Morgunblaðið - 23.06.1996, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 23. JÚNÍ 1996 B 7
EFNAHAGURIRUST
Mannlíf í molum
AÐUR en við lögðum af
stað til Rússlands hafði
okkur verið sagt að Nov-
osibirsk væri einhver
ljótasta borg í heimi. Við vorum
þess vegna ákaflega spenntir þegar
við ientum á flugvellinum um
klukkan sex um morguninn eftir
þriggja tíma flug frá Moskvu með
Aeroflot. Við urðum ekki fyrir von-
brigðum. Novosibirsk, sem er um
1,6 milljón manna borg, kom okkur
fyrir sjónir sem full af kassalaga
gráum blokkum og verksmiðjust-
rompum, og stórum mannvirkjum
í niðurníðslu.
Hins vegar hafði okkur líka verið
sagt, að staðurinn þar sem ráð-
stefnan yrði haldin, rétt fyrir utan
borgina, væri einhver fegursti stað-
ur í Rússlandi. Þar er um að ræða
háskólahverfi, sem var byggt fyrir
rússnesku vísindaakademíuna í Sí-
beríu á árum áður, með 22 rann-
sóknarstofnunum, ráðstefnuhöll,
tónleikahöll og aðalbyggingu. Ekki
var þetta fegursti staður sem við
höfðum augum litið, en hvarvetna
var þó eins og glitti í fornan glæsi-
leika. Einn viðmælandi okkar hélt
því fram að hugtakið viðhald væri
ekki til í orðaforða Rússa, a.m.k.
ekki í þeirri merkingu sem hann
átti við.
Hugsjónastarf
Þessi ráðstefna, sem við fréttum
af í gegnum nýstofnaða Framtíðar-
stofnun hér á íslandi, var mjög vel
skipulögð og áhugaverð í alla staði.
Yfirskriftin var „Global Governance
Towards Sustainable Develop-
ment“, eða Alþjóðlegt stjórnarfar í
þágu sjálfbærrar þróunar. Boðið var
upp á sjö málstofur um ýmis mál,
sem flest mætti flokka sem ein-
hvers konar heimsmál, og við vorum
skráðir í málstofu um efnhagslegt
og félagslegt ástand í Rússlandi.
Ráðstefnan er haldin árlega á veg-
um samtaka ungs fólks í Siberíu,
sem eru óvenju virk samtök í Rúss-
landi. Viðfangsefni ráðstefnunnar,
sem er alþjóðleg, eru þau sömu á
hveiju ári, og sýnir það viðleitni
ráðstefnuhaldara til þess að kryfja
málefnin almennilega til mergjar.
Það er ungur maður, Oleg Matuzov,
sem hefur átt veg og vanda að skipu-
lagningu ráðstefnunnar. Hann vinn-
ur í háskólanum í Novosibirsk, sem
er talinn sá þriðji besti í Rússlandi
og fær í laun um 55 dollara á mán-
uði. Lítill kaupmáttur almennings er
eitt stærsta vandamálið í rússnesku
samfélagi. Einn háskólakennari sem
við fréttum af fær 12 dollara á mán-
uði, eða um 800 krónur.
Ástandið í Rússlandi
í málstofunni um ástandið í Rúss-
landi bar margt á góma og það var
fróðlegt að hlusta, með aðstoð
túlka, á rússneska fræðimenn rök-
ræða sín á milli um innanríkismál,
mánuði fyrir kosningar. Einn fyrir-
lesara, V. Fofanov, prófessor við
Háskólann í Novosibirsk, var meðal
þeirra sem töldu allt benda til þess
að Rússland væri á barmi efnhags-
legrar og félagslegrar glötunar.
„Efnahagurinn er í rúst og mannlíf-
ið er í molum,“ sagði Fofanov.
