Morgunblaðið - 26.11.1995, Qupperneq 6
6 B SUNNUDAGUR 26. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
BENEDIKTE Thorsteinsson er atvinnu- og félagsmálaráðherra í landstjórninni á Grænlandi.
Morgunblaðið/Kristinn
Karlaveldið er
enn ríkjandi
HÚN er fædd og uppalin á
sveitabæ á Suður-Græn-
landi og gekk í bama-
skóla í bænum Juliane-
háb. Síðan var hún send hingað og
þangað í þá skóla, sem voru fyrir
hendi á þeim tíma, ýmist til Nuuk
eða Danmerkur. Að loknu stúdents-
prófi í Kaupmannahöfn hitti hún
fljótlega tilvonandi eiginmann sinn,
'Guðmund Thorsteinsson frá íslandi,
sem þá var við vinnu í Kaupmanna-
höfn. Þau ákváðu að flytja til ís-
lands þar sem þau bjuggu í rúm tíu
ár, en fluttu svo til Grænlands árið
1984 vegna eindreginna óska Guð-
mundar þar um. Þá fyrst fór Bene-
dikte Thorsteinsson að hafa afskipti
af pólitík og situr nú sem ráðherra
atvinnu- og félagsmála í grænlensku
heimastjórninni.
„Ég var svo sem ekkert á því að
flytja frá íslandi. Hér fannst mér
gott að búa,“ segir Benedikte á góðri
íslensku. Fyrstu árin á Islandi segist
hún hafa unnið ýmis störf á meðan
hún kunni ekki íslenskuna almenni-
lega, m.a. í fiski og við saumastörf,
einnig hjá Norræna féiaginu og í
Norræna húsinu, en eftir að hafa
náð tökum á tungumálinu tók hún
að sér skrifstofustörf.
Benedikte var stödd hér á landi
fyrir skemmstu ásamt ráðuneytis-
stjóra sínum sem einnig er kona og
flutti hún þá m.a. erindi
um stjórnmál á Græn-
landi í Norræna húsinu á
vegum Grænlensk-ís-
lenska félagsins, Kalak,
sem endurvakið var árið ■ ■' ■—
1992. Morgunblaðið hitti
ráðherrann að máli við það tækifæri.
Tilheyrir Siumut
Síðustu kosningar á Grænlandi
fóru fram i apríl sl. og mynduðu
Siumut og Atassut flokkarnir land-
stjórn að þeim loknum. Benedikte
tilheyrir Siumut, sem hún segir að
sé heldur vinstri sinnaðri en Alþýðu-
flokkurinn á íslandi. Atassut sé hins
vegar sambærilegur við Sjálfstæðis-
flokkinn. Tveir aðrir flokkar buðu
fram, Akulliit Partiiat, sem er miðju-
flokkur á borð við Framsóknarflokk-
inn, og IA, sem kemst næst Alþýðu-
Sextán ár eru liðin frá því að Grænlendingar fengu
heimastjóm frá Dönum. Benedikte Thorsteinsson
er ráðherra atvinnu- og félagsmála í grænlensku
landstjóminni. Hún er gift íslenskum manni og
eiga þau fjögur börn. Hún er bæði mikill jafn-
réttissinni svo og sjálfstæðissinni og segir Græn-
land vera á góðri leið með að verða að fyrirmynd-
arþjóðfélagi. Jóhanna Ingvarsdóttir hitti ráð-
herrann að máli.
Vil lengja fæð-
ingarorlof
karla
bandalaginu í áherslum.
Kosningar til landsþings hafa far-
ið fram sex sinnum frá árinu 1979.
Stærstu flokkarnir, Siumut og At-
assut, hafa tapað fylgi frá þeim tíma
þar til í kosningunum i vor, en þá
stóð fylgi Atassut í stað, en fylgi
Siumut jókst um 3%. Fylgi IA hefur
aftur á móti aukist jafnt og þétt og
var um 20% í vor. Frambjóðendur
utan flokka buðu fram í kosninga-
bandalagi í kosningunum í apríl og
fengu tæp 5%. Eftir kosningarnar í
ár fóru Siumut og Atassut í fyrsta
sinn í stjórnarsamstarf, en áður
hafði IA verið stjórnarsamstarfs-
flokkur Siumut. Allt frá upphafi
heimastjórnarinnar og
þar til nú hefur Siumut
verið við stjórn annað-
hvort í minnihlutastjórn
með stuðningi IA eða í
———■ stjórnarsamstarfi með
IA.
