Morgunblaðið - 07.05.1991, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 1991
PC-Byrjendanámskeið
Notkun tölva byggist á þekkingu og fœrni. Þér býðst
nú 60 tíma vandað nám á sérstaklega góðum kjörum.
Stýrikerfið
Tölvuskóli íslands
Sími: 67 14 66, opið til kl.
Ritvinnsla
Töflureiknir
Liósritunarvélar
Verð frá 49.900 m/vsk.
S KRI FBÆR %
Hverfisgötu 103 - sími 627250
SIEMENS
Fjölhœf hrœrivél!
MK 4450
Blandari, grænmetiskvöm og hakka-
vél fylgja með.
• Allt á einum armi.
• Hrærir, þeytir, hnoðar, blandar,
brytjar, rífur, hakkar og sker.
• ísl. leiðarvísir og uppskriftahefti.
• Einstakt verð: 14.600 kr.
SMITH&NORLAND
NÓATÚNI4 - SÍMI28300
Á UPPSTIGN-
INGARDEGI
eftir Alfreð J.
Jolson, S.J.
Að skiljá er að deyja dálítið!
Þegar við skiljumst við ástvini
okkar og aðra, sem okkur eru kær-
ir, grípur okkur dapurleiki, jafnvel
þótt við vitum að við eigum eftir að
sjá þá á ný. Við finnum að brot af
lífi okkar er þegar að baki.
Sumir veifa á eftir bílnum sem
er að aka á brott, þeim sem er að
ganga út í flugvélina eða langferða-
vagninn. Sumir leggja áherslu á að
loka ekki dyrunum fyrr en vinurinn
eða skyldmennið sem var að fara
er úr augsýn. Dyrnar að heimili
okkar standa þeim ávallt opnar. Það
er merki um kærleika okkar, virð-
ingu og vináttu.
Jesús er að stíga upp til himins
og dapurleiki grípur þá sem eftir
standa. Lærisveinarnir stara upp til
himna löngu eftir að Drottinn er úr
augsýn. Engillinn fullvissar þá um
að hann muni koma aftur.
Jesú nægði ekki að gefa þeim það
loforð. Hann elskaði mennina svo
heitt að hann vildi vera með þeim
um aidur og ævi, vera alltaf tiltæk-
ur, eins í fögnuði og dapurleika og
ekki síður á reynslustundum.
Hiroshima var lögð í eyði 1945
með fyrstu kjarnorkusprengjunni.
Séra Pedro Arrupe, S.J., yfirmaður
Jesúítareglunnar og læknir, fór að
heimsækja unga japanska konu,
Nakimura. Hún hafði snúist til kaþ-
ólskrar trúar, sótti daglega messu
og gekk til altaris. Þar sem húsið
hennar hafði staðið sá hann nú lág-
an vegg, þakinn járnplötum. Þegar
hann skyggndist inn fyrir vegginn,
sá hann Nakimura, helsærða og
brennda, og faðir hennar, gamall
maður, var að sinna henni. Þegar
hann nálgaðist þennan skugga af
ungri, fagurri konu opnaði hún aug-
un, þekkti hann og sagði: „Faðir,
ertu með altarissakramentið?“ Það
sem henni datt fyrst í hug var ná-
vist Krists í altarissakramentinu.
Eftir það kom séra Arrupe daglega
til hennar með sakramentið og gerði
um leið allt sem hann gat fyrir þjáð-
an og særðan líkama hennar. Naki-
mura andaðist í friði að tveim vikum
liðnum. Jesús hafði verið með henni
á hveijum degi.
Jesús er með okkur á þennan
undursamlega hátt, nærstaddur í
kvöldmáltíðarsakramentinu. Bæði
kaþólskir menn og Iúterskir trúa því
að Jesús sé raunverulega nærstadd-
ur í því sakramenti., Rómversk-
kaþólskir menn trúa því að sú ná-
vist hefjist um leið og presturinn
segir yfir brauðinu: „Þetta er líkami
minn,“ og yfír víninu: „Þetta er blóð
mitt“. Undir myndum brauðs og víns
er hinn upprisni Jesús, nú og um
allan aldur, nærstaddur og verður
nærstaddur meðan brauðið og vínið
halda mynd sinni. Þess vegna eru
hafðar nánar gætur á því að ekkert
fari til spillis af því sem eftir kann
að verða af þessum efnum í ka-
þólskri messu og hið helgaða brauð
er geymt í guðslíkamahúsinu. Rauða
ljósið sem logar til hliðar við það
minnir okkur á að hinn upprisni
Kristur er nærstaddur í guðslíkama-
húsinu. Það er af þessari ástæðu sem
kaþólskir ktjúpa á kné eða lúta djúpt
frammi fyrir því.
