Morgunblaðið - 26.02.1992, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRUAR 1992
39
STÓRA SVIÐIÐ:
eftir Astrid Lindgren
í dag kl. 17, uppselt
Uppselt er á eftirtaldar sýningar:
Lau. 29/2, sun. 1/3 kl. 17, lau. 7/3 kl. 14, sun. 8/3 kl. 14 og
kl. 17, mið. 11/3 kl. 17, lau 14/3 kl. 14, sun. 15/3 kl. 14 og
kl. 17, lau. 21/3, sun. 22/3 kl. 14 og kl. 17.
Fáein sæti eru laus á sýninguna mið. 4/3 kl. 17.
Miðar á Entil í Kattholti sækist viku fyrir sýningu, ella seldir
öðrum.
Rómeó og Júlía
eftir William Shakespeare
Lau. 29. feb. kl. 20. Fim. 12. mars kl. 20.
Lau. 7. mars kl. 20.
Himmeskt er aá lifa
eftir Paul Osborn
Fim. 27. feb. kl. 20, fá sæti laus.
Fös. 6. mars kl. 20, aukasýning.
Fös. 13. mars kl. 20, síðasta sýning.
LITLA SVIÐIÐ:
IRA JELENA
eftir Ljudmiiu Razumovskaju v
Fim. 27. feb. kl. 20.30, uppselt.
Uppselt er á allar sýningar til 22. mars.
Sala á sýningar síðustu dagana í mars verður auglýst síðar.
Ekki er unnt að hleypa gestum í salinn eftir að sýning hefst.
Miðar á Kæru Jelenu sækist viku fyrir sýningu, ella seldir
öðrum.
SMÍÐAVERKSTÆÐIÐ:
ÉG HEITI ÍSBJÖRG, ÉG ER LJÓN
eftir Vigdísi Grímsdóttur
í kvöld kl. 20.30, uppselt.
Uppselt er á allar sýningar til 22. mars.
Sala á sýningar síðustu dagana í mars vcrður auglýst síðar.
Sýningin hefst kl. 20.30 og er ekki við hæfi barna.
Ekki er unnt að hleypa gestum í salinn eftir að sýning hefst.
Miðar á Isbjörgu sækist viku fyrir sýningu, ella seldir
öðrum.
Miðasalan er opin frá kl. 13-18 alla daga nema mánudaga og
frant aö sýningu sýningardagana. Auk þess er tekið við pöntun-
um í síma frá kl. 10 alla virka daga.
Greiðslukortaþjónusta - Græna línan 996160.
'★ 50% afsláttur af miöaverði ★
á RUGLIÐ og LJÓN f SÍÐBUXUM!
★ Síðustu sýningar! ★
• RUGLIÐ eftir Johann Nestroy.
STÓRA SVIÐIÐ kl. 20:
Aukasýning föstudaginn 28. febrúar, allra síðasta sýning.
• LJÓN f SÍÐBUXUM eftir Björn Th. Björnsson.
STÓRA SVIÐIÐ kl. 20:
Aukasýning mið. 4. mars og lau. 7. mars.
STÓRA SVIÐIÐ kl. 20:
• ÞRÚGUR REIÐINNAR
byggt á sögu JOHN STEINBECK.
Leikgerð: FRANK GALATI.
Frumsýning fimmtudaginn 27. febrúar, uppselt,
2. sýn. laugard. 29. feb., grá kort gilda, uppselt,
3. sýn. sun. 1. mars, rauð kort gilda, uppselt,
4. sýn. fim. 5. mars, blá kort gilda, uppselt,
5. sýn. fös. 6. mars, gul kort gilda, uppselt.
KAÞARSIS - lciksmiðja sýnir á Litla sviði:
• HEDDU GABLER eftir Henrik Ibsen
Sýn. fös. 28. feb. Sýn. mið. 4. mars.
Miðasalan opin alla daga frá kl. 14-20 nema mánudaga frá
kl. 13-17. Miðapantanir í síma alla virka daga frá kl. 10-12,
sími 680680.
NÝTT! Leikhúslínan, sími 99-1015.
Munið gjafakortin okkar. Tilvalin tækifærisgjöf!
Greiðslukortaþjónusta.
