Morgunblaðið - 23.12.1995, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 1995 41
BRÉF TIL BLAÐSIIMS
Sjaldan einum að
kenna er tveir deila
Að breyta gleði
í græðgi
Frá Valborgu Kjartansdóttur:
ÞAÐ HEFUR víst ekki farið framhjá
neinum að innan Langholtskirkju
hafa verið deilur og ætlun mín með
þessu bréfi er ekki sú að koma með
eina rétta skoðun á þeim deilum eða
kveða upp dóma.
Ég hef aldrei verið kirkjurækin
eða virk í kirkjulegu starfi og oft
hefur mér fundist deilt um keisarans
skegg innan safnaða þessa lands og
síst hefur hvarflað að mér að eyða
tíma eða orku í að setja mig inn í
þau mál.
Þær deilur sem nú eru innan
Langholtskirkju hafa þó (aldrei
þessu vant) höfðað til mín frá einum
sjóparhóli séð.
í ijölmiðlum hafa talsmenn kórs-
ins rökstutt mál sitt m.a. með því
að kirkjusókn hafi minnkað, ferm-
ingarbörn hafi farið annað og kór-
stjórinn hefur fullyrt að presturinn
sé ekki hæfur til samstarfs.
Málefnalega séð er deilan
líklega nokkuð flóknari
Kór Langholtskirkju er sá kór hér
á landi sem ég hef hlustað hvað
mest á og það leynir sér ekki að
söngur kórsins er mjög vandaður og
að kórstjórinn og kórfélagar ástunda
öguð vinnubrögð.
Ég þekki ekki séra Flóka en son-
ur minn fermdist hjá honum og
meðan á undirbúningnum stóð fór
ég á fræðslukvöld hjá Flóka. Það
er skemmst frá því að segja að þetta
vetrarkvöld hlustaði ég á vandaða
og vel flutta fræðslu um kirkjusiði.
Mér fannst Flóki miðla einlægri trú
og vilja til að boða trúna á agaðan
hátt. Hann vakti mig til umhugsun-
ar um ýmislegt í kirkjuhaldi sem
gerði það að verkum að þær messur
sem ég hef síðan sótt hafa snert
mig á allt annan hátt en áður.
Fermingin sjálf kom mér á óvart
vegna þess hve hún var hátíðleg og
þar var ekki síst að þakka prestinum.
Auðvitað átti góður söngur einnig
þátt í því hve falleg athöfnin var.
Eftir athöfnina ræddi ég við Flóka
og þar mætti ég hlýju og einlægni
Ákall
Lag: „Ein bischen
frieden“
Ljóð: Jónbjörg
Eyjólfsdóttir
Vinur minn hvar sem í heiminum er
heyrðu mitt ákall og liðsinntu mér.
Reynum að uppræta angur og kvðl
afnema stríðsins böl.
Stöndum við saman og störfum sem eitt
stefnunni ef til vill getum við breytt.
Smíðum úr vopnunum verkfæri þörf,
verum í huga djörf.
Burt með hræðslu sem byrgð er inni,
burt með hatrið úr veröldinni,
burt með sprengjur sem brenna svörð.
Biddu með mér um frið á jörð.
Burt með hungur og burt með sorgir,
burt með deilur og hrundar borgir,
burt með sprengjur sem brenna svörð.
Biddu með mér um frið á jörð.
Berum upp allsstaðar bænina um frið,
bænina stærstu sem nú þekkjum við,
bænina einu sem bjargað nú fær
barninu frá í gær.
Burt með hræðslu sem byrgð er inni,
burt með hatrið úr veröldinni,
burt með sprengjur sem brenna svörð.
Biddu með um frið á jörð.
Frið á jörð, já frið á jörð.
Frið á jörð, já frið á jörð.
(Birt með leyfi höfundar.)
Um leið og við minnum á
friðargönguna á Þorláks-
messu, óskum við þess að jólin
verði öllum hátíð friðar og
kærleika.
Umhverfis- og friðarnefnd Fé-
lags íslenskra leikskólakennara.
án tilgerðar. Hann talaði vð okkur
hjónin um son okkar í tilefni dagsins
og ég minnist þessa samtals vegna
þess hve mér fannst hann þekkja
strákinn vel eftir fermingarundirbún-
inginn. Það er því ljóst í mínum huga
að hann hefur lagt alúð í starf sitt.
Þetta vil ég að komi fram af minni
hálfu vegna þess að mér hefur aldr-
ei líkað sú aðferð í deilum að beina
ljósinu frá málefninu þegar deilt er.
Þegar það er gert er stundum reynt
að beina því að aukaatriðum og ís-
lenska orðið yfír það er hártogun.
