Morgunblaðið - 26.02.1992, Qupperneq 28
28
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 1992
Fullyrðingum mennta-
málaráðuneytis mótmælt
Morgunblaðinu hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing. frá for-
mönnum aðildarfélaga Kenn-
arasambands íslands á Stór-
Reykjavíkursvæðinu:
„Háttvirtur menntamálaráð-
herra Ólafur G. Einarsson og að-
stoðarmaður hans Ólafur Amarson
hafa í fjölmiðlum haldið því fram
að kennarar noti kennslustundir
til að ófrægja ráðherrann. Við
mótmælum þessari fullyrðingum
fí harðlega. Hver kennslustund er
dýrmæt. Kennurum er ljós sú
ábyrgð sem á þeim hvílir og líta á
það sem skyldu sína að vera óhlut-
drægir í starfi sínu. Ólafur Arnar-
son aðstoðarmaður menntamála-
ráðhera heldur því fram í Morgun-
blaðinu 11. febrúar að kennarar
fái árslaun fyrir níu mánaða vinnu.
Við vísum þessari ásökun á bug
og biðjum aðstoðarmanninn að
kynna sér kjarasamninga kennara.
Menntamálaráðherra hefur
haldið því fram að fundir foreldra
og ályktanir frá þeim séu eingöngu
verk kennara. Þetta er rangt. For-
eldrar hafa leitað eftir samstarfi
við kennara vegna þeirra óvissu
sem ríkir í skólamálum í landinu.
Fundir einstakra skóla eða skóla-
hverfa hafa verið skipulagðir af
foreldrum og kennurum saman eða
eingöngu foreldrum. Fimmtudag-
inn 13. febrúar gengu nemendur
í grunnskólum Stór-Reykjavíkur-
svæðisins fylktu liði á fundi
menntamálaráðherra og afhentu
honum undirskriftalista nemenda
í 8.-10. bekkjum grunnskóla. í
sjónvarpsfréttum sama kvöld hélt
ráðhrra því fram að kennarar
hefðu staðið að baki þessum undir-
skriftalistum, gefið nemendum frí
til að fara á fundinn, að eitthvað
sé að í skólakerfinu og að ástæða
sé til að laga til kennaramenntun-
ina í landinu.
Samtök kennara hafa á engan
hátt haft afskipti af undirskrifta-
söfnun nemenda og margir kenn-
arar jafnvel ekki vitað af henni
fyrr en fjölmiðlar fluttu fréttir af
fundi nemenda og menntamálaráð-
herra. Skólastjórar munu ekki hafa
gefið nemendum frí en þeir hafa
einir leyfi til þess. Við viljum gjarn-
an fá nánari skýringu á því hvað
menntamálaráðherra telur vera að
í skólakerfinu og hvernig kennara-
menntun tengist þessari undir-
skriftasöfnun. Við hörmum þá tor-
tryggni og það vantraust sem yfir-
menn menntamála bera til kenn-
ara. Ásakanir þeirra mega ekki
verða til þess að gjá myndist milli
kennara og foreldra nemenda
þeirra. Samstarf foreldra og kenn-
ara hefur aukist til muna undan-
farin ár og verið óijúfanlegur og
ómissandi þáttur skólastarfsins.
Kynning
á Asatrú
ÁSATRÚARFÉLAGIÐ gengst
nú fyrir kynningarátaki.
Markmiðið er að vekja íslend-
inga til vitundar um menningar-
arf sinn.
Þriðji fyrirlestur í því kynning-
arátaki er framundan og fjallar
Dagur Þorleifsson um hina illvígu
stríðskappa norrænna manna, ber-
serki. Fyrirlesturinn verður hald-
inn fimmtudaginn 27. þessa mán-
aðar í Stúdentakjallaranum kl.
20.00.
(Fréttatilkynning)
Sölufólk óskast
Óskum eftir að ráða vant sölufóik til sölu-
starfa. Starfið felst í sölu á myndböndum í
gegnum síma á kvöldin.
Vinnutími frá kl. 18.30-22.30.
í boði er gott tímakaup + sölubónus.
Lágmarksaldur 20 ár.
