Morgunblaðið - 23.12.1995, Side 42
42 LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
■ ■ rnn n z
% -i
LJ luJ CC CC
Gallerí >
l.istIhisímii í l.mipmhil
BETRI JOLAGJAFIR
KLUKKNASPIL FYRIR
SUMARBÚSTAÐI OG ÖLL HEIMILI
Myndlist, Leirlist
Glerlist, Siníðajárn
Listspeglar, Gjafavörur
Þrautreyndar uppþvottavélar
sem hafa sannað gildl sitt á
íslandi.
Stærð: 12 manna
Hæð: 85 cm
Breidd: 60cm
Dýpt: 60 cm
Einnig:
kæliskápar
eldunartæki
og þvottavélar
á elnstöku verði
FAGOR
FAGOR LVE-95E
Staögreltt kr.
Afborgunarverð kr. 51.500 - Vlsa og Euro raögrelbslur
RÖNNING
BORGARTÚNI 24
SÍMI: 562 40 11
Áhendingar ú mjólkunimhúdum, nr. 57 af60.
íslenskufrieðsla ú mjólkurumhúðum er samslarfsverkefni Mjólkursamsölunnar,
íslenskrar múlnefndar og Múlrœktarsjóðs.
„Ást hafðir
þú meyja
Hér er vísa frá 13. öld sem margir kunna:
Skafl beygjattu, skalli,
þótt skúr á þig falli,
ást hafðir þú meyja,
eitt sinn skal hver deyja.
(Þórir jökull; úr íslendinga sögu Sturlu Þórðarsonar)
Upp skalt á kjöl lclífa,
köld er sjávar drífa,
kostaðu hug þinn herða,
hér muntu lífið verða.
Hvað er að beygja skafl?
■nfpys ddn vtps Qy :jbas
MJÓLKURSAMSAIAN
ÍDAG
Með morgunkaffinu
Farsi
IIÖGNIHREKKVÍSI
" iVo/i/7 cr ur / "
VELVAKANDI
Svarar t sima 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Gefið
þröstunum
í HAUST þegar meiri-
hluti skógarþrastanna
flaug af landi brott, urðu
mjög margir þrestir eftir
í borginni. Nú, þegar
jörðin er alþakin sjó, þá
eiga þrestimir litla lífs-
von nema þeim sé gefið.
Þrátt fyrir það drepst
hluti þeirra úr kulda og
vosbúð.
Mikill misskilningur er
að þrestir éti mulin maís-
korn. Þessi kom eru nán-
ast eingöngu ætluð snjó-
tittlingum. Þrestir éta
epli, brauð, saxað kjöt
og líkar vel við franskar
kartöflur.
Gunnar Þór
Hallgrímsson,
Víðihlíð 22.
Dagblöðin
ódýrari í
Ameríku en á
Islandi
ÞAR SEM þið hjá
Morgunblaðinu emð
mjög vakandi um verðlag
á nauðsynjum sem öðr-
um vörum þá vil ég, und-
irritaður, senda ykkur
áskriftarverð á „Mogg-
anum“ mínum, sem ég
kalla svo, hér á Flórída.
Eitt blað hér í Flórdía
kostar 1,65 dollara og
ef við margföldum það
með 65 krónum íslensk-
um kostar vikuáskriftin
107,25 krónur. Ef sú
upphæð er margfölduð
með 4,3, sem era vikum-
ar í mánuðinum, er út-
koman 461,18 króna á
mánuði.
Síðan kemur blaðið út
sjö daga vikunnar, eða
365 sinnum á ári, ef til
vill vegna þess að hér era
fréttir eða fréttaefni
ásamt auglýsingum sem
þarf að koma til neyt-
enda alla daga, hver veit.
Sem sagt, hér er hægt
að vera áskrifandi að
þremur Morgunblöðum
fyrir sama verð og á
ykkar ágæta blaði.
