Morgunblaðið - 16.04.1992, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. APRÍL 1992
SKÍÐASVÆÐI
FLEST skíðasvæði landsins verða opin yfir páskana. Gott skíða-
færi er sunnan-, austan- og vestanlands en snjólítið á Norðurlandi
og sum skíðasvæði lokuð af þeim sökum.
Suðurland: Skíðalöndin í Blá-
fjöllum, Skálafelli, Hamragili og
Sleggjubeinsskarði verða opin frá
skírdegi til annars í páskum og
verður skíðakennsla í boði og
troðnar göngubrautir opnar á öll-
um þessum stöðum. Gott færi og
nægur snjór er í skíðalöndunum.
I Hamragili (sími 98-34699)
verða tvær lyftur knúnar (opið frá
10-22 alla dagana), í Bláfjöllum
(sími 801111) verða tíu lyftur (opið
frá 10-18 alla dagana), í Skála-
felli (sími 666099) þijár (opið frá
10-18 alla dagana) og í Sleggju-
beinsskarði (sími 98-34666) verða
þijár lyftur (opið frá 10-21).
Vesturland: Skíðasvæðin í
Kerlingarskarði og á Fróðárheiði
verða opin en lokað verður við
Grundarfjörð. Á skírdag verður
Hraðmót HSH haldið á Fróðár-
heiði.
Vestfirðir: Skíðasvæðið á Selja-
landsdal við ísafjörð (sími
94-3793) verður opið alla páska-
helgina frá kl. 10-17. Á svæðinu
er ágætt færi. Þar verða fjórar
lyftur í gangi um helgina. í dag
lýkur þar alþjóðlegu skíðamóti sem
hófst í gær.
Norðurland: Skíðasvæði Ak-
ureyringa í Hlíðarfjalli (sími
96-22930) verður opið frá kl.
10-19 um helgina.
Tvær lyftur á skíðasvæði Sigl-
firðinga í Skarðsdal verða knúnar
frá kl. 10-16 í dag og á morgun
ef veður leyfir. Lítið er urp snjó
en sæmilegt færi er eigi að síður
í efri hluta fjallsins (sími
96-71806).
Stefnt er að því að knýja eina
lyftu á nýju skíðasvæði Húsvíkinga
í Gyðuhnjúk á sunnudag. Þar er
nægur snjór og gott færi.
Skíðasvæðin við Dalvík og Ól-
afsfjörð verða lokuð um helgina
vegna snjóleysis.
Austurland: Ein lyfta verður
knúin frá kl. 13-17 í dag á skíða-
svæði Seyðfirðinga í Stafdal (sími
97-21160) en frá 10-17 um helg-
ina. Nægur snjór er í fjallinu og
færi gott.
Þrjár lyftur verða knúnar í
Oddsskarði (sími 97-71474) frá kl.
10-18 í dag og á morgun. I skarð-
inu er nægur snjór og gott færi.
Skíðafólki er bent á að
hringja í skíðasvæðin áður en
lagt er af stað til að kanna veð-
ur og færð. Þá fást upplýsingar
um veður í símsvara Veðurstof-
unnar, 990600.
VEÐUR
IDAGkl. 12.00
/ Heimild: Veðurstofa íslands
(Byggt á veöurspá kl. 16.15 í gær)
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að í$l. tím hítl veður Akureyri 1 skýjað Reykjavík 6 skýjað
Bergen 6 léttskýjað
Helsinki 2 slydduél
Kaupmannahöfn 6 rigning
Narssarssuaq +0 skýjeö
Nuuk 6 skýjað
Óstó 3 snjóél
Stokkhólmur 3 skýjað
Þórshöfn S skýjað
Algarve 22 heiðskírt
Amsterdam 6 rigning
Barcelona vantar
Berlfn 13 skúr
Chicago 7 alskýjað
Feneyjar 14 skúr
Frankfurt 10 skúr
Glasgow 7 skýjað
Hamborg 10 skýjað
London 6 rigning
Los Angeles 16 skýjað
Lúxemborg 5 skúr
Madrid 16 hátfskýjað
Malaga 26 léttskýjað
Mallorca 20 þokumóða
Montreal +1 heiðskírt
NewYork 6 léttskýjað
Orlando 17 þoka
Parfs 11 skýjað
Madeira 18 hálfskýjað
Róm 16 þokaigrennd
Vin 16 aiskýjað
Washington 8 alskýjað
Winnipeg 4 þokumóða
Veitingamenn senda borgarráði bréf:
Mótmæla veitingarekstri
á veg’uin borgarinnar
SAMBAND veitinga- og gistihúsa hefur mótmælt við borgarráð fyrir-
huguðum veitingarekstri i Ráðhúsi Reykjavíkur og hugsanlegum
veitingarekstri við fjölskyldugarðinn í Laugardal.
