Morgunblaðið - 26.11.1995, Side 14
14 B SUNNUDAGUR 26. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Græna pláneta
Serreau
EINN fremsti gaman-
myndaleikstjóri
Frakka er Coline Serre-
au sem heimurinn þekk-
ir kannski best sem höf-
und Þrig-gja manna og
körfu er síðar varð
bandariska metsölu-
myndin Þrír menn og
barn. Hún vinnur nú við
nýja gamanmynd sem
heitir „La belle verte“
eða Græna plánetan.
Myndin gerist á Grænu
plánetunni í öðru sól-
kerfi langt frá okkar
eigin bæði í tíma og
rúmi. íbúar hennar lifa
einföldu lífi og gæta þess
að rækta vel bæði and-
lega og likamlega eigin-
leika sína í sátt við nátt-
úruna, sem þeir hlúa að
og dýrka. Einu sinni á
ári safnast þeir saman
oní stórum eldgíg og
ákveða hvert stefna eigi
í næstu geimferð. Nægir
sjálfboðaliðar fást í ferð-
irnar nema til hinnar
skítugu og ógeðslega
menguðu Jarðar.
Serreau gerir sjálf
handritið en með aðal-
hlutverkin fara Paul
Crauchet, Darry Cowl
og m.a. höfundurinn,
Serreau.
FULLKOMIN græn pláneta; eftir Serreau.
KVIKMYNDIR
/Hvad kom fyrir Mary Reilly?
Myndin
endalausa
HRAKFALLASÖGUR eru
vinsælustu sögurnar í Holly-
wood eins og kjaftagangur-
inn í kringum Vatnaveröld
Kevins Costners sýndi glögg-
lega. Nýjasta myndin til að
lenda á milli tannanna á fólki
þar vestra er „Mary Reilly“
eftir breska leikstjórann
Stephen Frears eftir handriti
breska leikskáldsins Christ-
ophers Hamptons með John
Malkovich í hlutverki tveggja
af þekktustu persónum
heimsbókmenntanna, dr. Je-
kylls og herra Hyde. Síðast
þegar þessir þrír lögðu sam-
an í púkk var útkoman hið
stórkostlega búningadrama
Hættulegt samband eða
„Dangerous Liaisons". Julia
Roberts bættist í hópinn sem
titilpersónan, Mary Reilly, en
myndin ætlar seint að kom-
ast á hvíta tjaldið.
Frumsýningin átti að vera
sumar en var frestað.
Síðan átti að frumsýna
myndina um jólin en nú hef-
ur því verið frestað. Það á
að frumsýna hana í febrúar
en hvort af því verður getur
tíminn einn leitt í ljós. Fram-
leiðandinn, Ned Tanen, talar
ekki lengur við leikstjórann
——— Frears og
JK' Frears vildi
gl ekkert hafa
!f "5 með mynd-
-S jf ina að gera
eftir að
^W—tökum lauk
eftir Arnald í september
Indriðason fyrir ári.
Síðan þá
hefur hún verið í stöðugri
endurskoðun. Eitt sinn var
litið á hana sem eitthvert
vænlegasta kvikmyndaefnið
í Hollywood. Nú taka menn
til fótanna þegar þeir heyra
hana nefnda. Hvað gerðist?
Myndin er byggð á bók
Valerie Martins sem endurs-
amdi söguna af Jekyll og
Hyde og rakti hana frá sjón-
arhóli vinnukonu á heimili
læknisins. Hún er trú Jekyll
en fellur í stafi yfir hinum
skuggalega Hyde, sem er
hættulegri og meira spenn-
andi persónuleiki. Frábært
efni í ástarsögu og hryllings-
sögu og einskonar Húsbænd-
ur og hjú hinna persónu-
klofnu. Warner Bros. fékk
verkefnið í hendur í gegnum
framleiðendurna Peter Gu-
ber og Jon Peters sem tóku
það með sér yfir til Sony
fyrirtækisins þar sem Col-
umbia kvikmyndaverið og
TriStar bitust um það. TriSt-
ar hreppti hnossið og Tim
Burton var kallaður til að
leikstýra. Hann hafði annað
verkefni sem hann vildi klára
fyrst („Ed Wood“) svo Frears
settist í leikstjórastólinn
enda maðurinn sem gerði
„Dangerous Liaisons".
Einasta vandamálið var
að myndin hafði engan endi
þegar ráðist var í tökur. í
bókinni drepur Jekyll sig til
að drepa skrímslið Hyde sem
hann breyttist í en myndin
snerist um ástarþríhyrning
þar sem vinnukonan varð að
velja og hafna milli þeirra
tveggja. Spurningin sem
myndin átti að spyija var:
Hvað vilja konur? Roberts
átti að svara því sjálf og túlk-
un hennar átti að leiða til
rökréttra éndaloka. Hún átti
að því er virðist að leikstýra
sjálfri sér uppá Óskarsverð-
launapall. I ljós kom þegar
búið var að eyða um 40 millj-
ónum dollara að þetta var
ekki svo góð hugmynd eftir
allt. Túlkun Roberts gaf eng-
in fyrirheit um endi. Hamp-
ton skrifaði nokkur endalok.
„Þau voru ekkert ólík. Þetta
er aðeins stundarkorn, tvær
14.000 á
Hættulega
tegund
ALLS hafa um 14.000 manns séð Hættu-
lega tegund í Laugarásbíói og Sam-
bíóunum að sögn Magnúsar Gunnarssonar í
Laugarásbíói.