Benedikte segir að mikill friður
ríki í stjórnarsamstarfínu. Við mynd-
un landstjórnarinnar hafi Siumut-
menn aðeins þurft að gefa eftir að
í tvö ár til viðbótar mættu vera til
hreinir danskir bekkir í skólum í
Nuuk enda væri Atassut-flokkurinn
mjög dönskusinnaður flokkur. Síðan
tæki við samkennsla danskra og
grænlenska bama, eins og annars
staðar. „Það eru margir Danir bú-
settir í Nuuk og þeir vilja aðeins
dönskukennslu fyrir börnin sín, enga
grænlensku. Mér finnst því gaman
að segja frá því að íslenskir foreldr-
ar barns, sem var að byija í skóla
í sumar, ákváðu að setja barnið sitt
í hreinan grænlenskan bekk. Sá er
munurinn á íslendingum og Dön-
um.“
Konur í grasrót
Aðsetur heimastjórnarinnar er í
höfuðborginni Nuuk, sem er á stærð
við Akureyri og telur um 15 þúsund
íbúa. Þingmenn á landsþinginu eru
nú 31, þar af fimm konur, fjórar
fyrir Siumut og ein fyrir IA. Konum
hefur því fjölgað um eina frá því í
kosningunum 1991. Hlutfall kvenna
á landsþinginu er nú 16%, en í lands-
stjórninni er hlutfall kvenna 29% eða
tvær konur á meðal sjö ráðherra og
er það óbreytt frá 1991. Fyrir þann
tíma hafði kona aðeins í eitt kjör-
tímabil komist í ráðherrastól, frá
1983 til 1986.
Aðspurð um hvemig konum á
Grænlandi gangi að hasla sér völl í
stjórnmálum segir Benedikte að
þeim gangi vel í grasrótarvinnu, en
telur að þær sækist almennt ekki
eftir kjöri í sveitar-, bæjar- og land-
stjórnir. „Þær eru útivinnandi, með
börn og heimili og fínnst það mörg-
um nóg. Karlaveldið er mjög svo
ríkjandi enn þó þetta sé aðeins að
breytast með yngri kynslóðum. Auk-
ið jafnrétti kynjanna er farið að
gera vart við sig og ungu feðurnir
eru famir að taka meiri þátt í fjöl-
skyldulífinu. Þeir eru að verða mýkri
menn en eldri kynbræður, sem enn
eru í gamla farinu."
Fæðingarorlof karla
Benedikte segir það vera mjög
miður að það skuli ekki vera ríkj-
andi viðhorf að kjósa konur til
ábyrgðarstarfa því þær séu, að henn-
ar mati, duglegri, menntaðri og betri
en karlmenn til slíkra starfa. „Það
er staðreynd og mér finnst þetta í
raun,“ bætir hún við.
„Sjálf er ég mikill jafnréttissinni,
hef eflaust lært það á íslandi. Jafn-
réttismálin heyra undir mitt ráðu-
neyti. Við erum með sérstakt Jafn-
réttisráð og eigum að hafa frum-
kvæði að lögum, sem stuðla að
auknu jafnrétti. Til stendur að
breyta fæðingarorlofslöggjöfinni því
ég vil gefa feðrum meiri tíma með
nýfæddum börnum sínum en þessa
eina viku sem þeir nú fá í orlof og
er hvorki fugl né fiskur. Ég vil lengja
fæðingarorlof karla til þess að feður
geti verið með börnunum sínum. Það
er hollt fyrir börnin, konurnar og
ekki síst feðurna."
Hærri ráðstöfunartekjur
íbúar á íslandi eru um fimm sinn-
um fleiri en á Grænlandi. Um 13%
íbúa Grænlands eru fæddir utan-
lands og konur á Grænlandi eru mun
færri en karlar eða um 47% á móti
53%. Byggð er mun dreifðari á
Grænlandi en íslandi. í höfuðstaðn-
um Nuuk búa um 24%
þjóðarinnar. Allt heima-
stjórnartímabilið hefur
verið reynt að styrkja
byggðirnar með því að
tryggja öllum íbúum
sama verð á matvörum
sögn Benedikte, um 40% og per-
sónufrádráttur nemur um 40 þúsund
d.kr. á ári á manninn.
Langflestir ófaglærðir
Skv. lífskjarakönnun, sem fram
fór á sl. ári, er atvinnuþátttaka
þeirra, sem eru 18 ára og eldri á
Grænlandi, 79%. Jafnframt kemur
fram að 11% sóttu skóla, 13% voru
lífeyrisþegar og 4% utan vinnumark-
aðarins. Langflestir eru ófaglærðir
og gildir það jafnt fyrir konur sem
karla. Næst algengasta starf karla
eru fiskveiðar og aðrar veiðar, en
næst algengasta starf kvenna er
þjónustu- og afgreiðslustörf. Ef
bornir eru saman þeir, sem fæddir
eru á Grænlandi annars vegar og
þeir, sem fæddir eru utan Grænlands
hins vegar verður starfsstéttaskipt-
ingin mjög ójöfn. Þeir, sem fæddir
eru á Grænlandi, sitja flestir í ófag-
lærðum störfum á meðan þeir, sem
fæddir eru utan Grænlands eru mun
fjölmennari í stöðum, sem krefjast
lengri menntunar.
