Morgunblaðið - 23.12.1995, Side 36
36 LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
t
Móðir okkar,
RÓSA ÓLAFSDÓTTIR
fyrrum húsfreyja
á Stóra-Bóli,
Smárabraut 15,
Höfn,
lést á heimili sínu, þann 21. desember.
Jarðarförin auglýst síðar.
Fyrir hönd vandamanna,
Ólafur Halldórsson,
Anna Halldórsdóttir.
t
Ástkær sambýliskona, móðir okkar,
amma og langamma,
GUÐRÍÐUR SNORRADÓTTIR,
sem lést í Vífilsstaðaspítala miðvikudag-
inn 13. desember, verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju föstudaginn 29. desem-
ber kl. 13.30.
Þeim, sem vilja minnast hinnar látnu,
er vinsamlegast bent á Hjartavernd.
Magnús Guðjónsson,
Svala Aðalsteinsdóttir, Sigurður Kristjánsson,
Helga Aðalsteinsdóttir, Einar Magnússon,
Snorri Aðalsteinsson, Sigrún Bender,
Hreiðar Aðalsteinsson, María Þorleifsdóttir,
Kristín Aðalsteinsdóttir, Sigurþór Guðmundsson,
Sólbjört Aðalsteinsdóttir, Tómas Guðmundsson,
Margrét Aðalsteinsdóttir,
Guðrún Aðalsteinsdóttir, Þórður Óskarsson,
Fjóla Aðalsteinsdóttir, Oddur Þórðarson,
Sigrún Aðalsteinsdóttir, Hilmar Þorvaldsson,
Guðmundur Aðalsteinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
HERDÍS ELÍN
STEIGRÍMSDÓTTIR
+ Herdís Elín
Steingrímsdóttir
fæddist á Akureyri
23. nóvember árið
1921. Hún lést í
Reykjavík 17. des-
ember síðastliðinn.
Hún var yngsta barn
Steingríms Matthí-
assonar læknis á
Akureyri og konu
hans Kristínar Þórð-
ardóttur Thorodds-
ens. Þau systkini
hennar sem komust
til fullorðinsára
voru Baldur Þórður,
Bragi Matthías, Anna Guðrún,
Jón og Þorvaldur. Baldur og
Bragi eru látnir.
Árið 1943 giftist Herdís eftir-
lifandi manni sínum, Sigurði
Ólasyni lækni, og eignuðust þau
fjögur börn, Sigríði, Kristínu,
Þóru og Sigurð Óla. Barna-
börnin eru tíu.
Útför Herdísar hefur farið
fram í kyrrþey.
HÚN TENGDAMÓÐIR mín, Herdís
Elín Steingrímsdóttir, er látin eftir
erfiða sjúkdómslegu. Herdís Elín
er fædd á Akureyri og ólst þar upp
til unglingsára. Er foreldrar hennar
slitu samvistum flutti hún úr bæn-
um með móður sinni og dvöldu þær
mæðgur í Indlandi og
síðar um tíma í Eng-
landi. Eftir að heim
kom bjó Herdís fyrst
með móður sinni í
Reykjavík en síðar hjá
systur sinni, Önnu
Guðrúnu, og manni
hennar, Árna Kristj-
ánssyni píanóleikara.
Árið 1943 gengu
Herdís Elín og Sigurð-
ur Ólason, ungur
læknastúdent frá Ak-
ureyri, í hjónaband.
Um þetta leyti starfaði
Herdís Elín sem ritari
hjá sakadómi í Reykjavík. Eftir að
Sigurður hafði lokið námi við Há-
skóla íslands dvöldu þau hjón um
tíma í Danmörku og Svíþjóð þar
sem Sigurður var í framhaldsnámi.
Að lokinni þeirri dvöl bjó ijölskyldan
í fimm ár á Hólmavík þar sem Sig-
urður var héraðslæknir (1947-
1952). Þar gegndi Herdís Elín mik-
ilvægu hlutverki og veitti Sigurði
aðstoð í erfiðu læknishéraði.