BORG ARLEl KHLJSIÐ
eftir Guiseppe Verdi
5. sýning laugard. 29. febrúar kl. 20.00.
6. sýning laugard. 7. mars kl. 20.00.
ÖRFÁAR SÝNINGAR EFTIR.
Athugið: Ósóttar pantanir verða seldar tveimur dög-
um fyrir sýningardag.
Miðasalan er opin frá kl. 15.00-19.00 daglcga og til kl.
20.00 á sýningardögum. Sími 11475.
II ' ■ I I I I IM
Eldfjörug gaman-spennumynd um ungan blökku-
mann, Dexter Jockson, sem hrekkur óvart inn í hvítt
samfélag. Hann kemst aö sem fréttamaður viö sjónvarp
með því að taka hljóðnemann frá hvítum, deyjandi
fréttamanni.
Aðalhlutverk: Terrence Carson og Lisa Arrindell.
Leikstjóri: Michael Schultz (Car Wash).
Tónlist: Slick Rich (Terminator 1), Herbie Hancock
og The Jungle Brothers.
Sýnd í A-sal kl. 5, 7, 9 og 11. Miðaverð kr. 450.
HUNDAHEPPNI
Létt og skemmtileg gamanmynd með Danny Clover
og Martin Short.
Sýnd i B-sal kl. 5, 7, 9 og 11.
GLÆPAGENGIÐ
MOBSTERS
Ungir Maf íósar á uppleið.
Sýnd kl. 11.
BARTONFINK
Gullpálmamyndin frá
Cannes '91.
★ ★★'ASVMbl.
Sýnd kl. 9.
PRAKKARINN2 synd kl. 5 og 7 í C-sal.
iA LEIKFELAGAKUREVRAR 96-24073
• TJUTT &. TREGI
Söngleikur eftir Valgeir Skagfjörð
Sýning fós. 28. feb. kl. 20.30, lau. 29. feb. kl. 20.30 örfá
sæti laus, sun. 1. mars kl. 20.30.
ATH! Næst síðasta sýningarhelgi.
Miðasalan er opin alla virka daga ncma mánudaga kl. 14-18
og sýningardaga fram að sýningu. Greiðslukortaþjónusta.
Sími í miðasölu (96) 24073.
Almenningshlaup
á hlaupársdaginn
Heilsuræktarstöðin
Máttur gengst fyrir al-
menningshlaupi á hlaup-
ársdaginn, 29. febrúar.
Við undirbúning hlaupsins
hefur verið lögð sérstök
áhersla á að höfða til al-
mennings en ekki einungis
til þess hóps sem er vanur
að taka þátt í hlaupakeppn-
um. Hægt er að velja milli
tveggja vegalengda og er sú
styttri um 4 km en sú lengri
er um 8,6 km. Allir sem ljúka
hlaupi fá veglegan verð-
launapening eftir Örn Þor-
steinsson myndlistarmann
en að auki verður fjöldi verð-
launa dreginn út eftir rás-
númerum og sigurvegari í
hveijum flokki fær verð-
launabikar. Þá fá allir kepp-
endur áprentaðan bol og
boðnar verða veitingar að
hlaupi loknu.
Þátttökugjald er aðeins
500 kr. fyrir fullorðna og 250
kr. fyrir börn 12 ára og
yngri.
Hlaupið hefst kl. 12.00 á
horninu á Miklubraut og
Skeiðarvogi. Þátttakendur
skrái sig hjá Mætti, Faxafeni
14. Skráning er þegar hafin
en hætt verður að skrá kl.
11.30 á keppnisdaginn.
(Frcttatilkynning)
Stjömubíó sýnir myndina
„Bræður munu berjast“
STJÖRNUBÍÓ hefur tekið til sýningar myndina „Bræður
munu berjast". Með aðalhlutverk fara Viggo Mortensen
og David Moi-se. Leikstjóri er Sean Penn.
Myndin gerist í smábæ í
miðvesturríkjum Bandaríkj-
anna árið 1968 og segir frá
endurfundum tveggja bræðra,
Joe Roberts (Morse) og
Franks (Mortensen). Joe hef-
ur flosnað upp af jörð sinni
og starfar nú sem lögreglu-
maður til að framfleyta sér
og fjölskyldu sinni. Frank,
sem ávallt hefur verið til
vandræða, kemur hijáður og
reiður heim eftir tveggja ára
þátttöku í stríðinu í Víetnam
og eins árs dvöl í ríkisfangels-
inu. Gildismat bræðranna er
gerólíkt og ekki líður á löngu
þar til upp úr sýður.
