Morgunblaðið - 26.02.1992, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 1992
-
Mogunblaðið/Sverrir
Flugafgreiðsla við kertaljós
Rafmagnslaust varð víða í mið- og vesturbæ Reykja-
víkur á áttunda tímanum í gærkvöldi en rafmagn
komst víðast aftur á innan klukkustundar. Þó var
rafmagnslaust í litla Sketjafirði fram að miðnætti og
einnig í flugstöðinni á Reykjavíkurflugvelli. Að sögn
Inga Sigurðssonar, aðstoðarafgreiðslustjóra, voru um
450 manns, sem beðið höfðu eftir fiugi, nýfarnir er
rafmagnið fór af. Starfsfólk flugvallarins kveikti á
kertum í flugafgreiðslunni og farþegar sem komu til
Reykjavíkur hjálpuðu sér sjálfir við að fínna farangur.
Sj ömannanefnd:
Mikið tjón er Hug-
inn fékk á sig brot
Vestmannaeyjum.
LOÐNUSKIPIÐ Huginn VE 55 fékk á sig tvo brotsjói er skipið var á f
leið til Eyja í gærmorgun með fullfermi. Tvær rúður í brú brotnuðu
og urðu talsverðar skemmdir á tækjum. Þá brotnaði einnig loðnuskilj-
ari og fleira á dekkinu. Engin slys urðu á mönnum og kom Huginn |
til Eyja síðdegis í gær.
Það var um hálf níu í gærmorgun
sem Huginn fékk fyrra brotið á sig.
Skipið var þá statt út af Dyrhólaey
á leið til Eyja í sunnan/suðvestan
spænuroki og foráttusjó. Gluggi í
brú brotnaði í brotinu og talsverður
sjór komst í brúna. Skipverjar gengu
frá hlera fyrir gluggann og síðan
var förinni haldið áfram til Eyja.
Varðskip sem statt var við Eyjar
hélt til móts við Hugin til aðstoðar
ef á þyrfti að halda. Klukkan rúm-
lega tólf fékk Huginn svo annað
brot, mun stærra en það fyrra. Skip-
ið var þá statt út af Pétursey. Skip-
verjarnir sögðust hafa séð brotið
koma framundan á bakborða og
beygði skipstjórinn upp í veðrið.
Brotið skall á skipinu með miklum
þunga og önnur rúða í brú brotn-
aði. Einnig brotnuðu loðnuskiljari
og fleira á dekki. Sjór komst í raf-
kerfi í brú og aðalvél skipsins drap
á sér. Fljótlega tókst að koma vél-
inni í gang á ný og skipveijar settu
hlera fyrir gluggann. Huginn hélt
síðan ferð sinni áfram til Eyja í fylgd
varðskips og kom þangað síðdegis í
gær.
Engin meiðsl urðu á mönnum.
Flest tæki í brú skipsins voru óvirk
og eru talsvert skemmd ef ekki ónýt
og búnaður á dekki var brotinn og
snúinn.
Grímur
Heijólfur
komstekki >
inn í Þor- 1
lákshöfn >
Mikill ágreimngur um fram-
tíðarskipan mjólkuriðnaðar
Óvíst hvort tekst að skila tillögum um grundvöll að búvörusamningi
MIKILL skoðanaágreiningur er nú innan sjömannanefndar, sem vinn-
ur að því að gera tillögur um hagræðingu í mjólkuriðnaðinum. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins er deilt um það hvort gefa eigi
alla verðlagningu mjólkurafurða frjálsa, eða hvort hagræðingu innan
greinarinnar verði komið á með skipulögðum hætti undir einni yfir-
stjórn í mjólkuriðnaðinum.
Tillaga um fijálsa verðlagningu í
mjólkurframleiðslunni var sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
nýlega lögð fram á fundi sjömanna-
nefndar með tilvísun til væntanlegs
REYKJAVÍKURBORG ver 2,7
milljörðum kr. til bygginga-
framkvæmda á þessu ári, sam-
kvæmt endurskoðaðri fjár-
hagsáætlun borgarinnar. Fram-
kvæmdum við Ósabraut lýkur
innan þriggja ára. Þetta kom
fram á borgarafundi sem Mark-
ús Örn Antonsson borgarstjóri
og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
borgarfulltrúi héldu í Grafar-
vogi í gær.