Dvölinni á Ströndum lauk og þá
lá leiðin á ný til Akureyrar. Þar bjó
Herdís Elín og fjölskylda hennar
lengst af í Munkaþverárstræti 31.
Þegar börnin stálpuðust starfaði
hún sem læknaritari á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri, auk þess
sem hún tók að sér fjölmörg verk-
efni sem ritarí.
Fyrir rúmu ári fluttu þau hjón
til Reykjavíkur. Herdís Elín hugði
gott til þess flutnings, enda búa þar
þijú af fjórum börnum þeirrá hjóna
og fjölskyldur þeirra, auk fjölda
vina og ættingja. Því miður naut
hún þess ekki sem skyldi og dvaldi
langdvölum sökum erfiðs sjúkdóms
á Vífilsstaðaspítala.
Eg kynntist Dísellu fyrst fyrir
20 árum er við Póra, dóttir þeirra
hjóna, rugluðum saman reytum.
Eg vil þakka Herdísi fyrir margar
góðar stundir, bæði á heimili henn-
ar fyrir norðan og eftir að þau hjón
fluttu í sambýli við okkur á Öldu-
götu 3. Samskiptin milli fjölskyldn-
anna voru alla tíð mikil. Um stórhá-
tíðar fórum við norður í „Munk“
og á sumrin þegar tækifæri gafst.
Um það árabil er við dvöldumst
erlendis leið aldrei langur tími milli
skemmtilegra bréfa frá Dísellu.
Samband hennar og dætra okkar,
Þóru, Sólrúnar og Sigrúnar, varð
mjög traust, enda ævinlega til-
hlökkunarefni að koma til ömmu
Dísellu. Frá henni hafa þær vissu-
lega fengið gott veganesti.
Herdísi Elínu þótti vænt um lífið
og hún vildi fremur beina huganum
að björtum hliðum þess; því kynnt-
ist ég vel á samleið okkar. Þetta
sást líka skýrt eftir að veikindin
sóttu æ harðar að henni. Þó að líf-
ið væri orðið svo erfitt hafði hún
samt alltaf einhveiju að miðla, og
gat líka glaðst og skemmt sér yfir
spaugilegum hliðum tilverunnar,
sögum af skrítnum köllum og kell-
ingum, og merkum köttum.
; Ótalin er tónlistin sem skipti svo
RAÐAUGÍ YSINGAR
íþróttakennari
Vegna forfalla vantar Grunnskólann á Hellis-
sandi íþróttakennara ífullt starf frá áramótum.
Upplýsingar gefa skólastjóri í síma 436 6766
og aðstoðarskólastjóri í síma 436 6771.
Snæfellsbær
Grunnskólinn
f Ólafsvík
Námskeið
fyrir matvælaiðnað
Dreifing ehf. og Archer Daniels Midland Inc.
boða til námskeiðs um notkun eggjahvítu-
efna úr soyabaunum í fiskiðnaði.
Námskeiðið fjallar um fiskframleiðsluvörur,
tilbúna rétti, fullvinnslu og framlegð.
Námskeiðið er sérstaklega ætlað þeim, sem
starfa við framleiðslu tilbúinna matvæla í
kjöt- og fiskiðnaði.
Námskeiðið verður haldið á Hótel Sögu þann
18. janúar og er án endurgjalds.
Þeir, sem hafa áhuga, eru beðnir að tilkynna
þátttöku í síma 588 1888 fyrir 5. janúar 1996.
Vegna forfalla vantar grunnskólakennara til
starfa við kennslu yngri barna (2. bekkur)
strax að loknu jólaleyfi og til loka skólaárs-
ins, 31. maí 1996.
Umsóknir skulu berast skólastjóra, Gunnari
Hjartarsyni, Grunnskólanum í Olafsvík, Enn-
isbraut 11, 355 Ólafsvík, fyrir 3. janúar nk.
