Morgunblaðið - 26.02.1992, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRUAR 1992
13
Ráðgjafi á villigötum
eftir Pál Pétursson
„Spámaður mikill er risinn upp
á meðal vor.“ Það er Þröstur Ólafs-
son sem nú gegnir starfi aðstoðar-
manns eða ráðgjafa Jóns Baldvins
Hannibalssonar utanríkisráðherra.
Ráðgjafinn var til þess settur af
núverandi flokki sínum Alþýðu-
flokknum að vera formaður í nefnd
stjórnarflokkanna um mótun sjáv-
arútvegsstefnu. Nú hefur Þröstur
þessi sýnt inn í hugarheim sinn í
fjölmiðlum hvað varðar vanda út-
gerðarinnar í landinu og hvern hug
hann ber til fólksins sem að útgerð
og fiskvinnslu starfar. Ekki eru
viðhorf Þrastar geðfelld fremur en
vænta mátti. Hann krefst gjald-
þrota þeirra fyrirtækja sem í érfið-
leikum eiga og telur að þær aðgerð-
ir sem ríkisstjórn Steingríms Her-
mannssonar beitti sér fyrir haustið
1988 og björguðu útgerð og físk-
vinnslu, og þar með þjóðarbúinu,
hafi verið til ills eins.
Þjóðin gæti ef til vill látið
skoðanir Þrastar sér í léttu rúmi
liggja, en svo er þó ekki. Þröstur
er öflugur maður og hefur ýmislegt
afrekað á ferli sínum. Þresti tókst
það sem Sjálfstæðisflokknum tókst
aldrei, þrátt fyrir margra áratuga
baráttu. Hann gerði KRON gjald-
þrota á fáeinum mánuðum og drap
félagið endanlega. Einnig tókst
honum í framhjáhlaupi að vinna
Samvinnuhreyfingunni slíkt tjón,
að vandséð er hvenær hún réttir
við, eða hvort hún nær nokkurn
tímann fyrri styrk. Þetta gerir eng-
inn aukvisi.
Fjármálaséní fer á kostum
Nú hefur þetta fjármálaséní snú-
ið sér að höfuðatvinnuvegi lands-
manna, sjávarútveginum, og ætlar
að veita honum þjónustu sína í hjá-
verkum. Þröstur hefur raunar
hvergi reynst húsbændum sínum
heillakarl, né þeim stjórnmála-
flokkum þar sem hann hefur verið
innan vébanda.
eftir Gunnar
Þorsteinsson
Viskí, koníak og romm, þessi
fleygu orð hljóma í eyrum mínum
sem ég er á.flugi yfir Atlantshafíð
á leiðinni til gamla Fróns eftir stutta
fjarvist, en alltaf er jafn gaman að
koma heim, þó alltaf sé leiðinlegt
að vera vitni að þessum áfengis-
austri. Það er flugfreyjan sem er
að traktera farþegana, en ég er
önnum kafinn við að lesa Moggann.
Það er merkilegt hvernig Mogginn
verður eins og vin í eyðimörkinni
þegar maður hefur ekki séð hann
í nokkurn tíma og jafnvel gömlum
Mogga er flett aftur og aftur.
Eg er búinn að lesa meginblaðið
og nú er komið að lesbókinni, það
er nefnilega laugardagur. Þar rek
ég augun í fastapistilinn „Rabb“,
en nú hefur Agnes Bragadóttir fyllt
hann með skrifum sínum undir yfir-
skriftinni „Frelsið í gúrkutíðinni".
Eg átti nú ekki von á því að vera
boðinn velkominn heim þannig að
ritað væri um mína persónu og
söfnuðinn sem ég tilheyri með þeim
hætti sem hún gerír blessunin. Ég
hef oft séð skrif Agnesar í Morgun-
blaðinu og hefur hún farið mikinn.
Hér gerir hún ekki undantekningu.
Ég hef ekki verið þess umkominn
að meta skrif liennar fram til þessa,
en nú hef ég góða aðstöðu til þess,
þar sem efnið sem hún fjallar um
er mér jafnskylt og skegg mitt á
höku minni.
Ef önnur skrif hennar í blaðið
eru unnin með sama hætti og þessi,
Haustið 1988 var svo komið að
újgerð og fískvinnsla í landinu var
komin í þrot. Gengi var fast, 20%
verðbólga og vextir alltof háir.
Þorsteinn Pálsson sem þá var for-
sætisráðherra fékkst ekki til að
taka á vandanum, þrátt fyrir það
að hann hafí verið ágætlega skil-
greindur af nefnd undir forystu
Einars Odds á Flateyri.
