Morgunblaðið - 26.02.1992, Qupperneq 34
34
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 1992
fólk f
fréttum
ÓHAPP
Reagan lagðist utan
í afmælistertuna
thUis Copco
EiNKAUMBOÐ Á ÍSLANDI:
LANDSSMIÐJAN HF.
VERSLUN: SÖLVHÓLSGÖTU 13-101 REYKJAVlK
SlMI (91) 20680 -TELEFAX (91) 19199
GA 5-10
HINN ÞÖGLI FÉLAGI
Rakt þrýstiloft er óhagkvæmt og eykur kostnað. Hinar nýju
GA 5-10 loftþjöppur frá Atlas Copco hafa innbyggðan kæli-
þurrkara, sem tryggir þar með þurrt þrýstiloft.
Hljóðstyrkur er ekki meiri en venjulegur samtalstónn, svo
þú getur auðveldlega staðsett þær hvar sem er.
GA 5-10 er þín trygging fyrir gæðalofti.
ÞURRT OG HUÓTT
Loftþjöppunýjung frá
HEIMILI
Jerry Hall
og Mick
Jagger flytja
í nýtt hús
HEIMDALLUR
Davíð Oddsson þingmaður ársins
— Blindfarþeginn virðist alls ekki blindur.
Hjónin Mick Jagger og Jerry
Hall eru nú loks flutt inn
í nýtt hús sem þau keyptu á
síðasta ári. Húsið er í Richmond
rétt fyrir utan London og síð-
ustu mánuði hafa verið gerðar
breytingar á því fyrir hjóna-
kornin og þrjú börn þeirra, en
yngsta bam þeirra, Georgia
May Ayeesha, fæddist í síðasta
mánuði. Georgia er jafnframt
eina barn þeirra sem fæðist
eftir að þau giftu sig fyrir rúmu
ári. Nýja húsið er aðeins eitt
af nokkrum heimilum þeirra
hjóna en þau eiga einnig hús í
Suður-Frakklandi sem og hús
á Mustique-eyju í Karíbahafi.
Georgia litla sást fyrst opinber-
lega er fjölskyldan flutti inn í
nýja húsið fyrir skömmu.
Jerry Hall heldur á yngsta
fjölskyldumeðliminum inn í
nýja húsið.
Siguijón Pálsson formaður skólanefndar Heimdallar afhendir Davíð Oddssyni forsætisráðherra Þing-
mannabikarinn.
egar bandaríska tímaritið Pe-
ople bað nokkra ljósmyndara
að velja eftirlætismyndir sínar frá
síðasta ári, dró Lee Celano fram
þá sem hér birtist frá áttræðisaf-
mæli Ronalds Reagans fyrrum
Bandaríkjaforseta og kvikmynda-
stjömu, en veislan var haldin á
Regent Beverly Wiltshire hótelinu.
Veislan var hin veglegasta sem
nærri má geta og fjölmenni mikið.
Var margt frægra manna saman-
komið við þetta tækifæri og er
hápunkti var veislunnar náð, vatt
Reagan sér að risastórri afmælis-
tertu og hugðist blása logana af
áttatíu kertum. Það tókst ekki
betur til en svo, að er hann hall-
aði sér fram til að blása á kertin
sem lengst vom frá honum, lagð-
ist hann utan í kökuna með þeim
afleiðingum að kremklessa læsti
sig í kjólfötin! Þeir sem til þekkja
reiknuðu með því að Reagan
myndi þegar í stað snúa öllu upp
í grín og dengja fram nokkrum
brönduram í tilefni óhappsins. En
það var öðru nær. Reagan var
miður sín og er einhver rétti hon-
um skeið, hrifsaði hann hana til
sín og hóf að skrapa jakkann í
gríð og erg. EKki bætti úr skák,
að Nancy Reagan hló svo mikið
að hún varð að grípa um magann
og beygja sig í keng. Eftir nokkur
pínleg augnablik náði hann þó að
rétta úr kútnum og jafna sig. Og
þá streymdu brandaramir...
Fyrir skömmu var Davíð Oddsson
forsætisráðherra valinn þing-
maður ársins 1991 af skólanefnd
Heimdallar, félags ungra sjálfstæð-
ismanna í Reykjavík, og var honum
afhentur sérstakur bikar, Þing-
mannabikarinn, af því tilefni.
Skólanefndin fylgist stöðugt með
frammistöðu þingmanna og árlega
er bikamum úthlutað til þess þing-
manns sem hefur, að dómi nefndar-
innar, helzt starfað í anda sjálf-
stæðisstefnunnar á Alþingi.
Siguijón Pálsson formaður skóla-
nefndar Heimdallar afhenti Davíð
bikarinn við hátíðlega athöfn í
Stjómarráðinu en formaður Heim-
dallar, Kjartan Magnússon, rakti
ástæður tilnefningarinnar. Sagði
Kjartan að mjög hefði gustað um
Davíð á þingi þrátt fyrir að hann
hefði aðeins setið þar í stuttan tíma.
Undir forystu Davíðs hefði Sjálf-
stæðisflokkurinn unnið stærsta sig-
ur sinn í þingkosningum í apríl síð-
astliðnum og hlotið 26 þingmenn.
Strax að þeim kosningum loknum
hefði Davíð myndað ríkisstjóm en
áður hefði stjómarmyndun oft dreg-
ist í marga mánuði. Ríkisstjórnin
hefði síðan á skömmum tíma skipt
um stefnu í íslenzkum stjórnmálum
og sem dæmi mætti nefna að strax
hefði verið gengið í að minnka fjár-
lagahalla ársins 1991, sem hefði
að óbreyttu stefnt í að verða um
16 milljarðar króna. Þá hefði ríkis-
stjórnin einnig boðað víðtæka
einkavæðingu, sem hefði verið eitt
helzta baráttumál Heimdallar um
áratuga skeið. Davíð Oddsson for-
sætisráðherra væri því vel að þing-
mannabikar Heimdallar kominn.
COSPER
\\C0SPER K \ \ \2,OOi (OPIB 1
; — vc_--■ ;rJ—-oyjryr
»»#\
FRAMLEIÐENDUR
VÉLA OG TÆKJA
Munið fagfund framleiðenda véla og fækja fimmtudaginn
27. þ.m. kl. 16.30 ó HallveigarstígJ, Reykjavík.
M.a. fjallað um:
- Kröfur sem gerðar verða um öryggi véla og tækja
í tengslum við væntanlega EES-samninga.
Sigurbergur Björnsson, verkfræðingur.
- Möguleika ó sölu véla og tækja í fjarlægum löndum.
Elías Gunnarsson, verkfræðingur.
Félagsmenn eru hvattir til að mæía vel og stundvíslega.