Morgunblaðið - 16.04.1992, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. APRIL 1992
Um þjóðernisstefnu,
þjóðrembu og þjóðrækni
Fullveldi íslands er hagnýt stjórnskipan óskyld rómantík
eftir Ingvar Gíslason
Inngangur
Grein sú sem hér fer á eftir er
hugleiðing sem greinarhöfundur
(I.G.) setti fram í bréfi til Arvo
Alas sendiherra Eistlands á íslandi
(með aðsetri í Kaupmannahöfn)
vegna greinar hans „Uppvakningur
þjóðernisstefnu“ í Morgunblaðinu
2. febrúar sl. í upphafí nefndrar
greinar sinnar víkur sendiherrann
að því að „komandi nýskipan heims-
mála“ sé „ógnað“ af „þjóðernis-
stefnu“. Framar öðru varð þessi
skoðun sendiherrans tilefni þeirra
athugasemda sem á eftir fara. Bréf-
ið til sendiherrans er skrifað 9. febr-
úar sl., viku síðar en grein hans
birtist í Morgunblaðinu. Að sleppt-
um almennum ávarps- og lokaorð-
um hljóðar bréfið þannig:
„NationaIismus“
Ég leyfi mér í mikilli vinsemd
að rita yður,. herra ambassador,
eftirfarandi bréf í tilefni greinar
yðar í Morgunblaðinu 2. þ.m. (Upp-
vakningur þjóðernisstefnu).
Ég hef einu sinni komið til lands
yðar, Eistlands, í júní 1969. Þá
bauð Æðsta ráð Sovétríkjanna
sendinefnd íslenskra alþingismanna
(úr öllum flokkum) að heimsækja
Sovétríkin. Sendinefndin fór til
Moskvu, Bakú, Kiev, Jalta, Tallinn
og Leningrad. Síðan hef ég haft
sérstakan áhuga á Eistlandi. I Tall-
inn fann ég annað andrúmsloft en
í Moskvu, Leningrad og Kiev. Eist-
ar eiga enga samleið með Rússum
1.FL0KKUR 2. FL0KKUR
29, maí - 4, júni 4. júní -11. júni
6 dagar 7 dagar
9-10 ára 9-10 ára
Kr. 11.300,- Kr. 13.200,-
7. FL0KKUR 8. FL0KKUR
16. júlí -24. júli 24. júlí - 31. júli
8 dagar 7 dagar
11-13 ára 1,1-13 ára
Kr. 15.100,- Kr. 13.200,-
Skráning helst 21. aprfl kl. 8:00
á aðalskrllstofu KFUM «10 Hollaveg.
Rulufargjald bætlst vlð verðlfl.
I hvem llokk komast mest 90 strákar.
V____________________________________________
og Moskvuvaldi. Eistar eru í raun
eðlislíkir norrænum þjóðum og
gætu þess vegna verið í Norður-
landaráði. Það hefði ég helst kosið.
En nú sný ég mér að grein yðar
og bið yður að misvirða ekki það
sem ég er að reyna að túlka. Þetta
bréf mitt er í eðli sínu hugleiðing
um alþjóðaorðið „nationalismus" og
hvernig það verður þýtt á íslensku.
Hvað er „nasjónalismi"? Hver er
„draugur nasjónalismans"?
En fyrst og fremst er grein yðar
upplýsandi um aðstöðumun, mun á
aðstæðum þjóða og þegna eftir
löndum, heimshlutum og menning-
arsvæðum. Grein yðar upplýsir m.a.
hversu gerólíkar eru tilvistarlegar
aðstæður Eista og íslendinga,
tveggja gamalla og gróinna menn-
ingarþjóða, þjóða sem þó eru eðlis-
líkar um margt.
Lega lands og næsta nágrenni
ræður tilveru og örlögum þjóða. Það
er annað að vera eyþjóð í úthafi
með þúsundmílnasjó umhverfis sig
en meginlandsþjóð í sjálfu „þjóða-
hafinu“.