Bjargráð 1988
Aðgerðarleysi Þorsteins varð til
þess að Framsóknarflokkur og Al-
þýðuflokkur slitu ríkisstjórn með
Sjálfstæðisflokki til þess að forða
þeim þjóðarvoða sem þá stefndi í
með hruni sjávarútvegsins.
Stofnaður var Atvinnutrygg-
ingasjóður útflutningsgreina. Hann
beitti sér fyrir hagræðingu fisk-
vinnslufyrirtækja og útgerðar.
Fyrsta lánið og það næst stærsta
fór til Granda hf. Þessi sameining
og hagræðing tókst vel hjá fjöl-
mörgum fyrirtækjum, sum fyrir-
tæki voru þó svo skuldug að fyrir-
sjáanlegt var að atbeini Atvinnu-
tryggingasjóðs útflutningsgreina
dygði þeim ekki til frambúðar. Því
var settur á stofn Hlutafjársjóður
og gerðist hann þátttakandi í fyrir-
tækjum og þannig komust nokkur
þeirra fyrir vind.
Árið 1989 snerist rekstur sjávar-
útvegsins á rétta braut. 1990 var
gott ár í rekstri flestra sjávarút-
vegsfyrirtækja. Þau skiluðu hagn-
aði og fóru að borga niður skuldir.
Pólitískt sjóslys
Vorið 1991 komst ríkisstjórn
Davíðs Oddssonar til valda og
stjórnarstefnunni var gjörbreytt.
Fyrsta verk ríkisstjórnar Davíðs
Oddssonar var að stórhækka vexti
sem varð til þess að snúa hagnaði
í tap hjá fyrirtækjunum. Ríkisend-
urskoðun lagði mat á stöðu Atvinn-
utryggingarsjóðs og Hlutafjársjóðs
vorið 1991. Sú skýrsla sýndi brúk-
lega fjárhagsstöðu þeirra. Tveimur
mánuðum seinna sendi Ríkisendur-
þá hefur það greinilega verið algjör
tímasóun að lesa langhundana, sem
hún hefur sent frá sér, er ég þó
hef gert með nokkurri velþóknun.
Órökstutt níð
Ég legg ekki í vana minn að
svara níði, en í þessu tilfelli á hlut
að máli fyölmiðill sem ég ber virð-
ingu fyrir og starfsmaður hans, sem
ætti að teljast marktækur að mestu.
Því fer víðs fjarri að ég, Krossinn
eða það málefni sem fjallað er um,
njóti sannmælis.
Agnes gerir að umtalsefni viðtal
sem Stöð 2 átti við mig um komu
Ozzy Osbome o.fl. hingað til lands
og spyr með mikilli vanþóknun hvað
mér komi það við.
Kemur mér það við?
Að hljómlistarmenn komi hingað
til lands og haldi hljómleika er mér
algjörlega óviðkomandi, það er rétt.
Hitt aftur á móti, að ég gerist svo
djarfur að svara fyrirspurn sem að
mér er beint og hafa skoðanir sem
ekki fellur f kramið hjá henni, er
lögverndaður réttur minn og ég hef
enga ástæðu til að liggja á skoðun-
um mínum í þessu efni. Agnes, sem
og fy'öldi annarra Islendinga hefur
í raun ekki nema óljósan gmn um
hvað hangir hér á spýtunni og ef
ég að einhverju marki er þess um-
kominn að upplýsa menn, lít ég á
það sem skyldu mína, þó svo að
skurfur kunni að hljótast af.
Nú fara leika að æsast hjá
Agnesi, skrif hennar verða mót-
sagnakennd og hún afhjúpar
brenglaða veruleikaskynjun sína.
skoðun frá sér nýja skýrslu og þá
var allt annað uppi á teningnum
og horfur sjóðanna taldar mjög
dökkar. Ríkisendurskoðandi gaf þá
skýringu opinberlega á hinum
mikla mismun á þessum tveimur
skýrslum, að á vordögum hafl ver-
ið breytt um stjórnarstefnu og til
valda væri komin ríkisstjórn sem
ekki ætlaði að liðsinna fyrirtækjum
í sjávarútvegi. Þetta var skynsam-
leg ályktun hjá Ríkisendurskoðun,
enda lágu fyrir yfirlýsingar forsæt-
isráðherra um það efni.
Nú er, eftir 10 mánaða setu
ríkisstjórnar Davíðs Oddssonar,
ástandið að verða hliðstætt því sem
var haustið 1988. Hefði stefna fyrr-
verandi ríkisstjórnar ráðið hefði
útkoman orðið önnur. Sjávarút-
vegurinn þurfti 2-3 ár til viðbótar
árinu 1990 til þess að treysta af-
komuna. Hefði sjávarútvegurinn
fengið frið hefðu ráðstafanir ríkis-
stjómar Steingríms Hermannsson-
ar skilað fullkomnum árangri.
