Morgunblaðið - 07.05.1991, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MAI 1991
Minning:
Jóhann M. Kjartans-
son verslunarmaður
Fæddur 5. febrúar 1921
Dáinn 29. apríl 1991
Með Jóhanni er fallið frá 18. af
þeim 72 skólasystkinum er útskrif-
uðust úr Verzlunarskóla íslands
vorið 1940.
Jóhann andaðist í Borgarspítal-
anum 29. apríl eftir stutta og
grimma glímu við dauðann, en
honum hafði aldrei orðið misdæg-
urt um ævina.
Við Jói, eins og allir kölluðu
hann, vorum nágrannar af Þórs-
götunni svo stutt var í gamla
„Verzló“ á Grundarstígnum og
mörg sporin þangað saman. Við
vorum því vinir, nágrannar og
skólabræður og kynni okkar hafa
ætíð haldist. Jói var indæll persón-
uleiki, þó stundum dálítið hijúfur
á yfirborðinu sem maður fljótt sá
í gegnum, skemmtilegur maður og
sífellt gamansamur.
Hann var fæddur að Presthúsum
í Mýrdal 5. febrúar 1921 og því
nýlega orðinn sjötugur. Foreldrar
hans voru Ingibjörg Jóhannsdóttir
og Kjartan Finnbogason, söðla-
smiður. Var hann einn 9 systkina
sem öll eru látin nema 3 systur,
Anna, Sigríður og Asdís sem starf-
aði yfir 30 ár í aðalumboði Happ-
drættis DAS.
Minning:
Fæddur 8. desember 1900
Dáinn 1. mai 1991
Þegar virtur og elskulegur sam-
borgari, faðir og afi flyst yfir
landamæri lífs og dauða, myndast
tóm í hjartanu og söknuður verður
allsráðandi.
Smátt og smátt fara svo minn-
ingarnar að streyma fram. Þær eru
ljúfar og aftur fer að rofa til.
Hugurinn fyllist þakklæti fyrir að
hafa fengið að vera að njótandi
ljúfrar hlýju og glaðværðar þess,
sem var að kveðja.
Við erum þakklát fyrir að erfið-
um veikindum er lokið og fögnum
í vissunni um, að vinur okkar sé
kominn til betri heima, laus við
áhyggjur og amstur jarðlífsins, til
fundar þeirrar góðu konu, sem svo
snemma var kvödd úr lífi hans og
átti ást hans og þrá svo fölskva-
lausa.
í dag, þriðjudaginn 7. maí, verð-
ur gerð frá Fossvogskirkju útför
tengdaföður míns, Hartwig Toft,
fyrrverandi kaupmanns, en hann
andaðist í Landakotssþítala 1. maí
eftir erfiða sjúkdómslegu.
Hartwig var fæddur aldamóta-
árið í Aabenraa á Suður-Jótlandi,
þriðji í röð átta bræðra, sem nú
eru allir látnir. Foreldrar þeirra
bræðra voru hjónin Margret Ar-
entsen og Nis Toft og bjuggu þau
í Aabenraa alla sína ævi, þar sem
Nis starfaði síðustu ár sín sem rit-
stjóri hjá „Sönder-Jylland Sosial-
demokrat“.
Það voru erfiðir tímar á Suður-
Jótlandi í upphafi aldarinnar, ekki
síður en hér. Þó Hartwig lenti aldr-
ei í beinum átökum stríðsins 1914-
Hans stóra heillaspor steig hann
6. ágúst 1949 er hann giftist eftir-
lifandi konu sinni, Soffíu Bjarna-
dóttur, og var hjónaband þeirra
sérlega farsælt alla tíð. Þau eign-
uðust 4 börn: Ingibjörgu, gift Þóri
Gunnarssyni veitingamanni og
eiga þau 2 börn, Kjartan Odd bank-
amann, giftur Björk Jónsdóttur og
eiga 2 börn, Jóhann Egil er starfar
í Danmörku, í sambúð með Guðríði
Dögg Ilauksdóttur og eiga þau líka
2 börn, og Önnu Sigríði er nemur
arkitektúr í Danmörku, ógift.