Pétur Hauksson
Tapað/fundið
Tvö gullhálsmen
töpuðust
TVÖ gullhálsmen
töpuðust fyrir nokkrum
vikum. Á annarri
keðjunni hangir dropi
með afmælissteini. Hafi
einhver fundið keðjumar
er hann beðinn að
hringja í síma 567-0812.
Týnd flauta
KONAN sem hringdi til
Velvakanda og sagði að
lítil stúlka hefði tapað
flautu, er beðin að
hringja aftur. Velvak-
andi.
EF Hann hefði ætlað mér
að fljúga, heldurðu ekki
að Hann hefði sett í mig
vélbúnað?
ÞÚ mátt segja Guð-
mundi að koma inn
til að ræða launa-
hækkunina.
Víkveiji skrifar...
HELDUR þykir Víkverja það
djúpt í árinni tekið hjá herra
Ólafi Skúlasyni, biskupi íslands,
að kalla deilur prests og organista
í Langholtskirkju reiðarslag fyrir
kristni í landinu. Víkverji sér ekki
betur en að aðallega sé deilt um
keisarans skegg og persónulegir
samskiptaörðugleikar kannski
frekar orsök ósættisins en djúp-
stæður guðfraéðilegur ágreiningur.
Kristni á íslandi hefur nú orðið
fyrir öðrum eins áföllum og ekki
orðið meint af!
xxx
FYRIR nokkrum dögum vantaði
skrifara frímerki á jólakortin
eins og gengur. Í stað þess að
fara á pósthús ákvað hann að
stytta sér leið og kaupa þau í
næstu nýlenduvöruverslun. Þar
var honum tjáð að mörg ár væru
liðin síðan hætt var að selja frí-
merki þar. Svipuð svör fékk hann
í annarri slíkri verslun í nágrenn-
inu.
Alveg viss um að bókaverslanir
seldu frímerki hélt hann í næstu
bókabúð og bar upp erindið. - Nei,
sagði stúlkan, sem afgreiddi.
- Við seljum ekki frímerki, en ef
þig vantar jólakort þá eigum við
nóg af þeim. Það var ekki vanda-
málið að þessu sinni hjá skrifara
heldur frímerkin. - Já, sagði
stúlkan og var hin alúðlegasta.
- Þau færðu á bensínstöð ESSO
hérna hinum megin við hornið.
Mikið rétt, þegar afgreiðslumað-
urinn á bensínstöðinni var búinn að
útskýra fyrir viðskiptavininum á
undan muninn á einhvetjum smur-
olíutegundum, seldi hann skrifara
frímerki í sérstökum heftum. - Ekk-
ert vandamál, hvað viltu mörg hefti,
sagði hann og þurrkaði smuminginn
af höndunum. Þar með var leyst
úr þessum vanda skrifara sem hafði
fengið enn eina staðfestinguna á
vöruúrvalinu á bensínstöðvunum.
xxx
SÍÐUSTU línurnar í þessum pistli
em sóttar í Dag á Akureyri.
Þar er talað við Sigríði Waage,
kaupmann í versluninni Ynju í
Sunnuhlíð á Akureyri, um verslun-
ina laugardaginn fyrir viku:
„Sigríður segir að skemmtilegasti
árstíminn sé síðasta vika fyrir jól
þegar karlmenn komi til að kaupa
undirföt á elskuna sína. Þá sé oft
fullt út úr dymm og karlmenn stór
hluti viðskiptavinanna. Þeir yngri
hafi allar stærðir á hreinu, viti ná-
kvæmlega hvernig vaxtarlag kon-
unnar sé, en þeir sem séu komnir
á miðjan aldur séu ekki eins klárir
í stærðunum, enda verði eiginkonan
alltaf eins og þeir kynntust henni
fyrst. Þeir taki ekki eftir því þótt
konurnar hafi eitthvað þroskast og
bætt á sig örfáum kílóum.“