Upplýsingar gefur Skúli í síma 677986
á skrifstofutíma.
H/l Y N D B A .N 0 fl
9¥>*E>
RÍKISSPÍTALAR
Reyklaus vinnustaður
LANDSPITALINN
BÆKLUNARLÆKNINGADEILD
SÉRFRÆÐINGUR í
BÆKLUNARSKURÐLÆKNINGUM
Laus er til umsóknar staða sérfræðings
(100%) í bæklunarskurðlækningum við bækl-
unarlækningadeild Landspítalans. Þess er
sérstaklega óskað að umsækjandi sjái um
bæklunaraðgerðir á börnum.
Staða þessi er laus frá 01.04.92.
Umsækjandi skal hafa sérfræðiviðurkenn-
ingu í bæklunarskurðlækningum á íslandi.
Umsóknum skal fylgja greinargerð um nám
og fyrri störf (curriculum vitae). Einnig upp-
lýsingar um vísindalegar rannsóknir og rit-
skrár.
Umsóknir sendist stjórnarnefnd Ríkisspítala,
Rauðarárstíg 31, 105 Reykjavík, fyrir
22. mars 1992.
Nánari upplýsingar veitir dr. Stefán Haralds-
son, yfirlæknir.
RÍKISSPÍT ALAR
Ríklsspítalar eru einn fjölmennasti vinnustaður á íslandi með starfsemi
um land allt, einkum á höfuðborgarsvæðinu. Sem háskólasjúkrahús beitir
stofnunin sér fyrir markvissri meðferð sjúkra, fræðslu heilbrigðisstétta
og fjölbreyttri rannsóknastarfsemi. Okkur er annt um velferð allra þeirra,
sem við störfum fyrir og með, og leggjum megináherslu á þekkingu,
kærleik og virðingu fyrir einstaklingnum. Starfsemi Ríkisspítala er helguð
þjónustu við almenning og við höfum ávallt gæði þjónustunnar, gagn
hennar og hagkvæmni að leiðarljósi.
Orðsending til bænda
á fjárskiptasvæðum
Þeir bændur, sem ætla að kaupa líflömb í
fyrsta eða annað sinn nk. haust eftir samn-
ingsbundið fjárleysi, þurfa að leggja inn skrif-
lega pöntun á líflömbum fyrir 25. mars nk.
Sauðfjársjúkdómanefnd ákveður hvaðan
líflömb verða tekin.
Aðeins koma þeir aðilar til greina, sem lokið
hafa fullnaðar sótthreinsun á fjárhúsum,
hlöðum og umhverfi þeirra.
Svör við pöntunum munu berast í júní nk.
hvar taka má líflömb haustið 1992.
Sauðfjárveikivarnir,
Rauðarárstíg 25,
150 Reykjavík.
FÉLAG lÍFASTEIGNASALA
Aðalfundarboð
Aðalfundur Félags fasteignasala og Ábyrgð-
arsjóðs Félags fasteignasala verður haldinn
í veitingasalnum „Háteigi" á 4. hæð á Hótel
Holiday Inn við Sigtún fimmtudaginn
27. febrúar 1992 kl. 17.00 síðdegis.
Á dagskrá aðalfundar verða eftirtalin mál:
1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á
liðnu starfsári.
2. Reikningar félagsins.
3. Kosning stjórnar.
4. Kjör endurskoðanda.
5. Ákvörðun félagsgjalda.
6. Lagabreytingar.
7. Önnur mál.
Stjórnin.
Útboð - Setbergsskóli II
Hafnarfjarðarbær leitar tilboða í byggingu
2. áfanga Setbergsskóla. Byggingin er á
tveimur hæðum, samtals 1600 m2.
Verktaki tekur við steyptri botnplötu og
verktími er til 30. júní 1993.
Útboðsgögn verða afhent frá miðvikudegi
26. febrúar á skrifstofu bæjarverkfræðings,
Strandgötu 6, gegn 30.000 kr. skilatrygg-
ingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn
17. mars kl. 11.00.
Bæjarverkfræðingurinn í Hafnarfirði.
