Morgunblaðið - 26.02.1992, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 1992
Frá slysstaðnum. Morgunblaðið/Ingvar
Harður árekstur
við umferðarljós
MAÐUR slasaðist í hörðum
árekstri á mótum Kringlumýrar-
brautar og Suðurlandsbrautar í
hádeginu í gær. Þar skullu sam-
an Lada-bifreið og Bronco-jeppi.
Umferðarljós við gatnamótin
blikkuðu á gulu þegar slysið varð.
Lada-bílnum var ekið vestur Suður-
landsbraut en jeppanum norður
Kringlumýrarbraut og inn í hlið
Lödunnar. Ökumaður hennar var
fluttur með sjúkrabifreið á slysa-
deild, meiddur í andliti, auk þess
sem óttast var að hann hefði skadd-
ast á baki. Ökumaður jeppans
meiddist minna en fékk far með
lögreglu á slysadeild til athugunar.
Bílarnir eru báðir óökufærir.
Sjúkraflug í
60 hnúta roki
PÓLSKUR sjómaður, sem hafði
beinbrotnað við fall niður í lest
skips í Vestmannaeyjahöfn, var
fluttur til Reykjavíkur um hádegi
í gær. Mikið rok var í Eyjum, eða
60 hnútar. Flugmaður vélarinnar
sagði í samtali við Morgunblaðið
að vindur hefði staðið beint á flug-
brautina og því hefði verið hægt
að fara í loftið, þó ekki væri fært
til Eyja frá Reykjavík.
Pétur Jónsson flaug Piper Chief-
tain flugvél Leiguflugs Vals Ander-
sen. Hann sagði að sjómaðurinn hefði
þurft að komast á sjúkrahús í
Reykjavík og það hefði ekki verið
neitt mál að fara í loftið. „Það var
hins vegar spáð ísingu og ókyrrð, svo
við flugum sjónflug með ströndinni,
út fyrir Keflavík og inn til Reykjavík-
ur,“ sagði hann. „Flugið gekk mjög
vel, en þetta var eina flugið milli
lands og Eyja í dag (gær). Það er
mikilvægt að vélar séu staðsettar hér
í Eyjum ef þarf að fara í sjúkraflug,
því oft stendur vindurinn þannig á
flugbrautina að það er leikur einn
að fara í loftið þó lending væri ill-
möguleg."
Vind lægði mjög í Vestmannaeyj-
um þegar leið á daginn og var kom-
inn niður í 30 hnúta úm kl. 18.
VEÐUR
1/EÐURHORFUR I DAG, 20. FEBRUAR
YFIRLIT: Um 300 km vestur af Reykjanesi er 955 mb lægö, sem þok-
ast norðnorðvestur.
SPÁ: Suðvestan strekkingur um mest allt land og kólnandi veður. El
sunnan- og vestanlands en léttskýjað norðan- og austanlands.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA;
HORFUR Á FIMMTUDAG: Suðvestan strekkingur um ailt land. Él um
sunnan- og vestanvert landið, en bjart veður norðaustanlands. Frost 2
til 7 stig.
HORFUR A FOSTUDAG: Vaxandi suðaustanátt, víða hvöss með snjó-
komu og síðan slyddu sunnan- og vestanlands er líður á daginn, en
áfram úrkomulítið norðaustanlands. Hlýnandi veður í bili.
Svarsím! Veðurstofu islands — Veðurfregnir: 990600.
▼
Heiðskírt
/ r r
r r
r r r
Rigning
Léttskýjað Hálfskýjað
* r * * * *
* / * *
/ ♦ / * * »fc
Slydda Snjókoma
Skýjað Alskýjað
V V V
Skúrir Slydduél Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
og fjaðrirnar vindstyrk,
heil fjöður er 2 vindstig.
10° Hitastig
V Súld
= Þoka
stig..
FÆRÐ Á VEGUM:
Víða er talsverð mikil hálka á vegum landsins. Sæmileg færð er um
Hellisheiði og Þrengsli og þá er fært um Reykjanesbraut til Suðurnesja.