Því er ekki að heilsa hér heldur
er ljósinu beint allt annað þ.e. að
þeirri skoðun sem kórinn eða stjórn-
andi hans hefur á Flóka. Það er
fullyrt, eins og það sé sjálfsagður
hlutur, að hann sé haldinn ótilgreind-
um löstum og að þess vegna sé deilt.
Til að styðja þennan „málflutning"
hefur verið vísað í persónulega skoð-
un kórstjórans og það að fermingar-
börn og safnaðarfólk fari annað.
Vegna þess hve mér þykir slíkur
málflutningur ógeðfelldur á opinber-
um vettvangi hef ég kosið að koma
þessu á framfæri.
VALBORG KJARTANSDÓTTIR,
Nökkvavogi 22, Reykjavík.
Frá Sverri Björnssyni:
ÞRIGGJA ára dóttir mín er mikil
áhugamanneskja um jóladagatöl. A
hverjum morgni er ég vakinn fyrir
allar aldir til aðstoðar við að opna
glugga og taka þátt í gleðinni yfir
litlum myndum af englum, jólasvein-
um, kertum og öðrum táknum jól-
anna.
Það vakti því áhuga minn þegar
ég um daginn sá nýstárlegt jóla-
dagatal. Þetta jóladagatal er þeirrar
náttúru að börn geta unnið pening
ef réttar myndir leynast undir málm-
þynnu sem skafin er ofanaf mynda-
reitum dagtalsins. Mér fannst þetta
forvitnilegt og fór að gera mér í
hugarlund hvernig svona peninga-
jóladagatal gæti virkað. Er þetta
kannski miklu skemmtilegra og
meira gefandi en dagatalið dóttur
minnar? Spennan hlýtur að vera
mikil og stigmagnast eftir því sem
nær dregur jólum og fleiri og fleiri
dagar koma í ljós. Einhver vonbrigði
hljóta að verða þá morgna sem eng-
an vinning er að hafa. En börn eru
vongóð að eðlisfari og munu því
vakna á hverjum morgni full bjart-
sýni og vonar um að krækja í þann
stóra. Spennan mun magnast dag
frá degi því að líkurnar á vinningi
hljóta að aukast eftir því sem af
meiru er skafið. Og í samræmi við
eðli jóládagatala og barna_ mun
spennan ná hámarki þann 24.1 mik-
illi geðshræringu verður skafið af
seinasta reitnum ... og sjá!
Á bak við málminn er enga pen-
inga að finna - bara Jesú.
Þessi óvænta uppákoma Jesú mun
væntanlega valda miklum vonbrigð-
um. Reyndar verða einhver börn svo
lánsöm að fá ekki bara einhveija
jólamynd heldur peninga í staðinn.
En það má víst einu skipta hvernig
og hvort börnin vinna eða ekki, hug-
myndin að breyta jóladagatali í pen-
ingaspil er einkennileg. Og ég held
að við feðginin hættum ekki gleði
okkar og fjármunum í þessu fjár-
hættuspilanámskeiði fyrir börn.
Það er Happdrætti Háskólans sem
framleiðir þeetta sérkennilega jóla-
dagatal. Þess var að vænta að æðsta
menntastofnun þjóðarinnar stæði að
svo mögnuðu kennslutæki, sem
kennir börnum á aðeins 24 dögum
að helstu táknmyndir jólanna - eru
einskis virði!
SVERRIR BJÖRNSSON,
Ránargötu 46, Reykjavík.
Húsnæðissparnaðar-
reikningur
Samkvæmt ákvæðum 3. málsl. 7. gr. laga nr. 49/1985
um húsnæðissparnaðarreikninga hefur ríkisskattstjóri
reiknað út þær fjárhæðir sem um ræðir í 2. mgr. 2. gr.
laganna og gilda vegna innborgana á árinu 1996:
Lágmarksfjárhæð skv. 2. málsl. 2. mgr. 2. gr. laganna
verður 46.856 kr. og hámarksfjárhæð 468.560 kr.
Lágmarksfjárhæð skv. 3. málsl. 2. mgr. 2. gr. laganna
verður 11.714 kr. og hámarksfjárhæð 117.140 kr.
Reykjavík, 18. desember 1995
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI
KENWOOD
kemur sér vel!
kr. 4.495.- stgr.
KENWOOD
HÁRBLÁSARI 1600 W
kr. 3.595.- stgr.
KENWOOD
RAFMAGNSPANNA
RÉTT VERÐ 11 .295.- stgr.
KENWOOD
HRÆRIVÉL MEÐ HAKKAVÉL
kr. 25.900.- stgr.
KENWOOD
HANDÞEYTARI 180 W
kr. 3.229.- stgr.
KENWOOD