Morgunblaðið - 26.11.1995, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 26. NÓVEMBER 1995 B 9
skepna — skyld sækúnni — er
nykurinn, einnig nefndur nennir
eða vatnahestur. Hann var eirinig
grár að lit og lifði aðallega í ám
og vötnum, en stundum líka í sjó.
Að sköpulagi líktist hann helst
hesti, nema hvað hófarnir sneru
öfugt. Útlit hans gat þó brugðið
frá þessari lýsingu, því hann átti
til að breyta sér að eigin vild. Fyr-
ir kom að hann fyljaði hryssur á
landi, en afkvæmi hans höfðu það
einkenni að vilja leggjast niður
undir manni eða böggum, ef riðið
var yfir vatnsfall. Sagt er eð nykur-
inn hneggi þegar sprungur mynd-
ast á lagnarís með tilheyrandi dun-
um. (JA 1:129-130).
Aðrar verur, öllu skyldari huldu-
fólki, eru svokallaðar dísir sem
nokkuð ber á í örnefnaheitum á
íslandi (t.d. Dísardalur við Rauð-
hóla í Reykjavík og fjallið Dís við
Siglufjörð). Líkt og huldufólk eiga
þær rót sína að rekja til goðafræð-
innar en þar var dísarheitið notað
um nornir, fylgjur, valkytjur og
jafnvel ásynjur (t.d. er Vanadís
eitt af skáldaheitum Freyju). Á
germönskum landsvæðum var dís-
ardýrkun ríkur þáttur í helgihaldi
heiðinna manna til forna, og ís-
lensk sagnarit geta sumstaðar um
dísarblót sem fram fóru á erlendri
grund. í þjóðtrúnni vísar heitið til
kvenvera sem lifðu í náttúrunni,
ýmist í jörð (landdísir) eða vatni
(vatnadísir). Séra Jón Sigurðsson
á Mýrum í Dýrafirði segir frá því
í fornminjaskýrslu árið 1817 að
Landdísa-steinar (sem eru all-
margir á Vestfjörðum) séu svo
nefndir vegna þess að fólk trúi að
í þeim búi dísir. Ekki mátti slá
gras umhverfis Landdísasteina og
börnum var meinað að leika sér
umhverfis þá eða vera með ærsl
og læti nálægt þeim. Er því nokk-
uð ljóst að dísartrúin á Vestfjörð-
um er náskyld huldufólkstrúnni og
raunar einn angi af henni. í þjóð-
artrúnni örlar einnig á vatnadísum
sem minna mjög á erlendar fyrir-
myndir, til dæmis hina frægu Lore-
lei við Rínarfljót sem laðaði til sín
sjófarendur. Eitt þekkt dæmi er
Lómatjarnardísin sem Margrét
Magnúsdóttir (föðursystir Matthí-
asar Jochumssonar, skálds) lýsti
eitt sinn þannig:
Þarna við tjarnarbakkann stóð
fögur kona, með mikið hrafn-
svart hár, er féll ofan um hana
allt að beltisstað. Hún starði
opnum döprum augum í vestur-
átt, heim til bæja. Annar hand-
leggurinn var krepptur í oln-
bogaliðnum og iá hendin flöt á
bijóstinu. Hinn handleggurinn
lá niður með síðunni. Neðri hluti
líkamans . . . virt-
ist . . . vera undir yfirborði
vatnsins. Einkennilegur ljós-
bjarmi sýndist . . . leika um
þessa veru og friður stafa frá
henni.
Ekki stóð þessi sýn nema and-
artak, og seig veran ofan í
tjörnina, hljóðlaust, og án þess
að nokkur gára myndaðist á
yfirborði vatnsins. Fuglar sem
móktu á tjörninni bærðu ekki
á sér. (Helgi Hallgrímsson:
42-43).
Eftirfarandi saga er birt sem
dæmi um þessa tegund þjóð-
sagna:
Selshamurinn
Einu sinni var maður nokkur
austur í Mýrdal sem gekk hjá klett-
um við sjó fram að morgni dags
fyrir fótaferð. Hann kom að hellis-
dyrum einum. Heyrði hann glaum
og.danslæti inni í hellinum, en sá
mjög marga selshami fyrir utan.
Hann tók einn selshaminn með
sér, bar hann heim og læsti hann
ofan í kistu. Nokkru seinna um
daginn kom maðurinn aftur að
hellisdyrunum. Sat þá ungleg kona
og lagleg. Var hún allsber og grét
mjög. Þetta var selurinn er átti
haminn sem maðurinn tók. Maður-
inn lét stúlkuna fá föt, huggaði
hana og tók hana heim með sér.
Var hún honum fylgisöm en felldi
skap sitt miður við aðra. Oft sat
hún samt og horfði út á sjóinn.
Eftir nokkurn tíma fékk maðurinn
hennar. Fór vel á með þeim og
varð barna auðið. Haminn geymdi
bóndi alltaf íæstan niður í kistu
og hafði lykilinn á sér, hvert sem
hann fór.
