Morgunblaðið - 23.12.1995, Síða 8
8 LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Stjórn lœknarábs Landspítalans seglr óbreytt fjárlagafrumvarp lelba tll breyttrar heilbrigblsþjónustu.
Skilaboö um aö draga
beri úr lækningum
rGT-yiu MD-
Nýja velferðastefna stjórnvalda á stofugangi. . .
Úrskurður um umhverfismál alþingismanni í vil
Niðurstaðan styrkir
almannarétt verulega
SÉRSTÖK úrskurðarnefnd hefur
úrskurðað að stjórn Hollustuvernd-
ar ríkisins beri að fjalla efnislega
um athugasemdir sem Hjörleifur
Guttormsson alþingismaður sendi
til stofnunarinnar vegna endurskoð-
aðra tillagna að starfsleyfi fyrir
íslenska álfélagið.
Hjörleifur sagði á Alþingi í gær
að almannarétturinn í umhverfis-
málum hefði styrkst verulega við
þessa niðurstöðu og tóku fleiri þing-
menn undir þá skoðun.
Forsaga málsins er að Hjörleifur
sendi Hollustuvernd í október at-
hugasemdir við tillögur að starfs-
leyfi til ÍSAL vegna stækkunar ál-
versins í Straumsvík, Meirihluti
stjórnar Hollustuvemdar úrskurð-
aði í nóvember á grundvelli lög-
fræðiálits Eiríks Tómassonar pró-
SLYSAVARNAFÉLAG ÍSLANDS
stendur nú fyrir átaki til að fækka
slysum vegna flug- og skotelda um
áramótin. Af því tilefni hefur öllum
grunnskólum landsins, 214 að tölu,
verið sent fræðslumyndband sem
sýnt hefur verið skólabömum nú
fyrir jólin.
Um síðastliðin áramót stóð
Slysavamafélagið fyrir átaki undir
heitinu „Eldklár um áramót“. Var
þá framleitt tónlistarmyndband til
að vekja athygli barna og unglinga
á hlífðargleraugum og réttri með-
ferð þeirra. Nú verður átakinu
haldið áfram og hefur heilræðum
frá ungu fólki verið bætt inn í
myndbandið, sem sent hefur verið
til allra gmnnskóla 'á landinu.
fessors, að Hjörleifur ætti ekki rétt
á að skjóta þessu máli til stjórnar-
innar þar sem einungis þeir sem
eigi sérstakra eða verulegra hags-
muna að gæta eigi slíka kæruaðild.
Þennan úrskurð kærði Hjörleifur
til sérstakrar úrskurðarnefndar sem
starfar samkvæmd lögum um holl-
ustuhætti og heilbrigðiseftirlit.
Taldi Hjörleifur m.a. að brotin hefðu
verið á honum stjórnsýslulög, þar
sem honum gafst ekki kostur á að
tjá sig um efni álitsgerðar Eiríks
Tómassonar og á þeim forsendum
einum væri niðurstaðan markleysa.
Þá taldi Hjörleifur að á fyrri stigum
málsins hefði hann skilað athuga-
semdum til Hollustuverndar og
skipulagsstjóra ríkisins og þá hafi
aldrei komið fram að hann teldist
ekki réttur aðili að málinu. Að auki
Ungmennin eiga það sameiginlegt
að hafa slasast af völdum flugelda
eða heimatilbúinna sprengna. Með-
al annars kemur fram níu ára
drengur sem um síðustu áramót
rak blys að auga sér, en hlaut
ekki skaða af þar sem hann var
með hlífðargleraugu. Aftur á móti
mátti sjá vænan brunablett á gler-
augunum og ljóst er að án þeirra
hefði orðið alvarlegt slys.
Samkvæmt tölum frá Borgar-
spítalanum verður að jafnaði eitt
alvarlegt slys á klukkutíma vegna
flugelda um hver áramót og svip-
aða sögu er að segja af þrettándan-
um. Flestir sem slasast eru börn
og unglingar og mörg þeirra bera
varanlegan skaða af.
sé í lögum um umhverfismál bein-
línis gert ráð fyrir afskiptum al-
mennings og áhrifum á ákvarðanir
í þeim efnum.