En úr því að það eru landfræði-
legar aðstæður sem skapa þjóð til-
veru og örlög, er þá ekki Ijóst að
tilvera meginlandsþjóðar sé al-
mennt flóknari en eyþjóðar? Verða
örlög þjóðar sem býr í iðu þjóðæ-
hafsins ekki önnur en þeirrar sem
býr ein á úthafsey? Verður orðið
„þjóðernisstefna" skilið sama skiln-
ingi hér og þar? Er ekki eðlilegt
að meginlandsþjóð, sem býr við
margslungnar fjölþjóðaaðstæður í
landi sínu, útfæri „þjóðernisstefnu"
(sit venia verbo) með öðrum hætti
3. FLOKKUR 4. FL0KKUR
11. júní -18 júní 18. júní - 25. júní
7 dagar 7 dagar
10-12 ára 10 -12 ára
Kr. 13.200.- Kr. 13.200,-
9. FL0KKUR 10. FL0KKUR
UNGLINGAFLOKKUR 14. ágúst - 24. ágúst
FYRIR PILTA 10 dagar
OG STÚLKUR 10-13 ára
7. ágúst -14. ágúst Kr. 18.800,-
7 dagar
14-17 ára
Kr. 13.200,-
en einangruð eyþjóð úti í Atlants-
hafi?
Af grein yðar má ráða, að þótt
Eistlendingar hafi öðlast sjálfstæði
að nýju, sé það ekki fyrirboði þess
að vísa skuli fólki af öðru þjóðerni
úr landi, hreinsa Eistland af útlend-
ingum, eða banna mál þeirra, menn-
ingu og siðvenjur. Ríkisstjórn Eist-
lands ætlar að viðurkenna að eist-
neskt þjóðfélag sé fjöljtjóðasamfé-
lag, sem landfræðilegar aðstæður
og mannkynssagan sjálf hafa skap-
að og ekki verði breytt.
Þetta er sannarlega góðs viti. Það
er gleðilegt að Eistar ætla ekki að
taka upp þá ofríkis- og hefndar-
stefnu sem komið hefur óorði á
eðlislæga þjóðarvitund og þjóðlega
pólitík í jákvæðum anda. Lýðræðis-
sinnað fólk fagnar því að stjórnvöld
Eistlands ætla að leysa minnihluta-
vandamálin lýðræðislega. Ríkis-
stjórn Eistlands hafnar sem betur
fer öllum „súpernasjónalisma" af
ætt þýska nasismans. Eistneska
þjóðin ætlar að forðast útlendinga-
og nágrannahatur. Hún gerir sér
sjálf ljóst að tii þess að byggja uþp
lýðræði og mannréttindi í fjölþjóða-
samfélagi er það eitt af grundvallar-
atriðunum að mannréttindi minni
hluta séu tryggð að lögum og virt
í raun. Eistar afneita öfgum þjóð-
emisstefnunnar.
Þjóðrækni
En nú vill ég leyfa mér að staldra
ögn við í hugleiðingum um orðið
„þjóðernisstefna" sem alþjóðaorðið
nationalismus er oft þýtt með á ís-
lensku. Af því sést að íslendingar
5. FL0KKUR 6. FL0KKUR
29. júní - 7. júlí 7. júlí -16. júlí
8 dagar 9 dagar
11-12 ára 10-13 ára
Kr. 15.100.- Kr. 16.900,-
11.FL0KKUR 12. FL0KKUR
ÍÞRÓTTAFLOKKUR KARLAFLOKKUR
24. ágúst-31, ágúst 3. sept. - 6. sept.
7 dagar 3 dagar
10-13 ára 17-99 ára
Kr 13200,-
hafa ekki.aðlagað alþjóðaorðið ís-
lensku máli, heldur búið til nýyrði
af íslenskri rót. En spurningin er
samt: „Hvað er nasjónalismi“? Er
til einhver algild skilgreining á
þessu alþjóðaorði úr miðaldalatínu?
