Morgunblaðið - 08.02.1992, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR 1992
19
Kerrur í stórmörkuðum eru hjálpar-
tæki sem er ætlað til að létta undir
með þeim sem versla og minnka
álag á herðavöðva. Sömuleiðis blað-
burðarkerrur fyrir blaðburðarfólk
og bréfbera.
Rétt líkamsbeiting og
vinnutækni
Mikilvægt er að beita sér rétt við
hin ýmsu störf og athafnir. Þegar
setið er þarf þrýstingur að koma á
setbeinin og stuðningur að vera við
bakið, en ekki skal hanga í stólnum
eins og oft sést.
Við stöður þarf að rétta úr sér
þannig að liðir líkamans séu hver
ofan á öðrum en það minnkar álag
á liðina. Margir hafa vanið sig á
hvers kyns óæskilegar líkamsstöð-
ur, standa með hnén yfirrétt eða
skjóta mjöðmunum fram. Það eykur
álag á liðbönd, liðpoka og liðbijósk.
Þegar hlutum er lyft þarf að
huga að því að halda bakinu beinu
og nota sterku fótleggjavöðvana til
að lyfta.
Ef maður flýtir sér um of við
störf er hætta á að maður dragi
axlirnar að eyrum en það eykur
álag á herðavöðva.
Rétt handbrögð og gott skipulag
við vinnu skiptir sköpum bæði fyrir
þann sem vinnur verkið og þann
sem hefur af því hag.
Slæm vinnutækni veldur með
tímanum aukinni þreytu líkamans
og hvers konar álagssjúkdómum.
011 viljum við hafa góða heilsu en
til þess þarf maður að læra rétt
vinnubrögð strax á yngri árum og
nýta þau út lífið.
Niðurlag
Fjölmargar rannsóknir benda til
þess að beint samhengi sé milli lé-
legrar vinnutækni og álagskvilla.
Allir vita það að bílvél sem er illa
stillt eyðir meira eldsneyti en rétt
stillt vél. Það segir sig sjálft að ef
líkaminn vinnur vitlaust og notar
30-40% meiri orku í framkvæmd
verkefna vegna rangrar tækni er
meiri hætta á vöðvabólgum og öðr-
um sambærilegum kvillum.
Það er líkamanum eðlislægt að
vinna á eins auðveldan og hag-
kvæman hátt og hægt er. Nútíma
lifnaðarhættir og störf einkennast
af hraða og einhæfni sem veldur
því að oft höfum við ekki tíma til
að hugsa áður en framkvæmt er.
Við verðum þrælar vanans sem
gerir það að verkum að við hugum
ekki nægilega vel að starfsaðstöðu,
notum ekki hjálpartæki og gleym-
um því að líkaminn er einnota hlut-
ur.
Unnt er að koma í veg fyrir
slæma vinnutækni og þannig
álagskvilla með því að vanda vel
til kennslu í réttum vinnubrögðum
og fræðslu um að vinna hlutina á
sem auðveldastan hátt. Á mörgum
vinnustöðum erlendis eru til vinnu-
lýsingar á þeim störfum sem fólk
vinnur. Þar er gerð grein fyrir því
hvers er krafist af þeim sem verkið
vinnur, hvernig á að gera það og
hvaða hættur leynast í því sem
gert er.
Ennfremur er fólk hvatt til að
nota hjálpartæki og vinna fyrir-
byggjandi að ýmsum þáttum t.d.
með líkamsrækt og hléliðkun.
Betra er að nota tíma í það að
kenna starfsmanni rétt handbrögð
en að eiga það á hættu að hann
þrói með sér álagskvilla eða valdi
slysi sem síðan leiðir til íjarveru frá
vinnu í lengri eða skemmri tíma.
Einnig er mikilvægt að fylgjast með
því hvernig hlutirnir vinnast því oft
gleymir fólk sér og fer að vinna
hlutina rangt eftir því sem tímar
líða.
Höfundur er sjúkraþjálfari.
Hjúkrunarfélag íslands:
Ástand óvissu og öryggisleysis
„AÐALFUNDUR Reykjavíkurdeildar Hjúkrunarfélags íslands mót-
mælir harðlega aðför heilbrigðisráðherra að heilbrigðiskerfinu. Með
aðgerðum sinum héfur ráðherra tekist að skapa óvissu og öryggis-
leysi bæði hjá þiggjendum og veitendum þjónustunnar. Sem dæmi
iná nefna einstrengisleg vinnubrögð í málefnum Landakotsspítala,"
segir í frétt frá félaginu.
Þá segir einnig: „Samdráttur í
ijárveitingum til heilbrigðismála
mun leiða af sér aukið vinnuálag á
starfsmenn heilbrigðiskerfisins sem
var ærið fyrir og gera þeim erfið-
ara um vik að viðhafa fagleg vinnu-
brögð.
Hjúkrunarfræðingar eru þó sér-
staklega ósáttir við hversu lítill fyr-
irvari gefst til að endurmeta og
skipuleggja breytingar á heilbrigð-
isþjónustunni.
Ógerningur er að koma auga á
uppbyggileg markmið með ákvörð-
un ráðherra um niðurskurð og til-
færslu verkefna milli sjúkrahús-
anna í Reykjavík heldur bera þær
vitni um einstefnu og gerræðisleg
vinnubrögð. Fundarmenn ætlast til
þes að stjórnvöld taki fulla pólitíska
ábyrgð á því hvar eigi að draga úr
þjónustunni eða fella hana niður.“
UTyHLU
(5*5®% 0PIÐ LAUBAHDABA KL■ 10-16
TEPPI - DÚKAR - FLÍSAR - PARKET - MOTTUR
30—70%
Flísar á veggi og góli
nú lækkun
Höganes - hvítar 15x15 cm
Höganes - gráar 15x15 cm
Flaba - marmor 20x25 cm
Eollo - gráar 20x20 cm
Carrara - Ijósar 30x30 cm
20—30%
Armstrong-golfdukur 2ja, 3ja og 4ra m breiður
Þarf ekki að lima!
Boutique - 2mm þykkur
Spectrum - 3mm þykkur
Balaflor ■ 2mm þykkur
15—40%
Teppiírúllum
1.269
1.576
916
5
22%
23%
Sahara- 3 lltir
Varia - blátt
Álafoss - 4 litir
1.433
4.300
2
20%
35%
19%
Boeihparket - norskt gæðaparket
15% staðgmðsluatsláttur
Filtteppi í400 cm.
Verö áður kr. 406.-I\lú kr. 345.-
15% verðlækkun
Ymsar gerðir - margar stærðir
15—3m verðlækkun
Dreglar og úyramottur-15% afSláttUP
Allt að 70% afsláttur
Eurokredit 11 alborganir
SIÐASTI DAGUfí - OPIÐ TIL KL. 16
TEPPABUÐIN
Gólfefnamarkaður, Suðurlandsbraut 26, sími 91-681350
NISSAN
ODYR, LIPUR, RUMGOÐUR OG SPARNEYTINN SUNNY,
SJÁLFSKIPTUR EÐA 5 GÍRA
SUNNY