Úrskurðamefndin er skipuð
Magnúsi Thoroddsen lögmanni,
Guðmundi Sigurðssyni og Finnboga
Björnssyni. Niðurstaða þeirra var
að stjórn Hollustuverndar hafi borið
að kynna Hjörleifi álitsgerð Eiríks
Tómassonar og gefa honum kost á
að tjá sig um efni hennar. Þar sem
það hafi ekki verið gert beri að
ógilda úrskurð hennar og leggja
fýrir stjórnina að taka kærumálið
upp að nýju og fjalla efnislega um
athugsemdir Hjörleifs enda verði
framkoma stofnunarinnar gagnvart
honum í þessu máli ekki túlkuð á
annan veg en þann að hún hafi í
reynd viðurkennt kæruaðild hans.
Umhverfisleyfið skilyrt?
Hjörleifur kynnti úrskurðinn ut-
an dagskrár á Alþingi í gær og
túlkaði hann svo að starfsleyfið til
ÍSAL sem umhverfisráðherra gaf
út 7. nóvember væri nú skilyrt.
Starfsleyfið hefði verið gefið út að
fengnum tillögum Hollustuverndar
án þess að stjórn hennar hefði fjall-
að um athugasemdir Hjörleifs. Nú
væri stjórninni skylt að gera það
og ef sú umfjöllun leiddi til annarr-
ar niðurstöðu gæti þurft að breyta
starfsleyfinu.
Guðmundur Bjarnason umhverf-
isráðherra sagði að öll þau atriði,
sem Hjörleifur hefði gert athuga-
semdir við þegar starfsleyfistillögur
Hollustuverndar lágu frammi,
hefðu einnig komið fram við mat á
umhverfisáhrifum. Guðmundur
sagði að Hjörleifur hefði kært úr-
skurð skipulagsstjóra til umhverfis-
ráðuneytisins sem hefði kveðið upp
úrskurð 7. nóvember. Þannig hefði
ráðuneytið í réynd þegar tekið efn-
islega afstöðu til athugasemda
Hjörleifs og því yrði starfsleyfinu
ekki breytt.
Atak til að fækka
slysum um áramót
Leiklist og bókmenntir
Maður vildi helst
gera allt sem
mann langar til
Bergljót Arnalds
BERGLIÓT Arnalds
heitir ung leikkona
og rithöfundur
sem verður mjög í sviðs-
ljósinu um hátíðirnar. Hún
leikur hlutverk í kvikmynd
Egils Eðvarðssonar, Ag-
nesi, sem var frumsýnd í
gær, föstudag, hún leikur
einnig eitt af aðalhlut-
verkunum í uppfærslu
Leikfélags Akureyrar á
Sporvagninum Girnd eftir
Tennessee Williams, sem
frumsýnt verður þriðja í
jólum, og hún er handrits-
höfundur ásamt Sigur-
birni Aðalsteinssyni að
sjónvarpsmynd fyrir börn,
Litlu þorpararnir, sem
frumsýnd verður á annan
í jólum í Ríkissjónvarpinu.
Bergljót er lærður leikari
frá Queen Margaret Coll-
ege í Edinborg í Skotlandi. Hún
var fastráðin hjá Leikfélagi Ak-
ureyrar á síðasta leikári en leik-
ur í tveimur verkum þar á þessu,
Drakúla og Sporvagninum.
— Þú hefur átt annríkt síðast-
liðna mánuði?
„Já, og raunar hefur verið
mikið að gera allt árið. Ég hef
fengist við mörg og ólík verk-
efni. Það er sérstaklega
skemmtilegt að vinna hérna hjá
Leikfélagi Akureyrar því maður
fær svo margvísleg hlutverk að
takast á við. Svo er það auðvitað
ólík að leika á sviði og í kvik-
mynd, að ég tali nú ekki um
muninn á því að skrifa og leika.
Að auki eru þessi þrjú verk mjög
ólík.
Ég er að leika mér svolítið í
barnamyndinni; ég vildi gera
mynd sem væri sem líkust þöglu
myndunum, byggðist sem mest
á myndmálinu en hefði lítið tal.
