Morgunblaðið - 07.05.1991, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MAI 1991
31
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Sýning á verkum Engilberts Gislasonar var fyrsti liðurinn í dagskrá
M-hátíðar í Eyjum.
Vestmannaeyjar;
Hátíðardagskrá M-hátíðar
Vestmannaeyjum.
M-HÁTÍÐ í Vestmannaeyjum í
tengslum við M-hátíð á Suðurlandi
stendur nú yfir. Ýmsir menningar-
viðburðir tengjast M-hátíðinni
sem standa mun yfir næstu mán-
uði.
Menningarmálanefnd Vestmanna-
eyjabæjar hefur séð um allan undir-
búning M-hátíðarinnar í Eyjum.
Fyrsti liður hátíðarinnar var opnun
málverkasýningar á verkum Engil-
berts Gíslasonar, listmálara frá Vest-
mannaeyjum, í Safnahúsinu.
Sérstök hátíðardagskrá M-há-
tíðarinnar var svo haldin í Bæjarleik-
húsinu fyrir skömmu. Þar voru flutt
ávörp, leikarar lásu úr verkum og
söngvarar stigu á svið. Fjöldi Eyja-.
manna fylgdist með liátíðardag-
skránni og var flytjendum vel fagnað
af ánægðum áhorfendum.
Grímur
ALMAININATRYGGINGAR, helstu bótaflokkar
1. maí 1991 Mánaðargreiðslur
Elli / örorkulífeyrir (grunnlífeyrir) 11.819
'A hjónalífeyrir 10.637
Full tekjutrygging 21.746
Heimilisuppbót 7.392
Sérstök heimilisuppbót 5.084
Barnalífeyrirv/1 barns 7.239
Meðlag v/1 barns 7.239
Mæðralaun/feðralaun v/1 barns 4.536
Mæðralaun/feðralaun v/ 2ja barna 11.886
Mæðralaun/feðralaun v/ 3ja barna eða fleiri 21.081
Ekkjubætur / ekkilsbætur 6 mánaða 14.809
Ekkjubætur / ekkilsbætur 12 mánaða 11.104
Fullurekkjulífeyrir 11.819
Dánarbæturí8ár(v/slysa) 14.809
Fæðingarstyrkur 24.053
Vasapeningarvistmanna 7.287
Vasapeningarv/sjúkratrygginga 6.124 Daggreiðslur
Fullirfæðingardagpeningar 1.008,00
Sjúkradagpeningareinstaklings 504,40
Sjúkradagpeningar fyrir hvert barn á framfæri . 136,90
Slysadagpeningareinstaklings 638,20
Slysadagpeningarfyrirhvertbarn áframfæri .. 136,90
FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM - HEIMA
6. maí.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur (sl.) 108,00 50,00 88,39 23,000 2.032.986
Þorskur smár 50,00 50,00 50,00 2,240 112.000
Þorskur (ósl.) 83,00 50,00 60,36 6,742 406.980
Ýsa (sl.) 124,00 50,00 78,75 10,577 833.005
Ýsa (ósl.) 110,00 102,00 108,86 401,00 43.654
Karfi 38,00 37,00 37,01 5,106 188.975
Ufsi 45,00 45,00 45,00 0,907 40.815
Steinbítur 38,00 35,00 35,23 13,185 464.507
Skarkoli 112,00 45,00 46,00 7,278 334.817
Langa 36,00 20,00 20,36 1,549 31.540
Lúða 320,00 220,00 268,72 0,633 170.100
Rauðmagi 30,00 30,00 30,00 0,061 1.830
Keila 24,00 24,00 24,00 0,020 480
Hrogn 20,00 20,00 20,00 0,078 1.560
Blandað 15,00 15,00 15,00 0,052 780
Undirmál 40,00 20,00 38,59 2,274 87.752
Samtals 64,12 74,103 4.751.781
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 126,00 50,00 72,04 126,501 9.112.671
Ýsa (ósl.) 108,00 66,00 80,34 84,236 6.767.266
Karfi 34,00 15,00 30,25 10,012 302.879
Keila 23,00 15,00 19,29 6,829 131.724
Langa 65,00 16,00 44,82 3,776 169.251
Svartfugl 68,00 66,00 67,61 0,184 12.440
Hrogn 120,00 50,00 119,07 0,755 89.900
Steinbítur 45,00 27,00 31,11 4,615 143.557
Lúða 360,00 295,00 300,04 0,385 115.515
Ufsi 46,00 10,00 32,29 19,494 629.553
Skarkoli 50,00 39,00 49,04 0,980 48.060
Skata 178,00 92,00 130,76 0,071 9.284
Grálúða 79,00 76,00 76,72 30,000 2.301.500
Síld 68,00 66,00 67,61 0,065 2.015
Blandað 12,00 10,00 ■10,05 0,970 9.752
Undirmálsfiskur 58,00 50,00 52,05 0,930 48.410
Samtals 68,65 289,803 19.894.799
Úrslit í mælsku-
keppni
grunnskóla
Reykjavíkur
I VETUR hefur staðið yfir
keppni i mælskulist, 10 skólar
byrjuðu keppnina og hefur hún
verið jöfn og spennandi.