Greiðfært er með suðurströndinni í Öræfasveit, en þaðan er aðeins
jeppafært til Hafnar í Hornarfirði. Fært er fyrir Hvalfjörð I Borgarfjörð
um Bröttubrekku tíl Búðardals. Á norðanverðu Snæfellsnesi er vonsku-
veður, og er aðeins fært fyrir jeppa og stærri bíla þar. Ófært er frá
Króksfjarðarnesi til Reykhóla. Eíns er ófært urr. Kleifaheiði og Hálfdán,
en fært milli Patreksfjarðar og Tálknafjarðar. Heiðar á Vestfjorðum eru
ófærar. Fært er á milli Bolungarvíkur og Súðavíkur og inn í Isafjarðar-
djúp. Fært er um Holtavörðuheiði til Hólmavíkur og Steingrímsfjarðar-
heiði var fær í dag en útlit er fyrir að hún lokist í kvöld mitli 19 og 20
vegna skafrennings. Á Norðurlandí er fært til Siglufjarðar og Akureyrar
og þaðan um Þingeyjarsýslur meö ströndinni til Vopnafjarðar. Vegir á
Austurlandi eru flestir vel færir. Vegagerðin
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
hltl veður
Akureyri 1 snjókoma
Reykjavík 3 þokumóða
Bergen 6 léttskýjað
Helsinki 3 súld
Kaupmannahðfn 7 þokumóða
Marssarssuaq +19 alskýjað
Nuuk +24 þokumóða
Óslð 7 léttskýjað
Stokkhólmur 7 léttskýjað
Þórshöfn 7 rigning
Algarve 15 léttskýjað
Amsterdam 8 þokumóða
Barcelona 9 rigning
Berlín 7 mistur
Chicago 1 þokumóða
Feneyjar vantar
Frankfurt 7 mlstur
Glasgow vantar
Hamborg 7 mistur
London 3 þokumóða
LosAngeles 13 heiðskírt
Lúxemborg 6 mistur
Madríd 8 þokumóða
Malaga 18 lóttskýjað
Mallorca 11 rigníng og súld
Montreal +9 alskýjað
NewYork 2 þokumóða
Orlando 20 rigning
París 7 þokumóða
Madeira 6 vantar
Róm 14 þokumóða
Vín 8 léttskýjað
Washlngton 4 þokumóða
Winnipeg +20 heiðskírt
Morgunblaðið/Þorkell
Forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir, fékk fyrstu sneiðina af
afmælistertunni í Aðalstræti. Með henni á myndinni eru Jón
Ingvarsson, formaður stjórnar SH, og Friðrik Pálsson forstjóri.
Mun bera svunt-
una með reisn
Vigdís Finnbogadóttir forseti ís-
lands meðal afmælisgesta í boði SH
FORSETI Islands, Vigdís Finn-
bogadóttir, og Þorsteinn Pálsson
sjávarútvegsráðherra voru með-
al þeirra nálægt 7.000 gesta sem
héldu upp á afmæli Sölumið-
stöðvar hraðfrystihúsanna í
gær. Starfsfólki var boðið til
veizlu í aðildarfrystihúsum SH
um allt land, í höfuðstöðvunum
í Aðalstræti, söluskrifstofum
víða um veröld og í skipum
tengdum SH.
Vigdís Finnbogadóttir var heið-
ursgestur í aðalstöðvum SH í Aðal-
stræti. Þar tóku á móti henni Jón
Ingvarsson, formaður stjórnar SH,
og Friðrik Pálsson, framkvæmda-
stjóri félagsins. Jón bauð gesti vel-
komna og rakti í stuttu máli stofn-
un félagsins og sögu fram á þenn-
an dag. „í dag fögnum við því
mikla gæfuspori, sem hinir fram-
sýnu frumkvöðlar stigu fyrir 50
árum, þegar þeir ákváðu að taka
höndum saman varðandi sölu og
markaðssetningu afurða sinna. Það
er óumdeilt, að með því að sameina
krafta sína með þessum hætti hef-
ur framleiðslan og markaðssetning
þessara mikilvægustu útflutnings-
afurða landsmanna náð miklu
sterkari stöðu úti á mörkuðunum
og fengið meiru áorkað en ef kraft-
amir hefðu verið tvístraðir," sagði
Jón Ingvarsson.
Að því loknu var boðið til veizlu
og snæddar sérstakar afmælistert-
ur í líki nokkurra helztu nytjafiska
íslendinga. Starfsfólk hafði áður
opnað gjafapakka sína, en í þeim
voru meðal annars svunta og spil.
Vigdís Finnbogadóttir þakkaði fyr-
ir sig og sagði meðal annars. „Ég
veitti því athygli í morgun, þegar
tveir fulltrúar komu til mín og af-
hentu mér formlega svuntuna, sem
ég mun bera með reisn eins og
aðrir sem vinna að þessum málum
í Iandinu, að í blaðinu Frosti var
viðtal við Huxiey Ólafsson, þar sem
hann segir þessi fleygu gömlu orð:
Sameinaðir stöndum vér.“ Vigdís
ræddi síðan um sjálfstæðisbaráttu
þjóðarinnar og Jón Sigurðsson og
sagði að þessi orð, sem Huxley
Ólafsson hefði vitnað í, væru auð-
vitað til sanninda um það, að sam-
einingin hefði verið til heilla og
farasældar.
Morgunblaðið/KGA
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra og Brynjólfur Bjarna-
son, forsljóri Granda, blása á kertin á tertunni.
Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson
Afmælisgjöfunum dreift í frystihúsi HB hf á Akranesi.