Er þetta skýrgreint fræðiorð, lög-
fræðilegt hugtak eða bara einn af
þessum pólitísku frösum sem þýða
eitt í dag og annað á morgun?
Samkvæmt ansk-íslenskri orða-
bók getur „nationalism" þýtt m.a.:
Þjóðernisstefna, þjóðræknisstefna
og þjóðremba. Þetta sýnir að al-
þjóðaorðið „nationalismus" (í ís-
lenskri afbökun: nasjónalismi) hef-
ur ekki fasta merkingu heldur ýms-
ar merkingar, stundum er merking-
in jákvæð, stundum neikvæð.
„Nasjónalismi" er notað um and-
stæður, ef það er rétt að það geti
þýtt í senn það sem á íslensku kall-
ast „þjóðrækni" og „þjóðremba".
Samkvæmt minni máltilfinningu og
pólitískum viðhorfum mínum er
þjóðremba afar neikvætt hugtak.
Það lýsir þjóðarhroka, nánast
átrúnaði á yfirburði síns eigin þjóð-
ernis. En „þjóðrækni" er jákvætt
orð, táknar einfaldlega „umhyggju"
fyrir þjóðlegri menningu, tilfinn-
ingu fyrir uppruna sínum og menn-
ingarerfðum, landi sínu og þjóð.
Orðhlutinn -rækni (í þjóðrækni) er
af sömu rót og sagnorðið „að
rækta“ (to cultivate). Ég held að
upphafleg merking orðsins „nation-
alismus" sé einmitt „ræktun þjóð-
legra verðmæta", en hvorki nærsýn
þjóðernisleg sjálfselska (G.B. Shaw
notaði orðið „self-love“ um þjóðern-
ishyggju Sinn Fein hins írska) né
þröngsýn andstaða gegn alþjóða-
hyggju og ótti við nálægð útlend-
inga eða útlend áhrif. Ég spyr: Er
alþjóðaorðið „nasjónalismi" ekki
útjaskað og merkingarlaust glam-
uryrði eða kannski frekar brenglað
að merkingu fyrir áhrif þýska nasis-
mans og annarra öfgakenninga ald-
arinnar? Það er aðeins úr gröfum
öfgakenninga sem hægt er að vekja
upp drauga „þjóðernisstefnunnar",
enda hljómar sjálft íslenska orðið
þjóðernisstefna (nú orðið) eins og
Nazism á ensku!
A 19. öld var þjóðleg vakning á
íslandi sem víðar um lönd. Þjóð-
ræknisstefna varð pólitískt afl um
og eftir 1830. Henni óx fylgi eftir
því sem leið á öldina. Hún var orð-
in mikilsráðandi afl um aldamótin.
íslensk stjórnmál 20. aldar hafa
mótast af anda sjálfstæðishugsjón-
ar þjóðræknisstefnunnar, þar til á
allra síðustu árum (síðustu 4-5
árum) að áhrifamikil þjóðfélágsöfl
eru byrjuð að boða afslátt af þess-
ari hugsjón, sem til þessa hefur
verið sameinandi stefna í íslenskum
stjórnmálum, enda löngum þjóðar-
eining um hana. I þessu fráhvarfi
er að finna áhrif frá hinni mjög
umræddu sameiningarpólitík meg-
inlandsþjóða Evrópu, Evrópubanda-
lag og Evrópskt efnahagssvæði.
Boðberar Evrópustefnu líðandi
stundar segja gömlu sjálfstæðis-
stefnuna einhæfa og úrelta, kalla
hana einangrunarstefnu, sem ekki
sé í takt við nútímann.
Einangrun eða opnun? Hugleið-
um þessi orð.
