Morgunblaðið - 07.05.1991, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MAI 1991
15
Vegurinn til lífsins
eftir Árna
Þórðarson
„En það er hið eilífa líf að þekkja
þig, hinn eina sanna Guð, og þann
sem þú sendir Jesúm Krist.“ Jóh.
17:3.
Flestir íslendingar hafa einhvern
tíma á lífsleiðinni heyrt minnst á
Drottin Jesú Krist og þar af leiðir
að flestir þekkja hann af afspurn,
en hversu margir skyldu í raun og
veru þekkja hann þannig að þeir
eigi persónulegt samfélag við hann?
Islenska þjóðin er kristin að nafn-
inu til, það er að segja við erum
flest skírð sem ómálga börn og svo
síðar meir þá fermumst við.
Að skírast sem ómáiga barn og
síðan skírninni til staðfestingar að
fermast, er í rauninni gjörólíkt því
að þekkja Guð með því að eiga
persónulegt samfélag við eingetinn
son hans Jesú Krist.
Við getum farið í Guðs hús, beð-
ið faðir vorið eða einhverjar bænir
sem einhveija rullu og jafnvel trúað
á tilvist Guðs og samt sem áður
farið á mis við að þekkja Guð og
þann sem hann sendi Jesú Krist.
Eg lifði sjálfur þannig lífí, vonlaus
og Guðvana í heiminum. Ég hafði
alltaf trúað á tilvist Guðs, en samt
sem áður átti ég ekki neina sér-
staka reynslu með honum sem per-
sónulegum Guði sem gæti mætt
öllum þörfum mínum til anda, sálar
og líkama.
Ég var skírður sem ómálga barn
og fermdur og átti þar með hina
svokallaða barnatrú, en samt sem
áður átti ég ekki neitt persónulegt
samfélag við Jesú Krist. Síðan þeg-
ar ég varð tuttugu og eins árs gam-
all varð ég þeirrar náðar aðnjótandi
að eignast persónulegt samfélag við
Jesú. Ég ákallaði nafn Drottins í
neyð minni og bað hann um að
fyrirgefa mér syndir mínar og þá
fann ég fyrirgefandi kærleika Guðs
streyma inn í veru mína. Hvflík
huggun að finna fyrir nærveru
Guðs, á þessu sama andartaki
breyttist allt og ég varð sem nýr
maður.
Þó að Jesús Kristur sé mér og
mörgum öðrum raunverulegur á
þennan hátt, þá er það því miður
sorgleg staðreynd að fjöldinn fer á
mis við þennan fyrirgefandi kær-
leika sem Guð hefur gefið okkur í
Kristi Jesú.
Guð vili að allir menn verði hólpn-
ir og komist til þekkingar á sann-
leikanum sem er í Kristi Jesú. Þess
vegna dæmir Guð aldrei þann sem
kemur til hans með iðrandi hjarta.
Samt sem áður er það algengt í dag
að menn þola ekki lengur að heyra
hina heilnæmu kenningu, heldur
hópa þeir að sér kennurum eftir
eigin fýsnum sínum til að heyra það
sem kitlar eyrun. Menn snúa eyrum
sínum burt frá sannleikanum og
hverfa að- ævintýrum. Menn eru að
gera það sem Drottin Guð hefur
fyrirskipað okkur í orði sínu að
gera ekki. „Eigi skal nokkur fínnast
hjá þér, sá er láti son sinn eða dótt-
ur ganga gegnum eldinn, eða sá
er fari með galdur eða spár eða
fjölkynngi éða töframaður eða
gjörningamaður eða særingamaður
eða spásagnamaður eða sá er leiti
frétta af framliðnum. Því hver sá
er slíkt gjörir er Drottni andstyggi-
legur.“ 5. Mós. 18:10-12.
í stað þess að menn elski sann-
leikann og taki við Jesú Kristi sem
frelsara sínum þá vilja þeir frekar
stunda andleg ævintýri. Menn eru
að stunda það sem Drottinn hefur
bannað okkur í orði sínu. „Þá mun
lögleysinginn opinberast, en honum
H.Þ0RGRÍMSS0N&C0
ABETE*^at
HARÐPLAST Á BORÐ
ÁRMÚLA 29, SÍMl 38640
mun Drottinn Jesús tortíma með
anda munns síns og að engu gjöra
þegar hann birtist við endurkomu
sína. Lögleysinginn kemur fyrir til-
verknað Satans með miklum krafti,
lygatáknum og undrum og með alls-
konar ranglætisvélum, sem blekkja
þá sem glatast, af því að þeir elsk-
uðu ekki sannleikann svo að þeir
mættu verða hólpnir, þess vegna
sendir Guð þeim megpia villu, til
þess að þeir trúi lyginni. Þannig
munu allir þeir verða dæmdir sem
hafa ekki trúað sannleikanum, en
„Því miður sorgleg
staðreynd að fjöldinn
fer á mis við þennan
fyrirgefandi kærleika
sem Guð hefur gefið
okkur í Kristi Jesú.“
haft velþóknun á ranglætinu.“ 2.
