Morgunblaðið - 16.04.1992, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. APRIL 1992
29
undir verndarvæng kaupmannanna,
en einnig hið svonefnda Kabuki-
leikhús. Hingað má og rekja rætur
hinnar einstæðu temenningar Jap-
ana, en upphafsmann hennar má
telja Senno Rikyu, og hér lifði einn-
ig rithöfundurinn Monzaemon Chik-
amatzu (1653-1724), sem nefndur
hefur verið japanskur Shakespeare.
Er Tokyo var gerð að höfuðborg
í stað Kyoto árið 1868, kom mikill
afturkippur í efnahagslíf borgarinn-
ar, en um aldamótin tók það að
blómstra á ný með tilkomu tex-
tíliðnaðarins. Síðan hefur borgin
vaxið og eflst og er löngu komin í
röð heimsborganna og árið 1970
var borgin í sex mánuði vettvangur
heimssýningarinnar EXPO 70.
Mikill metnaður og framfarahug-
ur er í ráðamönnum borgarinnar
og þannig var víðfræg verzlunar-
miðstöð neðanjarðar vígð árið 1963,
tveimur árum seinna var höfnin
stækkuð umtalsvert, og fjórum
árum seinna var fullbyggð verziun-
armiðstöð í stærsta skýjaklúf
Vestur-Japans, sem er 78 metrar
að hæð. Ráðgert er að byggja nýja
flughöfn á eyju skammt frá borg-
inni, sem verður merkileg fram-
kvæmd og mikil samgöngubót og
menn hafa skipulagt uppbyggingu
borgarinnar af miklum stórhug
fram á næstu öld.
Kyoto
Ibúatala Kyoto er hálfu minni
en Osaka, en samt er um menning-
arháborg Japans að ræða með
upp á 1100 ára afmæli borgarinn-
ar. Upprunalega nefndist borgin
Heinakyo, sem útleggst borg friðar-
ins, en seinna fékk hún nafnið Miy-
ako eða Kyoto, sem þýðir einfald-
lega höfuðborg. Kyoto hefur átt sín
blóma- sem hnignunarskeið, og hér
kemur fyrrnefndur Hideyoshi Toyt-
omi aftur til sögunnar á sextándu
öld og þá hófst eitt mesta upp-
gangstímabil borgarinnar, en hann
lét endurbyggja keisarahöllina,
gera við hofin og færa allt í nútíma-
horf.
Tokyo
Minna þarf sjálfsagt að hafa fyr-
ir því að kynna Tokyo, en hvað
þekkjum við mikið raeir en nafnið?
Fyrrum hét borgin Edo (Árhlið) og
hlaut ekki núverandi nafn sitt fyrr
en árið 1868, en það þýðir Austur
höfuðborgin. Menn vita sjálfsagt,
að Tokyo er ásamt Mexíkóborg og
Shanghai í Kína, stærsta borg ver-
aldar með 12 milljónir íbúa og að
hana prýðir háþróuð byggingarlist.
Þrátt fyrir að Tokyo sé einhver
nútímalegasta borg veraldar, eru
fæstar göturnar auðkenndar og
heimilisföngin flókinn galdur og
nær óskiljanlegur Vesturlandabú-
um. M.a. eru aðeins 30 götunöfn í
allri borginni! Það er því á stefnu-
skrá borgaryfirvalda að innleiða
nýtt kerfi hvað snertir götunöfn og
götunúmer. En það er mun auðveld-
ara að rata í Tokyo en t.d. Osaka,
vegna þess að maður er öllu fljót-
ari að tileinka sér hin ýmsu kenni-
Þessi faliegi pels í
öllum stærðum
Kr. 125.000,-
PE1SINN|1|]
Kirkjuhvoli • sími 20160 I -J M I
IÞar sem vandlátir versla\
PASKAR A PISA
SKÍRDA6...........18.00-23.30
FÖSTUDACINN LANCA...18.00-23.30
LAUCARDAC.........18.00-23.00
PÁSKADAC.........18.00-23.30
2. PÁSKADA6.......18.00-23.30
Endurgerður kastali Hideyoshi Toytomi,
meira en 1.500 Búddhahofum og
200 Shinto-helgidómum. Þar eru
þjóðlistarsöfn fyrir eldri og nýrri
list, borgarlistasafn, héraðsstjórn
og háskólasafn auk Ryozen-safns-
ins, sem var opnað 1970 og geymir
muni frá Meiji-endurreisninni. Þar
fyrir utan er einnig hundruð einka-
hofa og einkasafna innan og utan
borgarmarkanna.
Kyoto hefur vegna menningar-
fjársjóða sinna viðlíka sérstöðu í
austrinu og t.d. Flórenz og Köln í
Evrópu og liggur þangað mikill
ferðamannastraumur hvaðanæva
að úr heiminum.