Eftir útskrift starfaði Jói fyrstu
árin hjá hernum, en síðar við inn-
flutningsverzlun á skrifstofuvörum
með bróður sínum, Finnboga
Kjartanssyni, er var pólskur kons-
úll, en eftir dauða hans tók Jói við
fyrirtækinu og rak allt til seinasta
árs, er hann gerðist húsvörður hjá
Krabbameinsfélaginu.
Jóhann kaus að lifa hljóðlega
og var kröfuspar á lífsins lysti-
semdir, en samt gleðinlaður í góðu
meðallagi þegar það átti við.
Ég kveð góðan dreng með virð-
ingu.
Við skólasystkinin öll í EXELL
þökkum Jóhanni Kjartanssyni
samfylgdina og ánægjuleg og
ógleymanleg kynni og kveðjum
hann með orðum okkar gamla og
1918, ólst hann upp við mikla
vinnu og þröngan kost.
Ungur hóf tengdafaðir minn
verslunarstörf. Hann stundaði nám
við Den Jyske Handelshöjskole í
Aarhus. Árið 1923 réðst Hartwig
til íslandsferðar á vegum Richards
N. Braun í Hamborg, sem þá rak
verslanir í Reykjavík, á Akureyri
og ísafirði. Hjá honum starfaði
hann til ársins 1937, er eigenda-
skipti urðu á versluninni í
Reykjavík og Ragnar H. Blöndal
tók við, en hjá honum starfaði
hann áfram til ársins 1942.
Eftir að Hartwig hætti störfum
hjá R. H. Blöndal stofnaði hann
sitt eigið fyrirtæki, Verslun H.
Toft, lengst af á Skólavörðustígn-
um. Að því fyrirtæki starfaði hann
meðan heilsa entist eða til ársins
4979.
Áður en íslandsferðin réðst,
hafði Hartwig mætt lífsförunaut
sínum, konuefninu Christine
Harms frá Gr. Grönau við Lúbeck
i Þýskalandi. Hún kom til íslands
síðar á sama ári og voru þau gefin
saman á ísafirði, en þar starfaði
hann þá á vegum Braunsverslun-
ar. Stuttu síðar fluttust þau til
Reykjavíkur og starfaði hann við
Braunsverslun þar.
Christine og Hartwig eignuðust
Ijórar dætur, þær eru: Sigrid, gift
undirrituðum, búsett á Egilsstöð-
um, Irmgard, gift Leo Munro, bú-
sett í Reykjavík, Margrét, gift
Birni Þór Ólafssyni, búsett á Ólafs-
firði, Anna, gift Indriða Indriða-
syni, búsett í Reykjavík.
Árið 1958 lést Christine mjög
snögglega. Það var tengdaföður
mínum mikið áfall, sem markaði
góða skólastjóra, síðar útvarps:
stjóra, Vilhjálms Þ. Gíslasonar: „í
guðs friði.“
Ekkju hans, börnum, tengda-
börnum, barnabörnum og systrum
vottum við dýpstu samúð.
Jarðarför hans fer fram frá
Bústaðakirkju kl. 13.30 í dag.
Baldvin Jónsson
Fáein kveðjuorð frá Krabba-
meinsfélagi Islands. Allir vilja
verða gamlir en engir vera það.
Það eru mikil sannindi fólgin í
þeim orðum. Það var ömurlegt
hlutskipti að' ná háum aldri, en
þurfa að standa frammi fyrir þeirri
djúp spor í ævi hans. Dæturnar
og börn þeirra hafa verið hans
sólargeislar. Eftir andlát Christine
hefur hann verið í heimili hjá Irm-
gard og Leó og þeirra börnum,
umvafinn ástúð og hlýju. Alls stað-
ar, þar sem Hartwig var, fiykktust
börnin til hans og gátu unað hjá
honum svo tímum skipti.
staðreynd að vera öðrum háður
um allar bjargir. Nú á síðari tím-
um, tímum velmegunar og fram-
fara, hefur þetta því miður orðið
hlutskipti æ fleiri.
