist í Rússlandi frá falli Sovétríkjanna árið 1991. Jeltsín gerði einnig varnarmál að umræðuefni sínu. „Efling heraf- lans hefur algjöran forgang í ár. Rússneski herinn þarf að vera vel skipulagður, búinn háþróuðum vopnum og ávallt til taks“, sagði hann í ávarpinu. Ummælin voru andsvar við fullyrðingum hershöfð- ingjans Lev Rokhlin fyrir tveimur vikum um að niðurskurður stjórnarinnar á fjárveitingum til vamarmála gerði herinn óstarf- hæfann. Vonast til að geta greitt vangoldin laun Jeltsín lýsti yfir vilja sínum til að greiða vangoldin laun opin- berra starfsmanna innan þriggja mánaða, á fundi með héraðsstjór- um í Kreml í gær. Lán frá Alþjóða- bankanum gerði stjórninni nýlega kleyft að hefja aftur greiðslu elli- lífeyris og að heita hermönnum greiðslu launa sinna á næstu tveimur mánuðum. Fjármálaráð- herrann Anatoly Tsjúbaíjs, sem Búið að hreinsa mest af olíunni Tókýó. Reuter. BÚIÐ er að hreinsa upp megnið af olíunni sem lak úr olíuflutninga- skipinu Diamond Grace eftir að það rakst á rif í Tókýóflóa á mið- vikudag. Japanska strandgæslan vonast tii að hreinsunarstarfi ljúki í dag, en ekki er víst að það takist. Yfir þrjúhundruð bátar og skip voru send á vettvang til að taka þátt í hreinsuninni. Mest munaði um olíuhreinsunarskipið Seiryu- maru, sem getur sogað upp þús- und tonn af olíu og sjó á klukku- stund. Sum skipanna hafa notað olíu- eyðingarefni til að flýta fyrir hreinsuninni, en ekki er ljóst í hve miklu magni þeim hefur verið hellt í hafið. Ryutaro Hashimoto, for- sætisráðherra Japans, hefur lýst áhyggjum sínum af því að efnin muni skaða lífríki sjávar og hvatt til að áhrif þeirra verði rannsökuð nánar. Ósamræmi í framburði Rannsókn er hafin á tildrögum slyssins og hafa tölvuskrár og leið- arbækur skipsins verið gerðar upptækar. Skipstjöri Diamond Grace sagði við yfirheyrslur að dregið hafi verið úr ferð skipsins til að forðast árekstur við fiski- báta og annað flutningaskip. Það hafi þá rekið með straum- um að rifinu og rekist á það. Haf- sögumaður bar hins vegar að áreksturinn hafi ekki orðið af þess- um sökum. var viðstaddur fundinn, lýsti yfir efasemdum sínum um að stjórnin gæti greitt öll vangoldin laun inn- an þriggja mánaða, en Jeltsín svaraði að það gæti tekist með samstilltu átaki. Fréttastofan Itar-Tass greindi frá því að Jeltsín hefði á fundinum nefnt þann möguleika að leitað verði eftir aðstoð erlendra þjóðar- leiðtoga til að standa við gefnar skuldbindingar, en fjölmiðlafulltrú- ar forsetans báru þær fregnir jafn- harðan til baka. í útsendingum Tass frá fundinum nefnir Jeltsín ekki hvað um er að ræða háa upp- hæð sem ríkið skuldar í vangoldin laun né hvernig fjárins verði aflað. Síðasta ár erfiðasti tími ævi minnar Jeltsín sagði í útvarpsávarpi sínu í gær að síðasta ár hefði verið erfið- asti tími ævi sinnar, en það hefði þó verið einstakt. „Eg hefði aldrei trúað að maður á mínum aldri gæti breyst eins mikið og ég hef gert.“ Hann sagðist meðal annars eiga auðveldara með að ganga sáttaveginn í deilum við Dúmuna, neðri deild rússneska þingsins, þar sem kommúnistar eru í meirihluta. Eina af ástæðum þess að hann stokkaði upp í ríkisstjórn sinni í vor sagði hann vera þá að veikindi sín hefðu gert sér ljóst hve lítinn tíma hann hefði til stefnu. Því væri nauðsynlegt að kalla unga og kraftmikla lýðræðissinna til starfa i stjórn landsins. FJÖLÞJÓÐLEGT herlið var á varðbergi við höfuðstöðvar alb- önsku kjörstjórnarinnar í Tirana í gær, en daginn áður hafði einn maður beðið bana í skothríð sem hófst þar þegar konungssinnar reyndu að fara inn í bygginguna á mótmælagöngu i miðborginni. Konungssinnar sökuðu lög- reglumenn um að hafa skotið á göngumennina, sem voru að mótmæla meintum kosningasvik- um Sósíalistaflokksins, sem vann sigur í fyrri umferð kosninganna á sunnudag, og úrslitum þjóðar- atkvæðagreiðslu um hvort Al- banía ætti að verða konungdæmi að nýju. Sósíalistaflokkurinn og flokkur Salis Berisha forseta deildu um hvor þeirra bæri ábyrgð á átökunum. Á myndinni eru tveir ítalskir hermenn við byggingu kjör- sljórnarinnar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.