Morgunblaðið - 07.05.1991, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUÐAGUR 7. MAÍ 1991
Spánn:
Málglaður flokksbróðir
setur Gonzales í vanda
Madrid. Frá Ragnari Bragasyni, fréttaritara Mor^unblaðsins.
ÞEGAR José María Benegas, rit-
ari Sósíalistaflokks Spánar,
spjallaði við kunningja sinn í
bílasímanum vissi hann ekki að
ókunnir menn sætu með talstöð
og tækju samtölin upp á segul-
band. Um það hafði hann enga
hugmynd fyrr en útvarpsstöðin
SER sendi upptökurnar út svo
alþjóð gæti heyrt.
Benegas hafði ekki skafið af
hlutunum í samtölunum. Flokks-
bróður sinn og forsætisráðherra
landsins, Felipe Gonzales, kallaði
hann „Guð“, sagði hann vandamál
fyrir flokkinn og að honum yrðu á
slæm mistök. Um ákvarðanir ríkis-
stjórnarinnar almennt sagði hann
að þær væru „brandari".
Þegar haft er í huga að ríkis-
stjórnin er einungis skipuð ráðherr-
um úr Sósíalistaflokknum, sem hef-
ur haft hreinan meirihluta á
spænska þinginu frá 1982, þá leiða
þessi samtöl þriðja áhrifamesta
manns flokksins í ljós umtalsverðan
ágreining á meðal sósíalista. Tvær
fylkingar takast þar á. í fyrsta lagi
þeir sem styðja Gonzales og efna-
hagsmálaráðherra hans, Carlos Sol-
chaga. í öðru lagi meirihlutinn, sem
fylgir Alfonso Guerra, fyrrverandi
varaforsætisráðherra, og hinum
málglaða Benegas að málum.
Grænland:
Hvalveiðimenn kaupa
ekki sprengiskutla
Kaupmannahðfn. Frá N.J. Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins.
GRÆNLENSKIR hvalveiðimenn hafa ekki orðið við kröfu um að
kaupa sprengiskutla til hvalveiða, sem innieiddir voru 1. maí á Grænl-
andi, m.a. að kröfu Alþjóðahvalveiðiráðsins.
Heimastjórnin fór fram á það við
bæjarstjórnir á Grænlandi að þær
sendu lista með nöfnum hvalveiði-
manna sem óskuðu eftir því að
kaupa sprengiskutla af Grænlands-
verslun. Að sögn útvarpsins á
Grænlandi, Gronlands Radio hafa
engir listar borist. Einstakir veiði-
menn sem hafa veiðiheimildir geta
eftir sem áður keypt skutla af
GraanlanHGverclnn
Heimastjórnin vill ekki hvika frá
kröfunni um notkun sprengiskutla
ef hvalveiðibyssur eru um borð í
hvalveiðibátum. Undanþága hefur
þó verið veitt 40 fiskimönnum á
opnum bátum til hrefnuveiða með
rifflum. Þær undanþágur fara allar
til bæjarfélaga þar sem hvalveiði-
heimild er fyrir hendi en enginn
bátur búinn hvalveiðibyssu.
Frá því Alfonso Guerra sagði af
sérvaraforsætisráðherraembættinu
skömmu eftir jól vegna hneykslis-
máls, sem varðaði þijá bræður
hans, hefur samband hans og for-
setans farið síversnandi. Þeir héldu
hins vegar fund sín á milli nokkrum
klukkustundum eftir að samtölun-
um var útvarpað og slíðruðu sverð-
in til að koma í veg fyrir að málið
hefði áhrif á bæjar- og sveitar-
stjórnakosningarnar 26. maí næst-
komandi. „Eftir kosningarnar verð-
ur Gonzales að ákveða hvort hann
vill fylgja stefnu flokksins eða Carl-
os Solchaga," lét einn þingmaður
Sósíalistaflokksins hafa eftir sér.
Benegas hefur kært útvarpsstöð-
ina og lýst því yfir að hann segi
ekki af sér. Að hans áliti er hér
um „símahryðjuverk" að ræða.
„Með verknaði sem þessum er óör-
yggi spænsku þjóðarinnar algjört,"
sagði hann.
