Morgunblaðið - 07.05.1991, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MAI 1991
17
verður hann efniviður í framleiðslu
sjúkrahússins, rétt eins og um sjúkl-
ingaverksmiðju sé að ræða. Hversu
oft er það ekki að dagurinn líður
án þess að einn einasti starfsmaður
(sjúkraliði, hjúk: unarfræðingur,
læknir) hafi haft tíma til þess að.
setjast niður og ræða við sjúkling-
inn á forsendum hans, gefið skjól-
stæðingnum þann tíma sem hann
þarf og á rétt á? Fyrir sjúklinginn
geta mannleg samskipti í hálftíma
eða klukkutíma á dag verið lykillinn
að vellíðan og þar með ein af meg-
inforsendum þess að hann treysti
sér heim og geti útskrifast. En
mannaflastuðull hagræðingar-
sveina fjármálavaldsins gerir ekki
ráð fyrir þessu. Það að tala við
sjúkling og sýna mannlega hlýju
er samkvæmt þeim mælikvarða
sennilega ekki markviss vinna held-
ur bruðl með dýran vinnukraft.
Hvað er til ráða?
Athugasemdir án tillagna um
úrbætur eru nöldur. Og af nöldur-
seggjum er nóg. Að sjálfsögðu eru
öngvar allsherjarlausnir á vandan-
um til. Nema ef væri að eggja nú
valdamenn lögeggjan svo að þeir
taki nú ærlega til hendinni og leysi
vanda sjúkrahúsanna í samráði við
starfsfólk og sjúklinga! Góð sam-
vinna er forsenda þess að lausn
náist.
Neðanskráðar eru nokkrar hug-
myndir sem fram hafá komið í
umræðum meðal samstarfsmanna,
sumar fornar, aðrar nýjar. En þær
eiga það sameiginlegt að of lítið
hefur orðið úr framkvæmdum!
★ Auka mjög heimahjúkrun og
heimahlynningu sjúkra og auð-
velda þeim þannig að vera heima.
Langt er síðan sýnt var fram á að
það er að jafnaði ódýrast og best
að vista sjúklinga í heimahúsi, þar
sem aðstandendur bera meginþung-
ann af umönnuninni. Heimahjúkrun
víða um land hefur unnið ómetan-
legt starf í þessu efni, sem hljótt
er um. Hjúkrunarfræðingar þar
hafa fyrst og fremst sinnt sjúkling-
um með ellisjúkdóma og gert það
að verkum að margir þessara sjúkl-
inga hafa getað verið heima, þrátt
fyrir veruleg mein. Það er reynsla
Heimahlynningar Krabbameinsfé-
lagsins að það séu afar fá vanda-
mál varðandi hjúkrun og líkn sem
ekki er unnt að leysa í heimahúsi,
til dæmis þegar um er að ræða
sjúklinga með krabbamein eða al-
næmi á lokastigi. Það er og reynsla
annarra þjóða að þannig sé málum
farið um ýmsa aðra sjúkdómaflokka
(t.d. öndunarfærasjúkdóma). Aukin
áhersla á heimahjúkrun og heima-
þjónustu frá læknum og öðrum
heilbrigðisstéttum myndi geta létt
mjög álagið á sérdeildum sjúkra-
húsanna og þar með gætu þær sinnt.
hlutverkum sínum betur. Hins veg-
ar er greiður aðgangur að sjúkra-
rými ein meginforsenda góðrar
heimahjúkrunar, enda oft sá þáttur
sem mestu ræður um hvort ættingj-
ar treysta sér til að sinna sjúklingi
heima.
★ Fjölga nyög sjálfstætt starf-
andi hjúkrunarfræðingum og
semja við þá um hjúkrun þeirra
sjúklinga sem Heimahjúkrun annar
ekki. Hópar slíkra gætu tekið sig
saman og sérhæft sig í heimahjúkr-
un ákveðinna sjúklingahópa og
sinnt þeim í samvinnu við heimilis-
lækni og sérfræðinga sjúklings.
Reynsla Heimahlynningar Krabba-
meinsfélagsins af sérhæfingu er
mjög góð.
★ Fjölga langleguplássuin, sem
til þess eins eru ætluð að veita
sérhæfða þjónustu ellisjúkum og
fólki með langvinna sjúkdóma.
★ Viðurkenna í verki að mann-
legi þátturinn í sjúkragæslunni
kostar peninga, enda verður
hann fyrst útundan, þegar spar-
að er.
★ Umbuna því starfsfólki sem
vinnur á deildum þar sem skort-
ur er á vinnukrafti, með því að
láta það njóta þess sem skorturinn
„sparar" í t.d. launaútgjöldum.
Þetta þýðir að starfsfólk (deild),
sem sparar, nýtur sparnaðarins!