Árbæjarskóli og Laugalækjar-
skóli keppa til úrslita í Hólabrekku-
skóla þriðjudaginn 7. maí k. 16.30.
í beinu framhaldi af fegurðar-
samkeppni íslands verður umræðu-
efnið, sem valið var fyrir fjórum
vikum, „Skapar fegurðin hamingj-
una“.
Borgarfjörður:
Kleppjárns-
reykjaskóli
30ára
1961-1991
Á ÞESSU ári lýkur 30. starfsári
Kleppjárnsreykjaskóla í Reyk-
holtsdal. Nemendur og starfs-
menn fagna þessum áfanga með
hátíðardagskrá við skólalok á
uppstigningardag 9. mai nk.
Samkoman hefst í Logalandi kl.
14.00 en síðan verður haldið í
skólann þar sem nemendur hafa
komið fyrir ýmsu, sem minnir á
liðna tíð í skólastarfinu, og gest-
ir þiggja kaffisopa. Skólinn
væntir þess að sem flestir nem-
endur og starfsmenn frá fyrri
árum sjái sér fært að heimsækja
hann þennan dag og fagna tíma-
mótunum og rifja upp gamla
daga.
í fyrstu voru allir nemendur skól-
ans í heimavist, enda komu þeir úr
öllum hreppum Borgarfjarðarsýslu
norðan Skarðsheiðar. Á áttunda
áratugnum var Andakílsskóli á
Hvanneyri stofnaður,.en þar hafði
þá um árabil verið starfrækt útibú •
frá Kleppjárnsreykjaskóla fyrir
yngstu nemendurna á staðnum og
nágrenni hans. Þar eru nú nemend-
ur úr Andakíl og Skorradal til 12
ára aldurs en koma þá að Klepp-.
járnsreykjum. Heimavist var aflögð
fyrir rúmum áratug.
Nemendafjöldi undanfarin ár
hefur verið á milli 110 og 120 í 10
bekkjum, þ.e.a.s. allur grunnskólinn
og starfsmenn nálægt 25, þar af
11 kennarar og skólastjóri.
Nú er vorprófum lokið og nem-
endur skólans iðka dans, sund og
söng, en vinna auk þess að ýmiss
konar samantekt á sögu skólans.
Afrakstur þessarar iðju nemenda
verður síðan uppistaðan í hátíðar-
dagskrá á skólalokum, uppstigning-
ardag, 9. maí.
- Bernhard.
Þ.Þ0R0BIM5S0W &CD
[30130000.
gólfflísar- kverklistar
ÁRMÚLA29, SÍMI 38640
UR DAGBÓK
LÖGREGLUNNAR í REYKJAVÍK:
3. - 6. maí 1991.
Samtals er 501 bókun færð í
dagbók lögreglunnar um helgina.
Þar af eru 5 bókanir vegna um-
ferðarslysa, 28 vegna árekstra,
85 bókanir vegna brota á umferð-
arlögum og rúmlega 100 bókanir
voru tengdar ölvun fólks á einn
eða annan hátt.
16 einstaklingar leituðu sjálf-
viljugir ásjár lögreglunnar um
helgina og fengu að leggja sig í
fangageymslunum þar sem þeir
áttu hvergi annars staðar höfði
sínu að halla. Lögreglan hefur
ekki talið eftir sér að skjóta skjóls-
húsi yfir þá sem eiga í slíkum
vandræðum, en hins vegar má
telja það álitamál hvort fangakle-
far séu boðlegar aðstæður fyrir
fólk, sem á við mikla félagslega-
og læknisfræðilega erfiðleika að
stríða. Hlutaðeigandi yfiivöldum
og hjálparsamtökum hefur ítrekað
verið bent á nauðsyn þess að hlúð
sé að þessu fólki á viðunandi hátt,
en án teljandi viðbragða.
Auk þessa fólks þurfti að vista
33 aðra í fangageymslunum
vegna ýmissa atvika, s.s. ölvuna-
róláta, slagsmála, innbrota og
heimilisófriða.