í bréfi sambandsins til borgar-
ráðs segir, að Reykjavíkurborg sé
trúlega umsvifamesti veitingahúsa-
eigandi í landinu. Perlan taki 250
manns í sæti auk þess sem stór
veitingasala sé á 4. hæð, Viðeyjar-
stofa taki 200 manns í sæti, Hótel
Borg taki 290 manns í sæti og loks
taki kaffístofan á Kjarvalsstöðum
um 80 manns í sæti. Þá segir í
bréfinu: „Það verður að teljast und-
arlegt að þetta nýjasta veitingahús
borgarinnar skuli taka til starfa á
meðan umræða um einkavæðingu
fyrirtækja stendur sem hæst í þjóð-
félaginu, en borgarstjóri og nokkrir
borgarfulltrúar hafa í fjölmiðlum
boðað áform um nokkra einkavæð-
ingu borgarfyrirtækja."
Enn fremur: „í miðborg Reykja-
víkur er mikill fjöldi veitingahúsa
og eiga mörg þeirra í rekstrarerfið-
leikum vegna offramboðs sem
Reykjavíkurborg hefur sannarlega
stuðlað að. Nú þegar kaffihúsin í
miðbænum fá þessa óvæntu sam-
keppni hefur heyrst að til standi
að reisa stórt veitingahús í Laug-
ardal í tengslum við fjölskyldu-
garð."
Farið er fram á að borgarfulltrú-
ar endurskoði veitingarekstur borg-
arinnar og þess vænst að borgar-
yfirvöld muni í framtíðinni styðja
við atvinnurekstur í borginni í stað
þess að keppa við hann. Það væri
ójafn leikur.
Erindinu var vísað til umsagnar
umhverfismálaráðs hvað varðar
veitingarekstur í Laugardal.
Morgunblaðið/Sverrir
Drottningar á tízkusýningu
Stúlkurnar 18, sem þátt taka í Fegurðarsamkeppni íslands á
Hótel íslandi, nk. miðvikudag, komu fram á tízkusýningu í Borgar-
kringlunni í gær. Fjöldi manns fylgdist með sýningunni. Sýningar
sem þessar eru liður í því að kenna stúlkunum framkomu.
Sjá kynningu á stúlkunum 18 á bls. 50-51.
Byggingavísitala mæl-
ir 3,1% verðbólgu
HAGSTOFAN hefur reiknað launavisistölu fyrir aprilmánuð 1992
miðað við meðallaun í mars síðastliðnumm. Vísitalan er 128,1 stig
eða 0,2% hærri en í fyrra mánuði. Samsvarandi launavísitala, sem
gildir við útreikning greiðslumarks fasteignaveðlána, tekur sömu
hækkun og er því 2.801 stig í maí 1992.
Þá hefur Hagstofan einnig reikn-
að út vísitölu byggingakostnaðar
eftir verðlagi um miðjan apríl 1992.
Hún reyndist vera 187,3 stig og
Slysagildra við
Tjarnarbakka
LÖGREGLAN í Reylqavík stóð
vakt við norðurenda Tjarnarinn-
ar á þriðjudag, þegar mannfjöldi
kom til vígslu Ráðhúss Reykja-
víkur, þar sem í Ijós kom að
tröppur við Tjarnarbakkann
geta valdið óhöppum.
Við norðurenda Tjamarinnar
liggur göngustígur niðri við vatns-
borðið. Stígurinn er aflíðandi upp
að ráðhússlóðinni, en efst eru þrjár
tröppur. Svo virðist, sem margir
hafi ekki áttað sig á að tröppumar
tækju við af fláanum. Ein kona
datt og margir hrösuðu. Samkvæmt
upplýsingum lögreglu er þama um
slysagildru að ræða, sem hægt
væri að fjarlægja með því að hafa
áframhaldandi fláa. Lögreglan hef-
ur því sent embætti gatnamála-
stjóri ábendingu um þetta.
hækkar um 0,1% frá mars 1992.
Þessi vísitala gildir fyrir maímánuð,
en samsvarandi vísitala miðuð við
eldri grunn (desember 1982=100)
er 599 stig.
Síðastliðna 12 mánuði hefur
byggingavísitalan hækkað um
3,1%. Vísitala byggingakostnaðar í
maí 1992 er eins og í febrúar 1992.
-----»♦ 4------
Lánskjara-
vísitaía hækk
ar um 0,09%
SEÐLABANKINN hefur reiknað
út lánskjaravísitölu fyrir maí-
mánuð með tilvisan til 39. grein-
ar laga nr. 13 frá 1979 og reynd-
ist vísitalan vera 3203 stig.
Hækkun vísitölunnar frá mánuð-
inum á undan varð 0,09%.
Umreiknuð til árshækkunar hef-
ur breytingin verið síðasta mánuð
1,1%; síðustu 3 mánuði 0,6%; síð-
ustu 6 mánuði neikvæð um 0,1%
og síðustu 12 mánuði 4,3%.