Morgunblaðið - 26.02.1992, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRUAR 1992
19
Margir viðurkenna ekki að þeim
fínnist klassísk tónlist skemmtileg
Háskólabíó var þéttsetið og áhuginn skein úr hverju andliti.
Sinfóníuhljómsveitin býður grunnskólanemum á tónleika:
- segja Atli og Ingi Þór úr Flataskóla
Fiðlan fallegust
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT íslands býður grunnskólanemum á
höfuðborgarsvæðinu upp á tónleika í Iiáskólabiói um þessar
mundir. Tónleikarnir eru stuttir og efnisskrá þeirra er sérstak-
lega miðuð við yngri kynslóðina. Flutt eru brot úr þekktum
óperum og börnin látin taka þátt í flutningi verkanna eftir því
sem tækifæri gefst til. Tónleikunum fylgir stutt hljóðfærakynn-
ing.
Þótt kliður væri meðal áheyr-
enda meðan þeir voru að koma sér
fyrir á nemendatónleikum í Há-
skólabíói í gærmorgun hóf hljóm-
sveitin að leika og fékk strax alla
athygli krakkanna í salnum. Þeir
horfðu aðdáunaraugum á hljóm-
sveitina og dilluðu sér í takt við
forleikinn að William Tell en að
honum loknum birtist Bergþór
Pálsson, kynnir, á sviðinu. Tónleik-
amir voru byrjaðir.
Eftir tónleikana gaf blaðamaður
sig á tal við nokkra áheyrendur
og kom þá í ljós að þeir voru allir
úr Flataskóla i Garðabæ.
er miklu skemmtilegra."
Uppáhaldshljóðfæri Maríu er
fiðla. „Hún er svo falleg," sagði
hún og bætti við að hún væri á
biðlista eftir að læra á fiðlu.
Hvetur krakka til að hlusta
á klassíska tónlist
Atli Sævarsson, 11 ára, sagði
að tónleikarnir hefðu verið mjög
skemmtilegir. Hann segist aðal-
lega hlusta á fjöruga popptónlist
Eyrún Valsdóttir.
Meira fyrir klassík
en aðra tónlist
„Mér fannst bara gaman,“ sagði
Eyrún Valsdóttir, 9 ára, þegar hún
var spurð hvernig henni hefði fund-
ist á tónleikunum. Hún var heldur
ekki í vafa þegar hún var spurð
hvað henni hefði fundist skemmti-
legast á efnisskránni. „Mér fannst
lang skemmtilegast þegar hljóm-
sveitin lék Nautabanasönginn úr
Carmen og við sungum með,“
sagði hún en í samtalinu kom fram
að Eyrún væri í Skólakór Garða-
bæjar. „Við tókum þátt í tónleikum
með Sinfóníuhljómsveitinni og
nokkrum öðrum kórum í Háskóla-
bíói fyrir jól. Þá sungum við jólalög
og Snjókornadansinn úr Hnetu-
brjótnuni."
Eyrún sagði að hún væri meira
fyrir klassíska tónlist en aðrar teg-
undir tónlistar. Hún ætlaði að nota
eins mikinn tíma og hægt væri til
að hlusta á hana í framtíðinni.
Uppáhaldshljóðfærið sagði hún að
væri harpa.
Morgunblaðið/Emilía
Bergþór Pálssson stjórnaði hópsöng á tónleikunum. Stjórnandi
Sinfóníuhljóinsveitarinnar var Páll P. Pálsson.
María Björk Guðmundsdóttir, 9
ára, sagði að sér hefðu fundist
skemmtilegast að syngja með
hljómsveitinni Einu sinni á ágúst-
kvöldi. Hún var líka ein þeirra sem
kunni textann utan bókar. „Ég
lærði hann í skólanum," sagði
María og þegar hún var spurð að
því hvort henni fyndist skemmti-
legra að vera í almennri kennslu
í skólanum eða á tónleikum stóð
ekki á svarinu. „A tónleikum. Það
Atli Sævarsson.
Ingi Þór Arnarsson.
María Björk Guðmundsdóttir.
en efast ekki um að tónleikarnir
hvetji krakka á hans aldri til þess
að hlusta meira á klassíska tónlist.