Tilkynnt var um 8 innbrot.
Brotist var inn í fyrirtæki á Árt-
únshöfða, í bíl við HríSateig, í
söluturn við Álfheima, í bíl á bíla-
sölu í Skeifunni, í verslun við
Laugaveg, í matvöruverslun við
Baldursgötu og í söluturn við
Langholtsveg. I öllum tilvikum
höfðu þjófarnir sama og ekkert
upp úr krafsinu, en hins vegar
voru skemmdirnar því meiri.
5 þjófnaðir voru tilkynntir.
Tösku var stolið á skrifstofu við
Landakotskirkju, þremur hljóð-
nemum á skemmtistað við Árm-
úla, seðlaveski af manni á
skemmtistað við ofanverðan
Laugaveg og reiðhjóli þar sem það
var við hús í Ljósheimum.
Skemmdarverk var unnið á bíl
á bílastæði við Háskólabíó. Þetta
er í þriðja sinn sem þar er unnið
skemmdarverk á bíl á hálfum
mánuði.
Fjarlægja þurfti 5 bíla með
kranabíl frá Bíóborginni við
Snorrabraut á föstudagskvöld.
Bílunum hafði verið lagt ólöglega
og þannig að þeeir hindruðu eðli-
lega umferð. Þetta er algengt
vandamál á þessum stað. í þessum
tilvikum þurftu eigendur bflanna
að sækja þá í Holtaportið og
greiða flutningsgjald. Dýr bíóferð
það.
Á laugardagsmorgun var til-
kynnt um bílveltu í Skipholti.
Nokkrir líkamlega „sterkir" en
andlega „veikir" strákar höfðu
velt mannlausum Trabant á göt-
unni án þess þó að nokkuð sæi á
malbikinu. Tjónið á Trabantinum
var óverulegt.
Á laugardagsmorgun var öl-
vaður maður handtekinn við inn-
brot í matvöruverslun við Baldurs-
götu. Maðurinn er. einnig grunað-
ur um ölvun við akstur, en bíll
hans fannst fyrir utan matvöru-
verslunina og er ekki talið líklegt
að hann hafi komist þangað af
sjálfsdáðum.
Á sunnudagskVöld var bíll
mældur í radar á 139 km/klst. á
Reykjanesbraut við Sæbraut, en
leyfður hámarkshraði á götunni
er 60 km/klst. Ökumaðurinn var
færður á lögreglustöðina og svipt-
ur ökuréttindum til bráðabirgða.
Lögreglan verður með radarmæl-
ingar á götum borgarinnar næstu
daga. Sektir vegna brota á um-
ferðarlögum hafa nýlega hækkað
verulega og eru það því tilmæli
til þeirra, sem telja sig hafa þörf
fyrir að nota peninga sína í annað
en sektir, að haga akstri sínum í
samræmi við lög og reglur.
Eitt atriði úr myndinni „White Palace“.
Laugarásbíó sýnir mynd-
ina „White Palace“
LAUGARÁSBÍÓ hefur tekið til
sýningar myndina „White
Palace“. Með aðalhlutverk fara
James Spader og Susan Sarand-
on. Leikstjóri er Luis Mandoki.
Hinn 27 ára gamli ekkjumaður
Olíuverð á Rotterdam-markaði, síðustu tíu vikur, 22. feb. - 3. maí, dollarar hvert tonn
Max Baron (James Spader) vinnur^
f auglýsingabransanum og býr í
lúxus-íbúð á meðan hin 43 ára
Nora Baker (Susan Sarandon) af-
greiðir í skyndibitastaðnum White
Palace og býr í subbulegri íbúð í
sóðaiegu húsi. Þetta ólfka par hitt-
ist af tilviljum og eyðir nóttinni
saman og það gjörbreytir lífí þeirra
beggja.
200-
175-
150-
125-
100-
75-
50-
25-
SVARTOLÍA
70/
69
22F 1M 8. 16. 22. 29. 5.A 12. 19. 26. 3M
■ TÓNLISTARSKÓLI FÍH
stendur fyrir tónleikum á Púlsin-,
um, Vitastíg 3, í kvöld, þriðjudag-
inn 7. maí, kl. 22.00. Þar koma
fram 5 jazzhljómsveitir skólans sem
starfað hafa í vetur, undir leiðsögn
Tómasar R. Einarssonar, Sigurð-
ur Flosasonar, Edwards Fred-
riksen og Stefáns Hjörleifssonar.
Margir efnilegir jazzspilarar koma
fram á tónleiknum en aðgangur er
ókeypis og öllum heimill meðan
húsrúm leyfir.