Þess. -2:8-12.
Orð Guðs upplýsir okkur greini-
lega um að við glötumst, ef við eig-
um ekki lifandi samfélag við Jesú
Krist.
„Þegar Drottinn opinberast af
himni með englum máttar síns.
Hann kemur í logandi eldi og lætur
hegningu koma yfir þá, sem þekkja
ekki Guð, og yfir þá sem hlýðá
ekki fagnaðarerindinu um Drottin
vorn Jesú. Þeir munu sæta hegn-
ingu, eilífri glötun, fjarri augliti
Drottins og fjarri dýrð hans og
mætti.“ 2. Þess. 1:7-9.
Ég vil hvetja þig, lesandi góður,
að gera eitthvað í þínum málum
áður en það er um seinan, því að
hvað stoðar það manninn að eign-
ast allan heiminn ef hann fyrirgjör-
ir sálu sinni?
Höfundur starfar sem sölumaður
og er búsettur í Kópavogi.
í tilefni af Alheimsátaki til hjálpar stríðshrjáðum gengst Rauði kross íslands
fyrir fjölskyldusamkomu í miðborg Reykjavíkur næstkomandi
miðvikudagskvöld 8. maí.
Þar fer fram almennings SKOKK / HLAUP / GANGA,
STYRKTARHLJÓMLEIKAR með öllum helstu hljómsveitum íslenskum
ásamt Hemma Gunn og Dengsa og loks mynda viðstaddir LJÓSAKEÐJU
með logandi kertum.
SKOKK
HLAUP
GANGA
Lagt verður af stað frá
íslandsbanka, Lækjargötu 12.
Þátttakendur geta valið um
lítinn eða stóran hring, allir geta
verið með, þátttaka er
aðalatriðið.
Mæting er kl. 18:45 og ræst
verður kl. 19:00.
Þátttökunúmer kosta 200 kr.
innifalið er happdrættisnúmer
og ljós í ljóskeðjuna.
Númerín eru til sölu á
efíirtöldum stöðum:
REYKJAVÍK:
Sportmaðurinn, Hólagarði
Ástund-sportvörudeild, Austurveri
Útilíf, Glæsibæ
Bikarinn, Skólavörðustíg 14
Sportval, Kringlunni 8-12
Vesturbæjarapótek, Melhaga 28-22
HAFNARFJÖRÐUR:
Músik og sport, Reykjavíkurvegi 60
GARÐABÆR:
Sælgætis- og Vídeohöllin,
Garðatorgi 1
KÓPAVOGUR:
Sportbúð Kópavogs, Hamraborg 22
MOSFELLSBÆR:
G.S. Söluturn og Vídeoleiga,
Háholti 14
SELTJARNARNES:
Sportlíf, Eiðistorgi
Og frá kl. 18:00 miðvikudaginn
við íslandsbankahúsið.
Dregið verður í happdrættinu
eftir skokkið.
SOL UR
Alheimsátak
til hjálpar stríðshrjáðum
• •
STUDNINGS-
HLJÓMLEIKAR
í Lækjargötu frá kl. 20:00 til
23:00
Fram koma:
Stjórnin
Sykurmolarnir
Ný dönsk
Rokklingarnir
Síðan skein sól
Hemmi Gunn stjórnar
samkomunni með dyggri
aðstoð Dengsa.
• #
LJOSAKEÐJA
Um kvöldið myndar fólk ljósakeðju
með logandi kertum. Slík ljósakeðja
verður mynduð víða um heim til að
tákna samstöðu um alheimsátakið.
Kertin verða seld í miðborginni frá kl.
18:00 á miðvikudag. Einnig fylgja þau
skráningarnúmerum í skokkið.
••
FJOLMENNUM I MIÐBORGINA A
MIÐVIKUDAGSKVÖLD
Heimilistæki-PHILIPS styrkir hlaupið og Ijósakeðjuna