Morgunblaðið - 26.11.1995, Page 34
MORGUNBLAÐIÐ
34 B SUNNUDAGUR 26. NÓVEMBER 1995
Camus er stærsta
koníaksfyrirtækið,
sem enn er í fj ölskyldu-
eigu. Steingrímur
Signrgeirsson hitti
Jean-Paul Camus í
Plessis-höll fyrir
skömmu og fræddist
um sögu ættarinnar og
fyrirtækisins.
Morgunblaðið/Steingrímur
JEAN-Paul og Christine Camus. Til hægri má sjá Plessis-höli.
CAMUS
ÞÓ AÐ CAMUS hafi verið
mest selda koníak á ís-
landi í um hálfan annan
áratug er fyrirtækið ein-
ungis fimmta stærsta koníaksfyrir-
tæki í heimi og mun minna en
risarnir fjórir í koníaksheiminum,
Hennessy, Courvoisier, Rémy-
Martin og Martell.
Camus hefur hins vegar sér-
stöðu hvað tvennt varðar. Það
er stærsta koníaksfyrirtækið,
sem enn er rekið sem fjölskyldu-
fyrirtæki. Camus-fjölskyldan
hefur framleitt koníak allt frá
árinu 1863, er það var stofnað
af Jean-Baptiste Camus og er
núverandi aðalstjórnandi fyrir-
tækisins, Jean-Paul Camus full-
trúi fjórðu kynslóðarinnar. Bróðir
hans, Philippe, er yfirmaður
Frakklandsdeildar fyrirtækisins.
Þá hefur fyrirtækið um árabil
verið ráðandi á heimsmarkaði
hvað varðar sölu á hágæðakon-
íaki eða í flokkunum fyrir ofan
VSOP, þ.e. Napoléon, XO, Extra
og rándýrum sértegundum sem
aðallega er að finna í tollfijálsum
verslunum. Að því leiðir einnig
að mikilvægustu markaðir fyrir-
tækisins eru ekki í Evrópu fyrst
og fremst, þar sem uppistaða
neyslunnar er VS-koníak heidur
í Asíu, þar sem mesta salan er í
dýru koníaki.
Þó að oft sé talað um Asíu sem
einn markað samanstendur hann
hins vegar af fjölmörgum ólíkum
og flóknum mörkuðum og geta
menn í koníaksbransanum sagt
endalausar sögur af samskiptum
sínum við Asíubúa. Japanski kon-
íaksmarkaðurinn er fyrst og
fremst gjafamarkaður og því
skiptir útlit flöskunnar oft meira
máli heldur en innihaldið. Oft
ganga flöskumar manna á milli
án þess að vera nokkum tímann
opnaðar. Hins vegar drekka Jap-
anir mikið koníak á börum og þar
skiptir sjálf koníaksblandan öllu
máli.
Kínverjar (Hong Kong og Tæv-
an) leggja einnig mikið upp úr
útliti flasknanna en þar sem að
þeir kaupa þær til að drekka en
ekki gefa myndu þeir aldrei kaupa
blöndu er félli þeim ekki í geð.
Þeir drekka gjaman koníak með
mat og ekki er óalgengt að kín-
verskir kaupsýslumenn drekki
hálfa flösku af XO með hádegis-
matnum. Kóreumenn drekka einn-
ig koníak með mat og þá helst
osti. Margir Asíubúar er einnig
sannfærðir um að koníak hafi já-
kvæð áhrif á kyngetu karl-
manna.
í upphafi aldarinnar var
Rússland einn allra mikilvæg-
asti markaður fyrirtækisins
og hafði sá markaður verið
byggður upp af annari kyn-
slóð fjölskyldunnar, Gaston
og Edmond Camus. Var kon-
íak þeirra notað við hirð Rúss-
landskeisara. Þessi markaður
varð hins vegar að engu við
byltinguna. Með árunum
tókst hins vegar að byggja
upp viðskiptin við Rúss-
land (eða Sovétríkin
eins og ríkið hét þá)
að nýju og seldi fyr-
irtækið mikið magn
af brenndum vínum
og koníaki þangað
en fékk á móti einka-
leyfí til innflutnings
á Moskovskaya-
vodka til Frakklands.
