Morgunblaðið - 13.04.1995, Side 90

Morgunblaðið - 13.04.1995, Side 90
90 FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 1995 MORGUNBLAÐIÐ HASKOLABIO SÍMI 552 2140 Háskólabíó * STÆRSTA BÍÓIÐ. ALLIR SALIR ERU FYRSTA FLOKKS. I borginni Macon elur gömul kona son sem menn trúa að sé heilagur og systir hans þykist vera móðirin og hefur að selja blessun barnsins. Glæsileg sjónræn veisla og ögrandi eins og Greenaway er von og vísa þar sem hann spinnur saman dýrlingasögur og misnotkun á börnum í auglýsingaskini í nútímanum. Aðalhlutverk: Ralph Fiennes (Listi Schindlers, Quiz Shpw ) og Julia Ormond (Legends of the Fall). Leikstjóri: Peter Greenaway (Kokkurinn, þjófurinn, kona hans og elskhugi hennar). SÝND KL. 3, 5.30 OG 9. ATH! Ekki Ísl. texti. Bönnuð innan 16. ára. 6 Óskarsverðlaun Tom Hanks er FORRESTA GUMP w Sýnd kl. 6.30 og 9.15. OPNUNARTIMI UM PÁSKANA LL er einnig til sem úrvalsbók Sýnd kl. 3, 5 og 7. FOSTUDAGURINN LANGI - LOKAÐ. LAUGARDAGURINN 15 APRÍL - OPIÐ EN ENGAR ELLEFUSÝNINGAR. PASKADAGUR-LOKAÐ ANNAR í PÁSKUM - OPIÐ. Nýtt í kvikmyndahúsunum Háskólabíó frumsýnir Barnið frá Macon HÁSKÓLABÍÓ hefur hafið sýning- ar á myndinni Barnið frá Macon eftir breska leikstjórann Peter Greenaway sem frægastur er fyrir listaverkið Kokkurinn, þjófurinn, kona hans og elskhugi hennar. I aðalhlutverkum eru Ralph Fiennes og Julia Ormond. Bamið frá Macon gerist í leik- húsi í sveitahéraði á miðri sautjándu öld. Plága hetjar á samfélagið og íbúamir hafa látið dómkirkjuna í Macon grotna niður og trúa þeir því að guð sé að refsa þeim. Kona, íöngu komin úr bameign, verður þunguð og elur heilbrigðan gullfal- legan dreng á sviðinu og trúa menn því að hér sé heilagt barn á ferð- inni. Ríkar frúr bjóða dóttur kon- unnar fé fyrir að leyfa þeim að snerta barnið í von um að þær verði frjósamar fyrir vikið. Dóttirin geng- ur of langt, klæðir sig upp sem Maríu mey og reynir að tæla barn- ið, hún vill gera hann að Jósef. Af þessu leiða ýmsar hörmungar. Sambíóin sýna myndina I bráðri hættu SAMBÍÓIN hafa tekið til sýninga spennumyndina „Outbreak" eða í bráðri hættu eins og hún hefur verið nefnd á íslensku. Með aðal- hlutverk fer Dustin Hoffman sem sést nú aftur á hvíta tjaldinu eftir nokkurt hlé. í öðrum stórum hlut- verkum eru Rene Russo, Morgan Freeman og Patrick Dempsey. Mynd þessi segir frá dr. Sam Daniels, vísindamanni í bandaríska hernum, sem sendur er til regn- skóga Áfríku til að rannsaka út- breiðslu hættulegrar veim. Þegar til Afríku er komið finnur Daniels þorp þar sem allir íbúarnir eru látn- ir af völdum veirunnar. Daniels hræðist að veiran gæti verið á leið til Bandaríkjanna og sendir viðvör- um til yfirmanna sinna. Hann lætur jafnframt fyrrverandi konu sína vita, en hún vinnur við rannsóknir á smitsjúkdómum. Án nokkurra skýringa er Daniels látinn hætta öllum rannsóknum og hvorki yfirmaður hans né yfirmaður smitsjúkdómastofnunar fara að ráðum Daniels og aðstoðarmanna hans í málinu. Daniels og kona hans búast við hinu versta og þegar fréttir berast af undalegri flensu í smábæ í Kaliforníu vita þau að veiran er að verki. Fólk sem smit- ast verður strax alvarlega veikt og flestir deyja aðeins nokkrum klukkustundum eftir smit. Verstu spár Daniels hafa ræst og nú verð- ur að stöðva útbreiðslu veirunnar, hvað sem það kostar. Leikstjóri myndarinnar er Wolf- gang Petersen sem áður hefur leik- stýrt m.a. „In The Line of Fire“ og „Das Boot“.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.