Morgunblaðið - 07.02.1997, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 07.02.1997, Blaðsíða 6
6 B FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF * I kvöld o g annað kvöld sem og um flestar helgar þyrpist fólk á skemmtistaði miðborgarínnar til að skemmta sér; sýna sig og sjá aðra, fá sér í glas, dansa og rabba saman. Annar hópur, öllu fámennarí, sér um að hleypa fólki inn og út. Valgerður Þ. Jónsdóttir hitti nokkra verði dyranna, sem efalítið gefa gestunum meirí gaum en gestimir gefa þeim - nema þegar á þarf að halda. Ver ðir dyranna r Tómas Marteinsson KaiTi Eeykjítvík Morgunbiaðið/J6n Svavarsaon TÓMASI Marteinssyni finnst alltaf jafngaman að fylgjast með fólki úti á lífinu. ur verð ég að híma úti í alls konar veðri og gæta þess að ekki verði öngþveiti við dymar. Sumir segja að við förum í manngreinarálit þeg- ar við leyfum einhveijum að fara fram fyrir í röðina, en mér finnst ekki nema sanngjarnt að gera vel við fastagesti og láta þá hafa for- gang.“ A stað sem rúmar á sjötta hund- rað manns með húsfylli nánast hveija helgi segir Tómas mikinn kost að dyraverðir séu vel að sér um skyndihjálp. Sjálfur kann hann vel til verka í þeim efnum eftir pungaprófið forðum. „Sem betur fer hafa ekki komið upp alvarleg til- felli. Stundum líður þó yfir gesti, eða þeir sofna ölvunarsvefni og þá erum við fljótir að koma þeim und- ir ferskt loft eða vekja þá með því að ýta á ákveðinn stað undir kjálka- beinið." Kostuleg uppátœkl Að sögn Tómasar eru dyraverðir meiri sálfræðingar en marga grun- ar. Með árvökulum augum fylgjast þeir með að allt sé í friði og spekt innandyra sem utan og þurfa að vera snöggir að bregðast við ef eitt- hvað fer úrskeiðis. Hann rifjar upp að eitt sinn hafí hundur og í annað skipti köttur smogið framhjá dyra- vörðunum og hlaupið um salarkynni með herskara dyravarða á hælun- um, gestum til óblandinnar ánægju. „Uppátæki sumra tvífætlinga eru líka oft kostuleg. Einu sinni sátu tveir félagar, ósköp rólegir á að líta, við borð við gluggann. Skyndilega lítur annar þeirra út, stekkur úr sætinu, rífur sig sig úr öllum fötun- um á leiðinni, hoppar upp á vélar- hlíf á aðvífandi bíl og veifar bílstjór- anum eins og óður væri. Allt gerð- ist þetta mjög snöggt, félaginn fór í humátt á eftir, tíndi upp spjarim- ar, sem maðurinn klæddi sig síðan í á leiðinni aftur í sætið sitt. Þar settist hann og lét eins og ekkert hefði í skorist. Dyraverðimir horfðu bara í forundran á aðfarirnar og ákváðu að skipta sér ekkert af, enda voru félagarnir hinir rólegustu fram eftir kvöldi." Dlplómatar Tómas segir að oft beiti dyra- verðir diplómatískum aðferðum til að koma í veg fyrir leiðindi af ein- hveiju tagi. Hann tiltekur dæmi af náunga sem geri sér ef til vill um of dælt við kærustu annars sem standi þá álengdar eins og illa gerð- ur hlutur. „Kærastinn aðhefst ekki neitt, lætur eins og honum standi hjartanlega á sama því hann vill ómögulega vera uppvís að afbrýði- semi. Ef staðan er orðin pínleg komum við eins og frelsandi englar og förum að spjalla um daginn og veginn við hlutaðeigandi. Slík íhlut- un gefur góða raun,“ segir Tómas, og nefnir fleiri atvik af svipuðum toga. „Mestu máli skiptir að allir séu ánægðir. Mér fínnst alltaf svolítið fyndið hvað sumir láta fleðulega þegar þeir em að reyna að komast inn en dettur ekki í hug að heilsa manni úti á götu næsta dag. í dyra- varðarstarfinu hefur mér lærst sitt- hvað um mannlegt eðli. Ég hef allt- af jafngaman af að fylgjast með fólki úti á lífínu. Alla jafna er þetta átakalítið starf, sem byggist meira á sálfræði en miklum líkamsburð- um.