Morgunblaðið - 26.02.1992, Page 36
36
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 1992
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. aprfl) **
Það sem þú hefur lengi unnið
að í starfi þínu ber loksins
ávöxt. Nú þarftu að láta sjálfs-
aga og ábyrgðartilfinningu
ráða ferðinni.
Naut
(20. april - 20. maí)
Maki þinn reynist þér einstak-
lega hjálplegur í dag. Þú þarft
að leita þér ráða á einhverju
sérsviði og að öllum líkindum
verður þú að bregða þér í stutt
ferðalag vegna starfs þíns.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þess verður farið á leit við þig
á vinnustað að þú takir á þig
aukna ábyrgð. Þú ættir að gera
einhvers konar líkamsþjálfun
að föstum þætti í lífí þínu. Ein-
beitingarhæfileikar þínir eru
mjög virkir í dag.
Krabbi
(21. júní - 22. júlf)
Þú tekur mikilvæga ákvörðun
sem varðar barnið þitt og axlar
ábyrgðina til jafns við maka
þinn.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þér býðst starf sem þú getur
innt af hendi heima hjá þér.
Nú er tilvalið tækifæri til að
hefjast handa við fyrirhugaðar
endurbætur heima við. Þú nýt-
ur þess að vera með fjölskyld-
unni í kvöld.
Meyja
- (23. ágúst - 22. september)
Þú ert alvarlega þenkjandi í
dag og einbeitir þér að andleg-
um viðfangsefnum. Skilningur
þinn á baminu þínu dýpkar.
Láttu ástvini þína finna hvað
þér þykir vænt um þá.
(23. sept. - 22. október)
Þú sérð loksins fram úr vanda-
málunum. Þér áskotnast fé til
að ráðast í framkvæmdir heima
fyrir. Hafðu samráð við fag-
menn.
Sporódreki
(23. okt. - 21. nðvember)
Þú sinnir skapandi verkefnum
í dag og afkastar heilmiklu.
Aukin einbeiting þín ríður þar
baggamuninn. Samband þitt
við einn af ættingjum þinum
tekur stakkaskiptum til hins
betra.
Bogmaóur
(22. nóv. - 21. desember)
Það sem gerist á bak við tjöld-
in kemur sér vel fyrir þig f|ár-
hagslega. Þú átt hlut að ein-
hvers konar viðskiptum, en
heldur þig baksviðs.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú getur treyst á að vinur þinn
hjálpar þér eins og honum er
mögulegf.. Þú hlýtur styrk og
uppörvun frá öllum sem þú átt
skipti við í dag.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) ðh
Þú færð greiðslu fyrir verk sem
fú inntir af hendi fyrir löngu.
kvöld tekur þú þátt í félags-
starfi og nýtur þín til fulls.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) ZZZ
Þér gefst nú tækifæri til að
heimsækja vini sem þú hefur
ekki hitt lengi. Þú ákveður að
taka þátt í endurmenntunar-
námskeiði.
Stjörnusþána á að lesa sem
dœgradvöl. Sþár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
visindalegra staðreynda.
DÝRAGLENS
TOMMI OG JENNI
LJOSKA
FERDINAND
SMÁFÓLK
© 1992 United Feature Syndicate. Inc.
THAT'5 MY BROTHER..ALTHOU6H I 50METIME5
W0NPERIF THERE WASN'T A MIK-UP AT THE
H05PITAL THE DAY I UIAS BORN..
ti
í
Z-IO
Þetta er bróðir minn ... þó að ég velti því
stundum fyrir mér hvort ekki hafi orðið rugl-
ingur á sjúkrahúsinu daginn sem hann fædd-
ist...
*
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Enginn bridsspilari beinlínis
nýtur þess að láta fella hjá sér
blankan kóng á eftir ÁD. Ef
vestur er vakandi ætti hann að
sjá hættuna fyrir og bregðast
við henni á viðeigandi hátt:
Vestur gefur; AV á hættu.
Vestur Norður ♦ 874 ¥ÁD4 ♦ K942 ♦ G63 Austur
♦ K10 ♦ G3
VKG10765 ¥98
♦ G83 ♦ 10765
+ Á8 ♦ K9742
Suður ♦ ÁD9652
Vestur ¥32 ♦ ÁD ♦ D105 Norður Austur Suður
1 tyarta Pass Pass 2 spaðar
Pass 3 spaðar Pass 4 spaðar
Pass Pass Pass
Útspil: laufás.
Vestur hittir á góða byrjun
og vörnin tekur þrjá fyrstu slag-
ina, á ÁK í laufi og stungu. En
sagnhafi kann að telja punkta,
eins og hver annar. Austur pass-
aði opnun vesturs á einu hjarta,
sem hann hefði aldrei gert með
tvo kónga. Það er því vanda-
laust að fella spaðakónginn.
Það er að segja, EF vestur
trompaði þriðja laufíð með
tíunni. Trompi hann hins vegar
með sjálfum kónginum horfir
málið öðruvísi við sagnhafa.
Hann býst við að austur eigi
GlOx í spaða og djúpsvínar því
níunni. Þannig ætti vestur, þrátt
fyrir alit, að fá tvo slagi á tromp.
Umsjón Margeir
Pétursson
Á „Melody Amber“-atskákmót-
inu í Frakklandi, sem haldið var
um miðjan mánuðinn, kom þessi
staða upp í næstáíðustu umferð í
viðureign þeirra Vassilís ívant-
sjúks (2.720), Úkraínu, og Jonat-
hans Speelmans (2.630), Eng-
landi, sem hafði svart og átti leik.
Hvítur lék síðast 33. Re2 — c3?
33. - bxc3!, 34. Dxf3 - c2, 35.
Dxd5 — cl = D+ og eftir þessa
laglegu fléttu hefur svartur unnið
mann og úrslit skákarinnar ættu
að vera ráðin. En tíminn skiptir
miklu máli í atskákum og á síð-
ustu mínútunum lék Speelman
hveiju peðinu af sér á fætur öðru
og tapaði á endanum. ívantsjúk
sigraði á mótinu, eftir harða
keppni við Anand, hlaut 14 v. af
22 mögulegum, en Indveijinn
hálfum vinningi minna. 3.-5.
Karpov, Kortsnoj og Ljubojevic
12'/2 v. 6.-7. Adams og Seirawan
11 v. 8.-9. Piket og Polugajevsky
10 v. 10.-11. Júdit Polgar og
Speelman 8V2 v. 12. Bent Larsen
8 v.