Morgunblaðið - 07.05.1991, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 1991
Enn nm ferju fyrir
Vestmannaeyj ar
eftir Ólaf J. Briem
í Morgunblaðinu 5. apríl gerir
Sigurður Ingvarsson tilraun til þess
að réttlæta rætnar og tilhæfulausar
ásakanir sínar á hendur Skipatækni
hf. varðandi hönnun á feiju fyrir
Vestmannaeyjar. Gefur Sigurður
þá skýringu á þessu framferði sínu
að hann vilji koma í veg fyrir að
einkaleyfi hans séu notuð við hönn-
un ferjunnar og að hann telji skipið
mjög varhugavert. Skipatækni vís-
ar á bug þeim ásökunum, sem fram
koma í greininni og hefur bréflega
hvatt Sigurð til þess að láta á þetta
mál reyna fyrir dómstólum, ellegar
að hann opinberlega dragi fullyrð-
ingar sínar til baka og biðjist afsök-
unar. Það er hreint með ólíkindum
að maður, sem að eigin sögn er
virtur skipahönnuður, skuli haga
sér eins og raun ber vitni. Þessum
makalausu ásökunum Sigurðar hef-
ur undirritaður svarað að hluta í
grein í Morgunblaðinu 19. mars.
Vegna fyrrgreindrar greinar Sig-
urðar reynist þó nauðsynlegt að
gera nokkrar athugasemdir.
1. Notkun einkaleyfis
Eins og fram hefur komið sakar
Sigurður Skipatækni hf. um að
hafa notað einkaleyfi hans við
hönnun feiju fyrir Vestmannaeyjar.
Þessum ásökunum Sigurðar er vís-
að á bug. Það mætti halda að Sig-
urður væri höfundur að notkun
skrúfukjaia á skipum og að hann
hefði einn einkaleyfi á að nota þá
útfærslu við hönnun skipa. Þetta
er fjarstæða. Meðfylgjandi teikning
er gerð í þeim tilgangi að greina
lesendum frá þeirri þróun sem orð-
ið hefur í gerð skrúfukjala á undan-
fömum ái’um. Sigurður hefur eink-
aleyfi í Bandaríkjunum á mjög sér-
stöku afbrigði þessarar útfærslu og
er sú útfærsla sýnd á teikningunni.
Eins og teikningin glögglega ber
með sér er útfærsla Skipatækni hf.
hin sama og notuð hefur verið af
dönskum og norskum skipahönn-
uðum með góðum árangri.
Það er mjög auðvelt að telja þeim,
sem ekki þekkja til hönnunar skipa,
trú um að einkaleyfi Sigurðar og
sú hönnun, sem Skipatækni hf.
notar við hönnun feiju fyrir Vest-
mannaeyjar, sé eitt og hið sama.
Skipahönnuðir hafa sífellt verið að
gera endurbætur á bollögun skipa
en útilokað er að fá einkaleyfi á
ákveðinni bollögun, nema því aðeins
að sú bollögun sé mjög frábrugðin
hefðbundnum útfærslum. Eins og
sjá má er einkaleyfisútfærsla Sig-
urðar um margt frábrugðin hefð-
bundnum útfærslum og hönnun
Skipatækni hf.
Sigurður gerir svonefndan mið-
kjöl að umræðuefni og telur slíka
útfærslu að sjálfsögðu vera stuld
frá sér. Miðkjölur er þekkt fyrir-
bæri og alls ekki neitt einkaleyfi
Sigurðar. Eins og fram kemur á
teikningunni er miðkjölur Sigurðar
mjög síður og myndar nánast boga-
dregna fleti í ákveðinni íjarlægð frá
skrúfunum. Slík útfærsla mun geta
við ákveðnar aðstæður leitt til betri
skrúfunýtni. Sá miðkjölur sem
Skipatækni hf. notar við hönnun
feiju fyrir Vestmannaeyjar er hins
vegar sömu gerðar og danskir og
norskir hönnuðir hafa notað og er
hlutverk þeirra eingöngu að hindra
högg þegar afturhluti skipsins lyft-
ir sér upp úr sjónum og skellur
aftur niður. Sigurður telur það vera
augljósa sönnun staðhæfinga sinna
um meintan stuld Skipatækni hf.
að slíkur miðkjölur skuli ekki vera
á M/S Baldri. Ástæða þess að ekki
var talin ástæða til að setja miðkjöl
á M/S Baldur var að Baldur er
ekki eins flatbotna og því hefði slík-
ur miðkjölur haft lítil gildi. Með
hliðsjón af þeim aukakostnaði, sem
slíkur miðkjölur hefur á smíðaverð,
var horfið frá slíkum áformum við
hönnun M/S Baldurs.
Sigurður hefur enn í hótunum
um lögbann. Skipatækni hf. skorar
á Sigurð að láta verða af hótun
sinni og láta reyna á fyrir dómstól-
um hvort fullyrðingar hans um
notkun á einkaleyfum hans séu á
rökum reistar. Skipatækni hf. hefur
hins vegar ekki séð ástæðu til að
vera með hótanir í fjölmiðlum og
undirbýr nú málshöfðun á hendur
Sigurði fyrir meiðyrði.