Þröstur kvakar á grein
Þröstur Ólafsson getur því miður
ekki lært af reynslunni og skil-
greinir vandann rangt, þótt ótrú-
legt megi virðast með þvílíkt fjár-
málaséní. Hann telur björgunarað-
gerðir ríkisstjórnar Steingríms
Hermannssonar einungis hafa verið
til bölvunar. Það hafí verið rangt
að bæta stöðu lakar settu sjávarút-
vegsfyrirtækjanna haustið 1988.
Vera má, að hefði þorri fyrirtækj-
anna verið látinn fara á hausinn
1988 og 1989 þá þyrfti Þröstur
Ólafsson ekki að ganga milli bols
og höfuðs á þeim 1992. Honum
ógnar það þó tæplega, enda vanur
maður. Ekki minnist Þröstur þess
að ríkissjóður og stofnanir tengdar
honum hefðu tapað stórfé 1988
hefði Atvinnutryggingasjóður ekki
komið til, þannig að þótt sjóðurinn
tapi fé hefði skaði hins opinbera
orðið sýnu meiri með gjaldþrotum.
Vissulega er hinn mikli vandi
sjávarútvegsins einnig aflasam-
Hún segir að ég sjái alla meinbugi
á því að „leyfa“ popparanum ill-
ræmda að sækja land okkar heim.
Það er alrangt hjá Agnesi, í raun
sagði ég hið öndverða eins og síðar
kgmur fram í pistli hennar. Ég er
talsmaður frelsis og tel að menn
eigi að hafa fulla heimild til að
fremja allt það sem heyrir undir
velsæmi og allsheijarreglu, sem
reyndar orkar tvímælis í þessu til-
felli.
Hún heldur áfram og segir að
ég sé á móti Ozzi vegna þess að
hann hefur verið á geðsjúkrahúsi
og hafi verið í meðferð vegna
hundaæðis er hann át höfuðið af
leðurblöku á hljómleikum. Þetta er
ekki rétt hjá Agnesi, ég hef ekkert
á móti fólki þó það sé lasið og reynd-
ar hef ég ekkert á móti fólki yfir-
leitt. Það sem við í Krossinum vilj-
um benda á í gegnum allt þetta
moldviðri, er að boðskapur poppar-
ans er afsiðandi og skemmandi á
mjög afgerandi hátt. Hann er að
hvetja óhamað ungviðið til siðleys-
is, óeðlis, eiturlyfjaneyslu og tor-
tímingar. Hann hefur verið dreginn
fyrir rétt í Bandaríkjunum ákærður
fyrir að vera valdur að dauða ung-
menna. Hann leggur að ungu fólki
að gera Djöfulinn að guði sínum. Á
ég að þegja þunnu hljóði og neita
að upplýsa þá sem spytja aðeins
af því að ég fer í taugarnar á Ag-
nesi og hennar líkum í skoðanalög-
reglunni?
Foreldrasamtök, bæði í Evrópu
og Bandaríkjunum, hafa lagt sig í
líma við að stemma stigu við því
að popptónlist verði notuð til að
Páll Pétursson
„Þröstur Ólafsson get-
ur því miður ekki lært
af reynslunni og skil-
greinir vandann
rangt.“
drætti að kenna, en ofaná aflasam-
dráttinn leggst ríkisstjórn Davíðs
Oddssonar. Hún hækkar skatt á
greinina um 650-700 milljónir. Hún
hreifír engum ráðum til úrbóta fyr-
ir sjávarútveginn. Hún lætur vext-
ina vera alltof háa og heldur
gengisskráningu fastri þótt raun-
gengi hafí hækkað um 9% frá því
að þjóðarsáttin var gerð.
Ráðgjafi utanríkisráðherra
Þröstur Ólafsson, heimtar nú gjald-
þrot þeirra fyrirtækja sem í erfíð-
leikum eiga. Kvótinn renni þá til
sterkustu fyrirtækjanna og bæti
stöðu þeirra. Þetta er ftjálshyggja
Gunnar Þorsteinsson
„Boðskapur popparans
er afsiðandi og skemm-
andi á nyög afgerandi
hátt.“
leiða börn þeirra á óheillabraut.
Agnes reynir að gera því skóna að
hér sé um ungæðishátt að ræða frá
hendi popparans, en þar stendur
dómgreind hennar henni enn fyrir
þrifum, því vesalings maðurinn er
kominn fast að fimmtugu!