ÍSLENSK TALSETNING
NBOGINN™
EKKI SEGJA MÖMMU
AÐ BARNFOSTRAIU SE DAUÐ
Sýnd kl.5,7,9og11.
MORÐDEILDINsýnd kl. 5,7, 9 og 11. Bönnuð i. 16 ára.
BAKSLAG - Sýnd kl. 5,7,9 og 11. BönnuS i. 16 ára.
FUGLASTRÍÐIÐ
ÍLUMBRUSKÓGI
HOMOFABER
HOiaOFABER
yÓ Y .A .G E R
Óskarsverðlaunamyndin
CYRANODE
BERGERAC
Endursýnd vcgna
f jölda áskorana.
Sýnd kl. 5 og 9.
mm
Sýnd kl. 5 og 7.
Miöaverð kr. 500.
Ungir sjálfstæðismenn
styðja afstöðu Þorsteins
SAMBAND ungra sjálfstæðismanna lýsir yfir eindregnum
stuðningi við afstöðu Þorsteins Pálssonar, sjávarútvegs-
ráðherra, til fyrirkomulags varnarliðsframkvæmda. Sú
stefna venjulegra og frjálsra viðskiptahátta sem Þorsteinn
hefur boðað í málinu undanfarin ár er í samræmi við ítrek-
aðar ályktanir landsfunda Sjálfstæðisflokksins og þinga
Sambands ungra sjálfstæðismanna, segir í frétt frá Sam-
bandi ungra sjálfstæðismanna.
„Einokun íslenskra aðal-
verktaka á framkvæmdum
ber að aflétta þegar í stað og
verkefni á varnarsvæðum á
að bjóða út í samræmi við
reglur Mannvirkjasjóðs Atl-
antshafsbandalagsins. Það er
eina leiðin sem er ásættanleg.
Andstæðingar viðskipta-
frelsis hafa kallað þessa
stefnumörkun „óraunhæfa“
og tínt ýmislegt til. Eru það
allt marg afsannaðar bábiljur.
Hæst ber sá hræðsluáróður
að hundi'uð manna muni
missa atvinnu ef venjulégum
reglum sé beitt við útboð
framkvæmda.
Það er fráleitt að einokun-
arklíkustarfsemi sé forsenda
fyrir því að ráðist sé í þessi
atvinnuskapandi verkefni,
heldur hefur klíkustarfsemi
einmitt staðið eðlilegri fram-
þróun íslenskrar verktaka-
starfsemi fyrir þrifum. At-
vinna ræðst af umsvifunum
en ekki því hver framkvæmir,
verktakar eru til vegna verk-
efnanna en ekki öfugt.
Samband ungra sjálfstæð-
ismanna vill auk þess vara
sérstaklega við afleiðingum
þeirrar stefnu að ríkið reyni
að gerast forystuafl í verk-
takastarfsemi á íslandi. Kaup
ríkisins á meirihluta í íslensk-
um aðaiverktökum voru til-
burðir í þá átt og nú sýnast
uppi áform um að nota al-
mannafé til frekari landvinn-
inga á þessu sviði á frjálsa
markaðnum. Sú þjóðnýting
gengur þvert á einkavæðing-
arstefnu ríkisstjórnarinnar
enda standa engin rök til þess
að ríkisstjórn Islands gerist
virkur þátttakandi í sam-
keppnisstarfsemi af þessu
tagi. Þátttaka íslenskra aðal-
verktaka á almenna markaðn-
um og samstarf þeirra eða
sameining við önnur fyrirtæki
má ekki vera undir leiðsögn
ríkisins.
Vilji ríkisstjórn Islands eiga
uppbyggilegt framlag til þró-
unar verktakastarfsemi er
heppilegast að ísland gerist
aðili að Mannvirkjasjóði Atl-
antshafsbandalagsins. Þá
gætyu íslensk fyrirtæki keppt
um verk í öðrum NATO-lönd-
um í alþjóðlegri samkeppni.
Það er í takt við tímann,“
cegir í ályktun SUS.