2. Athugasemdir Sigurðar
við hönnun skipsins
Sigurður vitnar f athugasemdir,
sem hann hefur gert við hönnun
feijunnar, fyrst við hönnun 79
metra feijunnar, en hún var hönnuð
af Dwinger Marineconsult A/S í
Danmörku, og síðar við hönnun
Skipatækni á 70,5 metra fetjunni.
Þessar athugasemdir má helst
skoða sem hugmyndir Sigurðar um
hvernig hann hefði gert, hefði hann
verið hönnuður skipsins. Margar af
hans athugasemdum gefa til kynna
að Sigurður þekki alls ekki hönnun-
arforsendur og að hann hafi ekki
skilið eða gert sér grein fyrir mikil-
vægum þáttum, sem ráða því að
okkar lausnir eru taldar betri eða
heppilegri. Þá hefur Sigurður sér-
stakar skoðanir á hvernig haga
skuli stáluppbyggingu skipa. Virð-
ist hann vera nokkuð einn um þá
Ólafur J. Briem
„Skipatækni hf. hefur
farið yfir allar athuga-
semdir Sigurðar og
komið umsögn þar að
lútandi á framfæri við
smíðanefndina. Nefnd-
in hefur ekki séð
ástæðu til að óska eftir
breytingum á hönnun-
inni með hliðsjón af
þessum athugasemd-
um.“
skoðun, því lítið mun vera smíðað
af skipum samkvæmt hans for-
skrift.
í greininni nefnir Sigurður þau
atriði, sem hann telur helst gagn-
rýnisverð og verður hér gerð stutt
grein fyrir þeim.
a) Stöðugleiki og sjóhæfni
Skipatækni hf. hefur gert bráða-
birgðastöðugleikaútreikninga
sem staðfesta að skipið uppfyllir
stöðugleikakröfur, sem tóku gildi
í apríl 1990. Utreikningarnir
hafa hlotið samþykki Siglinga-
málastofnunar ríkisins. Sjóhæfni
skipsins var kannað með prófun-
um í janúar og reyndist skipið
vel í alla staði.
b) Öryggisþil
Öryggisþil þetta er nákvæmlega
skilgreint í smíðalýsingu. Ástæða
þess að þilið var ekki sýnt á þeim
teikningum, sem fylgdu útboðs-
gögnum, var að Skipatækni hf.
vildi eiga viðræður við fyrirtæki,
urnesja og Sjúkrahús Keflavíkur
og við Heilsugæslustöðina í Álfta-
mýri í Reykjavík.
sem sérhæfa sig í hönnun á slík-
um öryggisþilum áður en stað-
setning og gerð yrði sýnd á teikn-
ingum. I alþjóðareglum er að
finna kröfur um slík öryggisþil
og má geta þess að M/S Baldur
er búinn slíku öryggisþili.
c) Plötuþykktir
Skipatækni hf. telur ekki veij-
andi að rýra stöðugleika skipsins
og auka þyngd þess með því að
vera með meiri þykkt á byrðing
ofantil á skipinu en nauðsyn kref-
ur. Efnismál uppfylla kröfur
flokkunarfélaga óg Siglingamál-
astofnunar ríkisins. Óþarfa bruðl
með efni leiðir aðeins til aukinn-
ar olíunotkunar og hærri smíða-
kostnaðar.
d) Röng hlutföli
Hlytföll lengdar, breiddar og
dýptar skipsins ráðast af þeim
hönnunarforsendum, sem Skipa-
tækni hf. voru gefnar í upphafi.
Ríkisstjórn íslands tók ákvörðun
um að skipið skuli ekki vera
lengra en um 70 metrar að lengd.
Breidd og dýpt skipsins ráðast
hins vegar af þeim öiyggiskröf-
um, sem óhjákvæmilega þarf að
uppfylla og svo kröfum útgerðar
til fyrirkomulags, mestu djúp-
ristu og burðargetu. Niðurstöður
prófanna á ganghraða og aflþörf
eru mjög hagstæðar miðað við
þessi hlutföll skipsins.
e) Byggingar- og rekstrarkoslnað-
ur
Skipatækni hf. hefur lagt sér-
staka áherslu á að minnka til-
kostnað við smíði feijunnar og
stuðla að hagkvæmum rekstri
hennar innan þess ramma sem
hönnunarforsendur gefa okkur.
f) Staðsetning á olíugeymum og
björgunarbátum
Hér er enn spurning um þyngdir
og stöðugleika. Mjög strangar
öryggiskröfur eru gerðar til
þessa skips og við höfum leitast
við að uppfylla þær kröfur með
því að velja skynsamlegar og
hagkvæmar lausnir. Hugmyndir
Sigurðar um breytingar á hönn-
uninni munu hafa í för með sér
hækkun þyngdarpunkts skipsins
og rýra stöðugleika þess.