„Hver sem vinnur kosningarnar
verður að reka sömu stefnuna; —
að forða þjóðinni frá hruni." Að
mati Fofonovs hagnast hin vinnandi
stétt ekki á ástandinu í Rússlandi
um þessar mundir, heldur aðeins
þeir sem nýta sér verðbólguna til
spákaupmennsku. Það hefur jafn-
framt í för með sér heldur slakt
viðskiptasiðferði í landinu. í tengsl-
um við mikla glæpi í viðskiptalífinu
Um miðjan maí síðastliðinn fór fram í Nov-
osibirsk í Síberíu alþjóðleg ráðstefna ungs
fólks um heimsmál. Andri Steinþór
Bjömsson og Guðmundur Steingrímsson
fóru á ráðstefnuna og tóku þátt í umræðum
um ástandið í Rússlandi. Novosibirsk er
iðnaðarborg, ekki langt frá landamærum
Mongólíu, og hún er á meðal íjölmennustu
borga í Rússlandi.
NÓG framboð af ferskum afurðum er þó á boðstólum götusalanna
í umræðum um þessi mál kom
fram athyglisverð skipting fyrir-
tækjaeigenda í Rússlandi í fjóra
flokka. I fyrsta flokki eru þeir, sem
reka fyrirtæki undir verndarvæng
stjórnvalda í Rússlandi. í öðrum
flokki þeir sem reka fyrirtæki í
nánum tengslum við stjórnvöld í
borgum og landshlutum og nýta sér
þau tengsl mikið. í þeim þriðja eru
fyrirtækjaeigendur á vegum mafí-
unnar og í þeim fjórða eru fyrir-
tækjaeigendur sem eru heiðarlegir.
Þeir sem töluðu fyrir öllu bjartsýnni
viðhorfum en Fofanov gerði, og
töldu að þrátt fyrir allt væru ýmsar
vísbendingar um stöðugleika í rúss-
nesku efnahagslífi, gerðu mikið úr
mikilvægi fjórða hópsins, þeirra
heiðarlegu, og lögðu
áherslu á að sá hópur
færi stækkandi. Fo-
fonov benti á, að
margir hefðu hagn-
ast í stjórnartíð Jelts-
íns, og sagði í því
samhengi að hættan
á borgarastyijöld
væri talsverð núna
þegar u.þ.b. helming-
slíkur eru á endur-
kjöri forsetans.
„Margir eru reiðu-
búnir að beita vopn-
um ef þeir missa
Jeltsín," sagði Fo-
fonov. „Og sumir rót-
tækir hópar vilja
gera allt til þess að
„endurreisa réttlæt-
ið“. Það ríkir köld
borgarastyrjöld. Það
er mjög veik miðja i
okkar samfélagi, en
sterkar öfgar.“
T.V.: Gamall hertrukkur hefur tekið við hlutverki kaupmannsins á horninu. T.h: Seryakova er í
forsvari fyrir átaki í Rússlandi sem miðar að því að fá ungt fólk til þess að kjósa í forsetakosningunum.
MANNLÍFIÐ er samt við sig - hér eins og annarsstaðar.
nefndi Fofonov það einnig sem or-
sök hversu samfélagið væri íhalds-
samt. „Rússar hafa alltaf verið
mjög nánir,“ sagði Fofonov, „og það
er alls ekki í samræmi við síaukna
samkeppni i viðskiptum. Á Vestur-
löndum er reynt að gera þessa sam-
keppni mannlega, en okkar sam-
keppni er mjög hörð. Menn skjóta
hver aðra.“
Ungt fólk kýs ekki
til þess að kjósa í forsetakosningun-
um. í máli hennar kom fram að
einungis um 11-17% ungs fólks í
Rússlandi, á aldrinum 18 til 25 ára,-
mætti á kjörstað í seinustu þing-
kosningum. „Um 15% ungs fólks
hefur áhuga á stjórnmálum,“ sagði
Seryakova.
„Restin hefur ekki áhuga og sýn-
ir ekki tilburði til þess að kjósa..
Þetta er svo sem ekki endilega ein-
kenni á Rússlandi, því þetta virðist
vera landlægt vandamál annars
staðar líka.“ Átakið miðar að því
að reyna að spyija spurninga eins
og hvers vegna ungt fólk ætti að
kjósa og jafnframt að svara þeim.
Fyrst af öllu er reynt að skilgreina
hvað lýðræði er, sem vald fólksins
gegnum þingmenn. Jafnframt er
lögð áhersla á réttinn en ekki skyld-
urnar, sem lýðræðið felur í sér.