Þetta varð ekki hlutskipti Jó-
hanns M. Kjartanssonar og má það
vera nokkur huggun ástvinum
hans, sem þurftú að sjá honum á
bak allt of fljótt. Kynni okkar,
starfsfólks Krabbameinsfélagsins,
af Jóhanni urðu ekki löng. Hann
kom til starfa hjá félaginu í júní-
mánuði á síðasta ári sem húsvörð-
ur. Jóhann hafði um langt árabil
stundað viðskipti hér í Reykjavík
þar sem hvers konar innflutningur
skipaði öndvegi. Þess vegna nefndi
hann það í upphafi okkar sam-
starfs, að þessi tvö störf, húsvarð-
arstarfið og viðskiptasviðið, færu
ekki endilega vel saman.
En annað kom á daginn. Hann
hafði óvenjugóða tilfinningu fyrir
því, hvað hann var að gera og
livað þurfti að gera, en það er
kunnara en frá þurfi að segja, að
á stóru heimili þarf að hafa auga
á hveijum fingri. Þessi eiginleiki
Jóhanns samfara snyrtimennsku
og hárfínu skopskyni gerði alla
samvinnu við hann einstaklega
ánægjulega.
Fáum hef ég kynnst um dag-
ana, sem þekkti fólk og mannlíf
stríðsáranna í Reykjavík betur en
Jóhann. Mannlíf í Reykjavik var
býsna fjölskrúðugt þá eins og nú,
en í frásögn Jóhanns í'annst manni
það beinlínis blasa við sér.
Við kveðjum góðan dreng með
virðingu og þökk.
Olafur Þorsteinsson
Ekki verður svo skilið við minn-
ingu um þennan hugljúfa mann,
að ekki sé minnst á ást hans á
landinu. Ilann var mikill náttúru-
skoðandi. Spor hans liggja víða um
nágrenni Reykjavíkur og vítt um
landið. Esjan heillaði hann. Hann
unni henni og þekkti hana öðrum
betur.
Oft sárnaði honum illa um-
gengni fólks um landið og tók þá
til hendi, þar sem illa var um geng-
ið á áningarstað.
Heilsunni hrakaði, sjón og heyrn
var smám saman frá honum tekin.
En lífsþrótturinn, • léttleikinn og
viljinn til að vera sjálfum sér nóg-
ur entist til hins síðasta.
Hér erum við svo eftir, fjölskylda
og ferðafélagar. Við eigum ljúfar
minningar, sem aldrei verða frá
okkur teknar. Við þökkum um-
hyggju og góðvild og biðjum Guð
fyrir sálum ástvinanna, sem nú
eftir langan aðskilnað hafa sam-
einast.
Guð blessi minningu hjónanna
Christine og Hartwig Toft.
Magnús Pálsson
45 -
Isboltar#
Festingameistarar® Cf o
Heildsala — smásala
BOLTAR,
rafgalvaniseraöir,
ryðfríir og
heitgalvaniseraðir.
Lfmtrésboitar,
venjulegir (raf-
galvaniseraðir) og
heitgalvaniseraðir.
Opið frá 8 — 18
Laugardaga 9-13
STERKIR
ÞÆGILEGIR
FALLEGIR
Útsölustaðir:
Fjarðarkaup, Hafnarfirði
Kaupstaður Mjódd, Reykiavík
Mikligarður v/ Sund, Reykjavík
Skagaver, Akranesi
Borgarsport, Borgarnesi
Bjarnabúð, Tálknafirði
KEA Vöruhús, Akureyri
Skóbúð Húsavíkur, Húsavík
Verslunarfél. Austurlands,
Egilsstöðum
Vöruhús K.Áu, Selfossi
Samkaup, Keflavik
Útilíf,Glæsibæ, Reykjavík
Macintosh fyrir byrjendur
Works - ritvinnsla, gagnasöfnun, töflureiknir og stýrikerfi á .
15 klst námskeiöi fyrir byrjendur! Fáiö senda námsskrá.
V Tölvu- og verkfrœöiþjónustan ^
^ Grensásvegi 16 - flmm ár í forystu ^
SYLVANIA
HEILDSÖLUDREIFING
Rafkaup
ÁRMÚLA 24, RVÍK.
S í M I : 6 8 1 5 7 4
Hartwig Toft
fv. kaupmaður
ÖRKIN 1070-11