Þetta er því mynd þar sem er
mikið á seyði, sagan er sögð með
aksjóninni en ekki með texta.
í Agnesi leik ég Sigríði sem
er viðhald Natans en í Girndar-
vagninum leik ég Stellu sem er
eiginkona Stanleys Kovalsky.
Það er svolítið gaman að bera
saman þessar konur sem eru
mjög ólíkar. Sigríður er mjög
saklaus og kúguð, hún þorir ekki
að beijast. Hún verður vitni að
morði og er nauðgað en hefur
ekki uppburði í sér til að takast
á við þetta. Stella verð-
ur líka fyrir áföllum
en er svo miklu sterk-
ari og þorir að taka á
sínum vandamálum,
hún rífst og slæst við
eiginmann sinn og
bregst þannig allt öðruvísi við
en Sigríður. Þær eiga það hins
vegar sameiginlegt að báðar eru
þær þolendur, báðar verða þær
fyrir missi. Það er geysilega
skemmtilegt að takast á við þessi
ólíku hlutverk en kannski svolít-
ið krefjandi líka.“
— Hver er munurinn á því að
leika á sviði og í kvikmynd?
„I grundvallaratriðum er lítill
munur þar á en kosturinn við
að leika í kvikmyndum er að
maður getur leikið nokkuð eðli-
lega. A sviði þarf maður hins
vegar að ýkja allar hreyfingar
og tala skýrar og hærra en
venjulega. Aðalkostur sviðsleiks
er sá að maður fær viðbrögð
strax frá áhorfendum, maður
veit frekar hvort maður er að
►Bergljót Arnalds er fædd
15. október árið 1968 í vestur-
bænum í Reylgavík. Hún lauk
stúdentsprófi af fornmála-
braut frá Menntaskólanum
við Hamrahlíð árið 1989 og
stundaði nám í íslenskum bók-
menntum við Háskóla íslands
árin 1989-1991. Hún hélt þá
til Edinborgar í Skotlandi þar
sem hún stundaði leiklist-
arnám við Queen Margaret
College. Hún útskrifaðist það-
an 1994 sem leikari. Bergyót
á átta ára gamlan son að nafni
Matthías Arnalds.
gera vel eða illa. Einnig er það
kostur við sviðið að þar stendur
hver sena aðeins stutta stund,
þegar maður er að leika í kvik-
mynd þarf maður að leika sömu
senuna hvað eftir annað. Það
getur verið sérstaklega erfitt
þegar verið er að fara í óþægileg
atriði. í Agnesi leik ég til dæmis
í nauðgunarsenu sem tók tólf
klukkutíma að taka. Svo er biðin
á tökustað alltaf erfið og gerir
undirbúning fyrir hvert atriði
mjög snúinn."
— Hefur þú fengist við að
skrifa áður?
„Ég hef skrifað tvö leikrit.
Annað var sýnt af Stúdentaleik-
húsinu og Leikfélagi Sauðár-
króks en það hét Ein, tvær, þijár
og jafnvel fjórar, hitt
var flutt í Ríkisútvarp-
inu á alþjóðlega leik-
listardeginum árið
1993 og hét Svanur
er alltaf svanur, hvort
sem hann er hvítur eða
svartur. Þegar ég var í Mennta-
skólanum í Hamrahlíð skrifaði
ég líka leikrit sem hét Gullin
mín og var það sett upp þar.
Núna er ég svo að skrifa barna-
bók sem Skjaldborg ætlar að
gefa út á næsta ári.“
— En hvað er framundan,
ætlarðu að einbeita þér mcira að
skriftum?
„Það er auðvitað mikil tog-
streita í manni. Ég verð að vinna
í Sporvagninum og þessari
barnabók eitthvað fram eftir
vetri en síðan verður bara að
koma í ljós hvað verður. Vitan-
lega myndi maður helst vilja
gera allt sem mann langar til
en það getur verið erfítt þegar
það eru aðeins 24 tímar í sólar-
hringnum."
Mikil tog-
streita í
manni