Morgunblaðið - 25.08.1995, Blaðsíða 6
6 B FÖSTUDAGUR 25. ÁGÚST 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FERÐALÖG
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
MARIE-Louise Jarnebrink, Anna Skogsberg og Eva Tillberg.
fslensk bióðtrú í
sænskri heimildarmynd
FYRIR skömmu voru hér á landi
þijár sænskar konur að kanna að-
stæður fyrir gerð heimildamyndar
um íslenska þjóðtrú. Þær Eva Till-
berg, Marie-Louise Jamebrink og
Anna Skogsberg eru nýútskrifaðar
úr námi í gerð heimildarmynda frá
Norræna lýðháskólanum í Biskops-
amö í Svíþjóð og völdu ísland sem
sitt fyrsta viðfangsefni í kvikmynda-
gerðinni.
„í Svíþjóð er vaxandi áhugi á fom-
norrænum fræðum og þjóðtrú en
hann er samt ekki eins íifandi og
sterkur og hér á landi. Að tala um
álfa í Svíþjóð þykir til dæmis frekar
hallærislegt en hér hafa álfabyggðir
meira að segja áhrif á ákvarðanir í
stjórnsýslu. Við viljum komast að því
hvers vegna þjóðtrúin er svo sterk
hér.“
Það var á fyrirlestri hjá Þórhalli
Heimissyni guðfræðingi í Uppsölum
sem hugmyndin kviknaði um að kvik-
mynda þetta efni. Hann benti þeim
jafnframt á hveija væri best að tala
við hér á íslandi. í þessari fyrstu
heimsókn hafa þær meðal annars
tekið viðtal við Jörmund Inga Hansen
alsheijargoða ásatrúarmanna, Erlu
Stefánsdóttur miðil og fleiri.
Efnið sem þær taka upp nú ætla
þær að sýna sjónvarpsstöðvum í Sví-
þjóð, Sænsku kvikmyndastofnuninni
og öðram þeim sem gætu keypt eða
styrkt gerð fullunnins þáttar.
„Þetta er fyrsta verkefnið sem við
vinnum að og við þurfum að sýna
hvað við getum. En það era góðar
líkur á að þetta verði að veraleika,
áhuginn á efninu er mikill." Ef fjár-
málamennimir í Svíþjóð samþykkja
munu tökur heQast um jólaleytið.
Þá verður meðal annars litið við á
blóti ásatrúarmanna. Þær stöllur
hyggjast síðan koma aftur næsta
sumar og ljúka verkinu. Kostnaður-
inn við gerð myndarinnar verður
u.þ.b. 3-5 milljónir króna. ■
Hvað heitir
hjáþeim «
gjaldmiðillinh'
Ríki
Albanía
Angóla
Arúba
Bhutan
Búrúndí
Falklandseyjar
Gabon
Haiti
Kambódía
Kórea (N- og S-)
Lesotho
Líbýa
Macau
Máritanía
Nicaragua
Pakistan
Sómalía
Surínam
Venesúela
Víetnam
Zaire
Zimbabwe
Gjaldmlðill
lek
kwanza
gyllini
rúpía/nguitrum
franki
pund
dalasi
gourde
riel
won
maloti
dinar
pataca
ouguiya
cordoba
rúpfa
sillingur
gyllini
bolivar
dong
zaire
dollar
Siómeni Mðar
heimsóttir f Ósvir
Morgunblaðið/ÞHY
GEIR Guðmundsson, safnvörður í sjóminjasafninu á Ósvör,
tekur á móti gestum í fullum skrúða af gömlu gerðinni.
SJÓMENNIRNIR hafa líklega róið
út í góða veðrinu og era væntanleg-
ir á hverri stundu með aflann. Einn
sjóarinn hefur orðið eftir og tekur
á móti gestum klæddur fullum
skrúða, skinnfötum sem era sér-
staklega verkuð í fitu og lýsi svo
þau verði vatnsþétt.
Sjómaðurinn gestrisni er safn-
vörðurinn Geir Guðmundsson,
íklæddur sjógalla af gömlu gerð-
inni. Geir leiðbeinir fólki um safnið
og segir frá sjómennsku fyrri tíðar,
um daglegt líf mannanna sem sóttu
sjóinn, fanggæsluna sem gætti afl-
ans, sérstöðu formannsins sem öllu
réð og mátti einn fara upp á hjall-
loftið og hvað mennimir gerðu sér
til dægrastyttingar, hvað þeir borð-
uðu og hvemig aflinn var verkaður
og nýttur.
Ósvör er eitt þriggja safna í
Byggðasafni Vestíjarða. Önnur söfn
era sjóminjadeild í Tumhúsinu í
Neðstakaupstað og Minjasafn Ön-
undaríjarðar á Flateyri. Á Ósvör
hefur verið iengi útræði og verbúð
fram eftir öldum en hún var endur-
byggð 1989-90 á gömlum tóftum í
þeim tilgangi að verða sjóminjasafn
Vestfjarða.
í Ósvör er allt sem viðkemur fyrri
tíðar sjómennsku til sýnis, allt frá
bátum, sjófatnaði og matvælum til
verkaðs fisks í hjöllum, lúðuhrogn-
um og saltfisks í saithúsinu þar sem
fengurinn var geymdur.