Af þessari fjárhæð renna um
800 milljónir kr. til framkvæmda
í Grafarvogi, þar af um 330 millj-
ónir kr. til byggingar íþróttahúss
í Húsahverfi. í máli borgarstjórans
kom fram að borgin ætti nægt
land á þessu svæði til ársins 2010
og talið væri að heildarlandareign
borgarinnar dygði allt til ársins
2040 ef miðað væri við eðlilega
íbúaaukningu.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
sagði að framkvæmdum við Osa-
braut lyki á næstu þremur árum
og rætt hefði verið um að flýta
þeirri framkvæmd vegna atvinnu-
ástands í borginni. Vegurinn mun
liggja frá Kleppsmýrarvegi að
Gullinbrú og er áætlaður kostnaður
um 800 milljónir. í aðalskipulagi
er gert ráð fyrir íbúðabyggð á
uppfylltu svæði í námunda við
smábátahöfn við Gullinbrú. Fram-
innflutnings á búvörum í framtíð-
inni. Ekki væri um það að ræða að
algjöru fijálsræði yrði komið á í einni
svipan, heldur aðlögun sem nauðsyn-
leg væri vegna breyttra aðstæðna.
kvæmdir við uppfyllingu á svæðinu
heíjast innan eins og hálfs til
tveggja ára.
Þá væri með þessu verið að þrýsta
á um tillögur frá mjólkuriðnaðinum
sjálfum, en sumum fulltrúanna í sjö-
mannnefnd þykir greinin treg til
þess að leggja fram tillögur um
hvemig hægt væri að leysa aðsteðj-
andi vanda.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hafa fulltrúar mjólkurfram-
leiðenda innan sjömannanefndar
lagt á það áherslu, að ef koma eigi
á fijálsræði í mjólkuriðnaðinum og
knýja framleiðendur út í fijálsa sam-
keppni, þá verði þeir sjálfir að fá
tækifæri til að ráða ferðinni í þeirri
samkeppni. Á þetta geta ákveðnir
aðilar innan nefndarinnar hins vegar
ekki fallist. Framleiðendur vilja að
mjólkuriðnaðurinn verði undir einni
ákveðinni yfirstjórn sem komi á
auknu fijálsræði og hagræðingu
með skipulögðum hætti, en bæði
kúabændum og mjólkurbúum verði
ekki att út í innbyrðis samkeppni
sem komi þeim aðilum best sem
næstir eru markaðnum. Þá telja
þeir jafnframt ósvarað þeirri grund-
vallarspurningu hvort neytendur eigi
að fá aðgang að mjólkurvörum á
sama verði hvar sem þeir búa í land-
inu.
Sjömannanefnd er skipuð fulltrú-
um launþega, atvinnurekenda,
bænda og stjórnvalda, og voru tillög-
ur nefndarinnar um hagræðingu í
sauðfjárframleiðslunni lagðar til
grundvallar nýjum búvörusamningi
sem gildi tekur í haust. Ljóst þykir
að ef byggja eigi þann hluta búvöru-
samningsins sem snýr að mjólkur-
framleiðslunni á tillögum frá nefnd-
inni verði þær að liggja fyrir á allra
næstu vikum, svo hægt verði að fá
staðfestingu Alþingis á samningnum
og gera nauðsynlegar lagabreyting-
ar fyrir þinglok í vor. Náist hins
vegar ekki málamiðlun innan nefnd-
arinnar verða engar tillögur lagðar
fram og mun nefndin þá væntanlega
hætta störfum.
Vestmannaeyj um.
Vestmannaeyjaferjan Herjólfur
komst ekki inn til Þorlákshafnar
í gær vegna óveðurs og hafróts.
Skipið sneri frá eftir að hafa hald-
ið sjó utan við Þorlákshöfn í
klukkustund, hélt til Eyja á ný og
kom þangað eftir tæplega níu tíma
ferð.