Eftir mörg ár reri hann eitt sinn
og gleymdi lyklinum heima undir
koddabrún sinni. Þegar hann kom
heim aftur var kistan opin, en kon-
an og hamurinn horfín. Hafði hún
tekið lykilinn og forvitnast í kist-
una, og fundið þar haminn. Gat
hún þá ekki staðist freistinguna,
kvaddi börn sín, fór í haminn og
steyptist í sjóinn um leið og hún
mælti þetta fyrir munni sér:
Mér er um og 6,
ég á sjö böm í sjó
og sjö böm í landi.
Sagt er að manninum féllist
mjög um þetta.
Þegar maðurinn reri síðan til
fiskjar var selur oft að sveima í
kringum skip hans og var eins og
tár rynni af augum hans. Mjög var
hann aflasæll upp frá þessu og
ýmis höpp bar upp á ijörur hans.
Oft sáu menn það, að þegar böm
þeirra hjóna gengu með sjávar-
ströndinni synti þar selur fyrir
framan í sjónum, jafnframt sem þau
gengu á land eða í fjörunni, og
kastaði upp til þeirra marglitum
fiskum og fallegum skeljum. En
aldrei kom móðir þeirra aftur á land.
iíslenskar þjóðsögur — Álfar og
tröll. Ólína Þorvarðardóttir bjó til
prentunar og ritar formála. Olafur
M. Jóhannesson myndskreytti. Út-
gefandi er Bóka- og blaðaútgáfan
sf. Bókin er alls 176 bls.
Verð kr. 3490.-..
CCU samtökin halda
fræðslufund
CCU SAMTÖKIN halda fræðslu-
fund fyrir einstaklinga með Crohn’s
og Colitis Ulcerosa sjúkdóma
þriðjudagskvöldið 28. nóvember í
sal Verkstjórafélags Reykjavíkur,
Skipholti 3, 3. hæð.
CCU-samtökin voru stofnuð 28.
október sl. Samtökin eru hópur
fólks með Crohn’s og Colitis Ulcer-
osa sjúkdóma sem eru langvinnur
bólgusjúkdómar í meltingarvegi.
Talið er að um þessar mundir séu
500-600 íslendingar með þessa
sjúkdóma og að árlega greinist um
25-35 sjúklingar.
Á fundinum heldur Birgit Eriks-
en, næringarfræðingur, fyrirlestur
um fæðuval fyrir einstaklinga með
Crohn’s og Colitis Ulcerosa sjúk-
dóma. Áð loknum fyrirlestri og fyr-
irspumum verður hópspjall um
áhrif mismunandi fæðu á líðan
fólks.
FJÖLMENNI var á stofnfundi
CCU samtakanna.
Spástefna
Stjórnunar-
félagsins 5.
desember
HIN ÁRLEGA Spástefna Stjórnun-
arfélagsins verður haldin 5. desem-
ber næstkomandi. Þetta er í 16.
skipti sem Stjórnunarfélagið stendur
að Spástefnunni.
Á þessari Spástefnu fjalia 10
ræðumenn um meginstrauma á ís-
landi til aldamóta. Ræðumennirnir
eru stjórnendur og forystumenn á
jafn mörgum sviðum þjóðlífsins.
Á Spástefnunni verður jafnframt
kynnt spá forsvarsmanna fyrirtækja
um efnahagsþróun næsta árs, svo
og efnahagshorfur til aldamóta. Að
þessu sinni leitaði Stjórnunarfélagið
til tvöfalt fleiri fyrirtækja en áður
til að taka þátt í spánni.
Skráning á Spástefnuna er hjá
Stjórnunarfélagi íslands.
aukinX
WRÉTTIND^
aukinna ökuréttinda
hefst miðvikudaginn
29. nóvember kl. 18
Upplýsingar í síma 567 0300
frá kl. 13 - 20 alla virka daga.
0KUSK0LINNIMJ
arabakka 3, Mjóddinni, sími/£>j^f0300
SUZUKI - AFL OG ORYGGI
Vitara V6
Fiýr edaljeppi þar sem afl
°9 öryggi hafa forgang.
Vitara V6 er einstaklega aflmikill, með hljóðláta V6 vél,
24 ventla, sem afkastar 136 hestöflum.
Hann er byggður á sjálfstæða grind og er með hátt og lágt drif.
Fiákvæmt vökvastýrið og lipur 5 gíra handskiptingin
eða 4ra gíra sjálfskiptingin gera Vitara V6 auðveldan
í akstri á vegum sem utan vega.
Öryggisloftpúðar fyrir ökumann og framsætisfarþega,
höfuðpúðar á fram og aftursætum og styrktarbitar í hurðum
gera Vitara V6 að einum öruggasta jeppa sem býðst.
Einstaklega hljóðlátt farþegarýmið er búið öllum þægindum
sem eiga heima í eðaljeppa eins og Vitara V6.
SUZUKI BILAR HF
SKEIFAN 17 - SÍMI:,568 5100