★ Stjórnmálamenn taki á sjálfa sig
ábyrgðina sem fylgir því að skera
niður fé til nauðsynjamála eins og
heilbrigðismála, en láti ekki sjúkl-
ingum, fjölskyldum þeirra og heil-
brigðisstéttum einum eftir að taka
afleiðingum niðurskurðarins. Vald-
amenn þurfa einfaldlega að kynna
sér sjúkragæsluna milliliðalaust!
★ Auka til muna möguleika
heilbrigðisstétta til framhalds-
menntunar. Þannig gætu til dæm-
is sjúkraliðar tekið að sér mun fleiri
störf sem nú eru annars unnin af
hjúkrunarfræðingum. Góð reynsla
er af þessu annars staðar á Norður-
löndum.
★ Greiða öllum heilbrigðisstétt-
um mannsæmandi laun, en mis-
nota ekki taumlaust mannkær-
leika og furðulega mikið um-
burðarlyndi þessa fólks.
★ Sveitarfélög á höfuðborgar-
svæðinu og sérstaklega Reykja-
víkurborg, fari að dæmi annarra
sveitarfélaga og umbuni hjúk-
runarfræðingum og öðrum þeim
stéttum þar sem illa gengur að
manna stöður. Allt of margir hjúk-
runarfræðingar fást við önnur störf
en hjúkrun af fjárhags- og fjöl-
skylduástæðum.
★ Hvetja starfsfólk heilbrigðis-
kerfisins og sér í lagi sérfræð-
inga þess að horfa á kerfið í
heild og í samhengi. Hollt er að
minnast þess að þjóðarkakan er
ekki óendanleg og það á að skipta
henni niður fyrst og fremst eftir
faglegum rökum en sfður pólitísk-
um og alls ekki eftir hráum hug-
myndum útlenskum.
Það er mælikvarði á menningar-
stig hvers samfélags hvernig það
býr að þeim sem minnst mega sín.
Og heilsugæsla og sjúkrahús eru
þeim ætluð. Missum ekki sjónar af
því!
Höfundur er sérfræðingur á
krabbameinsdeild Landspítalans
ogannaraf tveimur læknum
heimahlynningar
Krabbameinsfélags íslands.
SIEMENS
Kæliskápur á kostaverði!
KS 26V00
• 148 x 60 x 60 sm (hæð x breidd x dýpt).
• 189 lítra kælirými.
• 67 lítra fjögurra stjörnu frystihólf.
Afborgunarveró: 55.900,- kr.
SMrTH & NORLAND
NÓATÚNI4-SÍMI 28300
FARKÐRT
greiðslukort með fríðindum
HYGGINN MAÐUR
SPARAR
- með Farkorti
FARKORT er alþjóðlegt greiðslukort, gefið út
af Félagi íslenskra ferðaskrifstofa og VISA
ÍSLAND.
FARKORTI fylgja sömu réttindi og venjulegum
VISA-kortum, en að auki margskonar fríðindi
heima og erlendis.
Ferða/slysa- og farangurstryggingar og
helmings afsláttur af forfallatryggingu.
Afsláttur á fjölmörgum skemmtistöðum,
veitingahúsum, hótelum og bílaleigum
innanlands.
Ódýrar öræfaferðir.
Afsláttur á skoðanaferðum íslenskra
ferðaskrifstofa erlendis.
7-10% afsláttur af tilteknum ferðum til
helstu sumarleyfisstaða Evrópu. Þessar
ferðir eru auglýstar með góðum fyrirvara.
Á eftirtöldum stöðum innanlands njóta
Farkortshafar afsláttar:
VEITINGAHÚS: Gullni haninn, Pizzahúsið,
Naust, Lækjarbrekka, Argentína, Sælkerinn og
Sjanghæ í Reykjavík, Bakki á Húsavík, Hótel
SKEMMTISTAÐIR: Hótel ísland, Hótel Borg
og Danshöllin, Reykjavík, Krúsin ísafirði, Hótel
Selfoss, Selfossi og Sjallinn, Akureyri.
HÓTEL: Hótel Esja, Hótel Loftleiðir og Hótel
Höfði, Reykjavík, Hótel Keflavík og Flughótel,
Keflavík, Hótel KEA, Akureyri,
Hótel Bláfell, Breiðdalsvík og Hótel
Selfoss, Selfossi.
BÍLALEIGUR: Bílaleiga ÁG, Bílaleiga
Flugleiða og Bílaleigan Geysir, Reykjavík,
Bílaleigan Höldur og Bílaleigan Örninn.
Akureyri.
ANNAÐ: Sinfóníuhljómsveit fslands og
FARVÍS - tímarit um ferðamál.
HYGGINN MAÐUR HEFUR FARKORT
ALLTAF VIÐ HÖNDINA.
o
o
o
o
o