Það er eins og sjómenn hafí
bragðið sér frá augnablik. Sýrakút-
ar, veiðarfæri og verkaður fiskur
era á jarðhæðinni og á loftinu era
vistarverar sjómanna. Þar era lukt-
ir, rokkur og kistlar með mat að
heiman og aðrir persónulegir munir
íbúa. Þegar veður er of vont til þess
að róa til fiskjar er tíminn nýttur
til þess að beita á línu. Á kvöldin
er ullarþráður spunninn á rokknum
eða kaðall snúinn úr hrosshári. Á
morgnana þegar heppilegt var að
róa kepptust áhafnimar við að vera
á undan á miðin og rifu menn sig
upp árla og læddust út til þess að
vekja ekki menn úr hinni áhöfninni.
Upphafsatriði Verstöðvarinnar
íslands er tekið upp í Ósvör og get-
ur verið að margir safngestir kann-
ist við húsakostinn úr myndinni.
Verbúðin er ætluð tveimur skipsá-
höfnum og var henni skipt með þili.
Hún er af þeirri gerð verbúða sem
tíðkuðust í Bolungarvík seinni hluta
síðustu aldar, með e.k. baðstofulofti
eins og híbýli vora til sveita. Átta
manns vora í áhöfn, svo að 16-18
manns hreiðraðu um sig í húsinu á
Ósvör og þröngt var á þingi. Á loft-
inu beggja megin eru fjögur flet
undir súð og í þeim hvíldu átta sjó-
menn, tveir í hveiju fleti. Úti fyrir
liggur sexæringur í fjöranni og fisk-
ur hangir í hjöllum. Hressilegt sjáv-
arloftið er frískandi og golan ber
með sér lykt af söltum sjó og þangi.
Geir skýrir af miklum sannfær-
HVERNIG
VAR FLUGIÐ?
„Bilar flug
FARÞEGAR í fiugi Lufthansa nr.
4386 frá Stuttgart til Parísar söfn-
uðust að útgönguhliðinu klukku-
stund fyrir brottför. Tíminn var
nægur og hann leið fijótt yfir reyf-
aranum. Þegar brottfarartíminn
rann upp var tilkynnt: Seinkun, vél-
in biluð, beðið eftir varahlut, næstu
fréttir eftir klukkustund, gerið svo
vel að fá ykkur drykki. Ekkert stór-
mál því jafnvel þótt seinkun yrði
talsverð ætti að vera ráðrúm til að
ná vél Flugleiða frá París og heim
enda voram við félagarnir bara með
handfarangur. Streituhaldið GSM
símaliðið tók hins vegar að hringja
út um allar jarðir og segja að það
myndi hringja aftur seinna! Til hvers
í ósköpunum?
Ný tilkynning: Viðgerð stendur
yfir, næstu fréttir eftir klukkustund,
gerið svo vel að fá ykkur hressingu.
Flestir tóku að maula skrínukostinn
frá Lufthansa: samlokur, epli,
súkkulaðibiti og safí, aðrir reyndu
að fá fluginu breytt til að komast
nú leiðar sinnar (sem var dálítið
snúið því flugmenn SAS vora í verk-
falli þennan dag) og enn aðrir rifust
við Lufthansamanninn. Enn var til-
kynnt: Brottför áætluð hálfátta,
þremur tímum eftir áætlaðan tíma.
Nú var orðið heldur lítið ráðrúm
fyrir okkur félagana í París, ekki
síst þar sem við þurftum að færa
okkur milli flugvalla. En Lufthansa-
maðurinn ráðlagði okkur að halda
af stað og sagðist greiða gistingu í
: | ■ ' |
■' í f \
París ef við misstum af Flugleiðaþot-
unni. Og hann fékk að standa við
það því brottförin tafðist enn og við
fóram ekki í loftið fyrr en kl. 21 í
stað 17.
Með illu eða góðu
I París rembdust Lufthansa-menn
eins og ijúpan við staurinn því um
leið og lent va_r vorum við fjögur sem
ætluðum til íslands beðin að gefa
okkur fram og drifin í ieigubíl yfir
á Orly flugvöll. Þegar þangað var
komið voru allir aðrir farþegar
komnir um borð og búið að loka.
Við fréttum síðar að Flugleiðafólkið
á Orly hefði sagt strax við Luft-
hansamennina á Charles de Gaulle
flugvellinum að það þýddi ekkert að
senda okkur yfir, vélin yrði ekki lát-
in bíða. Klukkan var orðin ellefu
þegar þetta var ljóst og flestir flug-
vallastarfsmenn á heimleið. En okk-
ÞEGAR flugáætlanir fara úr
skorðum er ekki annað að gera
en skoða flugstöðvarnar vel og
vandlega, reyna veitingaþjón-
ustuna, versla ef svo ber undir og
lesa reyfara. Þeir sem eru hins
vegar mjög „important" liggja í
GSM símanum sínum og rífast
þess á milli í flugvallarstarfs-
mönnum yfir fráleitri þjónustu.