Morgunblaðið - 13.04.1995, Page 12
12 FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Kona dæmd í 15 mánaða fangelsi
Stal o g sveik
fé af öldruðum
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
dæmdi á mánudag 35 ára konu
til 15 mánaða fangelsisvistar fyrir
tékkafals og fyrir að hafa svikið
fé út úr öldruðu fólki. Hún fékk
t.d. aldraðan mann til að afhenda
sér tæpar 400 þúsund krónur, en
í dóminum kom fram að hann
hafi ekki gert sér grein fyrir verð-
gildi þess fjár sem hann afhenti.
Að auki stal hún silfurborðbúnaði
að andvirði rúmar 130 þúsund
krónur af heimili mannsins.
Auk þess að hafa fé af fólki
með sviksamlegum hætti var kon-
an dæmd fyrir þjófnaði, þar sem
hún stal peningum úr fórum aldr-
aðs fólks. Við yfírheyrslur hjá lög-
reglu gaf konan oftast þau svör
að peningunum hefði hún eytt í
áfengi og fíkniefni. Konan stund-
aði að knýja dyra hjá öldruðu fólki
og biðja það um að lána sér fé,
þar sem hún þyrfti að greiða fyrir
sendibíl, en ætti jafnframt von á
peningasendingu á hverri stundu.
Eftir að hafa séð hvar fólkið
geymdi féð stal hún meiri pening-
um úr fórum þess.
í einu tilvika ruddist konan inn
í íbúð aldraðrar konu og krafðist
peninga af henni. Hún hafði tékk-
hefti og 800 krónur á brott með
sér, eftir að hafa leitað víða um
íbúðina.
í sama máli voru tveir menn
ákærðir fyrir skjalafals, en konan
kom þar einnig við sögu sem fram-
seljandi falsaðra tékka.
I dóminum, sem Allan V. Magn-
ússon héraðsdómari kvað upp,
kemur fram að konan hefur frá
1979 gengist 11 sinnum undir
sátt fyrir brot á umferðarlögum,
lögum um ávana- og fíkniefni,
fjársvik og ölvunarakstur.
Páskakisa
Morgunblaoio/l' anney lngólfsdóttir
MÁLSHÁTTUR og sælgæti er það sem flestir búast við að fá úr páskaegginu sínu, en
Auður Eir Birgisdóttir, 3ja ára þegar myndin var tekin, var að leika sér við kettlinginn
sinn og er engu líkara en hann hafi komið úr páskaegginu.
Islenskt
fyrirtæki
í verkefni
í S-Afríku
Samvinna við
suður-afríska
verktaka í
Port Elizabeth
ÍSLENSKT fyrirtæki, Heimskaut
hf. hefur í samvinnu við suður-
afrískt verktakafyrirtæki fest
kaup á húseign og landi í miðborg
Port Elizabeth á suðausturströnd
Suður-Afríku. Friðgeir Olgeirsson,
einn fjögurra eigenda Heim-
skauta, segir að miklir möguleikar
séu fyrir hendi fyrir íslenska verk-
i;aka í landinu.
Samningurinn er á milli Heim-
skauta hf. og samstarfsaðila
þeirra, Afristar Consort., annars
vegar og borgaryfírvalda í Port
Elizabeth hins vegar. Landareign-
in er í miðborginni en á henni er
að fínna sögufræga byggingu,
gríðarstórt pósthús, sem ætlunin
er að breyta í fjögurra stjömu
hótel með 112 herbergjum, spila-
víti og öðru því sem þurfa þykir.
Áætlað er að þetta verkefni kosti
um 1.200 milljónir króna.
Mörg verkefni í boði
„Hér eru miklir möguleikar fyr-
ir íslensk verktakafyrirtæki og
mörg verkefni í boði,“ sagði Frið-
geir Olgeirsson I samtali við Morg-
unblaðið í gær en hann var þá
staddur í Port Elizabeth. Alvarleg-
ur skortur væri á hvers kyns
tækniþekkingu á sviði byggingar-
iðnaðar í röðum blökkumanna í
Suður-Afríku og þar gætu íslend-
ingar komið til hjálpar.
Afristar er í eigu blökkumanna
en hafín er samkeppni verktaka-
fyrirtækja hvítra og svartra í Suð-
ur-Afríku. Tortryggni mun víða
gæta og er það af þessum sökum
sem samstarf við svo litla þjóð sem
íslendinga þykir fýsilegur kostur.
Hagnaði af verkefninu verður
skipt samkvæmt sérstökum samn-
ingsákvæðum en 5% múnu renna
í sérstakan þróunarsjóð og tíu pró-
sent til viðbótar munu ganga til
líknarmála ýmissa.
Klassík FM hefur
útvarp í dag
ÚTVARPSSTÖÐIN Klassík FM
hefur útsendingar í dag kl. 14
á FM 106,8. Randver Þorláksson
leikari hefur verið ráðinn dag-
skrárstjóri stöðvarinnar og ríð-
ur sjálfur á vaðið í dag með
þátt tengdan fréttum af tónlist-
ar- og menningarmálum í dag.
Af öðrum dagskrárliðum má
nefna þátt Hinriks Ólafssonar
leikara sem verður á dagskrá
frá 4-7 virka daga og þátt Val-
gerðar Matthíasdóttur á laugar-
dag, sem samtengdur er Aðal-
stöðinni. Aflvakinn hf. rekur
Klassík FM, líkt og Aðalstöðina
og X-ið, og verður um sérhæfða
dagskrá að ræða eins og á þeim
tveimur.
Tónlist á hörðum diski
Randver segir að dagskrá
stöðvarinnar sé enn í mótun en
einkum verður reynt að koma
til móts við þenkjandi hlustend-
ur og áhugafólk um sígilda tón-
list að hans sögn. Að næturlagi
verður útvarpað með aðstoð
tölvubúnaðar en sú nýbreytni
fylgir útvarpi Klassíkur FM, að
hluti tónlistar sem leikin er, er
geymd i stafrænu formi á hörð-
um diski. Diskurinn geymir á
annað hundrað klukkustundir
af tónlist sem þýðir að hægt er
að koma í veg fyrir sífelldar
endurtekningar í dagskránni.
í bígerð er að útvarpa frétt-
um frá „BBC World Service“
klukkan 7,8 og 9 á morgnana
og einnig kemur til greina að
senda út leikrit eða beinar út-
sendingar af öðrum tónlistar-
og menningarviðburðum. Dag-
skrá Klassíkur FM verður sam-
tengd Aðalstöðinni að hluta yfir
páskana í kynningarskyni og
segir Randver að hún verði með
hátíðlegu móti.
Ný hafnfirsk sjónvarpsstöð
Ný sjónvarpsstöð, Sjónvarp
Hafnarfjörður, hóf útsendingar
í gær klukkan 18.30. Það er
fyrirtækið Hafnfirsk fjölmiðlun
sem stendur að útsendingunum
og segir Halldór Árni Sveinsson
sj ónvarpsstj óri að í fyrstu verði
einungis sent út á mánudögum,
miðvikudögum og föstudögum.
Á dagskrá verða fréttir úr bæj-
arlífinu og mannlífspistlar.
Undirbúningur hefur staðið
lengi að sögn Halldórs en með
honum standa að rekstrinum
Sæmundur Stefánsson fram-
kvæmdastjóri og Erlingur
Kristensson auglýsingastjóri.
Útsendingarnar nást einvörð-
ungu í Hafnarfirði til að byrja
með og er sent út á Rás 58.
Segir Halldór að íbúar sem að-
gang hafa að kapalkerfi nái
útsendingunum án fyrirhafnar.
Fangar fá páskaegg
STÓRHÁTÍÐIR fara ekki framhjá
fangelsum landsins. Einar J. Gísla-
son og Hafliði Kristinsson í Fíladelf-
íu fóru í vikunni með páskaegg til
fanganna á Litla-Hrauni og voru þá
búnir að dreifa páskaeggjum í fang-
elsi í Reykjavík og Kópavogi. Þetta
er 15. árið sem fangar fá páska-
kveðju af þessu tagi.
„Þetta byijaði 1981,“
sagði Einar. „Ég hitti Sig-
urð Marinósson, forstjóra
Mónu og gamlan Eyjamann,
niðri í Hafnarstræti daginn
fyrir skírdag. Móðurbróðir
hans og vinur minn, Haf-
steinn Þorsteinsson, lá
banaleguna og ég hafði
heimsótt hann reglulega á
sjúkrahúsið. Sigurður tjáði
mér þakklæti sitt og spurði
hvort hann gæti ekki gert
eitthvað fyrir mig. Jú, gefðu
mér hundrað páskaegg! En
ég ætla ekki að borða eitt
einasta, heldur gefa þau í
fangeisin."
Að sögn Einars brást Sigurður
umsvifalaust við þessari beiðni og
allar götur síðan hefur það ekki
brugðist um páska að Einar hefur
mátt sækja páskaegg handa föng-
unum til Sigurðar í Mónu.
Einar segir að á þessum 15 árum
hafí föngum fjölgað og nú dreifði
hann 135 páskaeggjum. „Mér fínnst
þeir líka sífellt verða yngri sem gista
fangelsin. Þau eru orðin mörg páska-
eggin á þessum 15 árum. Fanga-
verðir hafa sagt við mig að þessi
kveðja sé ómetanleg fyrir andrúms-
loftið í fangelsinu um hátíðarnar.
Fangarnir eru þakklátir og það hef-
ur komið fyrir að þeir hafi skrifað
og beðið um páskaegg fyrir börnin
sín.“
Auk þess að fara með páskaegg
hefur Einar um langt árabil fært
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
föngum bækur í jólagjöf. Hann seg-
ir að margir einstaklingar og stjórn-
endur fyrirtækja hafi styrkt þetta
starf. En hvað knýr hann til þess
að gleðja fanga með þessum hætti?
„Eg hef orð Jesú Krists fyrir mér
í því að þetta eigum við að gera,“
segir Einar. „Jesús sagði: ,í fangelsi
var ég og þér komuð til mín... Sann-
lega segi ég yður, það allt, sem þér
gjörðuð einum minna minnstu
bræðra, það hafið þér gjört mér.’“
EINAR J. Gíslason og Hafliði Kristins-
son færðu föngum á Litla Hrauni og
fangelsum á höfuðborgarsvæðinu
páskaegg í vikunni.
Hús ÍS rís
FYRSTA skóflustungan að nýbyggingu íslenskra sjávarafurða
að Sigtúni 42 var tekin í gær. Húsið verður um 2.500 fermetrar
að stærð á tveimur hæðum. Arkitektar að byggingunni eru Arki-
tektar sf. og verkfræðiþjónusta er í höndum Verkfræðistofu Sig-
urðar Thoroddsen. Samið hefur verið við verktakafyrirtækið
Armannsfell hf. um byggingu hússins og á fyrsti áfangi byggingar-
innar að vera tilbúinn til notkunar I lok september.