Morgunblaðið - 21.10.1995, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 21. OKTÓBER 1995 23
FJÖLMIÐLAR
Washington. Reuter.
BANDARÍSKA fj arskiptastofnunin FCC
(Federal Communications Commission) hef-
ur samþykkt að hrinda í framkvæmd fyrir-
ætlunum um útboð á síðasta rekstrarleyfinu
til að sjónvarpa um gervihnött um öll
Bandaríkin.
Samþykktin er áfall fyrir Tele-Comm-
unications Inc., stærsta kaplasjónvarpsfyr-
irtæki Bandaríkjanna, sem hafði sótt um
að veita beina gervihnattaþjónustu (DBS)
með því að kaupa rekstrarleyfið af fyrir-
tæki í Virginíu, sem hafði mistekizt að
koma á DBS þjónustu.
Samþykkt FCC (með 3 atkvæðum gegn
2) verður til þess að TCI í Denver verður
að taka þátt í uppboði í byijun næsta árs
og keppa við aðra volduga aðila eins og
MCI Communications Corp., sem nýlega
gekk til samvinnu við fjölmiðlafyrirtæki
Ruperts Murdochs, News Corp.
Ákveðið hefur verið
til bráðabirgða að upp'
boðið fari fram 18. janúar
og það stendur í einn dag.
Mikið í húfi
í húfi er rekstrarleyfí, sem veitir
einn af örfáum möguleikum til að
sjónvarpa um gervihnött til áskrif-
enda um þver og endilöng Bandarík-
in. Tekið er á móti útsendingunum
með 18 þumlunga gervihnatta-
diski.
Hægt verður að sjónvarpa um
gervihnött á tugum rása til áskrif-
enda. Lítill gervihnattadiskur eins
og sá sem verður notaður hefur
fleiri kosti en stóru diskarnir,
sem setja sérkennilegan
svip á húsaþök og bak-
lóðir hvarvetna í
Bandaríkjunum.
Uppboð á sjónvarpi
um gervihnött
TCI hafði samþykkt að kaupa rekstrar-
leyfið fyrir um 45 milljónir dollara af fyrir-
tækinu Advanced Communications Corp. í
Arlington, Virginíu. í maí dró FCC leyfið
til baka á þeirri forsendu að Advanced
Communications hefði ekki notað það. Fyr-
irtækið hafði fengið leyfið ókeypis 1984.
700 millj. dala virði?
John McCain, öldungadeildarmaður rep-
úblikana frá Arizona, hefur beitt sér fyrir
því að FCC bjóði leyfið út.
MCI hefur stutt hugmyndir um opinbert
uppboð og sagt FCC að fyrsta boð verði
175 milljónir dollara. Fyrirtækið vitnaði í
áætlanir um að leyfið væri 700 milljóna
dollara virði.
TCI segir ákvörðun FCC valda „vonbirgð-
um“ og heldur í þá von að henni verði
hnekkt að því er fram kemur í yfirlýsingu.
Aukin ítök
Rupert
Murdochs
í Astralíu
Sydney. Reuter.
RUPERT MURDOCH, hinn kunni
fjölmiðlakóngur, hefur treyst stöðu
sína á áströlskum sjónvarpsmarkaði
með samningi upp á einn milljarð
Ástralíudollara (760 millj. Banda-
ríkjadala) um sam-
vinnu milli Foxtel-
fyrirtækis hans og
fyrirtækis keppi-
nautanna, Austral-
is Media Ltd.
Foxtel er sam-
eignarfyrirtæki
News Corp-fyrir-
tækis Murdochs og
flarskiptafyrirtæk-
isins Telstra Corp,
sem er í ríkiseign. Foxtel og Austral-
is munu sameinast í nýtt fyrirtæki,
sem mun ná til 90% heimila í Ástral-
íu.
Sérfræðingar segja að með samn-
ingnum sé komið á fót voldugasta
áskriftarsjónvarpi í Ástralíu. Með
samningnum verða örbylgju- og
gervihnattasjónvarp í Ástralíu sam-
ræmd fyrirætlunum Foxtels um að
hleypa af stokkunum 20 rása kafla-
sjónvarpsþjónustu þesa dagana.
Taprekstur hefur verið hjá báðum
aðilum, en nú á að sameina hæfni
þeirra á sviðum útsendinga, mark-
aðssetningar og dagskrárgerðar,
auk þess sem Australis fær aðgang
að miklu alþjóðlegu safni Foxtels
af sjónvarpsefni.
Áskriftarsjónvarp Australis, Gal-
axy, nær til 31.000 áskrifenda með
sendingum á örbylgju, en búizt hefur
verið við að áskrifendum fjölgi þegar
stöðin hefur gervihnattarsendingar
síðar í ár.
Þessi áhorfendahópur sameinast
áhorfendum að sendingum Foxtel-
fyrirtækis Murdochs og kaplasjón-
varps Telstra, sem gert er ráð fyrir
að nái til einnar milljónar heimila
fyrir áramót.
Gamall keppinautur eftir
Eftir samrunanna verður eini
meiriháttar keppinauturinn á sviði
kaplasjónvarps fyrirtækið Optus
Vision, sem er að hluta til fjármagn-
að af Kerry Packer, hinum gamal-
kunna mótheija Murdochs. Optus
Vision hóf útsendingar í september-
lok, en lengri tíma tekur að leggja
kaplana.
Ef samruninn fær samþykki sam-
keppnisyfirvalda og hluthafa í Ástr-
alíu verður hann mikið áfall fyrir
Optus Vision.
Ekki er talið að stjóm Ástralíu
leggist gegn samrunanum, en sumir
þeir sem gagnrýna hann halda því
fram að Murdoch fái of mikil áhrif
í fjölmiðlum á landsbyjggðinni. News
Corjp á 66% blaða í Astralíu.
Askrift að Foxtel mun kosta 39,95
Ástralíudali á mánuði (30 Banda-
ríkjadali). Áskrift að Optus Vision
og Australis kostar 25-39,95 dali
(19-30) og 49,95 dali (38).
Rupert
Murdoch.
laugardag og sunnudag
Haustlaukar B Pottaplöntur B Afskornar rósir
Túlipanar!
aðeins kr.
Eitt 17C
verð li
pakkinn (8.io,*)
Rósavendir
5 stk. kr. 395
7 stk. kr. 548
10 stk. kr. 790
Aðeins 79 kr. rósin í búnti.
MUNIÐ MAGNTILB0ÐHH
STÓRIR, KRÖFTUGIR LflUKflR J
50 túlipanar kr. 895
50 krókusar kr. 895
25 túlipanar kr. 595
Fíkus
ca. 90 cm. kr. 699
Stórar og flottar
Stofuaskur
ca. 30 cm kr. 399
Drekatré
ca. 50 cm kr. 399