Ólíkt öðrum stórborgum Japans
var Kyoto hlíft við sprengjuárásum
í seinni heimsstyijöldinni, þannig
að hér er varðveittur nær fjórðung-
ur þjóðargersema Japana, m.a.
mörg listaverk frá Heian-tímabil-
inu.-
í Kyoto þróaðist og blómstraði
temenningin og þar var dýrkuð
„Ikebana", en svo nefnist list blóm-
askreytinganna. Hin sígildu og
viðurkenndu leikform, No og
Kabuki, hafa þróast frá fornri al-
þýðulist borgarbúa og orðið þjóðar-
eign. Velþekktur er einnig listiðnað-
ur borgarinnar svo sem Yuzen-silki-
vörur, og ísaumsvörur hvers konar,
blævængir og aðrar vörur úr papp-
ír, svo og iakköskjur, brons, postul-
ínsvörur og brúður. Þá er Kyoto
borg hátíðarhaldanna, en allt frá
nýársdegi til gamlársdags fylla
dagatalið gnægð skrautlegra há-
tíðahalda, og af þeim eru þekktast-
ar hin keisaralega Aoi-hátíð í maí,
Gion-hátíðin á sumri, sem stendur
næstum yfir í heilan mánuð og
endar á skrúðgöngu 17. júlí, sem
dregur að sér milljón áhorfendur,
og svo Jidai-hátíðin, að hausti, sem
er hátíð tímans, en hún var fyrst
haldin árið 1895, er íbúarnir héldu
leiti, sem eru glæsilegar byggingar
og verzlanii'.
Neðanjarðarlestarkerfið er mað-
ur fljótur að læra á og kemst yfír-
leitt mun hraðár á milli hverfa en
í leigubílum og þá einkum að degi
til, en umferðin er gífurleg og mest-
ur tíminn fer í að bíða eftir grænu
ljósi á gatnamótum. Þijú fljót skera
borgina, Sumida, Arkawa og Tama,
sem öll renna í Tokyoflóánn. Ásamt
hjáborgunum Kawasaki og Yoko-
hama í suðri og héruðunum Chiba
og Saitama myndar Tokyo iðnaðar-
svæðið Keihin og þar búa samtals
27 milljónir manna.
Að sjálfsögðu er auðvelt að drepa
tímann í þessari risaborg, en farsæl-
ast er að kynna sér möguleikana
vandlega, áður en þangað er korn-
ið, því að af miklu er að taka. Verzl-
unarhverfin í Shinjuku-ku og Ginza
eru glæsileg, ekki síður en í New
York eða London, og þar geta menn
keypt allt sem hugurinn girnist, svo
fremi sem menn hafi skildinginn,
en v'erðlag er frekar hátt. Undir
aðaljárnbrautarstöðinni er stærsta
verzlunarhverfi neðanjarðar í heimi,
sem var fullgert árið 1970. í þeim
tvöhundruð verzlunum, sem þar
finnast má bókstaflega fá alit milli
himins og jarðar. Þar eru og veit-
ingahús og breiðgötur, sem eru lýst-
ar upp með náttúruljósi. Hálf millj-
ón manns leggur leið sína þangað
daglega.
I Tokyo er allt stjórnsýslukerfi
þjóðarinnar samankomið, og hér er
miðstöð menningar, lista og mennt-
unar, t.d. éru yfir 400 háskólar og
að jafnaði milljón stúdentar í borg-
inni. í miðju borgarsvæðisins í stór-
um garði hverfisins Chiyoda-ku
trónir svo mjallhvít keisarahöllin.
Höfundur er listmálnri.
OKKAR YFIRBGRÐIR
ERG Á HREING
Vilt þú spara fjórðung ferðakostnaðar?
Barnaverðið okkar er líka fyrir fullorðna.
Sömu flugvallaskattar og hjá Flugleiðum.
Gerið óruglaðan verðsamanburð - það borgar sig.
Ef við værum ekki að fljúga væru öll flugfargjöld
miklu dýrari.
-o;
VIÐ SPÖRUM PER
VIÐ SPÖRUM PER
viðspörumper
VIÐ SPORUM PER
90-100
5.200
T2.900
15.900-
3.000
ÍÍTOO
_2OS00_
5.000
TTöOO
70.900-
5.100
Frjálst val um hótel og bílaleigur með 30 - 50% samningsafslætti. Fjölbr'eytt val um sumarhús.
Sólarlandaferðir og ódýr framhaldsflug um allan heim frá stórborgum Evrópu.
Frábær stundvísi og þjónusta og íslenskt starfsfólk okkar á flugvöllum.
SPANN - ITALIA - KYPOR
GRIKKLAND - PORTÓGAL
Frábærir gististaðir
á eftirsóttum stöðum
ÓTRÚLEGA
HAGSTÆTT VERÐ
FIUGFErtÐiri
SGLRRFLUD
Vesturgata 1 7, Sími 620066
Borgarkringlunni, sími 677400, opið mán. - fös. 10-19, lau. 10-16.
Ekki innifalið í staðgreiðsluverði: Flugvallaskattur: Keflavík kr. 1.250, Kaupmannahöfn kr. 650, og Amsterdam kr. 210. Inritunargjald í Keflavík kr.400. Forfallatrygging kr. 1200.