Enn í dag á fjölskyld-
an í töluverðum við-
skiptum við Rússa.
Það var hins vegar
Michel Camus í næstu
kynslóð, sem mótaði
þá stefnu er fyrirtæk-
ið hefur fylgt til þessa
það er að einbeita sér
að sölu og framleiðslu
á hágæðakoníaki. Michel var á
stöðugum ferðalögum um heiminn
til að kynna koníakið sitt og sann-
færðist um að besti möguleiki
fyrirtækisins til markaðssóknar
væri að einbeita sér að efri gæða-
flokkunum þar sem að koníaks-
risamir væm það öflugir á öðrum
sviðum.
Hann lagði mikla áherslu á toll-
frjálsa sölu í fríhöfnum er var ört
stækkandi markaður upp úr miðri
öldinni. Stefna Michels var að
framleiða minna en betra og von-
ast til að fólk myndi með tímanum
kunna að meta þá stefnu. Hann
virðist hafa veðjað á réttan
hest því undanfarin ár em há-
gæðakoníök sá flokkur er sala
eykst hlutfallslega mest í.
“Það var Michel sem reið á
vaðið varðandi hágæðakoníak
á koníaksmarkaðinum," segir
NÝJUNGARí
desember, XO-
Superior og
Cuvée Special.
Philippe Mayer-Gillet, einn af
stjórnendum fyrirtækisins. “Hann
lagði mikla áherslu á Napoléon-
koníakið og setti eitt allra fyrsta
XO-ið á markaðinn í heiminum.
Við eigum enn mesta selda XO í
heimi og það sama má segja um
Napoléon en langmikilvægustu
markaðir okkar em í Austurlönd-
um fjær.“
Camus hefur aðsetur sitt í mið-
borg Cognac. Fjölskyldan á vín-
ekmr í Borderies, Grand
Champagne og Fine Champagne
og em vínin þaðan eimuð í fjórum
eimingarhúsum, sem em mjög
mismunandi að stærð. Hið
minnsta er staðsett við Chateau
d’Uffaut í Grande Champagne þar
sem fjölskyldan á vínekrur.
Jean-Paul Camus leggur hins
vegar mikla áherslu á að sérstaða
Camus-koníaks byggi á því að
nota mikið af koníaki er kemur
frá svæðinu Borderies. Það er
minnsta svæði koníakhéraðsins
og eru vín þaðan mjög eftirsótt
þar sem Borderies-koníök gefa
mikla þyngd og fyllingu, sem
kemur hinni endanlegu kon-
íaksblöndu til góða.
Camus-fjölskyldan á rætur
sínar í Borderies og þar er
einnig að finna ættarsetrið
Plessis-höll. Tvær þriðju af
vínekrum fjölskyldunnar er í
Borderies en um þriðjungur
í Grand og Fine
Champagne. Vín frá
öðrum svæðum, sem
notuð eru í ódýrari
blöndur, em að-
keypt. Jean-Paul
leggur mikla
áherslu á að sér-
staða fyrirtækis-
ins felist í fjöl-
skyldurekstrinum
og þeirri trygg-
ingu sem hann
veiti. Galdurinn á
bak við hágæðakoníak sé einmitt
að um áratugaskeið hafi verið
byggt upp safn af góðum, eldri
koníökum er nota megi til að gera
hina flóknu lokablöndu.
Jean-Paul sér sjálfur um að
blanda öll koníök Camus og hóf
hann að nema þá tækni af föður
sínum Michel þegar sem táningur.