Enn fylgja margir hugsandi og
ráðandi menn á íslandi gömlu þjóð-
ræknisstefnunni, sem felur m.a.. í
sér að ekki skuli opna landið hömlu-
laust fyrir útlendu vinnuafli, at-
vinnurekendum og kapítali. Hvers
vegna viðhafa menn slíka íhalds-
semi gagnvart markaðs-boðskap
nútímans? Að nokkru leyti ræður
þarna sú varúð að stofna ekki til
minnihlutavandamála í örsmáu
þjóðfélagi á fjarlægri eyju í miðju
Atlantshafi. Hér ræður hvorki útúr-
boruleg einangrunarhyggja né upp-
vakinn draugur þjóðernisstefnu. Éf
saga ísle’nska lýðveldisins er könnuð
Ingvar Gíslason
„Eistland er fjölþjóða-
land (land margra þjóð-
erna), Island er einnar-
þjóðarland. Eistar eru
meginlandsþjóð sem á
volduga nágranna, Is-
lendingar eyþjóð í Atl-
antshafi. I þessu felst
tilvistarlegur og póli-
tískur munur.“
mun koma í ljós að íslendingar
hafa verið virkir í alþjóðasamstarfi
á vegum Sameinuðu þjóðanna, inn-
an NATO, í Norðurlandaráði, Evr-
ópuráði o.s.frv. ísland er menning-
arlega opið land, íslendingar ferð-
ast mikið og eru sem einstaklingar
alþjóðlega sinnaðir, en vilja halda
fast í fullveldi sitt. Þannig er hin
íslenska „þjóðræknisstefna."
Þýskt — franskt miðríki
En nú sný ég mér aftur að upp-
hafi þessa bréfs. í fyrri hluta þess
sagði ég að grein yðar, „Uppvakn-
ingur þjóðernisstefnunnar" sannaði
fyrir mér að landfræðilegar ástæður
hefðu búið Eistum og Islendingum
mismunandi örlög og ólíka samfé-
lagsgerð. Eistland er fjölþjóðaland
(land margra þjóðerna), lsland er
einnarþjóðarland. Eistar eru megin-
landsþjóð sem á volduga nágranna,
íslendingar eyþjóð í Atlantshafi. í
þessu felst tilvistarlegur og pólitísk-
ut' munur.
í því sambandi spyr ég sjálfan
mig svolítið absúrd spurninga: „Er
eftirsóknarvert að jafna þennan
mun og þá á hvorn veginn? Eiga
Eistar að breyta fjölþjóðasamfélagi
sínu í einnarþjóðarsamfélag a la
ísland? Eða eiga íslendingar að
breyta sínu einnarþjóðarsamfélagi
í fjölþjóðasamfélag a la Eistland?
Þessum absúrdspurningum læt
ég að vísu ósvarað, en hugleiði,
hvort það teljist vera „að vekja upp
drauga þjóðernisstefnunnar" að
ráða íslendingum frá því að gang-
ast undir bandríkjahugmyndir Evr-
ópubandalagsins (European Comm-
unity) eða meira og minna yfirþjóð-
legt skipulag Evrópsks efnahags-
svæðis (European Economic Area),
sem raunar er fordyri að sjálfur
Evrópubandalaginu?
Eða er öll þjóðleg sjálfstæðis-
stefna skaðlegur uppvakinn draug-
ur úr fortíðinni nema sú ein sem
leitt hefur til þess að ýmsar þjóðir
hafa losnað undan miðríkisoki
Moskóvíta?
Er væntanlegt miðríki hins þýsk-
franska Brusselvalds, sem sumir
kalla Bandaríki Evrópu, sjálft Þús-
undaríkið, meginstólpinn í „kom-
andi nýskipan heimsmála“ sem þér
nefnið í upphafi greinar yðar og
segið að sé „ógnað“ af þjóðernis-
stefnu? Hver er þessi „nýskipan
heimsmála"? Hefur hún verið kort-
lögð?
Af einlægni óska ég Eistum til
hamingju með að hafa brotist út
úr miðríki Moskóvíta. Ég á mér þá
heitu von að Eistum haldist vel og
lengi á nýfengnu sjálfstæði sínu.
SKOGARMENN KFUM
J
SKRANING I VATNASKOG
HEFST 21. APRÍL