Atli minntist sérstaklega á að
gaman hafi verið að sjá alla hljóm-
sveitina. „Ég hafði einhvern veginn
ekki ímyndað mér að hljóðfæra-.
leikararnir væru svona margir,“
segir hann. „Það er mjög mikill
munur að vera í nálægð við hljóm-
sveitina eða hlusta á hana til dæm-
is í útvarpi." *
Honum fannst skemmtilegast
að syngja Einu sinni á ágústkvöldi
og segist kunna textann næstum
því utan bókar. Af hljóðfærunum
fanngt honum skemmtilegast að
heyra í hörpunni.
Frábært
„Mér fannst alveg frábært,“
sagði Ingi Þór Arnarsson, 10 ára,
þegar hann var inntur eftir tónleik-
unum. Sjálfur segist hann þó alla
jafna hlusta meira á popptónlist
en klassíska tónlist. Fram kemur
að honum líki vel við tónlist hljóm-
sveitarinnar Sálin hans Jóns míns
og félagi hans, Atli, skýtur inní
að su hljómsveit ásamt Ný dönsk
séu tvímælalaust þær sem skari
framúr í dag.
Strákarnir eru sammála um að
margir krakkar þori ekki að viður-
kenna að þeim finnist klassísk tón-
list skemmtilega. „Margir strákar
hlusta til dæmis frekar á þunga-
rokk af því þeim finnst það meira
töff,“ segir Ingi þór. Hann segist
ekki hafa farið á Sinfóniutónleika
áður. Aftur á móti hafi hann farið
á leikrit þar sem hafi verið sungið
og nefnir að hann hafi farið á
Söngvaseið og Töfraflautuna.
Borgarráð:
Norska
bakaríið
selt fyrir
3,6 millj.
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
að taka kauptilboði Sólveigar
Eggei’tsdóttur og Þráins Bertels-
sonar í húsið við Fischersund 3,
öðru nafni Norska bakariið.
Fram kemur að húsið er næst
elsta húsið í Gijótaþorpi og er frið-
að í A-flokki. Það þarfnast veru-
legrar endurnýjunar og er áætlaður
kostnaður talinn vera um 12 millj-
ónir króna. Fyrirhugað er að ljúka
endurbyggingu á sem skemmstum
tíma og taka húsið í notkun fyrir
atvinnustarfsemi og íbúðarhúsnæði
næsta haust.
-----♦ ♦ ♦---
Fríðuvaka
haldin í Nor-
ræna húsinu
DAGSKRÁ í fundarsal Norræna
hússins, til heiðurs Fríðu Á. Sig-
urðardóttur, verður fimmtudag-
inn 27. febrúar kl. 20.30, en hún
hlýtur sem kunnugt er bók-
menntaverðlaun Norðurlandar-
áðs 1992. Verðlaunin verða af-
hent á þingi Norðurlandaráðs í
Helsinki í næstu viku.
Dagskráin verður á þessa leið:
Þórður Helgason heldur fyrirlestur
um einkenni Fríðu sem höfundar,
Margrét Erlendsdóttir talar um
smásögur Fríðu, Kristján Jóhann
Jónsson fjallar um bókina Eins og
hafið og Dagný Kristjánsdóttir talar
um verðlaunabókina Meðan nóttin
líður. Leikarar undir stjórn Sigríðar
Margrétar Guðmundsdóttur lesa úr
verkum Fríðu milli fyrirlestra. Að
samkomunni standa Félag áhuga-
manna um bókmenntir, íslandsdeild
Norðurlandaráðs og Norræna hú-
sið.
INNLENT
Athugasemd
frá frétta-
stofu útvarps
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi athugasemd frá
fréttastofu útvarps:
Vegna ummæla Hafsteins Garð-
arssonar skipstjóra Krossness í
Morgunblaðinu 25. febrúar óskar
fréttastofa útvarps að taka fram:
„Við frásögn af slysinu þegar
Krossnes frá Grundarfirði fórst var
í hvívetna farið eftir fréttareglum
Ríkisútvarpsins. Séra Sigurður Kr.
Sigurðsson, sóknarprestur í Grund-
arfirði, staðfesti við fréttastofu áður
en fréttin var sögð í hádegisfréttum
á sunnudaginn að búið væri að láta
alla nánustu aðstandendur skip-
verja á Krossnesi vita af slysinu.
Fréttin var í heild lesin fyrir Atla
Viðar Jónsson, framkvæmdastjóra
Hraðfrystihúss Grundarfjarðar, út-
gerðarfélags skipsins, áður en hún
var birt. Þeir tveir höfðu séð um
að láta aðstandendur vita af slys-
inu. Samstarf við séra Sigurð og
Atla Viðar var gott og þakkar frétt-
astofa það.“