Um nokkurra ára skeið hafa synir
hans tveir, Jean-Baptiste og Cyr-
il, undirbúið sig undir það að geta
í framtíðinni tekið við fyrirtækinu.
í desember kynnir Camus tvær
nýjungar á. íslandi. í fyrsta lagi
verður sett á markaðinn nýtt XO,
sem heitir XO Superior og leysir
hið eldra af hólmi. Nýja XO-ið var
fyrst sett á markað í Asíu fyrir
tveimur árum og hefur aðallega
fengist í fríhöfnum til þessa. Er
ísland fyrsti markaðurinn í Evr-
ópu, sem fær að selja hið XO
Superior en fljótlega stendur einn-
ig til að hefja sölu á því í evrópsk-
um fríhöfnum.
Nýja XO-ið er í öðrum flöskum
en hið eldra en að sama skapi er
blandan önnur. Uppbygging þess
er flóknari, meðalaldur koníak-
anna í blöndunni töluvert hærri
og hlutfall koníaks frá Borderies
meira.
Þá verður einnig hafin sala á
koníaki er heitir Cuvée Special en
vegna uppbyggingu áfengissölu-
kerfisins á íslandi verður það fyrst
um sinn einungis selt í fríhöfnum
og til veitingahúsa af frísvæði.
Cuvée Special er verðlega séð stað-
sett á milli VSOP og Napoléon og
er ætlað að höfða til þeirra er vilja
betra og dýrara koníak en VSOP
en eru ekki reiðubúnir að fara alla
leið upp í XO. Um 100 koníök eru
notuð í blönduna sem er mild og
bragðmikil. Ekki er langt síðan
þetta koníak var sett á markaðinn
í Austurlöndum fjær og vegna
góðrar reynslu þar er nú að hefj-
ast sala á fleiri mörkuðum.
Fyrstu 1995-vínin
ÞAÐ FYLGIR því ávallt nokkur
spenna að bragða á fyrstu vínum
árgangsins, þó svo að maður viti
að bestu vínin þurfa mun lengri
tíma áður en að þau verða tilbúin
til neyslu.
Eitt mesta snilldarbragð í sögu
markaðsmála hlýtur að vera er
vínframleiðendum í Beaujolais
hugkvæmdist að setja fyrsta vín
uppskeruársins á markað þriðja
fimmtudag nóvembermánaðar.
Vín þessi urðu mjög vinsæl, ekki
endilega vegna þess að þau væru
svo góð heldur vegna þeirrar
stemmningar er myndaðist í kring-
um þau.
En þegar einhverjum gengur vel
eru alltaf einhverjir til að apa það
eftir og því eru venjulega komnar
á markað ýmsar “nouveau“- útgáf-
ur fyrir þriðja fimmtudag nóvem-
ber. Snemma hausts fara að berast
“novello“-vín frá Italíu og “nouv-
eau“-vín frá syðri héröðum Frakk-
lands, sem ekki eru bundin af þess-
ari tímasetningu.
Tvö slík fást nú hér og veita
færi til að taka forskot á sæluna
þangað til að Beaujolais-tegundirn-
ar fara að streyma til landsins á
næstu dögum. Báðar eru þær raun-
ar frá þekktasta framleiðanda Be-
aujolais, Georges Duboeuf. í báð-
um tilvikum er um ágæt vín að
ræða enda ekki við öðru að búast
frá Duboeuf.
Gamay Nouveau frá Ardeche-
héraðinu (940 krónur) er ferskt vín
og létt og minnir það um margt á
Beaujolais Nouveau enda framleitt
úr sömu þrúgu líkt og nafnið bend-
•ir til. Þetta er þægilegt vín og eru
ilmur og bragð út í hindber og rauð
skógarber.
Nouveau frá Oc-héraðinu við Mið-
jarðarhaf (870 krónur) er nokkuð
þyngra og ilmur þess út í rifsber
og jafnvel sólber. Það er fyllra en
Gamay-vínið en verður helst til
væmið til lengdar.