Nánari upplýsingar veita:
Gúnnar Hjartarson, skólastjóri,
símar 436 1293/436 1150, og
Sveinn Þór Elinbergsson, aðstoðarskóla-
stjóri, símar 436 1251/436 1150.
Starf
f Reykhólahreppi
Laus er til umsóknar staða umboðsmanns
sýslumannsins á Patreksfirði í Reykhóla-
hreppi.
Starfshlutfall er 50% miðað við að starfinu
fylgi m.a. skyldur hreppstjóra og launakjör
eru samkvæmt kjarasamningum opinberra
starfsmanna.
Umsóknarfrestur er til 17. janúar 1996 og
skal umsóknum skilað til undirritaðs, sem
veitir allar nánari upplýsingar.
Sýslumaðurinn á Patreksfirði,
20. desember 1995.
Þóróifur Halldórsson.
Skrifstofuhúsnæði
til leigu
Vel innréttuð 260 fm skrifstofuhæð til leigu
í Skeifunni 11. Laus 1. janúar.
Nánari upplýsingar veitir Ari ísíma 581 2220.
HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
Hugmyndasamkeppni
um grunnhönnun á félagslegum
fbúðum framtíðarinnar, 1. áfangi
Dómnefnd hefur lokið störfum vegna 1. áfanga
hugmyndasamkeppninnar. Skráðir þátttak-
endur, sem hafa fengið send skráningarblöð
til sín í pósti, eru vinsamlegast beðnir um
að hafa samband við trúnaðarmann dóm-
nefndar, sem er:
Ólafur Jensson,
Goðheimum 10, 104 Reykjavík,
símar 533 9036/894 6456,
fax 568 2038.
Tollskrá 1996
Athygli innflytjenda og útflytjenda er vakin á
því að 1. janúar 1996 verða ýmsar breyting-
ar á tollflokkun vara samkvæmt tollskrá.
Breytingar þessar eru vegna breytinga á toll-
nafnaskrá Alþjóðatollastofnunarinnar, sem
notuð er við flokkun vara í tollskrám af aðildar-
ríkjum hennar. Breytingar þessar er að finna
í auglýsingu nr. 127/1995 um breytingu á við-
auka 1 við tollalög nr. 55/1987, sem birt er
í A-deild Stjórnartíðinda.
Ríkistollstjóraembættið hefur látið fella
breytingar þessar inn í núgildandi tollskrá
og gefið út í nýrri útgáfu, Tollskrá 1996.
Jafnframt hefur verið útbúinn bæklingur,
Samsvörunarlykill - Tollskrá 1996, til leið-
beiningar við endurflokkun vara í tollskrá
ásamt lista yfir þau tollskrárnúmer sem falla
brott frá og með 1. janúar 1996.
Tollskrá 1996 ásamt Samsvörunarlykli verð-
ur til sölu hjá tollstjóra í Reykjavík (upplýs-
ingadeild) og ríkistollstjóraembættinu
(skjalasafni).
Hjá ríkistollstjóra, rekstrardeild, fást Toll-
skrárlyklar á disklingi til nota í hugbúnaði
til tollskýrslugerðar.
Ríkistollstjóri.
auglýsingar
Dalvegi 24, Kópavogi
Ath.: 23. desember verður bæna-
stund í kirkjunni kl. 23.30.
Aðfangadag hefst samkoma
kl. 16.00.
Allir hjartanlega velkomnir.
KROSSINN
Þorláksmessa:
Miðnætursamvera.
Jóladagur:
Hátíðarsamkoma kl. 15.00.
28. desember:
Jólafagnaður barnanna
kl. 17.00-19.00.
Laugardagur:
Unglingasamkoma kl. 20.30.
Gleðilega Jesú-hátíð!
Ath.: Við erum flutt í nýtt hús-
næði í Hlíðasmára 5-7, Kópavogi.