Morgunblaðið - 23.12.1995, Page 22
Morgunblaðið/Þorkell
/
JOLATRE
/ STOFU
STEIMOUR
Hápunktur
jólaundirbún-
ingsins er lík-
lega skreyting jóla-
trésins og fer sú hel-
giathöfn víðast hvar
fram á Þorláksmessu.
Flestir kjósa að hafa
lifandi tré vegna ilm-
sins sem frá því leg-
gur. Raunar hefst jólatrésathöfnin
þegar tréð er valið og kennir þar
ýmissa grasa.
„Rauðgrenið er í rauninni hið
eina fullkomna jólatré vegna hins
þægilega ilms sem frá því leggur,“
segir Kristinn Skæringsson, fram-
kvæmdastjóri Landgræðslusjóðs.
„En það verður að hugsa vel um
það, svo að það felli ekki barrið.
Stafafuran og þinurinn eru hins
vegar barrheldnari tegundir, þótt
þær þurfí sömu umönnun og rauð-
grenið í sambandi við vökvun.“
Kristinn leggur áherslu á mikilvægi
þess að saga þunna sneið neðan af
stofninum til þess að æðarnar í ysta
lagi viðarins geti þjónað því
hlutverki sínu að flytja næringu til
greinanna.
Tréð sem um ræðir í þessari um-
fjöllun er svokallaður
„Normannsþinur", æt-
taður frá vesturströnd
Jótlands, en Kristinn
segir að dönsk tré,
einkum frá Vestur-
Jótlandi þyki sérstak-
lega eftirsóknarverð
vegna hins hæga vax-
tar í ófrjórri jörð. Þau
verði því ákjósanleg í lögun, með
stinnar greinar sem beri vel uppi
ljós og skraut.
Skreytingin er
tilfínningamál
Hendrik Berndsen í Blóma-
verkstæði Binna tók að sér að
skreyta tréð. Hann tók undir orð
Kristins varðandi mikilvægi þess að
opna stofninn í fætinum til að vatnið
nái til æðanna.
„Varðandi skreytinguna sjálfa er
þægilegast að hafa lykkjur á
skrautinu til að festa í greinarnar,"
sagði Binni. „Það er bæði fljótlegra
og fer betur með tréð en sú aðferð
að þröngva bandspotta utan um
greinarnar."
Binni valdi „gula línu“ í
Hvernig fará fagmenn
að því að velja og
skreyta jólatré?
Kristinn Skæringsson
og Hendrik Berndsen
tóku að sér verkið,
enda sérfræðingar
á sínu sviði.
VALIÐ - „Mikilvægt er að
vanda vel valið,“ seglr -
Kristinn og lítur
rannsakandi augum fag-
mannsins yfir staflann.
Q FÓTURINN - Tll að tréð
standi beint f fætlnum þarf
oft að hðggva til stofn-
endann.
PÖKKUNIN - Kristinn og
Gunnar Sigurðsson pakka
trénu f þar til gert net.
UPPHAFIÐ - Binni á
Blómaverkstæðinu tekur
víð trénu og byrjar á þvf
að festa það f fætinum.
ENGILLINN - Fyrstl
engillinn festur á grein.
□
□ VERKLOK - Binni leggur
síðustu hönd á skreyt-
Inguna og hnýtir slaufu í
toppinn.
Morgunblaðið/Kristinn
í
:
;
:
: