Morgunblaðið - 16.04.1992, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. APRIL 1992
47
Sálinn og systurnar skæðu
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Bíóhöllin: Banvæn blekking -
„Final Analysis" Leikstjóri Phil
Joanou. Handrit Wesley Strick.
Aðalleikendur Ricliard Gere, Kim
Basinger, Unia Thurman, Eric
Roberts. Bandaríkin 1991.
Sálfræðingurinn Gere kynnist
Basinger, systur eins skjólstæðings
síns (Thurman). Hefst með þeim
samdráttur en Basinger er gift harla
skuggalegum náunga (Roberts) af
grískum ættum. Vill hún skilnað og
er Gere, sem orðinn er ástfanginn,
því mjög svo sammála. En þá drepur
Basinger bónda sinn og það er ekki
síst.fyrir hjálp Geres að hún er sýkn-
uð og nú taka málin nýja og óvænta
stefnu og sagan ekki hálf sögð.
Ótæpileg lengd er einmitt helsti
Ijóður þessarar spennumyndar sem
þrátt fyrir fjárráð og fært kvik-
myndagerðarfólk í mörgum störfum
gerir lítið betur en hanga í meðallag-
inu. Myndin er afar myrk ásýndum,
drunginn og dimman undirstrikar
fláræði og blindingsleik persónanna
og söguþráðarins en of mikið má
af öllu gera.
Leikhópurinn er af sama toga,
dökkar persónur og heldur fráhrind-
andi. Gere hefur spjarað sig vel í
heldur fruntalegum hlutverkum í
myndum eins og American Gigolo,
Breathless og Internal Affairs. Synd
væri að segja að persóna hans laði
fram þá nauðsynlegu samúð sem
hann þarf á að halda í hlutverki
mennta- og ljúfmennis sem er gab-
bað uppúr skónum. Að öði'u leyti á
hann þokkalegan dag, þó hann falli
ekki sem best inn í manngerðina þá
ber hann Banvæna blekkingu mynd-
arlega uppi. Kvenleikararnir tveir,
einkum Thurman, eru utangarðs í
túlkun sinni á systrunum skæðu en
Robeits hefur allt til að bera til að
koma illyrminu, eiginmanni Basin-
gers, trúverðuglega frá sér.
Joanou, sem lofaði öllu góðu eftir
heimildarmyndina um U2 og
spennumyndina State of Grace, á
misjafnan dag. Einstaka atriði eru
fagmanlega gerð og frekar að sak-
ast við handritshöfundinn að myndin
v'arð ekki sú afburða skemmtun sem
til stóð. Sögufléttan heði mátt vera
hreinni ogtilþrifameiri og samþjapp-
að'ri.
VZterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
KENNSLA
Langar þig að læra á
hljóðfæri?
Þú getur lært á gítar: Blús, „fingerpicking",
rokk, dauðarokk, „slide"; einnig hljómborðs-
kennsla, „midi“- og munnhörpukennsla.
Upplýsingar í síma 682343.
Tónskóli Gítarfélagsins.
Tónlist er okkar tungumál.
Frá Ljósmæðraskóla
íslands
'Kennsla hefst í Ljósmæðraskóla íslands
mánudaginn 7. september 1992.
Inntökuskilyrði eru próf í hjúkrunarfræði og
að umsækjandi hafi hjúkrunarleyfi hérá landi.
Umsóknir sendist Ljósmæðraskóla íslands,
kvennadeild Landspítalans, 101 Reykjavík,
fyrir 1. júní nk.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
eru veittar í skólanum á mánudögum og
miðvikudögum milli kl. 9.00-15.00 sími
601396.
Reykjavík 13. apríl 1992,
Skólastjóri.
Sumarbústaður
Til sölu 50,5 fm SG-sumarbústaður. Fullbú-
inn eða á fyrsta byggingarstigi. Tilbúinn til
flutnings.
Upplýsingar í síma 91-689561.
ATVINNUHÚSNÆÐI
Frystigeymslur
til leigu miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu.
Upplýsingar í síma 641160.
Mjóddin
Til leigu er mjög gott 112 fm verslunarhús-
næði á jarðhæð við Álfabakka í Mjóddinni.
Húsnæðið losnar fljótlega.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. merkt:
„Mjóddin - 9670".
Til leigu
Til leigu er u.þ.b. 100 fm skristofuhúsnæði
á 6. hæð í Lágmúla 5.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrif-
stofu félagsins og í síma 679700.
AUGL YSINGAR
Tryggingafélag bindindismanna
Lágmúla 5 ■ 108 Reykjavík,
Utboð
Félagsstofnun stúdenta óskar eftir tilboðum
í byggingu fyrsta húss af ellefu sem ráðgert
er að byggja á lóð Háskóla íslands við
Eggertsgötu í Reykjavík.
Um er að ræða 3ja hæða hús, liðlega 500 m2
að grunnfleti auk kjallara. Á 1. hæð verður
leikskóli, en leiguíbúðir á 2. og 3. hæð.
Húsinu skal skila tilbúnu undir tréverk og
frágengnu að utan. Verki skal vera lokið eigi
síðar en 1. nóvember 1992.
Útboðsgögn verða afhent miðvikudaginn 22.
apríl 1992 á skrifstofu Félagstofnunar stúd-
enta við Hringbraut, 2. hæð gegn 8.000,-
kr. óafturkræfu skilagjaldi.
Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn
5. maí 1992 kl. 11.00.
Bygginganefnd Félagsstofnunar stúdenta.
tfjÚTBOÐ
og
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h.
Skólaskrifstofu Reykjavíkur, óskar eftir tií-
boðum í viðgerðir og endurbætur á þökum
Álftamýrarskóla, 2. áfanga.
Helstu magntölur eru:
Þak suðurálmu um
Þaktengigangs um
Þak á eystri tengibyggingu um
Lægra þak íþróttahúss um
Múreinangrun um
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri,
Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 10.000,-
skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtu-
daginn 7. maí 1992, kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYK J AVIKURBORGAR
Frikirk|uvegi 3 Simi 25800
600 m2
240 m2
122 m2
324 m2
26 m2
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta á eftirtöldum eignum:
Gröf, Hofshreppi, þingl. eigendur Svanhildur Sigfúsdóttir o.fl., fer
fram á eigninni sjálfri miðvikudaginn 22. apríl 1992 kl. 14.00.
Uppboðsbeiðendur eru Stofnlánadeild landbúnaðarins og Lífeyris-
sjóður stéttarfélaga í Skagafirði.
Reykjum, Hólahreppi, þingl. eigandi Jarðakaupasjóður ríkisins, fer
fram á eigninni sjálfri, miðvikudaginn 22. apríl 1992 kl. 15.00.
Uppboðsbeiðandi er Stofnlánadeild landbúnaöarins.
Sýslumaðurinn I Skagafjarðarsýstu.
Bæjarfógetinn á Sauðárkróki.
Nauðungarupphoð
Húnavatnssýsla
Eftirgreindar eignir í Húnavatnssýslu verSa seldar á opinberu
uppboði, sem haldið verður á sýsluskrifstofunni á Blönduósi mið-
vikudaginn 22. apríl kl. 14.00. Er hér um að ræða annað og siðara
uppboð:
Húseignin Neðri Lækur, Skagaströnd, eigandi Þorleifur Guðjónsson.
Húseignin Bankastræti 7, Skagaströnd, eigandi Þorsteinn Jakobsson.
Fasteignin Hrossafell 3, Skagaströnd, eigandi Eðvarð Ingvason.
Jörðin Litlahlíð, Þorkelshólshreppi, eigandi Jóhann Hermann
Sigurðsson.
Sýslumaður Húnavatnssýslu.
Nauðungaruppboð
Þriðjudaginn 21. apríl 1992
fara fram nauðungaruppboð á eftirtöidum fasteignum í dómsal
embættisins, Hafnarstræti 1, isafirði, og hefjast þau kl. 14.00:
Brekkugötu 31, Þingeyri, þingl. eign Páls Björnssonar, eftir kröfu
innheimtumanns rfkissjóðs og veðdeildar Landsbanka (slands.
Hjallavegi 21, Suðureyri, þingl. eign Sveinbjörns Jónssonar, eftir
kröfu innheimtumanns rikissjóðs og veðdeildar Landsbanka íslands.
Hlíðarvegi 10, e.h., Suðureyri, þingl. eign Sigurðar Þórissonar, en
talin eign Ingvars Bragasonar, eftir kröfu innheimtumanns ríkissjóðs
og veðdeildar Landsbanka Islands.
Mjallargötu 1, 2. h.c., ísafirði, þingl. eign Byggingarfélags ísafjarðar
eftir kröfu veðdeildar Landsbanka íslands.
Suðurtanga 6, Naustið, ísafirði, þingl. eign Skipasmíðastöðvar
Marselíusar eftir kröfu Iðnlánasjóðs og Heklu hf.
Aðalgötu 47, Suðureyri, þingl. eign db. Pálma Jóhannssonar en tal-
in eign Sigrúnar Erlu Pálmadóttur, eftir kröfu innheimtumanns ríkis-
sjóös. Annað og síðara.
Áhaldahúsi á hafnarkanti, Suðureyri, þingl. eign Suðureyrarhrepps,
eftir kröfu Framkvæmdasjóðs jslands. Annað og síðara.
Auðunni ÍS-110, þingl. eign Eiríks Böðvarssonar, eftir kröfum Trygg-
ingarstofunnar ríkisins og Landsbanka islands, Reykjavík. Annað
og síðara.
Hjallavegi 9, 0101, Flateyri, þingl. eign Byggingarfélags Flateyrar
hf., eftir kröfu veðdeildar Landsbanka islands. Annað og síðara.
Hjallavegi 9, 0102, Flateyri, þingl. eign Byggingarfélags Flpteyrar
hf. eftir kröfu veðdeildar Landsbanká islands. Annað og sfðara.
Hjallavegi 9, 0104, Flateyri, þingl. eign Byggingarfélags Flateyrar
hf., eftir kröfu veðdeildar Landsbanka islands. Annað og síðara.
Hjallavegi 9, 0202, Flateyri, þingl. eign Byggingarfélags Flateyrar
hf., eftir kröfu veðdeildar Landsbanka islands. Annað og síðara..
Hjallavegi 14, Flateyri, þingl. eign Byggingarfélags Flateyrar hf., eft-
ir kröfu veðdeildar Landsbanka islands. Annað og sfðara.
Hjallavegi 16, Flateyri, þingl. eign Byggingarfélags Fiateyrar hf., eft-
ir kröfu veðdeildar Landsbanka islands. Annað og síðara.
Hjallavegi 18, e.h., Flateyri, þingl. eign Byggingarfélags Flateyrar
hf., eftir kröfu veðdeildar Landsbanka islands og innheimtumanns
ríkissjóðs. Annað og síðara.
Hjallavegi 18, n.h., Flateyri, þingl. eign Byggingarfélags Flateyrar *
hf., eftir kröfu veðdeildar Landsbanka islands og innheimtumanns
ríkissjóðs. Annað og síðara.
Hjallavegi 20, n.h., Flateyri, þingl. eign Byggingarfélags Flateyrar
hf., eftir kröfu veðdeildar Landsbanka islands. Annað og sfðara.
Sætúni 1, ísafirði, þingl. eign Jóhanns Símonarsonar, eftir kröfu
Landsbanka islands. Annað og síðara.
Sætúni 6, Suðureyri, þingl. eign Sigurvins Magnússonar og Guðnýj-
ar Guðmundsdóttur, eftir kröfu Landsbanka islands, ísafirði. Annað
'og síðara.
Suðurtanga 8, Stóri slippur, isafirði, þingl. eign M. Bernharðssonar,
skipasmíðastöðvar, eftir kröfu bæjarsjóðs ísafjarðar. Annað og
síðara.
Malargeymslu, hellusteypu og bílaverkstæði við Grænagarð, ísafirði,
þingl. eign Steiniðjunnar hf. en taliii eign Kaupfélags ísfirðinga, eftir
kröfu Iðnlánasjóðs. Annað og síðara.
Seljalandsvegi, húseignir og lóð á Grænagarði, isafirði, þingl. eign
Steiniðjunnar hf. en talin eign Kaupfélags Isfiröinga, eftir kröfu Iðn-
lánasjóðs. Annað og síðara.
Sementssiló, 3 stk. við Grænagarð, isafirði, þingl. eign Steiniðjunnar
hf. en talin eign Kaupfélags isfirðinga, eftir kröfu lönlánasjóðs. Ann-
að og sfðara.
Steypustöð við Grænagarð, isafirði, þingl. eign Steiniðjunnar hf., en
talin eign Kaupfélags ísfirðinga, eftir kröfu Iðnlánasjóðs. Annað og
síðara.
Trésmíðaverkstæði við Grænagarð, isafirði, þingl. eign Steiniðjunnar
hf., eftir kröfu Iðnlánasjóðs. Annað og síðara.
Verksmiðjuhús viö Sundahöfn, Sindragötu 5, ísafirði, þingl. eign
Niðursuðuverksmiðjunnar hf., eftir kröfum istess'hf., Akureyri, Lifeyr-
issjóðs Vestfirðinga, Byggðastofnunar, Pólstækni hf„ Rafboða hf.,
Vátryggingafélags islands, Seifs hf., Gests Halldórssonar og islands-
banka hf. Annað og síðara.
Þriðja og síðasta nauðungaruppboð
á Nauteyri 2, Nauteyrarhreppi, N-isafjarðarsýslu, þingl. eign islax
hf., fer fram eftir kröfum Iðnþróunarsjóðs og Framkvæmdasjóðs
islands á eigninni sjálfri föstudaginn 24. apríl 1992 kl. 14.30.
Bæjarfógetinn á ísafirði.
Sýslumaðurinn í ísafjarðarsýslu.