Morgunblaðið - 26.02.1992, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 1992
5
Borgarspítali:
Meðlæti með
kvöldkaffi
í stað síð-
degiskaffis
Sjúklinguin á Borgarspítala er
nú gefið meðlæti með kvöldkaffi
en ekki síðdegiskaffi eins og áð-
ur. Ennfremur hefur sætabrauð á
virkum dögum verið lagt niður.
Ingibjörg Þórhallsdóttir, hjúkr-
unarframkvæmdastjóri, sagði að
breytingin hefði verið ákveðin í kjöl-
far umræðna um hagræðingu. „Þá
kom í ljós að verið var að fæða
fólk nokkuð ört fyrri hluta dags en
langur tími leið frá kvöldmat þar
til það fékk morgunmat daginn eft-
ir. Af þessum sökum ákáðum við
að færa meðlætið fram á kvöldið.
Ennfremur var tekin ákvörðun um
að gefa fólki haldbetri næringu.
Hætta við sætabrauð og taka upp
brauð með áleggi á virkum dög-
um,“ sagði Ingbjörg og bætti við
að þeir sem hefðu hrundið breyting-
unni af stað teldu að núverandi
fyrirkomulag kæmi sér betur bæði
fyrir starfsfólk og sjúklinga spítal-
ans.
Geir Þórðarsson, yfirmatreiðslu-
maður á spítalanum, sagði að hér
væri einungis um hagræðingu að
ræða en ekki beinan sparnað.
-----» ♦ ♦----
Apple-skákmótið:
9 stórmeist-
arar tefla
ALÞJÓÐLEGT skákmót, Apple-
skákmótið, hefst í Reykjavík á
sunnudag. Af tólf keppendum
eru níu stórmeistarar, þar á
meðal gestir frá Lettlandi, grikk-
landi, Englandi og Frakklandi.
Mótið er í 11. styrkleikaflokki
FIDE og er stórmeistaraáfangi 7
vinningar af 11. íslenskir þáttak-
endur eru þeir Jóhann Hjartarson,
Margeir Pétursson, Helgi Ólafsson,
Jón L. Árnason, Karl Þorsteins,
Hannes Hlífar Stefánsson og Þröst-
ur Þórhallsson. Þá tekur þátt í
mótinu Alexei Sírov frá Lettlandi,
en hann er aðeins 19 ára gamall
og 7. stigahæsti skákmaður heims.
Aðrir erlendir þátttakendur eru
Vasilios Kotronias, sterkasti skák-
maður Grikklands, Stuart Conquest
og James Plaskett frá Englandi,
auk Olivier Renet frá Frakklandi.
teflt verður í Skákmiðstöðinni
Faxafeni 12. Á laugardag kl. 18
verða keppendur kynntir og dregið
um töfluröð, en fyrsta umferð hefst
á sunnudag kl. 17.
Skákmót í Bern:
Margeir í
2.-12. sæti
MARGEIR Pétursson stór-
meistari varð í 2.-12. sæti á
skákmóti sem nýlokið er í
Bern í Sviss. Sigurvegari á
mótinu varð Rússinn Andrej
Sokolov.
Margeir hlaut 7 af 9 mögu-
legum. Af öðrum skákmönnum
sem hlutu sama vinningafjölda
má nefna Vlastímíl Hort og
Borís Gúlkó. Einnig hlaut Sví-
inn Pia Cramling sjö vinninga
og náði þarmeð síðasta áfanga
að stórmeistaratitli. Er hún
fimmta konan sem nær þeim
árangri og sú fyrsta frá Vestur-
löndum.
Á þriðja hundrað skákmenn
tóku þátt í opna mótinu í Bern,
um þrjátíu stórmeistarar og
fimmtíu alþjóðlegir meistarar.
Sala rauöa nefsins þetta ár er til styrktar
afreksfólki okkar sem stefnir á þátttöku
í ólympíuleikum fatlaðra í sumar.
Þau unnu stórsigra fyrir hönd íslands í Seoul
-vinnum með þeim núna
kaupum rautt nef af sölufólki og berum það á öskudag.
ÓLYMPÍUNEFND FATLAÐRA
ponvrmwH