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
FÉLAGSSTARF
Félagsvist
Félagsvist verður haldin í Valhöll fimmtudaginn 27. febrúar 1992
og hefst kl. 20.30. Kaffiveitingar og góðir vinningar.
Hverfafélag siálfstæöismanna i Laugarnes-
hverfi, Langholtshverfi og Háaleitishverfi.
Lærið vélritun
Morgunámskeið hefst 2.mars
Vélritunarskólinn, sími 28040.
□ GLITNIR 599202267 = 1
HELGAFELL 59922267 IV/V 2
I.O.O.F. 9 = 1732268V2 =
I.O.O.F. 7 = 1732268V2 = 9.0
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20.00.
/ffh SAMBAND ÍSLENZKRA
ijdí'S KRISTNIBOÐSFÉLAGA
Kristniboðssamkoma
á Háaleitisbraut 58 í kvöld
kl. 20.30.
Ræðumenn Hrönn Sigurðar-
dóttir og Ragnar Gunnarsson.
Allir velkomnir.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Biblíulestur í kvöld kl. 20.30.
Ræðumaður: Hafliði Kristinsson.
Allir hjartanlega velkomnir.
Skyggnilýsingafundur
Glynn Edwards heldur skyggni-
lýsingafund á vegum Ljósgeisl-
ans fimmtudaginn 27. febrúar
kl. 20.30 í Síöumúla 25.
Nánari upplýsingar í síma
686086.
Ljósgeislinn.
Lífsmyndir
- sjálfsþekking
Spennandi námskeið 20. til
22. mars. Leiðbeinandi Sigrún
Harðardóttir. Notum æviferilinn
sem stuðning fyrir nútíðina og
stökkbretti inn i framtíðina.
Upplýsingar og skráning til
5. mars hjá Nýaldarsamtökunum.
FERÐAFELAG
# ÍSIANDS
ÖLDUGÖTU 3S 11798 19533
Helgarferð - Botnssúlur
29/2-1/3
Ekið verður að Svartagili í Þing-
vallasveit og gengið (um 4 klst.)
þaðan í Súlnadal í Bratta, skála
Alpaklúbbsins, og gist þar.
Brottför er kl. 09.00 laugardag.
Einstök ferð fyrir þá sem vilja
kynnast vetri á fjöllum með
reyndum fararstjóra.
Upplýsingar og farmiðasala á
skrifstofunni, Öldugötu 3.
Næsta helgarferð verður á Snæ-
fellsjökul 13. mars.
Ferðafélag íslands.
FERÐAFELAG
ÍSIANDS
ÖLDUGÖTU 3 & 11798 19533
Miðvikudagur 26. febr.
kl. 20.30
- Kvöldvaka FÍ
- Breiðafjarðareyjar
Á kvöldvöku í Sóknarsalnum,
Skipholti 50a, miðvikudaginn 26.
febrúar, mun Ævar Petersen
draga fram sérkenni Breiða-
fjarðareyja í myndum með til-
heyrandi útskýringum. Ævar
skrifaði um „Náttúrufar Breiða-
fjarðareyja" í árbók F( 1989 og
er manna kunnugastur dýralífi
og náttúrufari eyjanna. Missið
ekki af leiðsögn Ævars um þessa
„matarkistu" íslendinga á fyrri
tið; þar kemur margt forvitnilegt
í Ijós.
Myndagetraun verður á dagskrá
að vanda og getur þá fólk látið
reyna á þekkingu á landinu.
Aðgangur er kr. 500,- (kaffi og
meðlæti innifalið). Kvöldvakan
hefst kl. 20.30 stundvíslega.
Allir velkomnir, félagar og aðrir.
Munið aðalfund Ferðafélagsins
miðikudaginn 4. mars nk. f
Sóknarsalnum. Venjuleg aðal-
fundarstörf.
Pantið tímanlega á vetrarfagn-
aðinn 7. mars i Básnum, ölfusi.
Skemmtun sem enginn ætti að
missa af. Hægt verður að skrá
sig á kvöldvökunni. Miðaverð
aðeins 3.600 kr. Verið með!
Ferðafélag Islands.