LACmCYD
LETTSAPA
fyru' viðkvœma húð
Ungbörn hafa viðkvæma húð sem verður fyrir mik-
illi ertingu, t.d. á bleiusvæði. Þvottur með
Lactacyd léttsápunni dregur verulega úr kláða
og sviða ■ Lactacyd léttsápan hefur lágt pH-
gildi (3,5) eins og húðin sjálf
■ og styrkir því eðlilegar varn-
ir hennar ■
öcöcvd öctacyd
UIMfa rOBfiP •
Lactacyd léttsápan fæst í
helstu stórmörkuðum og
að sjálfsögðu í næsta
apóteki ■
HI
Mindszenty grafinn
i Ungveijalandi
Lík Jozsefs Mindszentys kardinála var grafið í heimalandi hans,
Ungveijalandi, á laugardag. Minszentys lést árið 1975, 83 ára að
aldri, í Austurríki, þar sem hann dvaldi í útlegð, og hafði gefið þau
fyrirmæli að hann skyldi ekki grafinn í Ungveijalandi fyrr en komm-
únistar færu frá völdum. Um 60.000 manns voru viðstaddir athöfn-
ina, sem fór fram við kirkjuna í Esztergom. Kirkjan var reist á ell-
eftu öld.
Sviss:
Kristilegir demókrat-
ar hlynntir aðild að EB
ZUrich. Frá Önnu Bjarnadóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
FLOKKUR kristilegra demókrata, CVP, í Sviss breytti um stefnu í
Evrópumálum um helgina og samþykkti að þjóðin ætti að sækja um
aðild að Evrópubandalaginu, EB, sem fyrst. Hann er fyrsti sviss-
neski stjórnarflokkurinn sem tekur svo afdráttarlausa afstöðu með
aðild. Flokkur sósíaldemókrata, SPS, er einnig hlynntur aðild, en
með fyrirvara þó.
Fijálslyndi flokkurinn, FDP, ætl-
ar að bíða niðurstöðu úr samninga-
viðræðum EB og Fríverslunarsam-
taka Evrópu, EFTA, um evrópskt
efnahagssvæði, EES, áður en hann
tekur endanlega afstöðu, en stór
hluti flokksmanna er hlynntur aðild.
Minnsti stjórnarflokkurinn, Þjóðar-
flokkurinn, SVP, er mest hikandi
um aðild.
Um 200 fulltrúar sátu fund CVP
um stefnuskrá flokksins fyrir
svissnesku þingkosningarnar, sem
verða haldnar í haust, um helgina.
Þess er ekki getið nákvæmlega í
stefnuskránni hvenær. þjóðin eigi
að sækja um aðild en í ræðu á fund-
inum kom fram að það ætti að
sækja um hana strax að EES-samn-
ingaviðræðunum loknum.
Umræða um framtíð Sviss í Evr-
ópu fer vaxandi. Almenningur leiðir
hana þó að mestu hjá sér þar sem
EES-viðræðurnar eru enn í höndum
sérfræðinga og ekki vitað hvað
kemur út úr þeim.
Bretland:
Boranir heimil-
aðar í Dounreay
St. Andrcws, frá Guðmundi Heiðari Frimannssym, frettantara Morgunblaðsins.
Skotlandsmálaráðherra bresku ríkisstjórnarinnar heimilaði að bora
6 þúsund borholur á landi kjarnorkustöðvarinnar i Dounreay í síðustu
viku.
Skotlandsmálaráðherrann, Ian
Lang, heimilaði í síðustu viku Nirex
að bora 6 þúsund borholur í landi
kjarnorkustöðvarinnar í Dounreay,
en Nirex er opinber bresk stofnun,
sem sér um geymslu kjarnorkuúr-
gangs.
Borholurnar eru undirbúnings-
rannsókn á jarðlögum í Dounreay
og á sjítVarbotninum norðurundan
vegna fyrirhugaðrar neðansjávar-
geymslu á kjarnorkuúrgangi. Tveir
staðir eru taldir koma til greina fyr-
ir slíka geymslu. Hinn er Sellafield
á norðvesturströnd Englands.
Samkvæmt skipulagslögum þurfti
Nirex að sækja um leyfi til að bora
til héraðsstjórnarinnar í Hálöndunum
skosku. Héraðsstjórnin hafnaði er-
indinu. Nirex áfrýjaði til Skotlands-
málaráðherrans, sem samþykkti
umsókn stofnunarinnar. Umhverfis-
málaráðherrann, Michael Heseltine,
hefur endanlegt vald í málinu, en
talið er útilokað, að hann gangi gegn
ákvörðun Skotlandsmálaráðherrans.
Mikil andstaða er gegn þessum
áformum meðal almennings í
Norður-Skotlandi og ákvörðun hér-
aðsstjórnarinnar byggðist á þeirri
andstöðu.
Áramótin eru á morgun J
Nýtt happdrættisár gengur formlega í garð á morgun þegar við
drögum í fyrsta flokki um 29,3 milljónir króna. Þar af er aðalvinningur 5
milljónir króna. Þetta er aðeins byrjunin, því samtals eru 288 milljónir í
vinninga í happdrætti DAS á nýja árinu.
Enn er hægt að eignast miða -
en nú fer hver að verða síðastur.
HAPPDRÆTTl
dae
-þarsem vinningarnlr fást