Morgunblaðið - 13.04.1995, Side 84

Morgunblaðið - 13.04.1995, Side 84
84 FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 1995 MORGUNBLAÐIÐ Grettir ' \ZARSTU EKKJ BAfZA PRAMAII Í£UPHÚSI ? „Allt er gott.“ Þetta er Mér líkar það Ég veit ekki hvað það þýðir. nýja heimspekin mín. vel... gott hjá BREF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329 Þakkarávarp Frá Jóhanni Helgasyni: í TILEFNI af áttatíu ára afmæli mínu þann 14. september síðastliðinn vil ég koma á framfæri þakklæti til þeirra fjölmörgu sem gjörðu mér þessi tímamót mjög ánægjuleg. Með margra mánaða fyrirvara var ég búinn að hugsa um hvemig þetta ætti helst að vera. Eitt var það sem ég var alveg búinn að slá föstu, að eitt af mínum uppáhalds lögum, Hríslan og lækurinn, yrði sungið á þessum afmælisdegi. Ég átti lagið á nótum fyrir einsöng, en ýmsir hafa sungið lagið í tvísöng. Nú hófst ég handa við að fínna lagið á nótum þannig útsett. Ég hringdi í fjölmarga aðila sem ég taldi víst að gætu útvegað mér þetta. En þeir fullyrtu allir að þetta væri ekki til. Eftir þessa ítarlegu könnun virtist ljóst að þessi ósk mín væri úr sögunni. Atli Heimir greiðvikinn Nokkrir dagar líða. Þá gerist það snemma morguns að sem hvíslað væri að mér. „Hringdu í eitt af okkar bestu tónskáldum, Atla Heimi Sveins- son“ sem ég umsvifalaust gerði. Hann tók erindi mínu mjög vel, bað mig að senda sér nótumar og eftir örfáa daga fæ ég þær til baka með bestu kveðju. Þá hafði hann skrifað neðri röddina inn á blaðið sem ég sendi og endurtek ég hér þakklæti mitt til þessa mikla listamanns fyrir stóran greiða. Sagt er að maður eigi aldrei að gefast upp við það sem mann langar til að gera fyrr en þá allar hugsanlegar leiðir hafi lokast. Og fyrir að gefast ekki upp við þetta má ætla að ég sé sá eini hér á landi sem á þetta gullfallega lag útsett fyrir tvær raddir. Þetta var upphaf að því sem á eftir kom. Er afmælisdagurinn nálgaðist kom í ljós að nokkrir af mínum nánustu yrðu ekki á landinu þann dag. Var þá brugðið á það ráð að fjölskyldan kæmi saman að Skarði í Gnúpveija- hreppi þar sem Jenný dóttir okkar býr ásamt fjölskyldu. Þarna komu saman um 40 manns í blíðviðri. Margt var sér til gamans gert. Börn og unglingar fóru í berjamó og útreiðart- úra, sem ætíð vekur gleði fólks á öllum aldri. Daguinn leið fljótt og þökk sé öllum er gerðu hann ánægju- legan. Nú mætti ætla að setja mætti punkt því nú beið ég bara eftir afmæl- isdeginum þvl þá ætlaði ég að vera að heiman eins og auglýst var. En það er of snemmt að setja punkt því margt átti eftir að gerast sem ég hafði enga hugmynd um og kom mér algjörlega á óvart en til mikillar gleði. Bjartur dagur Afmælisdagurinn minn rann upp bjartur og fagur eins og raunar allir dagar í mínu lífi í áttatíu ár. Akveð- ið var að við hjónin yrðum hjá Odd- fríði dóttur okkar og fjölskyldu þenn- an dag. í mínu ungdæmi var talið um að gera að taka daginn snemma en annað lá þar á bakvið en hér um ræðir. Vitað er að sumir lesa ekki auglýsingar og aðrir taka ekki mark á þeim. Með það í huga var sú hætta fyrir hendi að einhverjum dytti í huga að líta inn snemma dags og auðvitað velkominn en ekki hægt að bjóða annað en svart