„Aldursbilið 18-25 ára eru ár sjálf-
stæðis og þess vegna leggjum við
höfuðáherslu á þann hóp. Þá vilja
menn nota rétt sinn, án þess að
neyta aflsmuna," sagði Seryakova.
Fyrir þingkosningarnar í Rúss-
landi árið 1993 var ráðist í viðamik-
ið átak að bandariskri fyrirmynd
til þess að fá ungt fólk til þess að
kjósa og sama er uppi á teningnum
núna. Fjölmargir tónleikar og böll
eru haldin víðsvegar um landið og
á þessum samkomum, og líka í
skólum, er dreift eins konar skrán-
ingarspjöldum. Þar er ungt fólk
látið lýsa því yfir að það muni nota
réttinn til þess að kjósa og kynna
sér stefnur allra frambjóðenda. „Eg
mun velja mína framtíð og ég mun
því kjósa,“ segir á spjaldinu og síð-
an eru kortin sett í happdrættisvél
og einhveijir heppnir hljóta vinning.
Næstu daga er hringt í fólkið og
spjallað við það um kosningarnar.
Líkt og á bandarísku tónlistar-
rásinni MTV fyrir seinustu forseta-
kosningar í Bandaríkjunum, þar
sém bandarískir tónlistarmenn voru
fengnir til þess að ræða um stjórn-
mál og skora á ungt fólk að kjósa,
þá hafa rússneskir tónlistarmenn
einnig verið virkjaðir i Rússlandi.
Einnig er lögð áhersla á staðbundna
sjónvarpsþætti, þar sem ungt fólk
sér fólk sem það þekkir tala um
stjórnmál og hagsmuni þeirra.
Á þvi leikur enginn vafi að það
skiptir gríðarlega miklu máli hvern-
ig ungt fólk kýs í Rússlandi, ef það
fer á kjörstað í einhveijum mæli.
„Hvergi stendur ungt fólk frammi
fyrir jafn miklum vandamálum,"
sagði Seryakova. „Núna stendur
valið milli framtíðar og fortíðar.
Ungt fólk ætti að kjósa framtíðina,
því þar er vettvangur þess, en við
getum ekki álasað eldra fólki fyrir
■að kjósa fortíðina.“
Lenín hefur misst
hökutoppinn
Nokkuð viðamikil tónlistarhátíð
fór fram í Novosibirsk á sama tíma
og ráðstefnan. Þar komu fram fjöl-
margar kraftmiklar rússneskar
rokkhljómsveitir og virðist vera
talsverð gróska í rússnesku tónlist-
arlífi. Lokaviðburður ráðstefnunnar
og tónlistarhátíðarinnar var síðan
heilmikil hátíð í bakgarði háskól-
ans, þar sem allar hljómsveitirnar
komu fram og um 15 þúsund manns
létu sjá sig. Ráðstefnugestir fengu
að halda til i háskólabyggingunni
og horfa á æstan múginn úr skóla-
stofum. Þessar stofur voru eins og
maður getur ímyndað sér skóla á
Austfjörðum um eða eftir seinna
stríð.
Eftir dvölina í Novosibirsk héld-
um við til Moskvu og spókuðum
okkur í Kreml og á Rauða torginu.
Auk þess að fara á McDonalds og
Pizza Hut, snæddum við kvöldverð
í margfrægu húsi gamla rithöf-
undasambandsins í Sovétríkjunum,
þar sem óæskilegir pennar voru á
sellufundum dæmir til útlegðar á
árum áður, en þar er núna veitinga-
hús. Einnig heyrðum við af því,
að það væri búið að raka hökutopp-
inn af Lenín, þar sem hann liggur
í grafhýsi sínu. Við fengum hins
vegar aldrei tækifæri til þess að
sjá það með eigin augum, því oft-
ast standa þar nú á dögum vopnað-
ir verðir frammi fyrir luktum dyr-
Seryakova heitir ung kona sem
er í forsvari fyrir átaki í Rússlandi
sem miðar að því að fá ungt fólk
Höfundar eru háskólanemar.