“ Sálusorgarar og málamiðlarar latar og fínar handtöskur HANDTÖSKUR hafa tekið á sig nýja flata mynd. Samkvæmt skilaboðum frá þeim sem drottna í heimi tískunnar, er töskun- um ekki lengur ætlað að geyma sem mest af persónulegum hlutum eigenda, heldur eiga þær að vera einfaldar í hönnun, finar og flatar. Eðli málsins vegna verður geymslurýmið því mun minna. Sumar töskur á að hengja yfir öxlina með ól, þann- ig að þær liggi í nyaðmarhæð, öðrum á að tylla nett undir handlegg- inn. Skilaboðin eru skýr; skiljið tuðrurnar eftir heima. Timaritið Bazaar valdi nokkrar handtöskur þekktra tiskuhönnuða. Frá vinstri: svört rétthyrnd taska með keðjuól úr leðri frá Gucci, piparmyntu- lit taska frá Tardini á um 45 þúsund krónur, ferhymd gullhúðuð taska frá Fendi á um 40 þúsund krónur, dökkbrún leðurtaska frá Calvin Klein á um 33 þúsund krónur, ósamhverf axlataska frá Hermés á um 120 þús- und krónur, axlataska úr brúnu leðri með tveimur rennilásum frá Fendi á um 38 þúsund krónur og flauelstaska frá Prada. ■ TÓMAS Marteinsson, yfirdyravörð- ur til tveggja ára á Kaffí Reykja- vík, ræður lögum og lofum á kaífí- bar hússins á daginn en helgar sig dyravörslu frá níu til eitt virka daga og til þijú um helgar. í byijun átti dyravarslan að vera aukastarf en fljótlega hætti hann fyrra starfí, sem neðansjávarmyndasmiður, og Kaffi Reykjavík varð eini starfsvett- vangurinn. Þótt Tómas stundi líkamsrækt og æfí sparkbox reglulega segist hann ekki vera sérstakur krafta- kari. Honum finnst að dyraverðir þurfí að hafa ýmislegt fremur en kraftana til brunns að bera og til- tekur eiginleika eins og hjálpsemi, rólyndi og þolinmæði. „Slagsmál eru algjör undantekning og upp til hópa eru gestir mestu prúðmenni. Vitaskuld kemur fyrir að við þurf- um að stilla til friðar, en þá reynist yfírleitt best að tala fólk til og hjálpa því að komast til síns heima. Nöldri út af dýrum drykkjum, að- gangseyri og þess háttar tökum við með jafnaðargeði og oft hlustum við áhugasamir á ástaraunir fólks auk þess að vera sálusorgarar og málamiðlarar í hjónaeijum." MeA skurA á nefl Tómas segir mun erfiðara að eiga við ofurölvi konur en karia. Einu áverkarnir sem hann hefur hlotið í starfí voru eftir eina slíka sem lét öllum illum látum, hrækti og stimp- aðist á móti þegar hann við annan mann reyndi að koma henni út. „Að lokum kýldi hún mig þannig að ég fékk stóran skurð á nefíð. Slíkar uppákomur eru afar fátíðar, því yfírieitt nægir að gefa sér góðan tíma þegar einhver er æstur í skapi og líklegur til að verða til vand- ræða.“ Þótt Tómas hafí kynnst mörgum góðum gestum í starfí sínu segir hann að kynni hans af kærustu sinni Jönu, veitingastjóra staðar- ins, hafí líklega átt stærstan þátt í að hann ílentist á Kaffí Reykjavík, enda geti þau skötuhjúin oftast hagrætt vinnutíma sinum þannig að þau vinni saman og eigi frí á sama tíma. „Eg hef ómælda ánægju af starfinu og hef varla tekið mér meira en þijár frí- helgar síðastliðið ár. Sem dyravörð-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.