g) Bandabil
Bandabil feijunnar er það sama
og í skipum sömu stærðar. Kost-
ir þess að auka bandabil eru
umdeildir.
h) Ganghraði og aflþörf
Fullyrðingum Sigurðar er vísað
á bug. Við höfum í höndum yfir-
lýsingu frá Danish Maritime
Institute þar sem fram kemur
að sú stofnun hafi ekki borið
saman ganghraða og aflþörf feij-
unnar við önnur skip að beiðni
Sigurðar. Fullyrðingar Sigurðar
um aflþörf og ganghraða eigin
feijuhönnunar eru frá honum
sjálfum og ber að skoða í ljósi
þess.
Staðhæfingum Sigurðar um sam-
anburð á tilboðum, frávikstilboð og
röð tilboðsgjafa er vísað til smíða-
nefndar feiju fyrir Vestmannaeyjar,
en sú nefnd ber ábyrgð á þeim
þáttum málsins.
I grein sinni kvartar Sigurður
sáran yfir að menn hunsi hann og
hans athugasemdir algjörlega.
Skipatækni hf. hefur farið yfir allar
athugasemdir Sigurðar og komið
umsögn þar að lútandi á framfæri
við smíðanefndina. Nefndin hefur
ekki séð ástæðu til að óska eftir
breytingum á hönnuninni með hlið-
sjón af þessum athugasemdum. Í
þessu sambandi er rétt að benda á
að Heijólfur hefur þegar gengið til
samninga um smíði á feiju sam-
kvæmt hönnun Skipatækni hf. þrátt
fyrir athugasemdir Sigurðar.
Greinarhöfundur telur annað í
grein Sigurðar ekki svaravert. Bæði
er að þar er fjallað um samskipti
Sigurðar við ýmsa aðra aðila, sem
tengjast hönnun feijunnar, og er
eðlilegast að þeir svari fyrir sig.
Sigurður notar seinni hluta
greinarinnar til að veija sig og gera
grein fyrir hönnun á Ottó N. Þor-
lákssyni og Esjunni. Þessi skip eru
hönnun feiju fyrir Vestmannaeyjar
óviðkomandi og því engin ástæða
til að svara þeim hluta greinarinnar
hér. Til þess þó að leiðrétta hugsan-
legan misskilning skal þess getið
að Skipatækni hf. átti engan þátt
í hönnun þessara tveggja skipa né
heldur hafði fyrirtækið umsjón með
hönnuninni. Hins vegar annaðist
Skipatækni hf. eftirlit með smíði
Ottós N. Þorlákssonar, eftir að
Bæjarútgerð Reykjavíkur keypti
skipið í smíðum hjá Stálvík hf., og
getur þess vegna dregið ýmislegt
fram í dagsljósið sem best er að
verði látið kyrrt liggja.
Höfundur er skipaverkfræðingur
lijá Skipatækni hf.
Islenskur og breskur
barnalæknir skrifa bók
ISLENSKUR læknir er annar tveggja höfunda að bók, sem gefin
hefur verið út hjá Iæknisfræðideild Oxford University Press (OUP)
í Oxford í Bretlandi þann 28. mars sl. Úlfur Agnarsson barnalæknir
skrifaði bókina ásamt Graham Clayden breskum barnalækni og kall-
ast bókin á ensku „Constipation in Childhood" eða Hægðatregða í
börnum.
Bæði Úlfur og Clayden hafa
starfað mikið með börnum með
hægðatregðu, sem er nú einn al-
gengasti kvilli er hijáir böm á Vest-
urlöndúm og er bókin sumpart
byggð á rannsóknum þeirra á
breskum bömum sem gerð hefur
verið í Lundúnum og borginni Brig-
hton. Sérstakur kafli er um fötluð
böm þar sem hægðatregða er al-
geng, meðferð erfið og vandamálinu
lítill gaumur gefinn. Bókin er sérs-
taklega ætluð barnalæknum, heim-
ilislæknum og hjúkrunarfræðingum
en er einnig aðgengileg fyrir aðrar
heilbrigðisstéttir.
Frá Bretlandi verður bókin sett
á markað á meginlandi Evrópu,
Mið-Austurlöndum og Suður-Amer-
íku en útibú OUP í Bandaríkjunum,
Japan, Ástralíu og víðar ákveða
sjálfstætt hvort/bvernig staðið
verður að útgáfu bókarinnar. Hér
á landi er bókin til sölu í Bóksölu
Stúdenta við Hringbraut.
Úlfur var við nám í barnasjúk-
dómum í Bretlandi 1982-90 og
starfaði fyrst í Skotlandi við barna-
spítala í Dundee, Edinborg og Glas-
gow en sérhæfði sig síðan í melting-
ar- og næringarsjúkdómum barna
í Lundúnum og Brighton. Hann
starfar nú við Heilsugæslustöð Suð-