Agnes segir einnig að ég hafi
þakkað mér og „trúarklíku" minni
að tónleikar Bryan Adams hafi far-
ið út um þúfur. Það er uppspuni,
vísvitandi ósannindi eða þekking-
arskortur. Hvorutveggja er í raun
jafn slæmt í grein eftir fréttamann
sem ofsatrúarmenn og grillu-
fangarar yst til hægri í Sjálfstæðis-
flokknum gætu verið fullsæmdir af.
Úrræði til endurreisnar
Það verður að snúast við vanda
sjávarútvegsins tafarlaust, ekki
láta ráðgjafa eins og Þröst Ólafsson
fá frið til að vinna honum óbætan-
legt tjón. Vextina verður að lækka
mjög verulega, með handafli ef
ekki duga önnur ráð. Gengisum-
hverfið verður að gera þolandi fyr-
ir útflutningsatvinnuvegina, þó
ekki með gengisfellingu, hún er
vítahringur sem við höfum dapur-
lega reynslu af. Síðan ber ríkis-
stjórninni að beita sér fyrir áfram-
haldandi hagræðingu og end-
urskipulagningu í svipuðum anda
og gaf góða raun hjá ríkisstjórn
Steingríms Hermannssonar.
Auðvitað er offjárfesting í
sjávarútveginum, frystingin hefur
verið flutt út á sjó í miklum mæli
og fískur er fluttur úr landi, óunn-
inn í stórum stfl. Hagræðingar er
því enn þörf, en hún er vandasöm.
Hagræðing getur haft í för með
sér alvarlega fækkun starfa og
aukið atvinnuleysi. Það ber að var-
ast svo sem kostur er, en margt
má leysa með hagkvæmari hætti.
Úrelding fiskvinnslustöðva getur
einnig komið til greina.
Þjóðfélagið þolir ekki þessa
menn
Fólkið sem vinnur við sjávarút-
veginn má ekki láta orð Þrastar
Ólafssonar framhjá sér fara. Hann
heimtar gjaldþrot og stöðvun í
fjölda fyrirtækja. Hann mun, ef
hans ráðgjöf verður þegin af ríkis-
stjórninni, svipta fjölda fólks víða
um land atvinnunni, leggja byggð-
arlög þess í rúst og gera eignir
þess verðlausar. Þessu verða menn
að gera sér grein fyrir. Það var
mikill ábyrgðarhluti af kjósendum
að gefa Sjálfstæðisflokki og Al-
þýðuflokki þingræðislegt tækfæri
til að yfirtaka stjórn landsins. Þeir
líta á þjóðfélagið sem herfang sitt.
Þjóðfélagið þolir ekki þessa
menn.
Höfundur er formaður þingflokks
framsóknarmanna.
sem vil vera vandur að virðingu
sinni. Agnes, þú ert í slæmum
málum þegar þú sendir frá þér
svona skrif. Við höfum aldrei fett
fíngur út í Bryan Adams eða gert
athugasemdir við framkomu hans
með einum eða neinum hætti. Þú
hefur verið að lesa áramótaútgáfu
Pressunnar þar sem þessu var sleg-
ið upp í gríni. Agnes, „frétta-
mennska“ þín í þessu tilfelli er
byggð á brandara í Pressunni sem
þú afbakar! Hitt er aftur á móti
rétt og satt við báðum gegn vondum
áhrifum af hljómleikunum sem
haldnir voru í Kaplakrika 16. júní sl.
Barbarossa
Agnesi er greinilega ekki alls
varnað, því að í einu atriði hafði
hún rétt fyrir sér og það er þegar
hún segir að ég sé rauðskeggjaður.
Það er hárrétt fyrir utan þessi fáu
gráu hár sem farin eru að láta sjá
sig.
Agnes, þú hefur svikið sannleik-
ann, skrif þín get ég ekki skilið
öðruvísi en að þú veljir að svíkja
frelsara þinn og þú - svíkur stétt
þína.
Blaðamaður eða fréttamaður ber
mikla ábyrgð. Siðlaus og óábyrg
fréttamennska er að verða að plágu
í landi okkar. Það þarf sterka sið-
ferðisvitund og góðan skammt af
heilbrigðri skynsemí til að standa
vel undir starfsheiti fréttamanns.
Þig skortir verulega á í hvoru-
tveggja, en ég skora á þig að bæta
þig og taka þig á. Góð byrjun hjá
þér væri að taka á móti Jesú Kristi
sem frelsara þínum og koma á sam-
komu hjá Krossinum, það verður
samkoma á sunnudaginn kemur
klukkan hálf fimm.
Höfundur er forstöðumaður í
Krossinnm í Kópavogi.
Agnes og gúrkan