Flest launafólk á Grænlandi til-
heyrir annaðhvort grænlenskum eða
dönskum stéttarfélögum. Stærsta
grænlenska stéttarfélagið, SÍK,
gætir hagsmuna þeirra, sem eru
ófaglærðir og faglærðir og er því
sambærilegt við Alþýðusamband ís-
lands. Undanfarin ár hafa nokkrir
hópar yfirgefið SÍK og samið beint
við sína viðsemjendur. Viðsemjendur
opinberra starfsmanna eru heima-
stjórnin, bæjar- og sveitarstjórnir og
danska ríkið. I einkageiranum eru
tvenn samtök atvinnurekenda, ann-
að grænlenskt og hitt danskt. Þar
til árið 1991 voru laun þeirra, sem
fæddir eru á Grænlandi, lægri en
laun þeirra, sem fæddir eru utan-
lands, en frá þeim tíma hafa allir
opinberir starfsmenn fengið sömu
laun fyrir sömu vinnu og í öðrum
geirum eiga laun að vera orðin sam-
bærileg árið 1997, eins og fram kom
hjá Benedikte.
Launaþróun og atvinnuleysi
Meðal opinberra starfsmanna
hafa raunlaun ófaglærðra og fólks
í þjónustu- og afgreiðslustörfum
hækkað meira en laun lögfræðinga
og hagfræðinga. Ástæðuna má rekja
til þess að reynt hefur verið í kjara-
samningum að ná fram meiri launa-
jöfnuði milli lægst og hæst launúðu
hópanna arinars vegar og þeirra,
sem fæddir eru á Grænlandi og utan
þess hins vegar. Raunlaun allra hópa
lækkuðu á tímabilinu 1983-1990, en
eftir það hafa raunlaun ófaglærðra,
lögfræðinga og hagfræðinga staðið
í stað.
Benedikte segir að atvinnuleysi
sé eitt helsta vandamálið, sem
heimastjórnin hafi við að glíma. At-
vinnuleysi var, skv. lífskjarakönnun-
inni 1994, 18% meðal karla og 17%
meðal kvenna. í stærri bæjarfélög-
um er atvinnuleysi karla meira en
kvenna eða um 19% meðal karla og
12% meðal kvenna. Úti í hinum
dreifðu smáþorpum er atvinnuleysi
meðal kvenna á hinn bóginn mun
meira eða 45% á meðan það er 15%
meðal karla. „Fjárhagslega er það
ekki mjög eftirsóknarvert að vera
atvinnulaus því atvinnuleysisbætur
eru mjög lágar eða 50-60% af lág-
markslaunum. Bætur taka einnig
mið af fjölskyldutekjum, þannig að
ef annað hjóna er í vinnu og hefur
sæmileg laun fær hitt ekki bætur
þrátt fyrir atvinnuleysi."
Skortur á menntafólki
og nauðsynjum án tillits til búsetu.
Grænlandsflug hefur jafnframt not-
að hagnað af flugleiðinni til og frá
Nuuk til að niðurgreiða kostnað
vegna þyrluflugs til og frá smærri
stöðum á landsbyggðinni.
Þegar ráðstöfunartekjur íbúa
Grænlands og íslands eru bornar
saman án framlags danska ríkisins
til Grænlands kemur í ljós að þær
eru um 15% hærri á íslandi. Ef hins
vegar framlagi danska ríkisins er
bætt við, þá eru ráðstöfunartekjur
íbúa Grænlands um 31% hærri en
íbúa íslands. Skattahlutfallið er, að
„Til að draga úr atvinnuleysi hafa
bæjar- og sveitarfélög skipulagt
námskeið fyrir atvinnu-
lausa og skapað bæði
Mlklll Skortur varanleg og tímabundin
er á menntuðu störf fyrir atvinnulaust
vinnuafli fólk. í atvinnuskapandi
———verkefnum á vegum bæj-
ar- og sveitarfélaga
greiðir heimastjórnin helming launa-
kostnaðarins en bæjar- og sveitarfé-
lög hinn helminginn. Þar fyrir utan
hefur heimastjórnin komið á ævi
ráðningu í verslunarfélaginu KVl og
skipafélaginu Royal Arctic Line sem
eru að stórum hluta til í eigu heima-
stjórnarinnar. Til að minnka áhrif
árstíðarsveiflna á atvinnu hefur
heimastjórnin reynt að draga sem
minnst úr framkvæmdum yfir vetr-
armánuðina og jafnframt keypt hrá-
efni af veiðimönnum, eri það skapaði
um 327 heilsársstörf í fyrra. Auk
þess er það markmið stjórnarinnar