Morgunblaðið - 23.12.1995, Side 48
48 LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Ceres 53ja ára. Nýbýlavegi 12, sími 554-4433.
í úrvali
Barnanáttföt frákr. 1.680.
Bómullarnáttkjólar trá kr. 2.900.
frá kr. 2.600.
Opið
um
helgina
Munið islenskt -
Sterkar - stífar - glansandi
Umboðsaðili:
Æfingastúdíó, sími 421 4828
Fataleiga Garöábæjar
Akureyri: Toppmenn og sport
Akranes: Nína
Egilsstaðir: Okkar á milli
Grindavík: Sirrý
Keflavík: Kóda, Æfingastúdíó
Vestmannaeyjar: Hressó, Flamingo
. Selfoss: Styrkur
Reykjavík:
Plexiglas, Borgarkringlunni
Mondó, Laugavegi 27
Ræktin, Frostaskjóli 6
World Class, Reykjavík
Sýnd kl. 5 og 9. Verð kr. 750. B.i.ieára.
JÓLAMYND 1995
Eiomitt þrgir
Hhaldií 'M
jd illir gjifimir f:
fufi .
vtriJ opnaðar... ..’f.
INOIÁNINN
í SKÁPNUM
Það er þess viröi að biöa eftir bestu gjöfunum.
Sýnd kl. 5 og 7.
Sýnd kl. 9.
Sýnd kl. 6.50. Kr: 750.
Sýnd annan í jólum.
DAC FA ALUR KRAKKAR PAKKA MEÐ AOCÖNÚUMIÐANUM, Á
MYNDINA INDÍÁNINN í SKÁPNUM!!
MisjafnirjÖlagestir
TONLIST
Gcisladiskur
JÓLAGESTIR
BJÖRGVINS 3
Geislaplata Björgvins Halldórssonar
og gesta. Söngvarar: Björgvin Hall-
dórsson, Sigríður Beinteinsdóttir,
Berglind Björk Jónasdóttir, Svala
Björgvinsdóttir, Helgi Björnsson.
Hljóðfæraleikarar: Jon Kjell Sejje-
seth, Vilhjálmur Guðjónsson,
Tryggvi Hubner, Kristinn Svavars-
son, Halldór G. Hauksson, Einar V.
Scheving, Björgvin Halldórsson. Út-
setningar: Jon Kjell Sejjeseth. Sljóm
upptöku: Jon Kjell Sejjeseth og
Björgvin Halldórsson. Tæknimaður:
Amþór Örlygsson. Hljóðhlöndun:
Gunnar Smári Helgason. Sklfan gef-
ur út. 40:35 mín, 1.999 krónur.
BJÖRGVIN Halldórsson sendir
nú frá sér þriðju jólaplötuna, þar sem
hann fær til sín gestasöngvara,
ásamt því að syngja sjálfur valin lög
í anda jólanna. Þessi forskrift hefur
gefíst vel og stundum er sagt að
það eigi ekki að hrófla við formúlum
sem ganga upp. Einhvern veginn
finnst mér samt að greina megi
ákveðin þreytumerki á þessari plötu
og ekki gat ég fundið að hún kæmi
mér í sérstaka jólastemmningu, sem
hlýtur þó að vera markmiðið með
svona útgáfu.
Björgvin er fagmaður fram í fing-
urgóma og samvinna hans og Jon
Kjell Seljeseth, sem út-
setur lögin og leikur
m.a. á hljómborð, er
með miklum ágætum,
enda ekkert út á hljóð-
færaleik, hljómburð,
upptökuvinnu eða aðra
tæknivinnu að setja.
Hins vegar fínnst mér
lagavalið orka tvímælis
og þótt lögin séu mörg ágæt sem
slík eru þau að mínu mati ekki nógu
,jólaleg“, ef svo má að orði komast.
Þetta hlýtur þó alltaf að vera
smekksatriði og er fjarri mér að
reyna að hafa áhrif á þá sem telja
sig komast í gott jólaskap með þess-
ari plötu.
Jólagestir Björgvins sleppa mis-
jafnlega vel frá þessari plötu. Mér
finnst ekki henta Svölu að syngja
lagið Þú og ég ogjól, sem er fyrsta
lagið á plötunni og Berglind Björk
er ekkert sérstaklega Jólaleg" í lag-
inu Hjá þér. Fyrirfram átti ég held-
ur ekki von á að Helgi Björnsson
væri mikill ,jólasöngvari“, en hann
kemur skemmtilega á óvart í laginu
Efégnenni, sem er það lag plötunn-
ar sem höfðar mest til mín. Helgi
syngur lagið af tilfinningu og krafti
og tenorsaxasóló Kidda Svavars
lætur vel í eyrum. Sigga Beinteins.
stendur fyrir sínu, eins
og oftast, og er líklega
,jólalegust“ söngvar-
anna, ásamt Björgvin
auðvitað, sem yfirleitt
veit hvað hann er að
gera. Sem aðdáandi
Björgvins, frá því hann
var í Bendix, er ég þó
tvístígandi yfir hinum
nýja söngstíl, sem mér finnst örla á
hjá honum á þessari plötu; það er
að syngja laglínuna á dýpri nótunum
í byijun og rífa sig síðan upp, en
þetta er kannski eitthvað sem maður
þarf að venjast.
Ég efast ekki um að þeir eru fjöl-
margir sem eiga eftir að hafa
ánægju af þessari plötu yfir jólin.
Ég mun hins vegar halda mig við
Jólagesti Björgvins númer eitt,
gömlu Hljóma-plötuna, jólaplötur
HLH-flokksins, jólagrínið frá Glámi
og Skrámi og plötuna þar sem
Gáttaþefur syngur fyrir börnin.
Gleðileg jól.
Sveinn Guðjónsson
Björgvin Halldórsson