kaffi og kannski sykurlaust og slíkar trakter- ingar þóttu í eina tíð ekki boðlegar nema í ítrustu neyð. Við vorum því sótt tímanlega og dagurinn leið í góðu yfirlæti. Er kvöld var komið ók fjölskyldan okkur heim á leið. Mér þótti leiðn heim dálítið óvenjulega valin, en fékk þá skýringu að þau þyrftu að nota ferðina til smá útréttinga. Eftir tals- verða snúninga staðnæmdist bíllinn við Langholtskirlqu. Tengdasonur minn segist eiga erindi hér inn og býður okkur að koma með sér. Er við komum inn í anddyrið kem- ur maður út úr salnum heilsar okkur vingjamlega og segist sendur af syni mínum til að bjóða okkur inn. Kórinn var að ljúka við lag sem ég kannað- ist ekki við en síðan söng hann tvö lög sem ég þekkti og svo afmælis- sönginn. Ekki er á hveijum degi sem 80 mannna kór syngur afmælissöng fyrir áttræðan mann. Færi ég kórnum og söngstjóranum, Jóni Stefánssyni, mínar innilegustu þakkir fyrir listi- legan söng. Megi þessum frábæra kór vel vegna um ókomna framtíð. Þannig leið þessi blessaði afmælis- dagur 14. september og áttatíu ár að baki. Draumurinn rætist Eðlilegt er að álíta að ekkert sé meira af honum að segja en svo er nú aldeilis ekki. Ég hafði í huga að systkini mín litu inn en erfitt er um vik því við búum á þriðju hæð og ekki greið leið fyrir hjólastól. Úr þessu rættist því Ragna dóttir mín og hennar fjölskylda opnuðu hús sitt og þessi samkoma var ákveðin laug- ardaginn 17. september. Nú sá ég hilla undir að draumur minn rættist, þarna yrði kærkomið tækifæri til að syngja nokkur lög og þá mitt uppá- haldslag sem áður er á minnst. Að- eins gafst tækifæri á einni æfingu með undirleikara okkar Eiríki Gríms- syni. Um kl. þijú var sest til borðs og þá var komið að þeirri stund sem ég hafði þráð en verið vonlítill um að rættist. Tilkynnt var að ég ásamt tveimur sonum mínum og bróður myndum syngja tvö tvísöngslög við undirleik Eiríks. Fyrra lagið var Und- ir dalanna sól og hið síðara Hríslan og lækurinn í útsetningu Atla Heim- is. Söngnum var að sjálfsögðu vel tekið og var ég sérstaklega ánægður með að þessi draumur minn hafði ræst. Er gestir höfðu gætt sér á góð- gjörðum og spjallað saman nokkra stund stormar inn hópur karlmanna. Þeir raða sér við píanóið og hefja upp fjórraddaðan söng. Sonur minn einn slæst í hópinn og sé ég þá að þar er kominn bassinn úr kór Langholts- kirkju. Sungu þeir fjögur lög og héldu svo á brott. Þakkir mínar á staðnum munu hafa verið í lágmarki og sendi ég þeim bestu þakkir fyrir frábæra skemmtun. Þá var komið að fjöldasöng og settist frændi minn, og undirleikari á fjölskylduskemmtunum fyrr og síð- ar, síra Gylfí Jónsson, við píanóið og lék hvert lagið á fætur öðru. Þá er komið að lokum þessarar frásagnar. Aðaltilgangur hennar ver að rifja upp ógleymanlega daga mér til skemmtunar og færa öllum þeim fjölmörgu sem lögðu hönd að og færðu mér góðar gjafir innilegar þakkir fyrir og bið þess að góðar vættir megi vera þeim nálægar um alla framtíð. JÓHANN HELGASON frá Hnausakoti. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í Gagnasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari þar að lútandi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.