Þá hafa um 8.500 manns séð Dredd dóm-
ara og um 5.000 sáu Payne majór.
Næstu myndir Laugarásbíós verða „Mortal
Kombat“ og íslenska jólamyndin Agnes, sem
einnig verður í Stjörnubíói. Eftir áramótin er
svo von á myndum eins og „Seven“ með
Morgan Freeman og Brad Pitt, „Now and
Then“ með Demi Moore, „Get Shorty“ með
John Travolta og „Nixon" eftir Oliver Stone.
mínútur." Frears kvikmynd-
aði að lokum þrjá enda: 1.
Reilly verður með Hyde. 2.
Reilly verður með Jekyll. 3.
Reilly hættir þessu rugli og
kveður þá báða.
Ahorfendur voru ekkert
yfir sig hrifnir á prufusýn-
ingum og forstjóri TriStar,
Marc Platt, tók myndina í
sína hendur með þeim afleið-
ingum að Frears, sem kvik-
myndar nú „The Van“, fram-
hald „The Snapper", fannst
hún hræðileg og ekki var
hróflað meira við hans út-
gáfu. Nú má vera að allt
þetta sé fjaðrafok út af engu
og að myndin sé hreinasta
meistaraverk. Það fær bara
enginn að dæma um það.
Ennþá.
MStórleikarinn Daniel Day-
Lewis leikur enn á móti
Winona Ryder í myndinni
„The Crucible" en síðast
þegar þau léku saman var
það undír stjórn Martin
Scorsese í Old sakleysis-
ins.
MTökur standa nú yfír á
myndinni „A Time to Kill“
eftir spennusögu John Gris-
hams. Þær fara fram í Miss-
issippi undir stjórn Joel
Schumachers en með aðal-
hlutverkið fer ungur leikari
að nafni Matthew McCon-
aughey sem Grisham valdi
persónulega eftir að hann
hafnaði Woody Harrelson.
Matthew þessi er þekktur
sem leikari úr „Dazed and
Confused“.
MTökur standa einnig yfir á
vísindaskáldskapartryllin-
um „Independence Day“
undir stjórn Roland Em-
merich, sem áður gerði
„StarGate“ blendinnar
minningar. Bill Pullman
leikur forseta Bandaríkj-
anna en Jeff Goldblum og
WiII Smith bjarga honum
og heiminum öllum frá inn-
rásarher geimvera. Mynd
Tim Burtons um innrás frá
Mars, „Mars Attacksl",
hefur hins vegar frestast á
meðan handritið er í endur-
vinnslu.
MNýjasta gamanmynd Mel
Brooks, „Dracula: Dead
and Loving It“, gerir gys
að Drakúlamyndum fyrr og
nú o g er með Leslie Nielsen
í aðalhlutverki. Hún er jóla-
I BIO
"IZ" vikmyndahátíð
■IV Listahátíðar er
ekki haldin í ár og eng-
inn veit um framhald
hennar. Hennar virðist
lítt saknað enda hafa
kvikmyndahúsin verið
iðin upp á síðkastið við
að fylla í’ skarðið. eftir
hana með sýningum
hátíðamynda í tilefni
100 ára afmælis kvik-
myndalistarinnar.
Háskólabíó hefur
sýnt margar góðar
myndir á árinu undir
hatti afmælisins en
einnig lagt áherslu á
að bjóða uppá listræn-
ar myndir hvaðanæva
úr heiminum sem sóma
mundu sér á hvaða
kvikmyndahátíð sem
er: Tvö ágæt og nýleg
dæmi eru Jarðarber og
súkkulaði frá Kúbu og
Að lifa frá Kína.
í Regnboganum
stendur yfir kvik-
myndahátíð út þennan
mánuð með ijölda for-
vitnilegra mynda en
líklega er bandaríska
myndin „Kids“ þeirra
athyglisverðust.
Þá hafa kvikmynda-
húsin í samvinnu við
Kvikmyndasafn ís-
lands sýnt ýmsar af
perlum kvikmyndanna
og munu halda því
áfram langt fram á
næsta ár.
SKRÍTINN ást-
arþríhyrningur;
Roberts og
Malkovich í
„Mary Reilly“.
Endatafl, leik-
stjórinn Frears.
SKUGGALEGT lið; leikaramir í „Get Shorty“.
STEVE Golin framleiðir; De Niro og Levinson
við tökur á „Sleepers".
Levinson stýrir
Pitt og De Niro
NÝJASTA mynd Barry
Levinsons (,,Diner“)
heitir „Sleepers“ og er með
fjórum stórstjörnum í aðal-
hlutverkum: Robert De Niro,
Dustin Hoffman, Jason
Patric og Brad Pitt ásamt
hinum þrettán ára gamla
Brad Renfro úr Skjólstæð-
ingnum. Með aðalkvenhlut-
verkið fer Minnie Driver.
Framleiðandi „Sleepers"
er Steve Golin sem áður var
samstarfsmaður Sigutjóns
Sighvatssonar og stofnaði
með honum Propaganda
Films í Los Angeles. Myndin
segir af því hvernig ung-
menni hafa verið kvalin og
pínd í haldi í betrunarvist.
Levinson hefur ekki gert
góðar myndir að undanförnu
en náði sér að nokkru á strik
með spennumyndinni Af-
hjúpun eða „Disclosure" og
hlýtur að geta gert eitthvað
af viti með öllu þessu kræsi-
lega leikaraliði.