Morgunblaðið - 13.04.1995, Side 20

Morgunblaðið - 13.04.1995, Side 20
20 FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 1995 MORGUNBLAÐIÐ vörulistinn ókeypis Hagkvæmasti verslunarmátinn Ótrúlega ódýr - einungis vönduö vörumerki 16 stk. matarstell kr. 1.588 - Gufustraujárn kr. 1.700 - Verkfærasett kr. 2.383 - Silfurhringir kr. 578 - Ferðataska á hjólum kr. 2.663. Búsáhöld - skartgripir - vélar/tæki - garðáðhöld - íþróttavörur - leikföng - kristall - útileguvörur - húsgögn - Ijós - brúðkaups/afmælisgjafir o.fl. o.fl. Pöntunarsími 52866 B. Magnússon, Hólshrauni 2, Hafnarfirði. Full búð af vörum - Opið frá kl. 9-18 mánud.-föstud. ÚR VERIIMU Morgunblaðið/Snorri Snorrason HAFNAREY SU fer væntanlega frá Breiðdalsvík til Valdimars hf. í Vognm. Hafnarey SU í Vogana HAFNAREY SU-110 frá Breiðdalsvík, skip Gunnars- tinds hf., verður væntanlega seld til Valdimars hf. í Vogum. Kemur skipið í stað Þuríðar Halldórsdóttur GK-94 sem Valdimar hf. selur til Þorbjarnar hf. í Grindavík ef af viðskiptunum við Gunnarstind verður. Stjórnarformaður og framkvæmdasljóri Gunn- arstinds hf. fengu fyrir skömmu heimild stjórnar fyrirtækisins til að gera samning um sölu Hafnareyj- ar án kvóta. Er það liður í breytingum á fyrirtæk- inu, hugsanlegri skiptingu þess í tvennt, og hefur verið rætt um möguleika þess að kvótinn fari til Búlandstinds hf. á Djúpavogi og samvinna verði um hráefnisöflun fyrir frystihúsin á Djúpavogi og Breið- dalsvík. Tveir eða fleiri aðilar buðu í Hafnarey og hefur stjórnarformaður Gunnarstinds hf., Arnar Bjarnason, samþykkt tilboð Valdimars hf. í skipið og 100 tonna ýsukvóta með fyrirvara um staðfest- ingu stjórnar. Arnar óskaði eftir áliti hreppsnefnda Stöðvarfjarð- ar og Breiðdalsvíkur sem eru stórir hluthafar í Gunn- arstindi auk þess sem Breiðdalshreppur a.m.k. hefur forkaupsrétt að skipinu. Vill hann að vilji hrepps- nefndanna liggi fyrir áður en stjórnin afgreiðir söl- una. Yngt upp í Vogunum Bæði skipin eru innan við 300 brúttórúmlestir að stærð. Þuríður Halldórsdóttir (áður Skipaskagi AK) er liðlega tuttugu ára gamalt skip, smíðað í Bret- landi. Hafnarey er tólf ára gömul, smíðuð á Akra- nesi og er eitt svokallaðra raðsmíðaskipa. Magnús Agústsson, framkvæmdastjóri Valdimars hf., segir að ef þessi viðskipti verði að veruleika muni Þuríður Halldórsdóttir verða seld til Þorbjörns hf. í Grindavík. Hann segir að skipið sé með svipað- an kvóta og Hafnarey og sé því hægt að kaupa það nánast kvótalaust. Hann segir vaka fyrir eigendum fyrirtækisins að fá yngra skip. Spennandifjölskylduœvintýri um páskana! Bláa lónið cr útivistarparadís fyrir alla fjölskylduna. Þar upplifir hún hlýjar, spcnnandi og eftirminnilegar samverustundir alla daga, árið um kring. I Bláa lóninu er hver dagur ævintýri líkastur því stórkostlegt umhverfið skiptir um ham eins og hendi sé veifað. Þcss vegna cr Bláa lónið staður sem er skemmtilegt að heimsækja, aftur og aftur. Opið yfir páskana: Skírdagur Föstudagurinn langi Laugardagur Páskadagur Annar ípáskum Opid kl. Opið kl. Opió kl. Opid kl. Opidkl. 10:00-21:00 10:00 - 21:00 10:00 - 21:00 10:00 - 21:00 10:00 - 21:00 Frítt fyrir börn 11 ára og yngri, í fylgd með foreidrum. Láttu heilla þig upp úr skónum og fötunum, komdu og upplifðu spennandi fjölskyldu- ævintýri í Bláa lóninu. BIAA LÓNIÐ -œvintýri líkast! Heilsufélagið við Bláa lónið hf. Opið alla daga. Sími 68800, myndriti 68888. Víkkið sjóndeildarhringinn og kynnið ykkur útivistarmöguleika til allra átta út frá Bláa lóninu, þeir eru óþrjótandi: Gönguferðir á Reykjanesfólkvangi, fuglaskoðun, golf, sigling, fomminjar, útilegumannabyggðir, silungsveiði og fleira. Hafið samband, við hjálpum þér að skipuleggja ógleymalega útivistarferð. ----♦ ♦ ♦-- Ufsinn reyndist vera þorskur EFTIRLITSMAÐUR Fiskistofu uppgötvaði nýlega kvótasvindl í Keflavík. Með því að kanna inni- hald fiskikerja sem áttu að vera full af ufsa komst hann að því að undir var falinn þorskur. Lögregl- an var kölluð til og tók hún skýrslu af skipstjóranum og vörubíl- stjóranum og að sögn Þórðar Aril- íussonar veiðieftirlitsmanns fer málið dómstólaleiðina. í ketjunum voru um það bil 3,5 tonn af fiski, þar af hátt í 2 tonn af þorski. Þórður segir að eftirlits- menn hafi aukið eftirlit með að í kerjum sé sá fiskur sem upp er gefinn og með nýrri reglugerð séu vörubílstjórar gerðir ábyrgir og gert að kanna þann afla sem þeir flytja. Segir hann að í sumum til- vikum hafi verið hvolft úr keijun- um til að ganga úr skugga um innihaldið. I 5-6 skipti hafi annar fiskur komið í ljós en mun oftar hafi allt reynst í stakasta lagi- Telur hann algengara að heilu för- munum hafi verið ekið framhjá vikt og hafi verið reynt að herða eftirlit með því, meðal annars með nýju reglunum um ábyrgð bíl- stjóra. „Aðalvandamálið er þó að fá menn til að koma með aflann að landi og erfitt er að fylgjast með því sem gerist úti á sjó,“ segir Þórður. Blómastofa Friðfinns Suðurlandsbraut 10 108 Reykjavík. Sími 31099 Páska- vöndurinn tilbúinn! Opið skírdag, laugardag og annan í páskum kl. 9-22.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.