Morgunblaðið - 08.02.1992, Page 40
40 í
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl) **
Þú hefur ánægju af að kaupa
inn fyrir heimilið í dag og dett-
ur niður á einhvern kjörgrip.
Forðastu að deila um peninga-
mál við ijölskylduna.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þó að persónutöfrar þínir séu
óumdeilanlegir í dag, kanntu
samt að dragast inn í illvígar
deilur. Þú færð góðar fréttir
úr fjarlægð.
Tvíburar
(21. maí - 20. júni)
Leggðu á þig að gera rækilega
verðkönnun og saumnálarleit
ef þú ætlar að kaupa eitthvað
sem máli skiptir í dag. Reyndu
ævinlega að mæta samferðar-
mönnum þínum á miðri leið.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þó að þú gleðjist yfir heimboði
sem þú færð í dag, verðurðu
áð bíða eftir að maki þinn láti
álit sitt í ljós. Og svo verður
að ræða hiutina í allri vinsemd.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Það kemur sér vel fyrir núna
að hafa góð sambönd á bak
við tjöldin. Reyndu að hafa
hemil á þeirri tilhneigingu þinni
að framkvæma hlutina fyrst
og hugsa svo.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) M
Ferðaiög og samkvæmislíf eru
ofarlega á óskalistanum hjá þér
núna. Þú ættir þó að fara mjög
varlega í ástarsambandi þínu.
Og ekki þarf að minna á að
blíðmæli fá miklu meira áorkað
en brussugangur.
(23. sept. - 22. október)
Þú vinnur að því að prýða heim-
ilið. Þér dettur í hug að bjóða
samstarfsmanni þínum heim.
Skapsmunir þínir kunna að
valda þér erfiðleikum síðdegis.
Langrækni er hvimleiður löst-
Vog
'Sþorðdreki
(23. okt. - 21. nóvember) Cjjjg
Rómantíkin setur svip sinn á
þennan dag hjá þér. Þú átt
gott samstarf við maka þinn,
en kannt að sjá eftir að hafa
ekki farið að ráðum hans.
Komdu ekki of seint á fUnd.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember) m
Góðvilji þinn opnar þeir ýmsar
dyr núna. Þig kann að greina
á um fjármál við maka þinn,
en ágreiningurinn stendur um
leiðimar að markmiðinu, ckki
markmiðið sjálft.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Sjálfstraust þitt gefur þér mik-
inn kraft um þessar mundir,
en þú verður samt að sjást fyr-
ir. Það er ekkert unnið með því
að færast of mikið í fang. Byrj-
aðu á einhveiju nýju.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) fflt,
Persónuleiki þinn hjálpar þér
mikið í starfi núna. Þú verður
að spyrna við fæti ef ættingi
þinn gerist of ágengur við þig.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) ia*
Þó að rómantíkin setji svip sinn
á þennan dag, kann að koma
upp vandamál sem snertir einn
vina þinna.
Stjörnuspdna á ad lesa sem
dœgradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast ekki d traustum grunni
vísindategra staðreynda.
DÝRAGLENS
SMÁFÓLK
Lestur er I rauninni ævintýri. Lestur er eiris og ferðalag til nýs Vektu mig þegar við erum komin
staðar. þangað.
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Prófessorinn í Bláu sveitinni,
Eugenio Chiaradia, ákvað að
hafna þeirri blátt áfram leið að
spila upp ás fyrir framan kóng.
I staðinn fór hann leið sem að-
eins gæti heppnast ef austur
ætti drottningamar í láglitunum
og lauftíu. Þetta var árið 1959
á Evrópumótinu í Palermo.
Suður gefur; engin á hættu.
Vestur Norður ♦ K64 ♦ D32 ♦ Á432 + G87 Austur
♦ 82 ♦ ÁDG1093
VG87 y-
♦ 1086 ♦ D975
♦ A5432 ♦ D106
Vestur Suður ♦ 75 y ÁK109654 ♦ KG ♦ K9 Noröur Austur Suður
— — — 1 hjarta
Pass 2 hjörtu 2 spaðar 4 hjörtu
Pass Pass Pass
Utspil: Spaðaátta.
Vörnin spilaði spaða þrisvar í
upphafi. Chiaradia trompaði
spaðaásinn með hjartaás, tók
hjartakóng, svínaði fyrir hjarta-
gosa og spilaði hjarta á drottn-
ingu. Sjálfsögð vandvirkni, en
engin snilld.
Setjum okkur í nú í spor suð-
urs. Hann sér að spilið vinnst
ef austur á laufásinn. Sem er
ekki ólíklegt eftir innákomuna,
en Chiaradia taldi það samt úti-
lokað. Hvers vegna? Vegna þess
að austur hefði örugglega tekið
laufásinn strax áður en hann
reyndi að upphefja trompslag
hjá makker með þriðja spaðan-
um. Chiaradia svínaði því tígul-
gosa (!) og spilaði trompunum
til enda.
Vestur Norður ♦ - ¥- ♦ Á4 ♦ G8 Austur
♦ - ♦ -
¥- llllll ¥-
♦ 108 ♦ D9
♦ Á5 ♦ D10
Suður ♦ - ¥4
♦ K ♦ K9
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á alþjóðlegu móti í Sydney í
Ástralíu í fyrra kom þessi staða
upp í viðureign hollenska stór-
meistarans Paul Van der Sterr-
en (2.485) og kínverska alþjóða-
meistarans Wang Zili (2.495),
sem hafði svart og átti leik. Hol-
lendingurinn lék síðast einkar
gáleysislegum leik, 27. Rd5 -
c7??, hann hreinlega þvingaði Kin-
verjann til að finna glæsilega
fléttu:
27. - Hxa3!, 28. Bxa3 - c4,
(Hvítur getur nú ekki bæði varist
29. - Dxa3 og 29. - Dc5+) 29.
Rc2 - Dc5+, 30. Khl - Rf2+,
31. Kgl - Rdl+, 32. Khl -
Rc3, 33. Del - Rxbl, 34. Dxbl
- Df2, 35. Ddl - Bf8, 38. Dc2
(Afleikur í vonlausri stöðu.) 38. -
Bg2+ og hvítur gafst upp.