Lúterskir telja að allir trúi því að
Kristur sé nærstaddur þegar þeir
meðtaka altarissakramentið. Raun-
veruleg návist Krists hefst, að þeirra
skilningi, þegar altarisgesturinn trú-
ir en ekki þegar presturinn hefur
yfír innsetningarorðin. Það er því
munur á skilningi kaþólskra manna
og lúterskra á því, hvernig, á hvaða
hátt, Kristur verði nærstaddur og á
þeim mismuni þarf að finna lausn.
Þessi mismunur er mjög djúptækur
og snertir einnig eðli prestdómsins,
og við þurfum á miklum bænum,
rannsókn og viðræðum að halda til
þess að geta jafnað hann. Hrein-
skilnar viðræður okkar, aukið um-
burðarlyndi og skilningur og gagn-
kvæmur kærleikur til Krists veita
okkur miklar vonir um að einingu
verði komið til leiðar.
En nú, þegar við höldum upp-
stigningardaginn helgan, fögnum
við öll, kaþólskir jafnt sem lúterskir,
yfír návist Krists. Við bíðum ekki
með það eftir endurkomu hans.
Á aðalfundinum kom fram, að
hagnaður af íshúsfélagi Bolung-
arvíkur hf., að teknu tilliti til fjár-
magnsliða, var 12,8 milljónir á síð-
asta ári, þrátt fyrir erfiðleika í
rækjuvinnslu en vinnslan er veru-
legur þáttur í reksfri félagsins.
Fram kom, að áætlað er að rekst-
ur félaganna skili um 200 milljónum
til afskrifta og vaxta á árinu. Hluta-
fé nýja félagsins eftir hlutafjár-
aukningu og sameiningu er 130
milljónir og var samþykkt að heim-
Alfreð J.Jolson, S.J.
„Drottinn mun koma
á sama hátt og þér sáuð
hann fara til himins,
alleljúa.“
Hann er hér! Hann er með okkur í
hinu alhelga altarissakramenti.
í dag þökkum við því Drottni og
biðjum þess að við megum meta
rétt návist hans í altarissakrament-
inu og um leið og við öll, kaþólskir
og lúterskir, snúum aftur frá með-
töku þessa sakramentis, verðum við
öll, hvert fyrir sig, sakramenti, lif-
andi návist Drottins í heiminum sem
við lifum í, og það er á þann hátt,
að Jesús lifir í okkur, sem aðrir
munu kynnast Kristi og læra að
elska hann.
Og nú erum við hinir trúuðu „sem
fóru og prédikuðu hvarvetna, en
Drottinn var í verki með þeim og
staðfesti boðun þeirra með táknum
sem henni fylgdu." (Mk 16, 19-20.)
Höfundur er biskup kaþólskra á
íslandi.
ila hlutafjáraukningu, allt að 200
milljónum. Bókfært eigið fé félags-
ins er um 400 milljónir. Þá var jafn-
framt samþykkt að félagið yrði
opið hlutafélag og eru hluthafar nú
60 talsins.
í stjórn eiga sæti þeir Guðfínnur
Einarsson, Jónatan Einarsson, Guð-
mundur P. Einarsson, Ásberg Sól-
bergsson, Bjarni Snæbjöm Jónsson,
Einar Benediktsson og Guðmundur
Ásgeirsson.
Bolungarvík:
Fiskvinnsla og útgerð
Bolungarvíkur sameinuð
Á AÐALFUNDI Einars Guðfinnssonar hf. á fimmtudag var ákveðið
að sameina íshúsfélag Bolungarvíkur hf., útgerðarfélögin Baldur'
hf. og Vöhistein hf. og sjávarútvegsþátt Einars Guðfinnssonar hf. Á
siðasta ári var velta félaganna 1.130 milljónir og er gert ráð fyrir
að hún verði 1.350 á þessu ári. Starfsmenn eftir sameiningu verða
um 200.
Mest seldu rúmin
í Bandaríkjunum.
Hágæða dýnur
í mörgum
verðflokkum.
Marco
Opið virka daga frá kl. 10—18,
laugardaga frá kl. 11—14.
Langholtsvegi 111, sími 680690