Heijólfur hélt frá Eyjum áleiðis
til Þorlákshafnar kl. 7.30 í gærmorg-
un. Veður versnaði talsvert á leiðinni
og er skipið kom að Höfninni var
foráttubrim og innsigling vonlaus.
Skipið hélt þá sjó í klukkutíma til
að kanna möguleika á að komast
inn. Það reyndist ekki unnt og sneri
því skipið til Eyja á ný og kom þang-
að á fimmta tímanum.
_ Grímur
Brotist inn um
hábjartan dag
BROTIST var inn í íbúð á Seltjarn-
arnesi í gær. Þegar íbúðareigand-
inn kom heim um kl. 17 hafði
ýmsum smámunum verið stolið,
svo sem litlum ferðageislaspilara.
Auk þess var búið að taka ýmsan
fatnað saman í kassa og setja hljóm-
flutningstæki að svalahurð.
Lögreglunni var tilkynnt um tvö
önnur innbrot í gær og hefur að
hennar sögn mikið verið um innbrot
í borginni að undanförnu.
Eldingaveður í A-Landeyjum:
Bláir blossar gengu út úr
öllum rafmagnstækjum
Hvolsvelli.
MESTA mildi var að ekki fór ver þegar eldingu laust í rafmagns-
línu á milli bæjanna Litlu-Hildiseyjar og Hallgeirseyjar í Austur-
Landeyjum um áttaleytið síðastliðið sunnudagskvöld. „Ég þakka
Guði fyrir að enginn skyldi slasast. Það komu eldglæringar út
úr eldavélinni sem lentu á Jóni manninum mínum, en hann
meiddist ekkert," sagði Jóna Jónsdóttir, húsfreyja á Hallgeirs-
ey, en hún vár ásamt manni sínum, vinafólki og sonardætrum
að baka flatkökur þegar eldingunni laust niður. Ein kýr drapst
er eldingunni laust niður og er talið að hún hafi þá verið að
drekka.
Ásdís Guðbjörnsdóttir,
tengdadóttir hjónanna í Hall-
geirsey, var að skrúfa frá kran-
anum í eldhúsvaskinum þegar
eldingunni laust niður, og sagði
hún að við það hefði engu verið
líkara en þungt farg hefði lagst
á bijóstkassann, og því ekki létt
fyrr en rafmagninu hefði slegið
út.
„Það heyrðist alveg gífurlegur
hvellur líkt og sprenging hefði
orðið, og síðan gengu bláir bloss-
ar út úr öllum rafmagnstækjum
á heimilinu. Þegar ég leit út sáust
eldglæringar, sérstaklega á milli
húsa hér. Mér leið eins og ég
hefði misst andann og var nokk-
urn tima að jafna mig. Stelpum-
ar mínar voru niðri hjá ömmu
og afa, en ég var með strákinn
hérna uppi. Þau urðu ekki mjög
hrædd, en töluðu mikið um eldinn
sem þau sáu á veggjunum. Mér
fínnst alveg furðulegt að raf-
magnstækin á heimilinu eru heil
því ég er viss um að spennan sem
fór í gegnum þau var gífurleg,“
sagði Ásdís. Hún var sú eina sem
fékk stuð er eldingunni laust nið-
ur, en hún var við hliðina á upp-
þvottavél sem er eina tækið á
bænum sem virðist hafa orðið
fyrir skemmdum. Síma- og raf-
magnslaust var á Hallgeirsey
Mprgunblaðið/Slcinunn
Ásdís Guðbjörnsdóttir í eldhús-
inu á Hallgeirsey.
þangað til seinnipartinn á mánu-
dag. Þá skemmdust fjórir spenn-
ar hjá Rafmagnsveitum ríkisins
af völdum eldingaveðursins, og
er tjónið áætlað um 400 þúsund
krónur. S.O.K.
Endurskoðuð fjárhagsáætlun borgarinnar:
2,7 milljarðar kr. til
byggingaframkvæmda