Morgunblaðið - 07.05.1991, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 1991
49
VESTMANNAEYJAR
Fremur lítil þátttaka 1. maí
Stéttarfélögin í Vestmannaeyjum efndu til kröfu-
göngu og útifundar á Stakkagerðistúni 1. maí.
Fremur lítil þátttaka var í hátíðarhöldunum sem fóru
fram í þokkalegu veðri.
Fulltrúar Verkakvennafélagsins Snótar, Verkalýðs-
félags Vestmannaeyja og Starfsmannafélags Vest-
mannaeyja fluttu ávörp á útifundinum. Stella Hauks-
dóttir söng baráttusöngva og síðan var slegið á létta
strengi, gamanmál flutt og hljómsveitin Papar og
nokkrir Eyjasöngvarar fluttu fundarmönnum létt lög.
1. maí kaffi var síðan í Alþýðuhúsinu í Eyjum.
Grímur
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Frá 1. maí hátíðarhöldunum í Eyjum.
TVÍDRANGAR
Maclachlan var farinn
að óttast stöðnun
sbunwuh
Leikarinn Kyle Maclachlan, sá er
leikur leynilögreglumanninn
Dale Cooper í framhaldsþáttunum
um Tvídranga segist óttast töluvert
að staðna í hlutverki „Coop“ , en
það er gælunafn lögreglumannsins
í þáttunum. „Þetta má enginn mis-
skilja, ég bókstaflega elska típuna
og hef aldrei áður fengið jafn spenn-
andi og skemmtilegt hlutverk. En
þetta er orðið svo langt að mér
finnst ég þurfa að reyna meira í
leiklistarbransanum til þess að
staðna ekki,“ segir Maclachlan.-
Það var af þessum sökum sem
Maclachlan tók að sér hlutverk Ray
Manzareks í kvikmynd Olivers
Stone um Jim Morrison og rokk-
sveitina „The Doors“. Og hann hef-
ur gert gott betur, gengið frá samn-
ingum um stór hlutverk í tveimur
kvikmyndum til viðbótar, einni sem
sjálfur Robert DeNiro leikstýrir og
næstu kvikmynd Davids Lynch,
„Ronnie Rocket“. Þrátt fyrir þetta
er hann samingsbundinn framleið-
endum Tvídranga, að leika „Coop“
allt þar til yfir lýkur, að þættirnir
renna sitt skeið eða að Coop verður
skrifaður út úr þeim. „Hlutverkið í
mynd Olivers Stone kom eins og
himnasending, nákvæmlega þegar
ég var að byija að finna fyrir pirr-
ingi og leiða yfir því að tilbreyting-
arleysið væri að ná tökum á mér,“
segir Maclachlan.
Maclachlan, sem er 32 ára gamall
býr nú með hinni tvítugu Löru Flyun
Boyle sem leikur hina sómakæru
Donnu í Tvídröngum. Hann segir
hana hafa „opnað sig“. Hér áður
hafi hann alltaf haft tilhneigingu til
að „hverfa inn í sig“ en Lara hafi
breytt því. Hann sé bæði opnari og
lífsglaðari eftir að hann hitti Löru
og hóf sambýli með henni. Sjálf er
Lara ung og lítt reynd í karlamál-
um, en segir að hún hafi eigi að
síður átt þá nokkra kærastana á
skólaárum sínum. Hvað Kyle varði
þá sé hann stóra ástin og hún reikni
ekki með því að líta við öðrum til
dauðadags.
Lara Flynn hefur sömu sögu að
Kyle Maclachlan í gervi sínu í
kvikmynd Olivers Stone um Jim
Morrison.
segja um hlutverk sitt í Tvídröngum.
Hlutverk hennar er stórum minna
heidur en hlutverk Maclachlans, en
mikilvægt þó. En hún segir að
stöðnunar hafí verið farið að gæta
þrátt fyrir að góður liðsandi ein-
kenndi samstarfsfólkið hjá Tvíd-
röngum. Hún lék því nýlega í kvik-
myndinni „Mobsters" á móti Ric-
hard Grieco. Hún segir að framleið-
endur og leikstjórar taki sér vel, en
segi gjanan, „Ef Vinona Ryder fær
ekki hlutverkið, hlýtur þú að fá
það.“ Ryder þessi er ung og upp-
rennandi stórstjarna sem leikstjórar
býtast mikið um. Lara segir að þetta
hafí í fyrstu farið mjög í taugarnar
á sér, en svo hafi hún uppgötvað
nokkuð: „Sú var tíðin að ég var al-
veg handviss um að ég fengi aldrei
neitt að gera af viti í Hollywood og
þyrfti að skrimta á smáhlutverkum.
Nú keppi ég við Vinonu Ryder. Þá
er að átta sig á því að í Hollywood
eru framleiddar svo margar kvik-
myndir að Vinona getur ekki leikið
í þeim öllum,“ segir Lara.
Þau Kyle Maclachlan og Lara
Flynn Boyle eru sammála um að
framleiðendur Tvídranga hafí gert
nokkra skyssu er vinsældir þáttanna
fóru dvínandi fyrir nokkru síðan.
„Lengst af voru mikil gæði einkenni
þáttanna. Fagmannleg vinnubrögð,
leyndardómshula og óvæntar uppá-
komur héldu fólki í spennitreyjum.
En þegar upp komst um morðingja
Lauru og farið var inn á nýjar braut-
ir misstu margir áhugann. í stað
þess að vinna sig út úr því gripu
framleiðendur Tvídranga til þéss
ráðs sem allt of margir á undan
þeim hafa gert. Þeir fóru að tefla
fram nýjum stúlkum, ungum, falleg-
um stúlkum og í stað þess að taka
á efninu var farið að skjóta inn
krassandi ástarsenum og smánekt.
Það gengur ekki til lengdar," segja
Maclachlan og Boyle.
Lara Flynn Boyle, starfssystir
og sambýliskona Maclachlans.
Tréklossarnir með beygjanlegu sólunum
nú aftur fóanlegir.
Vinsælu dönsku
herrainniskórnir
komnir aftur
GEísiPi
Ath.: Greitt er iyrir við-
skiptavini í bifreiðageymslu
Vesturgðtu 7
BYGGINGAVORUR
SUÐURLANDSBRAUT 4. SÍMI 33331.
HE